Morgunblaðið - 13.10.2000, Blaðsíða 6
6 C FÖSTUDfyGlfft 13. OKTÓBER 2000
BIOBLAÐIÐ
MORfiUNjBLADIÐ
Frumsýning Laugarásbíó og Háskólabíó frumsýna banda-
rísku spennumyndina Glataðar sálir eða Lost Souls með Win-
ona Ryder, Ben Chaplin og Philip Baker Hall.
Frumsýning Sambíóin Álfabakka og
Háskólabíó frumsýna Disney-teiknimynd-
ina Fantasíu 2000.
Satanískur tryllir
Peter Kelson (Ben Chaplin) þekkir
vel til hins illa. Hann er glæpafrétta-
ritari og hefur fylgst með réttar-
höldum yfir verstu morðingjum sög-
unnar. Hann skrifar spennutrylla og
sá nýjasti er á metsölulista, hann á
gullfallega unnustu og svo virðist
sem hann njóti sérstakrar blessunar
(Liífinu.
Bara ekki. Kona að nafni Maya
Larkin (Winona Ryder) er sannfærð
um að Satan ætli sér að taka ból-
festu í líkama Kelsons en hann hlær
að henni og brátt tekur við barátta
upp á líf og dauða um sál hans.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku spennumyndinni Glataðar sál-
ir eða Lost Souls sem frumsýnd er í
Laugarásbíói og Háskólabíói en með
aðalhlutverkin í henni fara Winona
Ryder, Ben Chaplin, Philip Baker
Hall, Elias Koteas, Sarah Wynter og
John Hurt. Handritið gerir Pierce
Gardner en leikstjóri er Janusz
Kaminski. Þess má geta að einn af
framleiðendum myndarinnar er
^leikkonan Meg Ryan.
Kaminski hefur ekki áður leik-
stýrt bíómynd en hann er kunnur
kvikmyndatökumaður i Bandaríkj-
unum og var m.a. maðurinn á bak
við myndavélarnar í stórmyndunum
Björgun óbreytts Ryans, Lost
World og Jerry Maguire. „Glataðar
sálir er nútímaspennumynd sem
gefur okkur tækifæri til þess að
teygja nokkuð á hinum yfirnáttúru-
lega trylli," er haft eftir honum. „Ég
fékk áhuga á að leikstýra myndinni
vegna þess að persónurnar í henni
"éru mjög sterkar og hún veitir mér
tækifæri til þess að skoða trúmálin í
okkar samfélagi en búa jafnframt til
skemmtilega spennumynd."
Samstarf Kaminskis og Steven
Spielbergs er annálað. Kaminski tók
fyrir leikstjórann meistaraverkið
Lista Schindlers og hreppti Óskars-
verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku
það árið. Hann tók einnig upp
Amistad fyrir leikstjórann og fram-
haldsmyndina Lost World eins og
áður er getið auk Björgunar
óbreytts Ryans. Hann vann einu
sinni áður með Winona Ryder þegar
hann tók myndina How to Make
American Quilt.
Ryder er ein af fremstu kvik-
myndaleikkonum Bandaríkjanna.
Við sáum hana síðast í dramanu
Winona Ryder: Trúir þvíað Satan
sjálfur ætli sér að birtast jarð-
arbúum.
Girl, Interupted þar sem hún lék á
móti Angelina Jolie. Hún lék fyrir
Woody Allen í Celebrity en aðrar
myndir hennar eru m.a. Little
Women, Öld sakleysisins, þar sem
hún lék fyrir Martin Scorsese, The
Crucible og Alien: Resurrection.
Þótt hún sé ung að árum er ferill
hennar sem leikkonu ansi merkur.
Breski leikarinn Ben Chaplin hef-
ur verið að fikra sig áfram í banda-
rískri kvikmyndagerð á undanförn-
Glataðar sáiir
Leikarar:
Winona Ryder, Ben Chaplin, Phil-
ip BakerHall, Elias Koteas, Sar-
ah Wynter og John Hurt.
