Morgunblaðið - 20.10.2000, Side 2

Morgunblaðið - 20.10.2000, Side 2
2 C FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Einvígi Rómar- liðanna? NÝHAFIN leiktíð á Ítalíu virðist við upphaf móts hafa alla burði til að verða sú mest spennandi í áraraðir. Undangenginn áratug hafa liðin sem barist hafa um titilinn oftast verið tvö, einstaka sinnum þrjú, en nú virðast fieiri lið eiga raunhæfa möguleika á titlinum. Meistarar Lazio hafa styrkt rándýrt lið sitt enn frekar með ofurkaupum og sveitungar þeirra í AS Roma einnig bætt við sig sterkum leikmönnum. „Róm er orðin höfuðborg knattspyrn- unnar,“ sagði keisari stórkaup- anna, Sergio Cragnotti, eigandi Lazio, drýgindalega á dögunum. Hvort Rómarliðin tvö eiga eftir að berjast um titilinn er óvíst, í það minnsta koma Juventus og AC ster^ar* Bnar leiks en í fyrra og Logi mikið breytt lið Vignisson Parma og Fiorentina skrífer gætu sprungið út. Internazionale er svo sérkapituli út- af fyrir sig, ógnarsterkur mannskap- ur sem alltaf virðist bregðast á ör- lagastundu eins og háðulegt tap þeirra á dögunum fyrir Helsingborg í undankeppni Meistaradeildarinnar sýndi. Serie A-deildin hefst hátt í mánuði síðar en venjulega vegna EM í sum- ar og þátttöku Itala á Ólympíuleik- unum þar sem landslið þeirra skipað leikmönnum yngri en 23 ára náði ágætum árangri en þó ekki sigri eins og stefnt var að, eftir að hafa orðið Evrópumeistari í sínum aldursflokki sl. vor. Flest hafa toppliðin verið brokkgeng á undirbúningstímabil- inu og mörg stigið fremur stirð byrj- unarskref í fyrstu leikjum sínum í Evrópukeppninni. Varasamt er þó að lesa of mikið í þau víxlspor sem þar hafa verið tekin, ítölsk lið æfa gi'íðarlega mikið á undirbúnings- tímabilinu og eru oft þung í gang á haustin en liða seigust undir lok leik- tíðar eins og yfirburðaárangur þeirra í Evrópukeppni síðasta ára- tuginn er til vitnis um. Á þessu varð þó breyting í vetur sem leið er hvert ítalska stórveldið á fætur öðru féli úr leik í Evrópu, jafnvel með brambolti, og þótti ekki góð latína á Appenín- uskaganum. Var sjálfsmynd ítala sem fremstra meðal jafningja nokk- uð ógnað við tíðindin en góður árang- ur á EM í sumar hressti Eyjólf til muna og einnig munu knattspymu- yfirvöld hafa lagt sitt til málanna með því að laga leikdaga deildarinn- ar enn frekar að Evrópukeppninni. Lazio er talið líklegast til afreka hjá veðbönkunum og þótt mikið hafi verið rætt um mögulega keppni Rómarliðanna þá er AS Roma ein- ungis í fimmta sæti á þeim bæ. Fáum kemur á óvart að veðbankar setja Juventus í annað sætið en hinsvegar er makalaust að dómi undirritaðs að Inter skuli vera ætlað þriðja sætið á undan AC Milan en sú spá breytist eflaust hratt þessa dagana eftir brottrekstur Marcello Lippi frá fé- laginu. Parma og Fiorentina koma allnokkuð að baki þessum liðum og auk þeirra í baráttu um sæti í Evrópukeppni telja veðbankar að blandi sér í lið Udinese, Bologna og nýliðar Napólí og Atalanta. Lazio losar um lírur Sergio Cragnotti rekur SS Lazio eins og intemetfyrirtæki! Spekin er einföld: Eyða nógu assgoti miklu og ná „ráðandi markaðsstöðu“ - þá verði reksturinn