Morgunblaðið - 28.10.2000, Side 2
2 B LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 B 3
ÚRSLIT
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKIIR
KA - Afturelding 25:24
KA-heimilið, Akureyri, íslandsmótið, 1.
deild karla, Nissan-deild, fóstudaginn 27.
október 2000.
Gangur leiksins: 0:2,2:4,5:4,6:8,10:8,11:9,
13:9,16:12,20:17,23:19,24:23,25:23,25:24.
Mörk KA: Heimir Öm Amason 6, Guðjón
Valur Sigurðsson 6/2, Giedrius Csemiausk-
as 5, Jónatan Magnússon 5, Andreas Stelm-
okas 1, SævarÁmason 1, Hreinn Hauksson
1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 13 (þar
af 5 aftur til mótheija), Hans Hreinsson 1/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson
6/6, Gintaras Savukynas 5, Páll Þórólfsson
6/1, Gintas Galkauskas 4, Magnús Már
Þórðarson 3, Hilmar Stefánsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 15 (þar
af 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifs-
son. Voru þokkalegir en mikið misræmi
var í vítadómum þeirra.
Áhorfendur: Um 450.
Valur - Stjaman 24:19
Hlíðarendi, Reykjavík:
Gang^ur leiksins: 4:0, 5:2, 6:3, 10:3, 10:5,
12:6, 14:6, 15:6, 17:8, 19:13, 20:15, 21:17,
23:17,24:28,24:19.
Mörk Vals: Júlíus Jónasson 5, Snorri
Steinn Guðjónsson 5, Ingvar Sverrisson 4,
Daniel Ragnarsson 3, Markús Máni Mik-
aelsson 3/2, Valdimar Grímsson 2, Fannar
Þorbjömsson 2.
Varin skot: Róland Eradze 24 (þar af fóru
átta aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Eduard Moskalenko 4,
Magnús Sigurðsson 4/3, Hafsteinn Haf-
steinsson 3, Björgvin Rúnarsson 3, Amar
Pétursson 2, David Kekelija 2, Sigurður
Viðarsson1.
Varin skot: Birkir fvar Guðmundsson 14/2
(þar af fóru 4 aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Bjami
Viggósson voru góðir í heildina.
Áhorfendur: Um 230.
ÍBV-ÍR
Frestað til kl. 14 í dag.
FH-ÍR 25:12
Kaplakriki, Hafnarfirði, íslandsmótið, 1.
deild kvenna, Nissan-deild, fóstudaginn 27.
október 2000.
Gangur Ieiksins: 6:0, 7:4, 9:4, 10:6, 13:7,
15:7,16:9,23:10,24:11,25:12.
Mörk FH: Gunnur Sveinsdóttir 7, Hafdís
Hinriksdóttir 5/2, Ragnhildur Guðmunds-
dóttir 2, Harpa Vífilsdóttir 2, Dagný Skúla-
dóttir 2, Hildur Pálsdóttir 1, Eva Albrecht-
sen 1, Björk Ægisdóttir 1, Sigrún Gilsdóttir
1, Helga Jónsdóttir 1, Hildur Erlingsdóttir
1/1, Judit Rán Estergal 1/1.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 14/2, Kristín
Guðjónsdóttir 6.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk ÍR: Heiða Guðmundsdóttir 5/4, Björg
E. Jónsdóttir 3, Anna M. Sigurðardóttir 2,
Linda Guttormsdóttir 1, Áslaug Þórsdóttir
1/1.
Varin skot: Aldís Bjamadóttir 13/2, Helga
D. Magnúsdóttir 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Hörður Sigmarsson og Þórir
Gíslason, mjög mistækir.
Áhorfendur: Um 50.
2. deild karia
Víkingur - Fylkir...............22:13
Mörk Vfldngs: Benedikt A. Jónsson 7, Sig-
urður Bragason 5, Hjalti Gylfason 4, Hjalti
Þór Pálmason 2, Brjánn Bjamason 1, Ingi-
mundur Helgason 1, Atli F. Rúnarsson 1,
Ólafur Eiríksson 1.
Mörk Fylkis: Ingólfur Jóhannesson 4,
Styrmir Sigurðarson 3, Óttar Kruger 2, El-
ís Þór Sigurðsson 1, Siguijón Sigurðsson 1,
Bjarki E. Kristjánsson 1, Kristinn Hreins-
son 1.
