Morgunblaðið - 13.10.2000, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FQSTUDAGUR 13, OKTÓBER 2000 C
BÍÓBLAÐIÐ
Bíóin í borginni
Sæbjöm Valdimarsson/Amaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir
Ekki missa af
" í >V , , 'v V, - ,
. iK_
ALLVELHEPPNUÐU HASAR-
BLAÐSÆVINTÝRI, X-MEN, SEM
SEGIR FRÁ ÁTÖKUM GÓÐS OG
ILLS í LÍKI STÖKKBREYTTRA
MANNVERA í EINHVERS KONAR
FRAMTÍÐARUMHVERFI. STÆRSTI
KOSTURINN ER ÞOKKALEG PERSÓNUSKÖPUN OG SNÖFURMANNLEG
LEIKSTJÓRN BRYANS SINGER, SEM ÞÓ GERÐI TÖLUVERT BETUR í
SPENNUMYNDINNI SNJÖLLU GÓÐKUNNINGJAR LÖGREGLUNNAR -
THE USUAL SUSPECTS. FYRIR ANDSTÆÐUM FYLKINGUM HINNA
STÖKKBREYTTU FARA VÖRPULEGIR BRETAR, PATRICK STEWART
OG IAN MCKELLEN EN ÝMSIR YNGRI LEIKARARA VEKJA ATHYGLI,
EKKI SÍST HUGH JACKSON í EINS KONAR ÚLFAMANNSGERVI.
NÝJAR MYNDIR
LOSTSOULS
Háskólabíó: K/. 5:45-8-10:30.
Laugarásbíó: K/. 6-8-10. Aukasýningum helg-
ina kl. 4.
FANTASIA 2000
Háskólabíó: K/. 6. Aukasýningum helgarkl. 4.
Bíóhöllin: Kl. 4-5-8-10. Aukasýningum helg-
ina kl. 2.
WHATLIES BENEATH
Stjörnubíó: K/. 5:30 -8-10:30. Aukasýning um
helgina kl. 3.
Regnboginn: K/. 5:30 - 8 - 10:30. Aukasýning
föstudagkl. 12. Um helgina kl. 3.
Bíóhöllin: K/. 3:40-6:10-8-10:30.
FORSÝNINGAR
GOSSIP
Kringlubíó: Kl. 11.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í REYKJAVÍK
BUENA VISTA SOCIAL CLUB
★★★% TÓNLIST
Bíóborgin: Kl. 4-6-8-10. Aukasýning föstudag
kl. 12. Engin sýning laugardag kl. 10.
IN A MOOD FOR LOVE
Bíóborgin: KL. 6 - 10. Aukasýning föstudag ki.
12.
THE STRAIGHT STORY ★★★%
DRAMA
Bíóborgin: kl. 3:50 - 8. Engin sýning laugardag kl.
8.
DANCERIN THE DARK ★★★★
DRAMA
Leikstjóri Lars Von Trier. Aðalhlutverk Björk Guó-
mundsdóttir, Peter Stormare, Catherine Deneuve.
Túlkun Bjarkar í nýjustu mynd danska
leikstjórans Lars Von Triers er alveg
einstök og heldur uppi brothættum
söguþræöi.
Háskólabíó: Ki. 8-10:40.
ÍSLENSKIDRAUMURINN ★★★★
GAMAN
íslensk. 2000 Leikstjóri Robert Douglas. Aðalleik-
endur Þórhallur Sverrisson, Jón Gnarr, Hafdís
Huld.
íslensk gamanmynd, sem er mein-
fyndin, hæfilega alvörulaus en þó
með báöa fætur í íslenska veruleikan-
um, er komin fram. Alveg hreint af-
bragðsgóö mynd.
Bíóhöllin: Kl. 4 - 6 - 8 -10. Aukasýningar laugar-
dag/sunnudagkl. 2.
Kringlubíó: K/. 8-10.
HIGH FIDELITY ★★★
GAMANMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Stephen Frears. Aöal-
leikendur John Cusack, Ibeb Hjejle, Todd Louiso,
Jack Black.
Skondin og mannleg mynd um sjálf-
svorkunnsamt fórnarlamb í ásta-
málum. Frábærir leikarar.