ábatasamur til lengri tíma litið. Hann hélt í sumar áfram að ausa fé til leikmannakaupa og keypti sér nýtt sóknardúó fyrir 6 milljarða króna. Metverð var reitt af hendi fyrir Heman Crespo og ekki var landi hans Claudio Lopez ókeyp- is fremur en markvörðurinn Angelo Peruzzi. Og fyrst hann var byrjaður að versla skellti hann nokkrum minni spámönnum í körfuna, svona bara fyrir klink, þeirra merkastir eru varnarmennimir Michele Para- matti og Emmanuele Pesaresi. Svo kom efnilegasti leikmaður deildar- innar, Roberto Baronio, heim úr láni hjá Reggina. Ljóst er að meistararn- ir hafa eflst til muna og fullyrða má að fá ef nokkur lið hafa af öðrum eins mannskap að státa, varaliðið gæti ör- ugglega blandað sér í toppbarátt- una! En það þarf meira til að ná ár- angri en fræga menn og miklu skiptir hvernig Sven Göran Erikson nær að stilla mönnum saman. Brotthvarf Conceicao veikir kantspil liðsins og er það kannski eini veik- leiki þessa firnasterka liðs. Hefur hann leitað logandi ljósi að væng- manni undanfarið en segist þó sofa rólegur yfir þessu. „Ég hef aldrei stjómað öðmm eins hópi,“ segir Er- ikson „og ég á möguleika á að stilla liðinu upp á hina ýmsu vegu án þess að það veikist. Það hlýtur að vera draumur hvers þjálfara. Nedved og Stankovic hafa staðið sig vel á vængjunum og svo er Atillo gamli Lombardo til taks,“ sagði Erikson og glotti enda má hann alveg hlæja þó byrjunin í haust hafi verið brösótt. Lazio verður að teljast líklegt til stórafreka í vetur bæði heima og í Evrópu þar sem að metnaður liðsins er gríðarlegur. Allt annað en meist- ai-atign á öðram hvoram vígstöðvun- um telst vart annað en hneyksli í Róm. Nágrannaöfund létt Bæjarlækurinn Tíber skiptir Róm í tvennt en aðdáendur AS Roma og Lazio búa þvers og kruss um bæinn og lítil skil á milli eftir hverfum eða stéttum. Þó hefur geð Lazio-sinna verið heldur léttara undanfarin ár og „alvöra Rómarliðið" eins og fylgis- menn Roma vilja meina að liðið sé, verið öfundin ein. Þeim krossi hefur verið létt af í sumar með drjúgum innkaupum forsetans Franco Sensi. AS Roma hefur ekki mætt til leiks með jafnsterkan mannskap síðan á gullaldaráram félagsins á öndverð- um níunda áratugnum. Munar þar mest um dýrasta leikmann heims miðað við aldur, hinn 31 árs gamla ofurframherja Gabriel Batistuta sem hungrar í meistaratitilinn eftir vonbrigði í heilan áratug með Fior- entina. Við hlið hans mun annar hvor landsliðsmannana Delvecchio eða Montella leika en sá síðarnefndi vai' afar móðgaður er til stóð að afhenda Batigol peysu nr. 9. Bati fékk reynd- ar þetta númer í sumar en vildi halda öllum góðum og lét Montella eftir númerinu og ber sjálfur nr. 18 á bak- inu í vetur. Montella getur þá setið glaður á bekknum í peysunni sinni ef hann verður ekki hreinlega seldur... Fyrir aftan kappana er besti leik- maður deildarinnar í fyrra, Francesco Totti, og verður hann væntanlega betur studdur en fyrr af miðju og vöm sem hefur þést með komu Walter Samuel og Emerson, sá síðamefndi meiddist reyndar illa nýverið og verður vart með fyrr en með vorinu og er það liðinu gríðar- legt áfall. Roma hefur leikið nettan fótbolta en vantað úthald. Fabio Capello stefnir að því að ná tökum á því vandamáli á öðru tímabili sínu með liðið og takmarkið er 1.