Leikstjóri:
Janusz Kaminski: (Sem kvik-
myndatökumaöur: Björgun
óbreytts Ryans, Listi Shindlers,
Lost World, Jerry Maguire.)
um árum. Hann var einn af mörgum
leikurum í The Thin Red Line og
hann var einnig í Washington Squ-
are og The Truth About Cats and
Dogs. Hann hefur leikið mikið í
bresku sjónvarpi og í breskum bíó-
myndum einnig.
Fantasía 2000: Tímamótamynd með nýju efni ogínýjum búningi.
Fantasía á ný
Fantasía frá 1940 braut blað í sögu
teiknimyndanna þegar hún blandaði
saman með stórfenglegum hætti
teiknimyndum og klassískri tónlist.
Tónlistin var eftir Bach og
Tjækovskí, Stravinskí, Beethoven
og Mussorgskí, Gerswin og Resp-
ighi og fleiri leikin af sinfóníuhljóm-
sveit Fíladelfíu undir stjórn
Leopolds Stokowskís.
Við tónlistina lét Walt Disney gera
ævintýrateiknimyndir m.a. byggðar
á Tindátanum staðfasta eftir H.C.
Andersen og hefur Fantasía síðan
verði ein af ski'autfjöðrunum í hatti
Disney-fyrirtækisins.
Walt Disney gaf út þá tilkynningu
að hann ætlaði að búa til eina
Fantasíu á ári hverju. Ekki rættist
sá metnaðarfulli draumur meistara-
teiknarans vegna peningaskorts.
Þegar hann lýsti sjálfur myndinni ár-
ið 1941 sagði hann: „Ekki tónleikar,
ekki revía eða kabarett, heldur mikil-
fengleg blanda af gríni, hugmynda-
flugi, ballett, drama, impressj-
ónisma, lit, hljóði og epískum ofsa.“
Upphaflega var hugmyndin sú að
hressa upp á vinsældir Mikka músar
með stuttmyndinni Lærisveinn
galdramannsins en stuttmyndin
lengdist sífellt og atriðunum fjölgaði
og tónlistin bættist við þar til úr varð
einstök blanda af teiknimyndum og
klassískri tónlist.
Hugmyndina að endurgerðinni,
Fantasíu 2000; sem frumsýnd er í
Sambíóunum Alfabakka og Háskóla-
bíói núna um helgina, á bróðir hins
látna Walts, RoyDisney. Leikstjórar
hennar eru Pixote Hunt, Hendel
2000
Leikarar:_____________________
Steve Martin, Bette Midler,
ItzhakPerlman, QuincyJones,
James Earl Jones, Angela
Lansbury og Penn ogTeller.
Leikstjórar:__________________
Pixote Hunt, Hendel Butoy, Eric
Goldbergogfleiri.
Butoy, Eric Goldberg og fleiri af
helstu teiknimyndasérfræðingum
Disney-veldisins.
í Fantasíu 2000 eru auk gamalla
kunningja þeirra sem séð hafa
Fantasíu (hún var sýnd og marg end-
ursýnd í Gamla bíói á sínum tíma) sjö
ný atriði við tónlist meistaranna og
hefur gerð þeirra tekið hvorki meira
né minna en sjö ár.
Hvert þessara nýju atriða er
kynnt með lifandi fólki sem blandað
er inn í teikningamar en það eru
Steve Martin, Bette Midler, Itzhak
Perlman, Quincy Jones, James Earl
Jones, Angela Lansbury og gaman-
dúettinn Penn og Teller.
Þá koma fram tónlistarmennirnir
James Levine og Leopold Stokowskí
en það var einmitt Stokowskí sem
stjómaði tónlistarflutningnum í
Fantasíu árið 1940.
Levine annaðist um tónlistarhlið
Fantasíu 2000. Hann sá Fantasíu
ungur drengur og þótt það mikill
heiður að fá að vinna við endurgerð
hennar. „Ég gat varla beðið með að
segja já,“ er haft eftir honum.