Bíóhöllin: Kl. 10.
Kringlubió: Kl. 8-10:10. Laugardag og sunnudag
kl.8.
101REYKJAVÍK ★★★
GAMAN
íslensk. 2000. Leikstjóm og handrit Baltasar Kor-
mákur. Aðalleikendur Victoria Abril, Hilmir Snær
Guðnason, Hanna Marfa Karlsdóttir, Baltasar
Kormákur.
Svört kynlífskómedía úr hjarta borgar-
innar, nútímaleg og hress sem skoö-
ar samtímann í frísklegu og fersku
Ijósi raunsæis og farsa. Vel leikin,
einkum af hinni kynngimögnuöu Al-
modóvar-leikkonu Victoriu Abril og er
yfir höfuð besta afþreying.
Háskólabíó: Alla daga kl. 6 - 8.
LEGEND OF1900 ★★★ DRAMA
ítölsk. 1996. Leikstjórn Giuseppe Tomatore.
Handrit Alesssandri Baricco. AöaUeikendur Tim
Roth, Pruitt Taylor-Vince.
Nýjasta mynd ítalans er mótuö af Ijóö-
rænni fegurð og því manneskjulega
innsæi sem einkennir verk hans.
Hins vegar langdregin líkingasaga um
menn og listamenn. Tónlist og aftur
tónlist. Tom Roth firna góöur í ööruvísi
hlutverki.
Laugarásbíó: K/. 8-10:10.
U-571 ★★★ STRÍÐ
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit Jonathan
Mostow. Aöalleikendur Matthew McConaughey,
Bill Paxton, Harvey Keitel.
Vel gerö og spenanndi stríösmynd um
kafbátahernað, Bryddar ekki á um-
talsveröum nýjungum en stendurfýrir
sínu sem góö afþreying.
Bíóhóllin: Kl. 8-10:10.
Kringlubíó: Kl. 3:45-6-8:15-10:30.
Bíóborgln: Kl. 3:30 - 5:45 - 8- 10:15 - 12:30.
Engin sýning kl. 12:30 e. helgi.
X-MEN ★★★ SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit Bryan
Singer. Aðalleikendur Patrick Stewart, lan McKel-
len, Famke Janssen.
Fín afþreying sem kynnir áhorfandann
fyrir áhugaverðum persónum og furðu-
veröld stökkbreytta fólksins. Sagan of-
ur einföld, boðskapurinn sömuleiöis,
en stendurfyrirsínu. Aðalleikararnireru
góöir, bestur Hugh Jackson sem Jarfi.
Regnboginn: K/. 10.
ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR M/ÍSL.
TALI ★★% FJÖLSK.
Frönsk. 1999. Leikstjóri Claude Zidi. Handrit Gér-
ard Lauzier. Aðalhlutverk Christian Clavier, Gerard
Depardieu, Roberto Benigni.
Leikin mynd um gallharöa Galla í
Gaulverjabæ, sem eru í miklu uppá-
haldi hjá smáfólki um víða veröld.
Dugar pöbbum og mömmum líka.
Talsetningin ágæt.
Bíóhöllin: Kl. 4:15 - 5:45.Aukasýning um helgina
kl.2.
Kringlubíó: K/. 3:45 - 6. Aukasýning um helgina
kl. 1:30.
Stjörnubíó: K/ 5:50. Um helgina kl. 1:30-3:40.
ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR M/
ENSKU TALI ★★% FJÖLSK.
Frönsk. 1999. Leikstjóri Claude Zidi. Handrit Gér-
ard Lauzier. Aðalhlutverk Christian Clavier, Gerard
Depardieu, Roberto Benigni.
Leikin mynd um gallharða Galla í
Gaulverjabæ, sem eru í miklu uppá-
haldi hjá smáfólki um víöa veröld.
Dugar pöbbum ogmömmum líka.
Bíóhöllin: K/. 8:10 -10:10. Aukasýning föstudag
kl. 12:30. Aukasýning um helgina kl. 1:45.
BIG MOMMA’S HOUSE ★★^
GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Raja Gosnell. Handrit
Darryl Quarles. AðalleikendurMartin Lawrence, Ni-
al Long, Paul Giamatti.