KÖRFUKNATTLEIKUR
KFÍ - ÍS 55:60
íþróttahúsið ísafirði, íslandsmótið, 1. deild
kvenna, föstudaginn 27. október 2000.
Stig KFÍ: Jessica Gaspar 16, Anna Soffia
Sigurlaugsdóttir 14, Stefanía Ásmunds-
dóttir 14, Sólveig Gunnlaugsdóttir 9, Tinna
B. Guðmundsdóttir 6, Helga S. Ingimars-
dóttír 6.
Stig ÍS: María Leifsdóttir 16, Stella R.
Kristjánsdóttir 15, Hafdís Helgadóttir 12,
Kristjana Magnúsdóttir 6, Lovísa
Guðmundsdóttir 5, Jófríður Halldórsdóttir
4, Svana Bjamadóttir 2.
■ KFÍ var yfir lengst af, 29:25 í hálfleik, og
það var aðeins undir lokin sem Stúdínur
náðu að síga framúr og tryggja sér nauman
sigur.
Bikarkeppni karla
32-Iiða úrslit:
Armann/Þróttur - Grindavík...48:109
KNATTSPYRNA
England
1. deild:
Preston - Bamsley..............1:2
Þýskaland
Energie Cottbus - Bochum.......2:0
Toni Micevski 29., Vasile Miriuta 44. -
14.900.
Holland
AZ Alkmaar - Twente............5:0
Fortuna Sittard - Breda.i......1:2
Belgía
Lierse - Moeskroen.............1:4
UM HELGINA
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
NISSAN-deildin
1. deild karla:
Ásvellir: Haukar - HK..............16
Smárinn: Breiðablik-FH..........16.30
1. dcild kvenna:
Framhús: Fram-Valur................17
Ásvellir: Haukar - Stjaman.........14
KA-heimili: KA/Þór - Grótta/KR.....17
Víkin: Víkingur-ÍBV................15
2. deild karla:
Grafarvogur: Fjölnir-ÍRb...........14
Sunnudagur:
NISSAN-deildin
1. deild karla:
Seltjamames: Grótta/KR - Fram......20
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna:
ísafjörður: KFÍ-ÍS.................13
KR-hús: KR-Grindavík...............16
Bikarkeppni karla, 32-liða úrslit:
Dalvík: Dalvík - Hamar.............16
Digranes: HK-Stjaman...............16
Grafarvogur: Valur/Fjölnir - KR b..17
Grindavík: ÍG-ÞórÞ.................18
Grundarfjörður: Reynir H. - IR.....17
ísafjörður: KFÍ-Njarðvík...........15
Sandgerði: Reynir S. - Tindastóll..16
Selfoss: Selfoss - Snæfell.........16
Vestmannaeyjar: ÍV - KR............16
Sunnudagur:
Bikarkeppni karla, 32-Iiða úrslit:
Hagaskóli: Léttir - Smári Varmahlíð.13
Hagaskóli: Hrönn-ÞórA..............15
Hagaskóli: Öminn-IA................17
Kennarah.: fS - Haukar.............20
Smárinn: Breiðablik - Keflavík.....20
BORÐTENNIS
Coca Cola-mótið í borðtennis fer fram í
TBR-húsinu á morgun, sunnudag, kl. 11.
ÍSHOKKÍ
Bjöminn og Skautafélag Akureyrar mæt-
ast í Skautahöllinni í Laugardal kl. 19 á ís-
landsmótinu.
BLAK
Laugardagur:
l.deildkvenna:
KA-heimili: KA-Víkingur 15
Sunnudagur:
KA-heimili: KA-Víkingur 14
Sterk
vöm
Vals
GRIMMUR og agaður varnar-
leikur Valsmanna sló Stjörnu-
menn svo hressilega út af lag-
inu þegar liðin mættust að
Hlíðarenda í gærkvöldi að
Garðbæingar skoruðu aðeins
þrjú mörk fyrstu 23 mínúturn-
ar. Það reyndist gestunum of
stór biti að kyngja og Valur
vann 24:19.
