Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 4

Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 4
faámR FOLK AP Rúnar Kristinsson hefur betur I baráttu við Ivan Tomic og Magno Moceiin, leikmenn Alaves, í leik líðanna I Noregi I gærkvöld. Rúnar og félagar áttu við ofurefli að etja og eíga litla möguleika á að komast lengra í UEFA-bikarnum. Rúnar kveður Lilleström í banni RÚNAR Kristinsson lék vafalítið sinn síðasta leik með norska knattspymuféiaginu Lilleström í gærkvöld. Lið hans var yfirspílað á heimavelli af spænska liðinu Alaves í 2. umferð UEFA-bikarsins og var heppið að sleppa með 1:3-ósigur. Rúnar fékk að líta gula spjaldið í leiknum, sitt annað í keppninni, og hann er þar með komínn í eins leiks bann og missir af síðari leik liðanna á Spáni eftir tvær vikur. Litlar líkur virðast á að Lilleström nái að snúa þessum úrslitum við og komast i 3. umferð keppninnar og Rúnari virðist því óhætt að fara að pakka niður og búa sig undir að flytja búferium til Belgíu þar sem hann hefur samið við Lokeren. TJdst Lilleström hið ómögulega og vinni upp forskot Aiaves í úti- leiknum spilar Rúnar í 3. umferðinni sem lýkur 7. desember og fer síðan til Belgíu en samningur hans við Lille- ström rennur út um áramótin. Rúnar fékk eínnig gula spjaldið í síðari leiknum gegn Dinamo Moskva í 1. umferð keppninnar. Alaves komst yfir strax á 2. mínútu leiksins og var komið í 3:0 í upphafi síðari háJfleiks. Roger Helland náði ' að laga stöðuna fyrír Lilleström sex mínútum fyrir leikslok en hann kom inn á sem varamaður fyrir Rúnar sex mínútum áður. Rétt eftir mark hans fékk Alaves vítaspymu en Spánverj- arnir skutu yfír norska markið. Norskir fjölmiðlar fúllyrtu í gærk- völd að leikmenn Lilleström gætu tekið með sér sundfötin og sólarol- íuna til Spánar því ljóst væri að þeir yrðu komnir í frí að leiknum loknum. „Við erum ánægðir með að hafa komist í 2. umferð, það var meira en við reiknuðum með. Við erum nokkr- um þrepum frá þeim bestu í Evrópu en það þarf ekW að koma neinum á óvart,“ sagði Ame Erlendsen, þjálf- ari LiUeström. Eyjólfur ekki með í öruggum sigri Herthu Eyjólfiir Sverrisson lék ekki með Herthu Berlín sem sigraði Amica Wronki frá Póllandi, 3:1', í Berlín. Sigur Herthu var mjög sannfærandi en mark Pólverjanna rétt fyrir leiks- lok gefur þeim veika von fyrir síðari leikinn. Michael Preetz, Stefan Bein- lich og Pólveijinn Piotr Reiss skor- uðu mörk Herthu. Heskey bjargaði Liverpool Emile Heskey hélt áfram að skora fyrir Liverpooi en hann gerði sitt fimmta mark í þremur leikjum og tryggði enska liðinu nauman sigur á Slovan Liberec frá Tékldandi, 1:0, á Anfield. Mark hans kom 6 mínútum íyrir leikslok og bjargaði andliti Liv- erpool sem hafði leildð mjög illa. Reyndar fékk liðið vítaspymu en Robbie Fowler skaut yfir mark Téklcanna. SlaJct gengi Inter Milano hélt áfram og hið stjömum prýdda ítalska lið gerði aðeins jafnteíli, 0:0, við Vitesse frá Hollandi á heimavellL Einungis 9.000 áhorfendur mættu á San Siro- leikvanginn sem var frekar tómlegur enda rúmar hann 85 þúsund manns. Ferfaldir Evrópumeistarar Ajax vom heldur eldd á skotskónum því þeir töpuðu verðslculdað, 1:0, fyrir Lausanne í Sviss. Demis Nikolaidis var maður gær- kvöldsins því hann skoraði fjögur mörk í 5;0-sigri AEK frá Grikldandi á dönsku meisturunum í Herfölge. Mareio Amoroso kom inn á sem varamaður hjá Parma og tryggði