Grínleikarinn Martin Lawrence bregö-
ur sér í gervi roskinnar og hávaöa-
samrar ömmu í dálaglegu sumargríni
fyrir alla fjölskylduna. Ágætis
skemmtun og Martin fer stundum á
kostum.
Regnboginn: K/. 6-8. Aukasýningar um helgar kl.
2-4.
HOLLOW MAN ★★% SPENNA
Leikstjóm Paul Verhoeven. Aðalleikendur Kevin
Bacon, Elizabeth Shue, Josh Brolin, William Dev-
ane.
Vísindamaöur missir stjórn á sér þeg-
ar hann gerist ósýnilegur og við tekur
ásjálegur en heldur dellukenndur
spennutryllir.
Bíóhöllin: K/. 5:55-8-10:15. Aukasýning föstu-
dagkl. 12:30.
Stjörnubíó: KI.8-10:10.
Laugarásbíó: K/. 8-10:10. Aukasýningum helgar
kl. 5:45.
SCARY MOVIE ★★%
GAMANHROLLIR
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Keenan Ivory
Wayans. Handrit Shawn og Marlon Wayans. Aðal-
leikendur Shawn og Marlon Wayans, Shannon El-
izabeth, Carmen Electra.
Fyndin og fríkuö mynd sem skýtur á
hrollvekjur seinustu ára meö beittum
oggrófum humor.
Laugarásbíó: Kl. 6-8-10. Aukasýningumhelgar
kl.4.
Stjörnubíó: K/. 6 - 8 Aukasýningar laugardag/
sunnudagkl4.
Regnboginn: K/. 6-8- 10. Aukasýningar föstu-
dag kl. 12, laugardag kl. 2 og 12, sunnudag kl 2.
SHANGHAI NOON ★★%
GAMANMYND
Bandarísk. 2000.
Leikstjórí Tom Dey. Aðalleikendur Jackie Chan,
Owen Wilson, LucyLi.
Hressilegur og skemmtilegur gaman-
vestri meö flottum bardagaatriöum
en stundum lummulegum húmor.
Laugarásbíó: K/. 6. Aukasýningar um helgina kl. 4.
TITAN A.E. ★★^
TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjórar Don Bluth og Gary
Goldman. íslensk talsetning: Hilmir Snær Guðna-
son, Pálmi Gestsson, Þórunn Lárusdóttiro.fl.
Spennandi og skemmtileg geim-
fantasía um ungan mann sem hefur
þaö á valdí sínu aö bjarga mannkyn-
inufráglötun.
Regnboginn: íslenskt tal kl. 6. Aukasýningar iaug-
ardag/sunnudag kl. 2 - 4. Enskt tal kl. 8 -10.
Bíóhöllin: íslenskt tal kl. 3:50. Aukasýning laugar-
dag/sunnudag kl. 1:45.
TUMITÍGUR - íslenskt tal ★ ★%
TEIKNIMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Jun Falkenstein.
Handrit A.A. Milne. Raddir: Laddi, Jóhann Sigurð-
arson, Sigurður Sigurjónsson, o.fl.
Þokkaleg teiknimynd fyrir yngstu
kynslóðina sem segir af ævintýrum
Tuma og vinar hans.Góö talsetning.
Bíóhöllin: Kl. 4. Aukasýning laugardag/sunnudag
kl. 2.
Kringlubíó: K/. 4. Aukasýning laugardag/sunnu-
dagkl.2.
UNDER SUSPICION ★★V2SPENNA
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Stephen Hopkins. Að-
alleikendur Gene Hackman, Morgan Freeman.
Hackman og Freeman eru í essinu
sínu í óvenjulegri spennumynd sem
segirfrá lögfræöingi sem grunaður er
um morð og lögreglustjóranum sem
reyniraðfá sannleikann útúrhonum.
Háskólabíó: Kl. 5:30-8.
KLÁMFENGIN KYNNI - UN LIAISON
PORNOGRPHIQUE ★★ DRAMA
Belgísk. 2000. Leikstjórn Fréderic Fontayne.
Handrit Phillipe Blasband. Aöalhlutverk Nathalie
Baye, Serge Lopez.
