Morgunblaðið - 15.09.2000, Síða 6
6 G FÖSTtJDAGUR 15. SEPTEMBER 20Ó0
BÍÓBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Frumsýning /Bíóhöllin, Kringlubíó og Bíóborgin frumsýna
rómantísku gamanmyndina High Fidelity meö iohn Cusack í
aöalhlutverki í leikstjórn Stephen Frears.
John Cusack: Eigandi plötubúðar og
veit allt um tónlist.
High Hdelity: John Cusack og Lili Taylor
í hlutverkum sínum.
Lífió.. ..
er tonlist
Lífið er tónlist
Leikarar:
ROB Gordon (John Cusack) er eig-
andi plötubúðar í Chicago sem
gengur ekkert alltof vel. Hann selur
ekki annað en vínilplötur og er ófor-
betranlegur tónlistarfíkill og alaeta
á tónlist. Starfsmenn hans eru Dick
(Todd Louiso) og Barry (Jack
Black). Þessir þrír vita allt um tón-
list og tala varla um annað og búa
til allskonar leiki í kringum það en
tónlistarþekkingin kemur Rob að
litlu gagni þegar kærastan hans,
Laura (Iben Hjejle), segir skilið við
hann.
Rob sér að líklega neyðist hann
til þess að taka breytingum. Hann
er eftir allt kominn á fullorðinsárin.
Þannig er söguþráðurinn í róm-
antísku gamanmyndinni High Fid-
elity sem frumsýnd er í Sambíóun-
um með John Cusack í aðalhlutverk
en með önnur hlutverk fara Todd
Louiso, Jack Black og Iben Hjejle
ásamt leikurum eins og Lisa Bonet,
Catherine Zeta-Jones, Joan Cus-
ack, Tim Robbins og Lili Tayior.
Leikstjóri er Bretinn Stephen
Frears en handritið gerir Cusack
sjálfur ásamt Scott Rosenberg.
Það er byggt á vinsælli skáldsögu
Nick Hornbys með sama nafni.
Það eru sömu mennirnir sem
gera þessa mynd og stóðu að baki
gamanmyndarinnar Grosse Pointe
Blank en þeir eru handritshöfund-
arnir og framleiðendumir Cusack,
D.V. DeVincentis og Steve Pink.
„Saga Nick Hornbys var metsölu-
bók og hún varð það vegna þess að
hún var ekki aðeins fyndin heldur
líka mjög heiðarleg," er haft eftir
Cusack. Hann ákvað að verða sér
úti um kvikmyndaréttinn og færði
sögusviðið frá London til Chicago.
„Við töluðum um það við Nick Horn-
by,“ segir Cusack, „og hann sagði
að sagan hans fjallaði um allt annað
og miklu meira en landafræði.
Leikstjóranum Stephen Frears
var það ekki á móti skapi að kvik-
mynda söguna í Chicago enda segir
hann handritshöfundana hafa stað-
fært söguna af miklu innsæi. „Þeir
hafa sett í handritið sinn eigin
bakgrunn og uppeldi og þá þekk-
ingu sem þeir hafa á borginni og
John Cusack, Todd Louiso,
Jack Black, Iben Hjejle, Lisa
Bonet, Catherine Zeta - Jones,
Joan Cusack, Tim Robbins og
Lili Taylor.
Leikstjóri:____________________
Stephen Frears (Dangerous
Liaisons, The Hi-Lo Country,
Hero, The Snapper, Mary Reilly,
My Beautiful Laundrette).
það virkar mjög vel.“ Hann var
mjög hrifinn af því að Cusack skildi
taka að sér aðalhlutverkið. „Þegar
kom fram þessi hugmynd að Cus-
ack færi með aðalhlutverkið byrj-
uðu þeir að færa sögusviðið til
Chicago. Það var mjög ánægjulegt
að John skyldi taka hlutverkið að
sér. Hann kveikir líf í myndinni á
alveg einstæðan hátt.“
Þeir unnu áður saman Cusack og
Frears við gerð myndarinnar The
Grífters árið 1990 og þekkjast því
frá fomu fari. „Ég hef þekkt Frears
síðan og verið í sambandi við hann
og hann er einn af vinum mínum,“
segir leikarinn. „Við sendum hon-
um handritið og bjuggumst við því
að hann hafnaði starfinu en hann
var mjög jákvæður. Það er ekki oft
sem gefst tækifæri til þess að vinna
með eins góðum leikstjóra og hon-
um.“
Frumsýning /Regnboginn, Sam
bíóin Álfabakka og Borgarbíó Akureyri
frumsýna bandarísku teiknimyndina
TitanA.E.