Sem fyrr segir fór Valsvörnin á
kostum til að byrja með og
flest, sem slapp í gegnum hana, sá
Róland Eradze
Stefán markvörður um en
Stefánsson hann atti stórleik og
skrifar Júlíus Jónasson
skoraði fjögur af
sex fyrstu mörkum Vals með til-
þrifum. Við bættist að Valsmenn
fengu bónus því slöku skotin urðu
líka að marki. Stjörnumenn voru
ekki að leika mjög slaka vörn en
lítið var um úrræði í sókninni svo
að línumaðurinn Eduard Moskal-
enko brá sér út á völl til að skora
mörk.
Heimamönnum reyndist erfitt að
koma til síðari hálfleiks með níu
marka forskot en gestirnir aftur á
móti tóku vörnina af mun meiri
festu. Það skilaði sér fljótlega en
þeir hefðu mátt vera djarfari í
sóknarleiknum. Þegar munurinn
fór niður í fjögur mörk, 21:17, og
sjö mínútur til leiksloka tóku Vals-
menn aðeins við sér - nóg til að
halda fengnum hlut.
„Ég er ánægður með sigurinn en
við hefðum samt getað gert betur í
seinni hálfleik," sagði Júlíus fyrir-
liði Vals eftir leikinn og var hógvær
um sinn þátt. „Ég er bara einn
hlekkur í keðjunni en við lögðum
upp með að keyra mikið á þá fyrstu
tuttugu mínúturnar, sem átti að
skila okkur góðu forskoti. Það gekk
heldur betur eftir en var fyrst og
fremst vegna þess að við spiluðum
virkilega góðan varnarleik og vor-
um síðan með mann í markinu, sem
tók það sem þurfti." Fyrirliðinn
getur verið sáttur við sína drengi
það sem af er móts. „Þetta er
kannski betra en við áttum von á
en við höfum unnið mjög vel síðan
við duttum út fyrir úrslitakeppnina
í fyrra. Höfum æft í allt sumar og
það er að skila sér auk þess að við
erum allir einu ári eldri og erum
reynslunni ríkari, sérstaklega þess-
ir yngri,“ bætti Júlíus við.
Annað hljóð var í strokknum hjá
Birki Ivari Guðmundssyni mark-
verði Stjörnunnar. „Þetta var ótrú-
lega slæmt hjá okkur, mjög stór
hluti af liðinu kom einfaldlega ekki
nógu vel undirbúinn í leikinn og til
að takast á við jafn sterkt lið og
Valur er,“ sagði Birkir ívar en
hann sjálfur átti prýðisleik.
Auðveldur FH sigur
FH-stúlkur léku við hvurn sinn fingur þegar þær tóku á móti ÍR (
fyrsta leik 6. umferðar 1. deildar kvenna í gærkvöldi. FH sigraði
örugglega í leiknum, 25:12, og sitja sem fyrr í 3. sæti deildarinn-
ar en ÍR er enn á botninum án stiga.
að fór ekki mikið fyrir gestristni
FH-inga í upphafi leiks, en vöm
þeirra með Jolöntu Slapikiene sem
^^1^^ besta mann, meinaði
Ingibjörg ÍR aðgimgi að mark-
Hinriksdóttir mu í 11 fyrstu sokn-
skrifar um þeirra. A sama
tíma skoraði FH 6
mörk, þar af þrjú úr hraðaupphlaup-
um. En eftir að IR náði að brjóta ís-
inn og skora sitt fyrsta mark á 13.
mínútu, jafnaðist leikurinn nokkuð,
ÍR-ingum óx ásmegin á sama tíma og
FH-ingar slökuðu aðeins á, staðan í
hálfleik var 13:7.
Síðari hálfleikur var svipaður hin-
um fyrri, FH hafði öll tök og jók við
forskotið jafnt og þétt. Undir lokin
varð það metnaðarmál hjá Magnúsi
Teitssyni, þjálfara FH, að allir leik-
menn hans skoruðu mark í leiknum
og tókst það án þess þó að markverð-
ir liðsins kæmust á blað.
FH þurfti ekki að hafa mikið fyrir
sigrinum, liðið lagði megináherslu á
að hafa gaman af því að leika hand-
knattleik og hver leikmaður lagði sitt
af mörkum til að svo myndi verða.
Jolanta Slapikiene markvörður og
Gunnur Sveinsdóttir léku þeirra best.
