Morgunblaðið - 30.08.2000, Side 9

Morgunblaðið - 30.08.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 C 9 4. Æ fleiri vilja taka þátt í umræðunni um stjórn fískveiða og sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins UMHVERFISMÁL tengjast fisk- veiðistjórnun sífellt meira. Alþjóð- legum reglum um viðskipti með fiskafurðir fjölgar og fleiri og fleirí vilja skipta sér af fiskveiðistjórnun. Margir telja allt of nálægt fiski- stofnunum gengið en mat fiski- deildar Landbúnaðar- og matvæla- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, er að 27% fiskistofnanna séu ofveidd. Verið ræddi þessi mál við Grím Valdimarsson, forstöðumann fiskiðnaðarsviðs fiskideildar FAO, og spurði fyrst um heimsaflann, en hann jókst á síðasta ári um 6 millj- ónir tonna að meðtöldu fiskeldi, eft- ir samdrátt árið áður. Framboð af fiskmeti jókst árið 1999 „Nú liggur það fyrir að árið 1998 féll fiskframleiðslan úr veiðum og eldi niður í 117 milljónir tonna, úr 122 árið áður. Það var einkum vegna hlýsjávarstraumsins E1 Nino við Suður-Ameríku, en hann dreg- ur verulega úr viðgangi fiskistofna á þeim slóðum. Nú liggur einnig fyrir fyrsta mat á heildarfiskaflan- um í heiminum á síðasta ári og lítur út fyrir að fiskframleiðslan nái sér á strik á ný og verði um 123 millj- ónir tonna. Þessar tölur þarf hins vegar að skoða í nýju ljósi því fyrir liggur að í einu landi, það er Kína, er þróunin svo gjörsamlega úr takti við það, sem er að gerast annars staðar að skoða verður Kína annars vegar og heimsframleiðsluna án Kína hins vegar. Hlutur Kína í heimsfram- leiðslu á fiski nú er um 32%. Þar í landi hefur orðið svo gríðarlegur vöxtur, einkum vegna fiskeldis, að framleiðslan hefur um það bil sjö- faldazt á liðlega einum áratug. Þar af er fiskeldið orðið meira en helm- ingur. Fiskframleiðslan án Kína stend- ur hins vegar í stað þrátt fyrir auk- ið fiskeldi, enda hefur framlag veiða úr sjó og vötnum minnkað úr 83 milljónum tonna árið 1988 niður í 69 milljónir tonna árið 1999. Á heimsvísu hefur fiskneysla á mann vaxið stöðugt á síðustu áratugum og aldrei verið hærri en nú eða um 16% af allri neyslu dýrapróteina." 37% af öllum fiski í milliríkjaverslun Fer ekki mikilvægi viðskipta með fisk stöðugt vaxandi? „Það er mikið að gerast í alþjóða- viðskiptum með fisk og fiskafurðir. Nú er talið að um 37% af öllum fiski séu seld milli landa og er hann því mikilvæg útflutningsvara. Þar er hlutur þróunarlandanna um það bil helmingur og skipta þessi við- skipti þau gríðarlega miklu máli. Nettótekjur þeirra af þessum fiskviðskiptum hafa á síðustu 10 ár- um aukist úr 10 milljörðum dollara í 17 milljarða. Tekjur þeirra af útflutningi á fiski og fiskafurðum eru orðnar meiri en samanlagðar tekjur af út- flutningi á kaffi, banönum, tei og kjöti. Tæpur helmingur fiskistofnanna fullnýttur Hvernig er staða helztu fiski- stofna? „FAO fylgist náið með nýtingu 590 fiskistofna víða um heim. Þeir eru flokkaðir eftir ástandi, en reyndar er misjafnt hve góðar upp- lýsingar liggja fyrir um þá. Staðan nú er metin þannig, að vannýttir og lítt nýttir stofnar eru 25%, fullnýttir stofnar eru 47%, oveidd eru 18% stofnanna og 9% teljast hrunin, en 1% er að byggj- ast upp eftir að hafa hrunið.