Nýjasta teiknimynd Dons Bluth: Jarðarbúar reyna að reisa jörðina úr rúst-
um.
"tír-
imingeimsins
Bandaríska teiknimyndin Titan A.E.
segir frá því þegar hópur jarðarbúa
lifir af eyðileggingu jarðar og leitar
um útgeiminn að Titan - vélinni, sem
getur hjálpað þeim að endurskapa
heimili sitt, jörðina.
Hún verður frumsýnd í dag í
þremur kvikmyndahúsum bæði á
frummálinu og með íslenskri talsetn-
ingu. Á frummálinu fara Matt Dam-
on, Drew Barrymore og Bill Pullman
með helstu hlutverkin en í íslensku
talsetningunni eru hlutverkin í hönd-
um Hilmis Snæs Guðnassonar,
Pálma Gestssonar, Þórunnar Lárus-
dóttur, Þórhalls Sigurðssonar
(Ladda), Hjálmars Hjálmarssonar,
Theódórs Júlíussonar, Egils Ólafs-
sonar, Karls Ágústs Úifssonar,
Magnúsar Ólafssonar, Valdimars
Flygenrings, Stefáns Karls Stefáns-
sonar, Ólafs Darra Ólafssonar o.fi.
Leikstjórar myndarinnar eru Don
Bluth og Gary Goldman. Bluth er
gamalreyndur teiknimyndasmiður
(Amerícan Tail) og segist ekki alveg
Frumsýning
/Stjörnubíó og Háskólabíó frumsýna geimtryllinn Battlefield
Earth meö John Travolta í aðalhlutverki.
Baráttan
um Jörðina
Leikarar
Bandaríski leikarinn John Travolta
hefur áður á ferli sínum leikið ill-
menni í myndum eins og Face/Off
og Broken Arrow en í nýjustu
mynd sinni, Battlefíeld Earth, sem
frumsýnd er í Háskólabíói og
Stjörnubíói, leik-
ur hann karakter
sem „er eins ná-
lægt því að vera
hið illa holdi
klætt og hægt er
að ímynda sér“
að sögn leikar-
ans.
Hann er yfír-
maður öryggis-
mála hjá geim-
verum sem lagt hafa jörðina undir
sig og nota þær fáeinu hræður sem
eftir lifa til þess að þræla í námum
sínum. Geimverur þessar eru
meira en þrír metrar á hæð og
ægilegar skepnur. Ungur upp-
reisnarmaður úr hópi jarðarbúa
(Barry Pepper í einskonar Loga
geimgengilsrullu) hverfur frá af-
skekktu þorpi sínu og stjórnar á
Baráttan um jörðina
John Travolta, Barry Pepper,
Forrest Whitaker.
Leikstjóri:____________________
Roger Christian (Mastermind).
endanum liði byltingarmanna sem
reynir að endurheimta jörðina frá
risunum.
Myndin er byggð á einni af vís-
indaskáldsögum L. Ron Hubbards
sem út kom árið 1982 en Hubbard
þessi er stofn-
andi Vísinda-
kirkjunnar í
Bandaríkjunum
þar sem Trav-
olta mun vera
meðlimur. Sagt
er að leikarinn
hafi verið í ára-
tug að reyna að
fá myndina
gerða en fram-
leiðendur í Hollywood hikað við
vegna þess að Hubbard átti í hlut.
Á endanum gerðist Travolta sjálf-
ur einn af framleiðendunum.
Forstjóra Franchise Pictures,
Elie Samha, tókst á endanum að
safna saman þeim 60 milljónum
dollara sem myndin kostaði. Trav-
olta hefur neitað því að einhver
tengsl séu á milli myndarinnar og
John Travoita: Ægilegur ásýndum í
Battiefield Earth, en hann er einn
framleiðenda myndarinnar.
Barry Pepper í Battlefield Earth:
Ungur uppreisnarforingi sem á í
höggi við geimverur á jörðinni.
Vísindakirkjunnar og heldur því
fram að þátttaka sín í myndinni sé
eingöngu byggð á skemmtanagild-
inu sem hún hefur. Áður en mynd-
in var frumsýnd vestra voru áætl-
anir uppi um að gera fram-
haldsmynd en óvíst er hvort af því
verður.