IR liðið á erfiðan vetur framundan
en í liðinu leynast þónokkrir ágætir
leikmenn sem gætu vaxið mjög þegar
líður á og leikreynslan fer að skila
sér. Meðal þeirra leikmanna er mark-
vörður liðsins, Aldís Bjamadóttir
sem átti góðan leik í gær og lék IR-
inga best.
Morgunblaðið/ Kristinn
Hafsteinn Hafsteinsson Stjömumaður stöðvar hér Bjarka Sigurðsson, hornamann Vals, allharkalega á Hlíð-
arenda í gærkvöld. Stjarnan átti hinsvegar enga möguleika á að stöðva Val sem vann auðveldan sigur.
Heimir tryggði
KA sigurinn
KA-menn náðu að knýja fram sigur á Aftureldingu í Nissan-deiidinni
í gærkvöldi, 25:24. Leikurinn var jafn framan af en í síðari hálfleik
héldu KA-menn nokkuð öruggri forystu allt þar til í lokin. Þá söxuðu
leikmenn Aftureldingar hratt á forskot heimamanna en það dugði
þó ekki til því Heimir Örn Árnason náði að innsigla sigur KA12 sek-
úndum fyrir leikslok. Afturelding tapaði sínum öðrum leik í röð með
eins marks mun og liðið er nú töluvert frá sínu besta. Það sama
gildir reyndar um KA-liðið en bæði eru þau um miðja deild með þrjá
sigra og þrjú töp.
að var mikið fjör í fyrri hálfleikn-
um og tvísýnt allan tímann.
Gestimir voru í forystuhlutverki
fyrstu 20 mínútumar.
Einar Bjarki Sigurðsson
sígtryggsson var dijúgur á vítalín-
skrifar unni og skoraði úr
fjómm vítum af
fimm. Dómararnir vom mjög iðnir við
að dæma víti á harðskeytta KA-vörn-
ina en hinum megin vom vítadómarn-
ir sparaðir þrátt fyrir svipuð eða
samskonar brot. Þeir bættu KA það
þó upp með því að dæma raðning og
leiktöf á Aftureldingu í staðinn. KA-
menn náðu svo yfirhöndinni með góð-
um leikkafla þar sem þeir skomðu
fjögur mörk í röð.
Staðan í leikhléinu var 11:9 og
strax í upphafi seinni hálfleiks jók KA
forystuna í fjögur mörk. Skiptust svo
liðin á að skora og gekk leikmönnum
Aftureldingar ekkert að minnka for-
ystu KA-manna. Þeir náðu henni þó
niður í tvö mörk um miðjan hálfleik-
inn. I næstu sókn heimamanna fengu
þeir tvö dauðafæri en Reynir Þór
Reynisson varði frábærlega skot
þeirra. Afturelding fékk hraðaupp-
hlaup en Guðjón Valur Sigurðsson
stal boltanum og kom forystu KA í
þrjú mörk. KA-strákamir virtust
loksins búnir að bjóta Mosfellinga á
bak aftur. Þeir héldu ömggri marka
forystu allt þar til þrjár mínútur vom
eftir. Þá var staðan 24:20 en Jónatan
Magnússon var nýfarinn útaf hjá KA
vegna þriggja brottvísana. Við
brotthvarf hans datt allur botn úr leik
liðsins og leikmenn misstu boltann
eins og byrjendur hvað eftir annað.
Þetta nýttu Mosfellingar sér og skor-
uðu þrjú mörk á örskotsstjundu. Mun-
urinn var allt í einu kominn niður í eitt
mark og mikil spenna var í húsinu.
Heimamenn héldu í sína síðustu sókn
er rúm mínúta var eftir. Þeir héngu á
boltanum, fískuðu aukaköst og ógn-
uðu lítið. Dómarar réttu upp höndina
til að vara við leiktöf en þá reif Heimir
Öm sig upp og þramaði knettinum í
markið við ógurlegan fögnuð áhorf-
enda. Þá lifðu 12 sekúndur en Mos-
fellingar skomðu svo í blálokin.
