Morgunblaðið - 20.10.2000, Side 4
Silja komst í undan-
úrslit á HM í Chile
SILJA Úlfarsdóttir frjáls-
iþróttakona úr FH náði mjög
góðum árangri í 200 metra
hlaupi í gærkvöid á heims-
meistaramóti unglinga, 18-
19 ára, í Santiago í Chile
þegar hún tryggði sér sæti í
undanúrslitum sem fram fara
síðar í dag.
Silja varð önnur í sínum riðli í
undanrásum þar sem hún
hljóp á tímanum 24,33 sekúndur
sem er aðeins 13/
Frá 100 frá íslandsmeti
Hasse hennar í flokki 19-
Sjögren 20 ára unglinga.
ÍChlle Silja hljóp síðan
aftur í 1. milliriðli af þremur í 200
metra hlaupinu og þar var tími
hennar aðeins lakari en í undarás-
unum fyrr um daginn, eða 24,54
sekúndur. í milliriðlunum luku 23
keppendur af 24 keppni og tími
Silju skilaði henni í 15. sæti og það
dugði til að tryggja sæti í undan-
úrslitum sem fram fara á föstudag
kl. 21.00 að íslenskum tíma. „Ég
var ósátt við 400 metra hlaupið hjá
mér á þriðjudaginn og hlakkaði því
mikið til að hlaupa 200 metrana.
Þetta gekk allt saman mjög vel hjá
mér í undanrásunum og þar fann
ég mig virkilega vel. Það gekk
ekki alveg eins vel í milliriðlunum
og ég er ekki alveg sátt við hvað
ég sýndi í því hlaupi en á sama
tíma er ég afar glöð að hafa náð í
undanúrslitin," sagði Silja í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Kristófer
til liðs
við Blika
KRISTÓFER Sigurgeirsson,
knattspyrnumaður, sem leikið
hefur með Fram, er genginn í
raðir Breiðabliks og hefur
skrifað undir þriggja ára samn-
ing við Kópavogsliðið, sem
hann lék með 1991-1996.
Helga
Jónasi
HELGI Jónas Guðfínnsson og fé-
lagar í belgfska körfuknattleiks-
liðinu FLV Athlon Ieper lögðu
spænska liðið Girona 83:70 í
Evrópukeppni fólagsliða í fyrra-
kvöld í Belgíu. Helgi Jónas lék í 17
mínútur, gerði 5 stig, eina þriggja
stiga körfu og eina innan teigs og
stal boltanum auk þess tvívegis af
mótherjum sínum. Hann var með
50% nýtingu í leiknum.
Morgunblaðið/Hasse Sjögren
Silja Úlfarsdóttir, frjálslþróttakona úr FH, tryggði sér sæti í undanúrslitum í 200 metra hlaupi á
HM unglinga sem fram fer í Chile. Silja varð 15. af 24 keppendum sem komust í milliriðla.
KR enn án sigurs
- tap hjá Keflavík
TVEIR leikir fóru fram í gærkvöldi í 8-liða úrslitum bikarkeppn-
innar í körfuknattleik, sem er kennd við Kjörís. (Hveragerði unnu
heimamenn í Hamri íslandsmeistara KR með 77 stigum gegn 66,
og var þetta fimmti tapleikur KR í röð. í Keflavík náðu Njarðvík-
ingar að leggja Keflvíkinga fyrst allra liða á nýhöfnu keppnis-
tímabili og lokatölur urðu 84:97. Liðin mætast síðan aftur í seinni
leik 8-liða úrslitanna á laugardag og samanlögð úrslit leikjanna
tveggja ráða úrslitum um hvaða lið komast í hóp hinna „fjögurra
fræknu“ sem leika til undanúrslita laugardaginn 11. nóvember.
IHveragerði skoruðu KR-ingar
fyrstu tvö stigin og var það í eina
skiptið sem þeir komust yfir í leikn-
um. Bandaríkjamaðurinn í liði Ham-
ars, Chris Dade, tók þá við að raða
stigunum og skoraði næstu 11 stig
leiksins. Það dofnaði aðeins yfir leik-
mönnum beggja liða eftir rispu Dad-
es og í lok 1. leikhluta var staðan
25:17. Léleg hittni leikmanna var það
sem einkenndi 2. leikhluta og þrátt
fyrir að hafa ekki skorað stig á fyrstu
8 mínútum 2. leikhluta unnu Ham-
Keflvíkingar töpuðu
í nágrannaslagnum
Það var hörkuleikur í Keflavík er
Njarðvíkingar komu í heimsókn -
staðráðnir í að hefna ófaranna frá
síðustu viðureign. Danski landsliðs-
miðherjinn í liði Njarðvíkur, Jes V
Hansen, sýndi betri hliðina á sér í
leiknum og var besti maður liðsins.
Bandaríkjamaðurinn Calvin Davis
var yfirburðamaður í liði Keflvíkinga
og villuvandræði hans í leiknum
reyndust dýrkeypt.
í upphafi 3. leikhluta voru Njarð-
víkingar með 3. stiga forystu, 68:65,
og er 2 mínútur lifðu af leiknum var
staðan jöfn, 83:83. Calvin Davis fékk
þá sína 5. villu og þurfti að yfirgefa
völlinn. Njarðvíkingar gengu á lagið
og ótímabær skot Keflvíkinga á loka-
kafla leiksins hjálpuðu gestunum að
auka muninn í 13 stig er upp var
staðið. Forskot Njarðvíkinga verður
án efa gott veganesti í seinni leik lið-
anna á laugardag.
Stigahæstir Keflvíkinga: Calvin
Davis 37 (14 fráköst), Birgir Örn
Birgisson 13, Guðjón Skúlason 9,
Hjörtur Harðarson 8.
