Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 1
3LAÐ ALLRA lANCSMANNA Báðir leikir Hauka og Bodö í Hafnarfirði? NOKKRAR líkur eru á því að báðir leikir Hauka og Bodö frá Noregi í EHF-bikaraum í handknattíeik karla fari fram hér á laudi. Por- ráðamenn Bodö buðu Haukunum fyrst að ieika báða leikina í Noregi en Hafhfirðingar höfnuðu þyí. Þá stungu þeir upp á að báðir leikimir yrðu á íslandi og viðræður um það standa yfir. Að sögn Haukanna kemur ekki til greina að spila báða leikina í Noregi. Annaðhvort verða báðir í Hafnarfírði eða það verður leikið heima og heiman. Áætíað var að leikið yrði í Noregi 11. eða 12. nóvember og í Hafharfirði viku síðar en ekki er Ijóst hvor helgin verður fyrir vaiinu ef báðir leikirnir verða hér á landi. Haukaraír stefndu á að vera með hópferð á leikinn í Bodö og hafa fengið mjög góðar undirtektir. ...... Jón stefnir á HM innan- og utanhúss JÓN Arnar Magnússon tugþrautarmaður hefur sett stefnuna á heimsmeistaramótin, innanhúss og utanhúss, á næsta ári. Jafn- framt hefur hann ákveðið að breyta um þjálf unaraðferðir og mun njóta leiðsagnar úr ýmsum áttum en Gísli Sigurðsson hefur séð um þjálfun Jóns undanfarin sex ár. Eftir vonbrigðin á Óiympíuleik- unum í Sydney í haust þar sem Jón þurfti að hætta keppni er staða hans breytt. EWr Hann nýtur ekki Víðj lengur styrkja frá Sigurðsson Afreksmannasjóði ÍSÍ og fyrirtækjum, að því undanskildu að hann fær styrk frá Landssímanum til ára- móta. „Ég vinn átta tíma á dag í World Class og það er í raun þægileg til- breyting eftir að hafa ekki gert annað en að æfa og keppa í fimm ár. Það er skemmtiiegra að hafa eitthvað annað að hugsa um inn á milli. Síðan mun ég æfa öðruvísi en áður, ekki undir stjórn eins þjálfara eins og undanfarin sex ár, heldur fæ ég hjálp frá ýmsum þjálfurum hér á landi og leita til þeirra sem hafa sérþekkingu í mismunandi greinum. Það verður forvitnilegt að prófa þessa aðferð og sjá hvernig hún reynist,“ sagði Jón við Morg- unblaðið í gær. Er samstarfí ykkar Gísla Sig- urðssonar þar með algjörlega lokið? „Ég er fluttur I Kópavoginn en hann er með sína fjölskyldu á Sauð- árkróki, þannig að að því leyti er því lokið. En það er allt í góðu á milli okkar og ég slæ ekki hendinni á móti leiðsögn frá Gísla frekar en öðrum. Það eru engin vandamál á ferðinni í því sambandi.“ Keppir þú áfram fyrir Tindastól eða ætlar þú að ganga til liðs við fé- lag á höfuðborgarsvæðinu? „Ég er áfram í Tindastóli og sé enga ástæðu til að breyta til. Þar hefur mér liðið vel og félagið hefur stutt vel við bakið á mér,“ sagði Jón Arnar. Hann stefnir á þátttöku í heims- meistaramótinu innanhúss i Portú- gal í mars. „Ég þarf að bvrja á að ná lágmarkinu og keppi aUavega á mótinu hjá Erki Nool í Tallinn í febrúar. Síðan tekur utanhússver- tíðin við og ég ætla mér á heims- meistaramótið utanhúss næsta sumar. Ef það gengur allt saman upp læt ég ekki staðar numið þar og held áfram í að minnsta