Sigur KA var nokkuð verðskuldað-
ur en þeir hefðu þó getað lent í fram-
lengingu og jafnvel tapað likt og gerð-
ist gegn Fram um daginn. Jónatan og
Heimir Örn vom gríðarlega öflugir
jafnt í vöm sem sókn. Giedrius
Csemiauskas, sem var arfaslakur í
fyrstu leikjunum, kom mjög á óvart
og átti stórgóðan dag og nýtti þröng
færi sín frábærlega. Hörður Flóki
varði vel framan af en náði ekki skoti
síðasta kortérið. Aðrir leikmenn áttu
ágætan dag. Leikmenn Aftureldingar
stóðu sig ílestir ágætlega en enginn
þeiira stóð upp úr. Bjarki hafði hægt
um sig og Reynir Þór í markinu einn-
ig. Hann átti þó fínan fyrri hálfleik en
datt niður í þeim síðari.
Stjömu-
stúlkur í
úrslit á EM
SVEIT Stjörnunnar úr Garðabæ komst
í gær í úrslit á Evrópumótinu í hópfim-
leikum sem fram fer í Englandi. Stúlk-
urnar náðu næstbesta árangri allra
sveita í gær, hlutu 25,30 í einkunn, en
norsk sveit frá Osló varð efst með
25,35. Stjömustúlkur fengu hæstu ein-
kunn sem gefin var fyrir gólfæfingar
þar sem þær fengu 9,00. Gerpla tók
einnig þátt í mótinu en sveit félagsins
komst ekki áfram, fékk 23,5 í einkunn.
I fyrstu æfingunni, gólfæfingum,
meiddist Eva Dögg Jónsdóttir, sleit lið-
bönd, og gat ekki verið meira með og
hafði það sín áhrif á einkunn iiðsins.
Lothar
Mattháus
er hættur
LOTHAR Matthaus, fyrmm fyrirliði
þýska landsliðsins í knattspyrnu, til-
kynnti í gær að ferli sínum væri lokið.
Matthaus, sem er 39 ára og lék 150
landsleiki fyrir Þýskaland, sem er
heimsmet, lék í ár með New York/New
Jersey Metrostars í bandarísku at-
vinnudeildinni en henni Iauk fyrir
skömmu. Mattháus var fyrirliði Þjóð-
verja þegar þeir urðu heimsmeistarar
árið 1990 en hann varð Evrópumeistari
með vestur-þýska Iandsliðinu 1980 og
vann ijölda titla með félagsliðum sín-
um. Lengst af spilaði hann með Bayern
Miinchen en einnig með Bomssia
Mönchengladbach og Inter Milano.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Islandsmeistara Hauka,
um handknattleikinn á íslandi
Margir strákar
mjög efnilegir
Morgunblaðið/Ásdís
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka.
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari ís-
landsmeistara Hauka í hand-
knattleik, sneri heim síðla
sumars eftir fjögurra ára dvöl í
Þýskalandi. Viggó þjálfaði
þýska handknattleiksliðið
Wuppertal í þrjú ár en var svo
sagt upp. Viggó fór í málaferli
við Wuppertal og vann sigur í
því máli. Þegar niðurstaðan lá
fyrir á þeim vígstöðvum réð
hann sig sem þjálfari Hauka og
tók hann við liðinu í sumar.
Viggó er einn reyndasti hand-
knattleiksþjálfari landsins en
auk þess að þjálfa lið Wupper-
tal og Hauka hefur hann þjálf-
að lið FH og Stjörnunnar.
Morgunblaðið hitti Viggó að
máli í Portúgal á dögunum,
fyrir Evrópuleikinn gegn Braga,
ggpgm og spurði hann
Guðmundur fyrst hvort hann
Hilmarsson merkti einhverjar
skrifar breytingar á
handknattleiknum á Islandi frá því
hann fór út til Þýskalands.
„Mér fínnst vera mjög góð
gróska í handboltanum. Aðstæður
em orðnar mjög góðar enda er
komið mikið af góðum íþróttahús-
um. Ef maður ber það við Þýska-
land þá er grunnurinn á íslandi
miklu betri. Eg hef til dæmis feng-
ið Þjóðverja í heimsókn og þeir
hreinlega trúðu því ekki að aðstað-
an væri svona góð. Það hefur verið
staðið myndarlega að málum og þá
sérstaklega á höfðuborgarsvæð-
inu.“
Margir efnilegir
leikmenn
Finnst þér hafa orðið framfarir?