Stigahæstir Njarðvíkinga: Jes V
Hansen 24, Brenton Birminham 24,
Teitur Örlygsson 15, Logi Gunnars-
son 14, Friðrik Ragnarsson 11.
arsmenn þann leikhluta með 11 stig-
um gegn 8 stigum KR. Það sem
gladdi augu fjölmargra áhorfenda í
Hveragerði voru tilþrif Skarphéðins
Ingvarssonar sem stal boltanum í
tvígang á skömmum tíma og tróð
með tilþrifum. íslandsmeistaramir
áttu í raun aldrei möguleika á að saxa
á forskot heimamanna og aðeins 22
af 67 skottilraunum rötuðu rétta leið
hjá þeim í leiknum. Liðin mætast að
nýju á laugardag í vesturbænum.
Stigahæstir í liði Hamars voru:
Chris Dade 23 stig, Skarphéðinn
Ingvarsson 19, Ægir Hrafn Jónsson
14. Hjá KR var Jón Amór Stefáns-
son stigahæstur með 20 stig, Ólafur
Jón Ormsson 18 og Jónatan Bow 11.
Lárus Orri vildi ekki fara
ENSKT lið, sem leikur í 2. deild, vildi i vikunni fá landsliðsmanninn
Lárus Orra Sigurðsson á Iánssamning í einn mánuð frá West
Bromwich Albion, en í síðustu viku gaf Lárus það í skyn að hann
væri tilbúinn að fara til annars liðs. Lárus Orri, sem er búsettur í
Stoke, sagði að hann væri ekki tilbúinn að fara að svo stöddu frá
WBA. Hann vildi ekki gefa upp hvaða lið óskaði eftir honum.
„Þetta var kannski ekki rétti timinn fyrir mig til að fara frá Alb-
ion. Ég ætla að æfa aðeins lengur og spila meira með varaliðinu. Ég
spilaði hálfan leik fyrir rúmri viku, en á undan því hafði ég ekki
spilað í hátt í þijár vikur,“ sagði Lárus, sem ætlar að skoða önnur
lánstilboð sem kunna að berast. Lárus er enn að ná sér eftir hné-
meiðsli sem haldið hafa honum frá keppni í um sex mánuði.
■ PETER Schmeichel landsliðs-
markvörður Dana og portú-
galska liðsins Sporting Lissabon
meiddist á hné á æfingu liðsins í
gær og er talið að hann verði frá
í einn mánuð.
■ TRINA Hattestad nýkrýndur
Ólymympíumeistari í spjótkasti
kvenna hefur ákveðið að leggja
spjótið á hilluna. Hattestad er 34
ára gömul sem hefur um árabil
verið í fremstu röð í þessari
íþróttagrein. Hún keppti á fimm
Ólympiuleikum og tókst loks að
vinna Ólympfugullið á leikunum í
Sydney. Hattestad er tvöfaldur
heimsmeistari og á heimsmetið,
69,48 metrar.
■ ENSKA knattspyrnusambandið
hefur vísað þeim sögusögnum á
bug að það hafi boðið Þjóðverjan-
um Berti Vogts að taka við enska
landsliðinu. Sjálfur sagði Vogts í
vikunni að hann myndi þiggja
starfið ef honum byðist það og í
kjölfarið fóru af staðsögur um að
enska knattspyrnusambandið
hefði rætt við hann.
■ JON Harley, varnarmaður í
Chelsea, hefur verið lánaður til 1.
deildarliðsins Wimbledon í þrjá
mánuði. Harley sem er U-21 árs
landsliðsmaður Englendinga en
síðan Claudio Ranieri tók við liði
Chelsea hefur Harley fengið fá
tækifæri.
■ EMERSON Leao hefur verið
ráðinn þjálfari brasilíska
landsliðsins í knattspyrnu í stað
Wanderley Luxemburgo sem lát-
inn var taka pokann sinn fyrir
skömmu. Leao lék í marki lands-
liðins á sjöunda áratugnum en
hefur þjálfað bæði hjá Santos og
Sport Recife.
■ EINN leikur fór fram í 1. deild
karla í körfuknattleik í gær. í
Iþróttahúsi _ Kennaraháskólans
áttust við ÍS og Breiðablik og
sigruðu gestirnir nokkuð örugg-
lega og lokatölur leiksins urðu
67:98.
Staðan í hálfleik var 37:46.
Grindavík
byijarí
Höllinni
Dregið var til 32-liða úrslitanna
í bikarkeppni KKÍ í gær.
Bikarmeistararnir í Grindavík
hefja titilvörnina í Laugardalshöll-
inni, á sama stað og þeir unnu
bikarinn í fyrra, en þeir drógust
gegn 1. deildarliði Ármanns/Þrótt-
ar. Einn úrvalsdeildarslagur er í
32-liða úrslitunum en KFI tekur á
móti Njarðvík.
Þar sem 35 lið eru í bikarkeppn-
inni þarf að fara fram forkeppni.
Þar mætast annars vegar Reynir
Hellisandi og USVH og hins vegar
Arvakur og Keflavík-b.
Drátturinn í 32-liða úrslitunum
varð þessi:
Örninn - Akranes
ÍS - Haukar
Hrönn - Þór Akureyri
Árm/Þróttur - Grindavík
Reynir S - Tindastóll
Reynir H/USVH - ÍR
Valur - KR-b/Breiðablik-b
Dalvík - Hamar
KFÍ - Njarðvík
Léttir - Smári
HK - Stjarnan
Skallagrímur - Árvakur/Kefl.-b
IG - Þór Þorlákshöfn
Selfoss - Snæfell
Breiðablik - Keflavík
ÍV-KR
Leikirnir eiga að fara fram 28.
og 29. október.