“ Er staðan betri eða verri en ver- ið hefur? „Fjölda stofna sem eru vannýttir fer fækkandi en þeim sem eru of- nýttir fjölgandi. Þá erum við að tala um þróun á síðustu 25 árum. Fjöldi fullnýttra stofna hefur hins vegar verið nokkuð stöðugur og við 50% markið á þessu tímabili. Markmiðið er að sjálfsögðu að fullnýta fiskistofnana á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Margir hafa hins vegar áhyggjur af því að tækniþróunin er svo ör og fískimenn svo fljótir að tileinka sér nýja tækni, að stjórnkerfin til að Rödd útvegsins heyrist ekki nógu vel Morgunblaðið/HG Grímur Valdimarsson, forstöðumaður fiskiðnaðarsviðs fískideildar FAO. Fiskveiðar eru og verða mikilvægar í fæðuöflun ------ — ? fyrir heimsbyggðina. A síðasta ári jókst fram- boð á físki úr veiðum og eldi um 6 milljónir tonna og er öll sú aukning úr fiskeldi. Hjörtur Gísla- son ræddi þessi mál við Grím Valdimarsson, forstöðumann fískiðn- aðarsviðs FAO í Róm, en umræðan um físk- veiðistjórnun og kröfur um upprunamerkingar og aukið heilnæmi fískafurða verða æ háværari. halda veiðunum innan æskilegra marka, eru þar langt á eftir. Dragi maður lærdóm af reynslu þeirra þróuðu landa, sem hafa gengið í gegnum þetta ferli, þarf enga snilli- gáfu til að sjá að það er mjög lík- legt að margar fiskveiðiþjóðir muni lenda í vandræðum áður en þær ná stjórn á veiðunum. Menn hafa með öðrum orðum áhyggjur af því að of veiddum stofnum muni halda áfram að fjölga verði ekki gert stórátak í því að hjálpa þróunarlöndum við að koma sínum málum í rétt horf.“ Veiðiréttinn þarf að skilgreina Hvernig er fiskveiðistjórnun í heiminum á vegi stödd og hvernig er stærð fiskiskipaflotans sniðin að auðlindinni? „Fyrirkomulag fiskveiðistjórnun- ar og veiðiréttinda er mikið rædd um þessar mundir enda víða pottur brotinn í þeim efnum. Skoðanir manna á því hverning sé skynsam- legast að koma þessum málum fyr- ir er mjög mismunandi eins og við þekkjum af umræðunni hér heima. Flestar fiskveiðiþjóðir eru rétt að byrja á þessari umræðu og ræða mismunandi leiðir. Meginatriðið er að veiðirétturinn sé skýrt skil- greindur í lögum og að fiskveiði- stjórnun í samræmi við þennan rétt sé framkvæmanleg. Víðast hvar er fiskveiðirétturinn illa skilgi-eindur og aðgangur að fiskimiðunum víða nánast óheftur. Mikið er óunnið á þessu sviði og ætlar FAO sér að leiðbeina löndum um kosti og galla mismunandi leiða í fiskveiðistjórn- un. Hins vegar er það alfarið land- anna sjálfi-a að velja þær leiðir sem þau telja henta sínum aðstæðum. Veiðarnar standa vel undir sér Upp úr 1990 voru birtar skýrslur frá FAO um að tekjur af fiskveiði- flotanum nægðu engan veginn fyrir útgjöldum hans. Þar var talað um að 54 milljarða bandaríkjadali vant- aði upp á að endar næðu saman, eða 4.300 milljarða íslenzkra króna. Þetta var tilraun FAO til að meta heildarstærðir, án þess að skoða af- komu einstakra útgerða og því ljóst að stór skekkjumörk yrðu á útkom- unni. Á undanförnum árum hefur þessari vinnu verið fylgt eftir og staðan verið skoðuð hjá útgerðum víða um heim. í ljós hefur komið, að víðast standa þessar veiðar vel undir sér og afla tekna ekki aðeins fyrir rekstrarkostnaði, heldur einn- ig fjárfestingum og endurnýjun. Þótt merkilegt megi virðast á þetta jafnvel við um veiði úr ofveiddum stofnum. Ymsar skýringar hafa verið gefn- ar á þessu misræmi t.a.m að í fyrri könnuninni var reiknað með að öll skráð skip væru í notkun, einnig að ríkisstyrkir koma tekjumegin í síð- ari könnuninni því ekki var unnt að skilja þá frá. Nú eru aðrar rannsóknir í gangi til að meta umfang opinberra styrkja og þótt niðurstaða liggi ekki fyrir ennþá bendir margt til þess að þeir séu mun minni en áður var tal- ið. Með þessari vinnu er FAO að reyna að gera grein fyrir helstu hagstærðum í útgerðinni og þ.