Reynt aö gera áhugavert framandi
ástarsamband tveggia einstaklinga
sem tekst ekki. Leikararnir standa sig
sómasamlega en persónurnar eru úti
í kuldanum.
Háakólabíó: K/. 6-8-10.
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Todd Phillips. Aðal-
leikendur Breckin Meyer, Seann William Scott,
AmySmart.
Nokkuð fyndin gamanmynd um fjóra
lúöa á feröalagi. Hlutverk hins súra
Toms Greens mætti vera stærra.
Kringlubíó: Kl. 4-6-8:15 -10.
Frönsk. 2000. Leikstjóri Gerard Krawczyk. Handrit
Luc Besson. Aðalleikendur: SamyNaceri, Frédéric
Diefensthal.
Eltingaleiksmynd af gamla skólanum.
Fátt nýtt, leiöinlegir leikarar.
Háskólabíó: Kl. 8-10.
BOYS AND GIRLS ★%
GAMAN
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Robert Iscove. Aðal-
leikendur Freddie Prinze, Claire Forlani.
Klisjukennd og ófrumleg mynd um
vini í háskóla sem eru aö farast úr ást
hvort á öðru án þess aö vilja viður-
kenna þaö.
Regboginn: K/. 8. ATH: Engin sýning laugardag.
COYOTE UGLY ★% DRAMA
Bandarísk. 2000. Leikstjórí David McNally. Aðal-
leikendur Piper Perabo, Adam Garcia, John
Goodman, Mária Bello.
Barstúlkur halda uppi fjörinu f ein-
staklega klisjukenndri mynd frá Jerry
Bruckheimerum ameríska drauminn.
Bíóhöllin: Kl. 6.
STEINALDARMENNIRNIR / THE
FLINTSTONES: VIVA ROCK VEGAS
★%
FJÖLSKYLDUMYND
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Brian Levant. Handrit x
Bruce Cohen. Aðalleikendur Mark Addy, Stephen
Baldwin.
Afskaplega ómerkileg kvikmynd með
útþynntri og samhengislausri sögu
um ástamál Freds og Barneys, sem
varla vekja áhuga barna né full-
oröinna.
Háskólabíó: Laugardag ogsunnudag kl. 4.
POKEMON/ÍSL. TAL ★ BARNA-
MYND
Japönsk. 1999. Leikstjórar Michael Hargrey, Kun-
ohiko Yuyama. Handrit Norman J. Grossfeld, Tak-
eshi Shudo. Teiknimynd.
Ljót, leiöinleg, fær eina stjörnu fyrir
það ná til barnanna meö einhverjum
óskiljanlegum hætti.
Blóhöllln: Kl. 4. Aukasýning laugardag/sunnudag
kl.2.
Kringlubíö: Alla daga kl. 4 - 6. Aukasýning laugar- ^
dag/sunnudagkl. 2.
ROADTRIP ★★
GAMANMYND
TAXI2 ★★ SPENNA
Svipmynd
Eftirflrnald
Indriðason
NOKKRAR myndir hafa staðið
upp úr á Kvikmyndahátíð í
Reykjavík eins og gengur og
gerist. Ein af þeim er tékkneska
gamanmyndin Heima er best,
þar sem spaugað er nokkuð með lífið í Prag
skömmu fyrir innrás Sovétmanna. Önnur er
Buena Vista Social Club eftir Wim Wenders
um aldna heiðursmenn í tónlistinni. En líklega
er sérstæðasta myndin þetta kvikmyndahátíð-
arárið vegamynd David Lynch um gamla
manninn Alvin Straight sem keyrði á sláttuvél-
inni sinni til fundar við bróður sinn í órafjar-
lægð af því báðir voru þeir orðnir lasburða og
hann vildi hitta brósa áður en þeir færu báðir
yfir móðuna miklu.
The Straight Story er engin venjuleg David
Lynch-mynd, altso engin glæpahrollvekja. Hún
er afar hugljúf saga af óvenjulegu ferðalagi og
segja má að það sé aðeins einn leikari í henni
(þótt aðrir komi lítillega við sögu), öldungurinn
Richard Farnsworth. Það er sorglegur endir á
lífi og starfi þessa aldna heiðursmanns að hann
svipti sig lífi s.l. föstudag eftir að hafa verið
greindur með ólæknandi beinkrabbamein.