Frumsýning Sambíóin Álfabakka,
Stjörnubíó, Regnboginn og Borgarbíó
Akureyri frumsýna bandaríska spennu-
tryllinn What Lies Beneath meö Michelle
Pfeiffer og Harrison Ford.
„Þegar ég gerði samning við þá hjá
DreamWorks," er haft eftir leikstjór-
anum Robert Zemeckis, sem m.a.
gerði Forrest Gump, „bökkuðu þeir
heilu trukkunum að skrifstöfunni
minni með handritum sem þeir höfðu
í þróun hjá sér og báðu mig að velja úr
þeim það sem ég vildi. „Hérna höfum
við öll handritin sem við eigum,“
sögðu þeir. „Líst þér á eitthvert
þeirra?““
Handritið sem Zemeckis valdi úr
hirslum DreamWorks var spennu-
mynd sem heitir What Lies Beneath
en hún er frumsýnd í dag í fjórum
kvikmyndahúsum á landinu með
Michelle Pfeiffer og Harrison Ford í
aðalhlutverkum. Hugmyndin varð til
innanhúss hjá DreamWorks og það
var enginn annar en einn eigandi fyr-
irtækisins, Steven Spielberg, sem átti
hana.
Ekki er ráðlegt að segja mikið frá
söguþræðinum og þegar Zemeckis
er spurður út í hann reynir hann að
segja sem minnst. „Harrison Ford
leikur erfðafræðing sem býr ásamt
eiginkonu sinni í stóru og fallegu húsi
við vatn í Vermont. Michelle var eitt
sinn í sinfóníuhljómsveit, lék á selló,
en gengur nú í gegnum einhverskon-
ar breytingarskeið og það birtist m.a.
annars í því að hún telur sig sjá hluti í
húsinu, yfimáttúrulega, sem eru þar
kannski og þó kannski ekki. Zemeck-
is gerði What Lies Beneath á milli
þess sem hann leikstýrði fyrri og
seinni helmingi strandaglópsdramans
Cast Away. Stjarna myndarinnar,
Tom Hanks, þurfti að missa tuttugu
kíló fyrir síðari hluta hennar og í stað
þess að sitja auðum höndum á meðan
gerði Zemeckis spennumyndina.
Sama kvikmyndatökulið vann við
báðar myndirnar. Tæknibrellumeist-
ari var Rob Legato sem hjálpaði til við
að sökkva Titanic í samnefndri mynd
en hann segir að Zemeckis hafi sagt
við hann eftirfarandi: „Ef Alfred
Hitchcock hefði haft tölvur, hvemig
mundi hann þá nota þær í dag?“
Leikarar:
Harrison Ford, Michelle Pfeiff-
er.
Leikstjóri:_____________________
Robert Zemeckis (Contact,
Forrest Gump, Death Becomes
Her, Who Framed Roger Rabbit,
Back to the Future).
Þá er sagt að leikstjórinn hafi legið
yfir The Shining eftir meistara
Kubrick til þess að finna innblástur.
Hann segir að myndin sé „blanda af
spennumynd og lýsingu á dæmigerðu
bandarísku hjónabandi. Mig langaði
til þess að búa til áhugavert bíó um
það sem gerist í höfði tveggja ein-
staklinga. Það var mjög ögrandi verk-
efni fyrir mig.“
Aðalleikara myndai-innai- þarf vart
að kynna. Harrison Ford hefur verið í
meira en tvo áratugi ein helsta hasar-
myndahetja hvíta tjaldsins eða allt frá
því hann lék Han Solo í Stjörnustríði.
Fomleifafræðingurinn Indiana Jones
er önnur kempa sem hann hefur gert
frábær skil og loks hefur hann nokkr-
um sinnum leikið leyniþjónustumann-
inn Jack Ryan. Michelle Pfeiffer hef-
ur haft hægt um sig á undanfömum
ámm en er nú að læða sér aftur í kvik-
myndirnar, góðu heilli.