á m. hve stóran flota þarf til að veiðarnar séu sjálfbærar, en lauslegt mat bendir til þess að heimsflotinn sé um það bil þriðjungi of stór.“ Þrætubókarlist Hvernig eru niðurgreiðslur eða ríkisstyrkir metnir Telst ókeypis aðgangur að auðlindinni til dæmis ríkisstyrkur? „Þetta er umræða, sem er kannski gott dæmi um þá þrætu- bókarlist sem nú er stunduð um mörg mál sem tengjast sjávarút- vegi. Er menntun sjómanna styrk- ur, er uppbygging samgangna og hafnargerð styrkur, rannsóknir og svo framvegis. Það heyrist sú skoð- un að ókeypis aðgangur að auðlind- inni sér hreinn ríkisstyrkur. Þessi umræða er að mínu mati á byrjun- arreit og það mun taka langan tíma að komast að niðurstöðu. Eg tel hins vegar að FAO sé rétti vett- vangurinn til að ná fram sameigin- legum skilningi á þessum málum því það er afar mikilvægt í nýju alþjóð- legu viðskiptaumhverfi." Mikið um alþjóðlegar reglugerðir Alþjóðlegum reglugerðum og lög- um um viðskipti með fisk fer fjölg- andi. Hvað er þar helzt á döfinni? „Það er mikið að gerast í því al- þjóðlega regluverki, sem snertir sjávarútveginn og viðskipti með fisk og fiskafurðir. Eins og íslend- ingar þekkja er HCCAP-fram- leiðslueftirlit orðið skylda við inn flutning á fiski m.a. til Bandaríkj- anna og Evrópusambandsins. Næsta verkefni á þessum vettvangi er að tengja HÁCCP-eftirlit við áhættumat, sem er krafist í reglum sem falla undir Alþjóðaviðskipta- málastofnunina (WTO). Ekki er gert ráð fyrir því að næsta samningalota Alþjóðavið- skiptamálastofnunarinnar, fjalli um fisk sérstaklega en nú er hins veg- ar orðið ljóst að eitt af þemum þeirra samninga verður sjálbær þróun og umhverfismál og því lík- legt að fiskveiðar komi á dag- skrána. Fari svo er líklegt að leitað verði eftir alþjóðlegu samkomulagi, sem miði að því að minnka eins og mögulegt er neikvæð áhrif fisk- veiða á umhverfið og lífríkið í heild og jafnvel tengja það viðskiptum með fisk. Og það er stórt mál. Sókn og vörn I þessum bardaga má segja að umhverfisverndarsinnar séu í sókn og sjávarútvegurinn í vörn. Sjávarútvegurinn sakar um- hverfisverndarsinna um að vera með fullyrðingar, sem ekki fái stað- izt og séu í bezta falli byggðar á veikum forsendum og í versta falli sé hreinlega verið að rangtúlka og misnota tölulegar upplýsingar. Þegar á heildina er litið virðist vörn sjávarútvegsins felast í þögn og voninni um það að þessum „truflunum" ljúki og þeir geti stundað sínar fiskveiðar í friði. Ég er reyndar orðinn sannfærð- ur um það að í allri þessari umræðu á alþjóðavettvangi, þar sem um- hverfissinnar eru mjög virkir, að þar vanti meiri og beinskeyttari þátttöku sjávarútvegsins, ekki síst útgerðarinnar. Rödd útvegsins heyrist ekki nógu vel. Hann verður að vera miklu sýnilegri en hann er og hafa sterka talsmenn. Hann verður einnig að koma sér upp skoðun á öllum megin ágreiningsefnum, sem fyrir liggja. Það má líkja þessari stöðu við það þegar iðnaður í mörg- um löndum lá undir miklu ámæli vegna mengunar. Viðbrögð iðnað- arins hafa í seinni tíð verið að taka að eigin frumkvæði upp gæða- stjórnun,og umhverfisstjórnun og þetta mætti sjávarútvegurinn taka sér til fyrirmyndar. Að mínum dómi verður sjávar- útvegurinn að ræða þessi mál og komast að