Leikstjóri myndarinnar er Rog-
er Christian sem hefur ekki mikla
reynslu af gerð leikinna bíómynda
en það var enginn annar en Ge-
orge Lucas sem mælti með honum
í verkefnið. Christian segir inntak
myndarinnar vera þetta: „Ef þú
horfir framhjá takmörkunum þín-
um og lætur þær ekki binda þig
geturðu náð hæstu hæðum.“
Travolta sat kyrr í fjóra tíma á
degi hverjum meðan verið var að
setja hann í gervi stóru geimver-
unnar. Höfuðkúpa hans var hækk-
uð um eina þrjátíu sentímetra og
mikil og há stígvél gerðu hann
stóran og ábúðarmikinn.
Leikarinn var hinn ánægðasti
með gervið. „Ég held að þetta
verði vinsælasti Hrekkjavökubún-
ingurinn í ár,“ er haft eftir honum.
Travolta varð sem kunnugt er
fyrst þekktur fyrir söngva- og
dansamyndir en eftir gott gengi í
byrjun tók ferill hans mikla dýfu
og náði sér ekki upp aftur fyrr en
Quentin Tarantino setti hann í
mynd sína Pulp Fiction. Síðan þá
hefur Travolta verið óstöðvandi í
Hollywood.
hafa vitað hvað hann átti að gera
þegar hann fékk verkefnið í hendur.
Um er að ræða 65 milljón dollara vís-
indaskáldskaparmynd sem höfða á
til unga fólksins. Þeir hjá 20th Cent-
ury Fox kvikmyndaverinu, sem
framleiðir myndina, vora heldur
ekki vissir um hvemig þeh’ ættu að
snúa sér í málinu. í fyrstu fengu þeir
leikstjórann Art Vitello til þess að sjá
um teikningarnar en hann var látinn
fara þegar kvikmyndaverið ákvað að
beita tölvutækninni til þess að gera
myndina. Svo var hætt við það þegar
Ijóst varð að persónumar vora ekki
nógu eðlilegar þegar tölvutæknin
var notuð.
Þá vora þeir Bluth og Goldman
kallaðir til og þeir gerðu myndina
þannig að þeir blönduðu saman hefð-
bundinni teiknimyndatækni við nýj-
ustu tölvuteiknibrellur. Sagt er að
myndin sé gerð undir áhrifum frá
japönskum teiknimyndum. „Það er
eins og einhver hafi fengið sér eitt-
hvað sterkt að reykja áður en hann
gerði teikningarnar," er haft eftir
leikaranum Bill Pullman.
Teiknararnir fengu Industrial
Light and Magic, tölvubrellufyrir-
tæki George Lucas, til þess að hjálpa
sér með flóknasta og umfangsmesta
myndskeiðið þegar hetjur myndar-
innar þjóta í gegnum satúrnískan
stjörnuhring úr gríðarlegum, speg-
ilgljáandi ískristöllum með óvininn á
hælunum.
„Þetta er atriði sem eins og fleiri í
myndinni er fyrst og fremst mynd-
rænt án þess að vera blóðugt," er
haft eftir Don Bluth. „Samt er þetta
mjög spennandi frásögn. Við
sprengjum Jörðina í loft upp á fyrstu
fjóram mínútunum.“
Bluth hefur lengi verið einn af
fremstu teiknimyndahöfundum
Bandaríkjanna og á að baki myndir á
borð við American Tail, Svanapríns-
essuna og Anastasíu fyrir 20th Cent-
ury Fox. Þess má geta að handrits-
höfundur myndarinnar er Joss
Whedon sem skrifaði handrit Leik-
fangasögu og Alien 4 ásamt öðru.
Titan A.E.
Raddir:
Hilmir Snær Guönason, Pálmi
Gestsson, Þórunn Lárusdóttir,
Þórhallur Sigurðsson (Laddi),
Hjálmar Hjálmarsson, Theódór
Júlíusson, Egill Ólafsson, Karl
Ágúst Úlfsson, Magnús Ólafs-
son, Valdimar Flygenring, Stef-
án Karl Stefánsson, Ólafur
Darri Ólafsson o.fl.
Leikstjóri:____________________
Don Bluth (American Tail,
Svanaprinsessan, Anastasia).