-2. sæti. Juve og Milan stöðug Juventus glutraði meistaratitlin- um úr höndunum í frægum rigning- arleik í Peragia í vor og hefndarhug- ur í mönnum á þeim bæ. Liðið byggir á sama trausta granninum og síð- ustu leiktíðir, era þar á ferðinni gif- urlega sigursælir leikmenn sem búa yfir miklu sjálfstrausti. í hópinn hafa bæst tveir nafntogaðir leikmenn, ítalabaninn David Trezuguet sem jafnaði metin svo eftirminnilega íyr- ir Frakkland í úrslitum EM í sumar og Urúgvæmaðurinn Fabian O’Neill sem hefur verið einn besti miðjuleik- maður deildarinnar þau 5 ár sem hann hefur spilað á Ítalíu í herbúðum Cagliari. Liðið lánaði Max Vieri til Ancona en þessi yngri bróðir Christian hjá Inter hefur ekki staðið undir væntingum. Zinedine Zidane er kominn aftur í sitt besta form en gullkálfurinn mis- tæki Alex Del Piero er áfram spum- ingamerki. Þessir tveir náðu sér ekki á strik í fyrra og munar um minna. Telja verður möguleika Juve á titli nokkuð jafna á við Lazio og kann ár- angur og leikjaálag í Evrópukeppni að ráða miklu um það hvort liðið end- ar ofar á heimavígstöðvunum. AC Milan varð meistari með mikl- um heppnisbrag 1999 en nýliðin leik- tíð var liðinu fremm' raunaleg þótt sæti í Meistardeildinni væri sárabót. Milan kemur til leiks lítt breytt og er það nýmæli á þeim bæ hin síðari ár. Þó hafa þrír sterkir leikmenn bæst í hópinn, brasilíski markvörðurinn Dida, framherjinn efnilegi Gianni Comandini og Argentínumaðurinn Redondo sem þó mun ekki leika með fyrst um sinn vegna meiðsla. Red- ondo var svo vitlaus að spyrja hvort hann gæti fengið peysu nr. 6, eins og hann er vanur að leika í en fékk þau svör að í þá peysu færi enginn, hún væri sem fyrr tekin úr umferð til að Fjórir leikmenn Roma fagna sigi Argentínu, Jonathan heiðra Franco Baresi sem var á dög- unum útnefndur besti ítalski leik- maður aldarinnar af ítölskum knatt- spymumönnum. Milan er til alls líklegt og vonandi verður leikur liðsins skemmtilegri í vetur en hann hefur verið fyrstu tvö tímabilin undir stjórn Alberto Zaccheroni. Hefðin er sterk og kröf- urnar miklar en þó gera menn sér grein fyrir þvi að liðið er kannski ekki alveg jafnöflugt og Lazio, Roma og Juventus. Það hefur þó ekki alltaf skipt máli eins og svo berlega kom í Ijós í hittiðfyrra. Sjúka liðið á Ítalíu! „Leikur Internazionale er drama- tísk harmsaga þar sem söguhetjum- ar era ungir, vellauðugir en veik- lyndir menn sem hlýða ekki ráðum sér vitrari manna og sólunda hæfi- leikum sínum fyrir augsýn lang- þreyttra velunnara sem era fyrir löngu búnir að þurrausa tárakirtla sína,“ sagði einn þekktasti knatt- spymuskríbent ítala á dögunum og sagði að liðið væri svo „veikt að jafn- vel mikill uppskurður færustu sér- fræðinga kemur fyrir lítið“. Massimo Morratti, forseti Inter, hefur ekki verið neinn eftirbátur kollega síns Cragnotti í leikmannakaupum en ár- angurinn er ekki sambærilegur. Á dögunum vék hann Marcello Lippi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.