niðurstöðu um hvað er skynsamlegt að gera og hvaða markmið er raunhæft að setja sér. Brottkast Það má taka sem dæmi umræð- una um brottkast á afla. Ailir, sem hafa verið á sjó, vita að það er óraunhæft að henda alls engu. En hvað er raunhæft í þessu efni? Að allt eða nær allt eigi að koma að landi? Hverju á að leyfa að henda? Hvað til dæmis með skráningu á afla sem hent er? Það eru lög um þetta á Islandi, en þau eru ekki nógu skýr. Annað snýr að „ólögleg- um“ fiskveiðum og veiðum þar sem afli er ekki gefinn upp, en um það vandamál verður sérstök ráðstefna í Róm í haust. Þar verður fjallað um það hvernig taka eigi á þessum veiðum, skipum sem standa utan svæðisbundinna fiskveiðiráða, en stunda veiðar á viðkomandi svæði og hafa í raun leyfi til þess. Hér verður örugglega kallað eftir við- brögðum útvegsmanna." Margt á döfinni Hvað er framundan hjá fiskideild FAO? „Helstu mál sem stjórnarnefndir FÁO hafa ákveðið að við vinnum að á næstunni eru: Alþjóðleg áætlun um hvernig halda megi stærð veiði- flotanna í skefjum, hver áhrif nið- urgreiðslna og ríkisstyrkja eru á fiskveiðar, meta umfang „ólög- legra“ fiskveiða og áhrif þeirra á fiskveiðistjórnun, umhverfismerk- ingar á fiskafurðum eru enn á dag- skrá og loks líffræðilegur fjöl- breytileiki og genabreyttar lífverur í fiskeldi. Svona í návígi við FAO held ég þó að menn verði mest varir við upplýsingakerfin sem fiskideildin er að þróa. Stefnt er að því að menn hafi nánast allar þær upplýsingar sem þeir vilja um veiðar, vinnslu, heil- næmi og viðskipti með fisk, fisk- veiðar einstakra landa, ástand fiskistofna, fiskveiðistjórnun, reglur og reglugerðir um fiskafurð- ir, verðþróun og svo framvegis. Ég held því að upplýsingabyltingin verði það, sem menn taka mest eft- ir hjá FAO á næstu árum. Fiskideild FAO leggur fiskihlut- ann til í upplýsingakerfi á vegum Sameinuðu þjóðanna sem nefnist Atlas heimshafanna. Þar mun verða hægt að finna allt sem snýr að hafinu og nýtingu þess. Ég tel því að íslenzkur sjávar- útvegur muni hafa meira og meira af upplýsingum að sækja til okkar,“ segir Grímur Valdimarsson. 10 vinsælustu fiskafurðirnar í Bandaríkjunum B"9“mftúipunc/j 1992 punó 1993 pmó 1994 pmó 1995 prnó 1996 punó 1997 punó 1998 pund 1999 punó 1. Túnfiskur 3,50 lúnfiskur 3,50 Túnfiskur 3,30 Túnfiskur 3,40 Túnfiskur 3,20 Túnfiskur 3,10 Túnfiskur 3,40 Túnfiskur 3,50 2. Rækja 2,50 Rækja 2,50 Rækja 2,60 Rækja 2,50 Rækja 2,50 Rækja 2,70 Rækja 2,80 Rækja 3,00 3. Ufsi 1,23 Ufsi 1,20 Ufsi 1,52 Ufsi 1,52 Ufsi 1,62 Ufsi 1,64 Ufsi 1,65 Lax 1,70 4. Þorskur 1,08 Þorskur 1,03 Lax 1,11 Lax 1,19 Lax 1,44 Lax 1,29 Lax 1,38 Ufsi 1,57 5. Leirgedda 0,91 Lax 0,33 Þorskur 0,93 Þorskur 0,98 Þorskur 0,92 Þorskur 1,06 Leirgedda 1,06 Leirgedda 1,16 6. Lax 0,87 Leirgedda 0,98 Leirgedda 0,86 Leirgedda 0,86 Leirgedda 0,89 Leirgedda 1,02 Þorskur 0,97 Þorskur 0,77 7. Smyrslingur 0,62 Flatfiskur 0,62 Smyrsiingur 0,54 Smyrslingur 0,57 Smyrslingur 0,52 Smyrslingur 0,46 Krabbi 0,57 Krabbi 0,54 8. Flatfiskur 0,51 Smyrslingur 0,58 Flatfiskur 0,36 Krabbi 0,32 Flatfiskur 0,38 Krabbi 0,42 Flatfiskur 0,39 Smyrslingur 0,46 9. Krabbi 0,33 Krabbi 0,37 Krabbi 0,31 Flatfiskur 0,30 Krabbi 0,33 Flatfiskur 0,33 Smyrslingur 0,39 Flatfiskur 0,39 10. Hörpudiskur 0,27 Hörpudiskur 0,25 Hörpudiskur 0,29 Hörpudiskur0,24 Hörpudiskur 0,27 Lúöa 0,29 Ostrur 0,23 Hörpudiskur 0,20 ( (

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.