Jið- inu 2;0-sigur á Dinamo Zagreb frá Króatíu. Sergio skoraði tvö mörk fyrir Esp- anyol frá Spáni sem skoraði öll mörk- in á fyrsta hálftímanum í 4:0-sigri á GAK frá Austumki. ■ STAN Collymore, leikmaður Leicester City, mun leika með enska úrvalsdeHdarliðinu Bradford City það sem eftir lifir keppnis- tímabilsins á Englandi. Collymore var settur á sölulista hjá Leicester fyrir skömmu en fá lið höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir. ■ LEICESTER fékk Collymore til liðsins í febrúar á þessu ári. Colly- more, sem er 29 ára, skoraði þrennu í fyrsta heimaleik sínum með Leicester en fótbrotnaði nokJcrum dögum síðar og hefur elckert leikið síðan með aðalliðinu. ■ FRANSKI vamarmaðurinn Lili- an Martin, sem leikið hefur með MarseUle, hefur fallist á að ganga til liðs við Derby County í ensku úr- valsdeUdinni. Mart in er 29 ára og hefur ekki verið í náðinni hjá Abel Braga, þjálfara Marseille, í vetur. ■ FORRÁÐAMENN portúgalska landsliðsins í knattspymu hafa af- boðað komu liðsins í vináttuleik gegn úrvalsliði frá Katalóníu. Leik- urinn átti að fara fram á heimavelli Barcelona, Nou Camp, hinn 22. desember. ■ LUIS Figo, einn landsliðsmanna Portúgals, fékk heldur kaldar kveðjur frá áhangendum Barcel- ona er hann lék deiJdarleik á gamla heimavellinum, Nou Camp, með Real Madrid og forráðamenn landsliðsins vUja ekki setja Figo í þá aðstöðu aftur. ■ BANDARÍSKA körfuknattleilcs- liðið Minnesota Timberwolves fékk harða refsingu hjá stjómendum NBA-deildarinnar í kjölfar þess að upp komst um leyrúlegan samning sem liðrð hafði gert við einn leik- mann liðsins, Joe Smith. ■ SAMANLAGÐAR launagreiðsl- ur til leikmanna Timberwolves fóm þar með langt yfir svokallað launaþak og talið er að eigendur liðsins hafi gert samkomulag við Smith um að hann fengi launa- greiðslur undir borðið næstu tíu ár- in. Eigendum Timberwolves er gert að greiða um 300 milljónir króna í selct og að auki fær liðið ekki að velja í íyrstu umferð há- skólavalsins næstu sex árin. ■ PETER Keen, markvörður Carl- isle, skoraði Jyrir lið sitt gegn Blackpool í ensku 3. deildinni í knattspymu á þriðjudagskvöldið. Hann spymti langt frá marki sínu, boltinn lenti við vítateig mótherj- anna og hoppaði yfir markvörðinn. Þetta er í annað sinn á rúmum tveimur árum sem marlcvörður skorar fyrir Carlisle en vorið 1999 gerði markvörður liðsins skalla- mark á síðustu sekúndum í lokaleik deildarinnar og forðaði félaginu frá falli úr deildakeppninni. ■ DIMITRI Karlov, fyrrverandi skytta í heimsmeistaraliði Rússa í handJcnattleik, er genginn til liðs við botnliðið í þýsku deildinni, Hild- esheim. Hann hefur að undanförnu leikið með HG Erlangen í 2. deild í Þýskaiandi. Líklegt að Guð- mundur hafni Aalst GUÐMUNDUR Steinarsson, markaskorari Keflvðdnga í knatt- spymunni í suinar, er ineð tilboð frá Aalst í Beigíu seui vill fá hann leigðan frá Keflavík át títnabilið. Guðmundur sagði við Morgunblaðið í gærkvöld að ineiri Iflcur væru á að bann hafhaði boðinu en að því jrði tekið. „Ég á eftir að fá betri upplýsingar um liðið, sem er neðst í deildinni, og ætla að skoða málið mjög veL Mér býðst iíka að fara til reynslu hjá liðum í Engiandi og Skotlandi en það er al veg eins vdst að ég taki því rólega og reyni að ná öðru góðu túnabili hér heima áður en ég freista þess fyrir alvöru ao spiia erlendis,“ sagði Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.