kosti eitt ár í viðbót. Ég á nóg inni,“ sagði Jón Arnar Magnússon. Morgunblaðið/Kristinn Níu þjálfarar fá styrk f rá ÍSÍ ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband ísiand styrkti níu þjálfara, til að sækja námskeið, eða kynna sér þjálfun, erlendis. Þetta er í ann- að sinn sem ÍSÍ afhendir slíka styrki á þessu ári. llmsóknum um þessa styrki hefur fjöigað ár frá ári og að þessu sinni sóttu 32 að- ilar um styrk, 21 karlmaður og 11 konur. Við úthlutun hefur verið leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar og óháð því hvort viðkomandi umsækjandi er að þjálfa börn og unglinga eða afreks- fólk. Eftirtaldir aðilar hlutu 50.000 kr. styrk að þessu sinni. Einar G. Einarsson: Hefur þjálf- að yngri flokka í körfuknattleik frá 1987. Hefur þjálfað meistaraflokka hjá Haukum og Grindavík. Hlýtur styrk tdl að kynna sér æfingar og undirbúning atvinnumannaliðs fyr- ir keppni, í Bandaríkjunum. Guðmundur Jakobsson: Hefur starfað við skiðaþjálfun sL 20 ár. Yfirþjálfari skíðadeildar KR sl. 3 ár. Hiýtur styrk til að geta fylgst með æfingum sænska skíðalands- liðsins. Hildigunnur Hilmarsdóttir: Hef- ur starfað við yngri ilokka þjálfun í handknattleik frá 1986. Hlýtur styrk til að sækja þjálfaranámskeið í handknattleik. Johannes K. Jia: Hefur starfað sem landsliðsþjálfari hjá BLÍ síðan 1993. Þjálfari hjá blakdeild Víkings frá 1985-1987 og blakdeild Þróttar frá 1988-1992. Hlýtur styrk til að sækja námskeið á vegum FIVB. Jónína Ómarsdóttir: Hefur starf- að sem frjálsíþróttaþjálfari hjá Umf. Fjölni frá 1996. Hlýtur styrk til að sækja námskeið í Noregi í byrjun nóvember. Olafur Hreinsson: Hefur starfað sem þjálfari hjá Karatefélagi Reylqavíkur sl. 10 ár. Hlýtur styrk til að sækja námskeið í Danmörku 24.-26. nóv. nk. Ómar Jóhannsson: Hefur starfað við knattspyrnuþjálfun frá því 1980. Hlýtur styrk til að kynna sér þjálf- un hjá Arsenal. 25.000 kr. styrk hlutu; Ragnheiður Runólfsdóttir: Hef- ur starfað sem sundþjálfari frá 1992 m.a. hjá Sundfélagi Akraness, í Mosfellsbæ, á Akureyri og í Kefla- vík. Hlýtur styrk til að sækja sundnámskeið í Danmörku. Ingibjörg Magnúsdóttir: Hefur starfað við ungbarnasundkennslu á Akureyri frá 1996 ásamt sund- kennslu yngstu bama og við sund- leikfimi. Hlýtur styrk vegna sund- námskeiðs sem hún sótti til Svíþjóðar í september. Keflvík- ingar ósigraðir Adonis Þomones á ieið að körfu Keflvíkinga og þeir Hjört- ur Harðarson og Calvín Davis reyna að stóða hann. Shawn Myers fylgir á eftir. KeflvOöng- ar héldu sígurgöngu sinni áfram og hafa ekki tapað leik í deildinní. Úrslit annarra leikja urðu þau að Haukar Iðgðu KFÍ sem er nú eitt á botninum með ekkert stíg, KR hafði betur í Borgarnesi, vann með einu stigi, Njarðvíkingar lögðu Þór nyrðra, Hamar vann Grindavík og ÍR hafði betur í nágranna- siagnum við Val/Fjölni. SÍÐASTI LEIKUR RÚNARS KRISTINSSONAR MEÐ LILLESTRÖM / B4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.