„Ef maður horfir á landsliðið
segði ég nei - en hvað félagsliðin
varðar eru þau mjög ung og
reynslulítil. Það er feikilega mikið
af efnilegum leikmönnum og til að
mynda eigum við mikið af örvhent-
um Ieikmönnum sem hægt er að
horfa á til framtíðar, á meðan
Þjóðverjar sjá ekki eina örvhenta
skyttu sem er að koma upp. Mér
fínnst þróunin vera góð og mér
sýnist að bestu boltamennirnir fari
í handboltann. Það þykir mér mjög
jákvætt.“
Hvernig metur þú stöðuna núna
rétt í byrjun Islandsmótsins?
„Mér finnst mótið vera að þróast
eins og ég reiknaði með. Það eru
átta lið í deildinni sem em tiltölu-
lega jöfn að getu. Ég held samt að
Haukar, Fram og Afturelding séu
sterkustu liðin og þar á eftir koma
lið eins og ÍBV, KA, Valur og FH.
Ég get ekki kvartað yfir byrjun
okkar á mótinu. Við mættum til
leiks mjög vel undirbúnir og höfum
æft vel. Eg er með breiðan og góð-
an hóp og auðvitað er stefnan sú
að gera góða hluti eins og í fyrra.“
Grátlegt að við höfum ekki
verið með á Evrópumótunum
Nú ákváðu Haukar að skera á
hnútinn og senda lið í Evrópu-
keppnina. Þrýstir þú á það?
„Nei, það var algjörlega ákvörð-
un stjórnarinnar sem ég studdi.
Það var ekkert farið út í þetta
nema að stuðningur frá bænum og
styrktaraðilum væri tryggður og
það var mjög vel staðið að því
máli. Það er nauðsynlegt fyrir ís-
lenskan handknattleik að taka þátt
á Evrópumótunum og þetta skilar
sér inn í landsliðið. Það er auðvitað
grátlegt að við höfum ekki verið
með undanfarin ár. Þegar ég var á
fullu í þessu með Víkingi var
Evrópukeppni á hverju ári og það
var stór liður í hverju leikári."
Fannst þér erfitt að taka við
Haukaliðinu í sumar eftir að liðið
varð íslandsmeistari á síðustu leik-
tíð?
„Nei, mér fannst það ekki og
það hefur ekki truflað mig pers-
ónulega. Ég er með miklu létta
starfsumhverfi fyrir mig núna
heldur en þegar ég tók við Hauk:
unum í annarri deildinni um árið. í
dag er Haukar best rekna
handknattleiksdeildin að mínu
mati og þess vegna er starfið hjá
til dæmis Alexei Trufan, þjálfara
Breiðabliks, miklu erfiðara en
mitt.
Ég er kominn með mikla reynslu
í þjálfun. Það má segja að þjálf-
arastarfið oft vanþakklátt. Þegar
vel gengur þá er það leikmönnum
að þakka en þegar illa gengur er
það þjálfaranum að kenna.“
Landsliðið ekki einkamál
landsliðsþjálfarans og HSÍ
Ef við snúum okkar aðeins að
landsliðinu. Hvernig líst þér á
gang mála þar?
„Það er erfitt að segja. Ég hef
ekki séð nein plön og ég hef ekki
heyrt í landsliðsþjálfaranum í
fimm ár - þó svo að ég hafi þjálfað
nokkra af bestu leikmönnum ís-
lenska landsliðsins. Ég segi ein-
faldlega að með þeim aðferðum
sem hingað til hefur verið beitt þá
hefur ekki náðst árangur. Það er
hins vegar ágætur efniviður fyrir
hendi og ég held að það sé allt í
lagi að yngja upp landsliðið og
koma inn með unga og efnilega
stráka sem eiga framtíðina fyrir
sér. Vissulega þarf landsliðiðið
nauðsynlega að fá sinn tíma, en ár-
angur landsliðsins er ekki einka-
mál landsliðsþjálfarans eða HSÍ.
Þetta snýst um alla handknattleik-
shreyfinguna.“
Eigum við einhverja möguleika
gegn sterkustu þjóðum heims mið-
að við það sem þú hefur séð í al-
þjóðlegum handbolta?