Farnsworth er ekkert minna en stórkostleg-
ur í hlutverki Alvins. Andlitið eitt, sem Lynch
notar óspart, segir allt sem segja þarf. Hann
þarf ekki að leika Straight, aðeins að vera
Farnsworth.
Leikarinn aldni á mjög sérstakan feril að
baki í Hollywood sem hófst á fjórða áratugn-
um. Richard er fæddur í Los Angeles árið 1920
og stendur því á áttræðu og var lengst af
áhættuleikari í draumaverksmiðjunni eða þar
til hann söðlaði um og gerðist leikari, orðinn
sextugur að aldri. Eftir stutta skólagöngu tók
hann þátt í kúrekasýningum og lék í fyrsta sinn
í bíómynd ásamt hundruðum annarra sem stat-
isti í The Adventures of Marco Polo árið 1938.
Hann lék eftir það í meira en 300 myndum
sem áhættuleikari eða kúreki og kom fram í
fjölda mynda sem „tvífari" stjarnanna og lék
fyrir þær í áhættuatriðunum. Þannig vann
hann fyrir Montgomery Clift í Red River árið
1948, Jerry Lewis í Pardners árið 1956, Guy
Madison í sjónvarpsþáttunum Wild Bill
Hickok og Steve McQueen í fyrsta þætti sjón-
varpsvestrans vinsæla, Wanted Dead orAlive.
Farnsworth tók að sér lítil hlutverk á önd-
verðum áttunda áratugnum þai- sem hann fór
með nokkrar setningar, fyrst í The Cowboys
árið 1972 en síðar í myndum eins og The
Duchess and the Dirtwater Fox, fjórum árum
síðar og Another Man, Another Chance árið
1977. Alan J. Pakula vann með honum við
myndina The Stalking Moon árið 1969 og þeg-
ar hann þurfti að ráða leikara til að fara með
hlutverk aldraðs ráðsmanns á búgarði í stór-
myndinni Comes a Horseman, varð honum
hugsað til Farnsworth. Gamli áhættuleikarinn
stóð sig með slíkri prýði að hann var útnefndur
til Óskarsins það árið og allt í einu var hann
orðinn að fullgildum leikara.
Hann var í Tom Horn á móti McQueen og
Resurrection og fór með sitt fyrsta aðalhlut-
verk í kanadísku myndinni The Gray Fox árið
1983, lék heiðursbandíttinn Bill Miner. Fyrir
það hlutverk er hann minnisstæðastur en
myndin var sýnd hér í Tónabíói á sínum tíma.
Síðan þá hefur Farnsworth leikið í fjölda
mynda, alltaf jafn rólegur og afslappaður og
jarðbundinn heiðursmaður. Hann var í In-
Richard Farnsworth
sem fer með
aðalhlutverkið
í The Straight
Story, er
fædduríLos
Angeles árið
1920 og byrj-
aöi í kvik-
myndunum
sem statisti í
fjöldasenum en síðar varö hann „tvífari"
stórstjarna eins og Montgomery Clifts
áöur en hann fór sjálfur aö leika, oröinn
roskinn maður. Er þekktasta mynd hans
kannski The Grey Fox.
dependence Day frá 1983 og skyggði á Robert
Redford í The Natural. Hann lék í gaman-
krimmanum Into the Night og var í The Two
Jakes með Jack Nicholson og Havana með
Redford á ný árið 1990. Einnig í endurgerð The
Getaway frá árinu 1994. Þá hefur hann komið
fram í fjölda sjónvarpsþátta og mynda.
Það hafa líklega ekki margir aðrir komið til
greina í hlutverk Alvins Straights í The
Straight Story; Lynch eins og svo oft áður hef-
ur vitað nákvæmlega hvað hann vildi.
Farnsworth og Straight verða eini og sami
maðurinn á hinni löngu vegferð síðasta kúrek-
ans inn í sólarlagið. Og nú er Richard
Farnsworth farinn sömu leið.