„Eins og staðan er í dag myndi
ég telja að ísland væri þetta í
kringum tíunda til tólfta sæti í
heiminum. Landsliðið hefur dreg-
ist aftur úr hvað getu varðar. Ég
tel að það þurfí að stokka spilin
upp og setja sér ný markmið og
fara í nýjar aðferðir. Við þurfum
að hugsa eins og atvinnumenn og
koma helst upp atvinnumannahópi
í landsliðinu sem er á launum. Það
er nóg af mannskap hér heima sem
hægt er að þjálfa upp,“ sagði
Viggó.
■ HEIÐAR Helguson missir lík-
lega sæti sitt í byrjunarliði Watford
sem mætir Wolves í dag. Heiðar
lék á hægri kantinum og var skipt
út af fyrir Nordin Wooter í hálfleik
þegar Watford vann Bolton í vik-
unni og Wooter heldur væntanlega
stöðunni.
■ RÍKHARÐUR Daðason og Alíð-
un Helgason leika kveðjuleik sinn
með Viking Stavanger á morgun
þegar liðið mætir Odd Grenland í
úrslitaleik norsku bikarkeppninnar
í knattspymu. Ríkharður fer til
Stoke í næstu viku og Auðun til
Lokeren.
■ JÚRGEN Röber framlengdi í
gær samning sinn við þýska knatt-
spymufélagið Herthu Berlín tii
vorsins 2002. Röber tók við Herthu
í desember 1995, nokkmm mánuð-
um eftir að Eyjúlfur Sverrisson
gekk til liðs við félagið sem þá var
nýkomið upp í 2. deild. Hertha er
nú í öðru sæti þýsku deildarinnar
með jafnmörg stig og meistarar
Bayem Miinchen.
■ KIEL, þýsku meistararnir í
handknattleik, fengu í gær línu-
manninn Mike Bezdicek á leigu frá
Minden út þetta tímabil. Hann á að
leysa af hólmi þýska landsliðsfyrir-
liðann Klaus-Dieter Petersen sem
var skorinn upp í vikunni og verður
fjóra mánuði frá keppni.
■ BJARKI Gunnlaugsson og félag-
ar í Preston töpuðu, 1:2, fyrir
Barnsley í ensku 1. deildinni í
knattspymu í gærkvöld. Bjarki
kom inn á sem varamaður á 67,.
mínútuog lagði upp eitt dauðafæri,
og var síðan rétt búinn að jafna á
lokasekúndunum en markvörður
Barnsley varði glæsilega frá hon-
um af markteig.
■ SWINDON, sem leikur í 2. deild
ensku knattspyrnunnar, tilkynnti í
gær að Colin Todd væri enn knatt-
spyrnustjóri félagsins. Hann var
ráðinn aðstoðarstjóri hjá Derby í
vikunni en hjá Swindon telja menn
að Todd sé samningsbundinn og
vilja leita réttar síns. Honum hefur
hinsvegar verið gefið nokkurra
daga leyfi frá störfum hjá Swindon.
Þjálfaranámskeið
OLVMWUSmBAND 1c - almennur hluti
ISWNDS
íþrótta- og Ólympíusamband íslands stendur fyrir framhaldsnám-
skeiði fyrir þjálfara helgina. 4,- 5. nóvember nk. Námskeiðið er
framhald af þjálfaranámskeiði 1b - almennum hluta.
Námskeiðið, sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar er 20
kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinend-
um barna í íþróttum. Haldið verður áfram að fjalla um starfsemi
líkamans og íþróttameiðsl. Farið verður yfir stefnu ÍSÍ í forvarnar-
málum og einnig verður kynning á notkun tölvu- og upplýsinga-
tækni við þjálfun.
Þátttakandi verður að hafa lokið almennum hluta 1b til að
komast á þetta námskeið.
Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að Ijúka sérgreina-
hluta þjálfarastigs 1c hlýtur réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára
og yngri.
Námskeiðið verður haldið í íþróttamiðstöðinni Laugardal frá
ki. 9.00-16.40 báða dagana.
Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ í síma 581 3377.
Netfang: kjr@isisport.is
Skráningu þarf að vera lokið fyrir miðvikudaginn á
1. nóvember nk.
Verð 8.000 kr.
Vakin er athygli á því að þetta námskeið verður haldið á Akureyri
helgina 18.-19. nóvember nk. Nánari uppl. og skráning fyrir það
námskeið á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri, síma 460 1467.