Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 4
Líkumar með Chelsea
í Lundúnaslagnum
Iris Björk
Eysteinsdóttir
skrifarfrá
Englandi
LEIKUR helgarinnar í enska
boltanum er án efa viðureign
Chelsea og Tottenham. Chelsea
hefur ekki tapað gegn Totten-
ham í 11 ár og reyndar unnið
sex af átta viðureignum þeirra á
síðustu fjórum árum. Á hinn
boginn hefur Claudio Ranieri
aðeins stjórnað Chelsea til sig-
urs tvisvar síðan hann tók við
svo allt getur gerst í þessum
Lundúnaslag.
f
Jimmy Floyd Hsselbaink var í
geysilegu stuði um síðustu
helgi og skoraði fjögur mörk gegn
Coventry. Nú stefn-
ir hann á að gera
eitthvað svipað og
drekkja þar með
manninum sem
hjálpaði honum til frægðar í Eng-
landi; George Graham knatt-
spyrnustjóra Tottenham. Graham
keypti Hasselbaink til Leeds frá
K portúgalska félaginu Boavista árið
1997 og borgaði Jimmy fyrir sig
með því að skora 34 mörk á tveim-
ur tímabilum.
„Ég verð að viðurkenna að Ge-
orge Graham var mikill áhrifavald-
ur í lífí mínu. Hann hjálpaði mér
að verða betri leikmaður og betri
persóna," sagði Hasseibaink, sem
fór til Spánar í kjölfarið og lék eitt
tímabil með Atletico Madrid áður
en Gianluca Vialli keypti hann til
Chelsea fyrir þetta tímabil á tæpa
tvo milljarða. Hingað til virðist
fjárfestingin borga sig því hann
hefur nú þegar skorað átta mörk
fyrir þá bláklæddu. Líklegt þykir
að Ranieri haldi sér við sama lið
og sigraði Coventry 6:1 um síðustu
sHielgi og því er ólíklegt að Eiður
Smári Guðjohnsen byrji inni á.
Tottenham er í ágætis stuði
þessa dagana eftir sigur gegn
Derby um síðustu helgi. Graham
fær í leiknum annað tækifæri til að
betrumbæta samband sitt við
stuðningsmenn Tottenham. Sam-
bandið á milli þeirra hefur ekki
verið gott frá því Graham kom til
félagsins. I síðustu viku gagnrýndi
Graham þá harkalega fyrir að púa
á liðið þegar það var að vinna gegn
Derby.
„Attunda sætið svona snemma á
tímabilinu er ekki slæmt. Ég vona
bara að stuðningsmenn láti vel í
sér heyra - á jákvæðan hátt,“
?sagði Graham. Toppliðin Arsenal
og Manchester United ættu ekki
að eiga í neinu basli með sína and-
stæðinga og ættu því að halda sæt-
um sínum á toppnum.
Arsenal fær nýliða Manchester
City í heimsókn og Manchester
United leikur gegn botnbaráttuliði
Southampton.
Hermann Hreiðarsson og félag-
ar í Ipswich leika heima gegn
Middlesbrough og gætu haldið
ótrúlegri velgengni sinni gangandi
nái þeir að sigi-a. Liðið er taplaust
í fímm leikjum í röð og hefur að
^auki haldið hreinu í þremur þeirra.
Á morgun er svo hörku ná-
grannaslagur milli Liverpool og
Everton og gæti jafnvel smá
þreyta setið í þeim rauðklæddu
eftir nauman Evrópubikarsigur
gegn Slovan Liberec á fimmtudag.
Reuters
Hermann Hreiðarsson, leikmaður Ipswich, á hér í baráttu við Roy Keane, fyrirliða
Manchester United, á dögunum.
Leikmenn ósáttir við
félagaskiptatillögur
FULLTRÚI leikmanna í vinnu-
hópi um nýjar félagaskiptareglur á
evrópskum leikmannamarkaði
mætti ekki til fundar hjá hópnum í
gær, þar sem leggja átti lokadrög
að tillögum hópsins. Vinnuhópur-
inn samanstendur af fulltrúum
leikmanna, Knattspyrnusambands
Evrópu, ÚEFA og Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, FIFA.
Evrópusambandið vill gera
gagngerar breytingar á núgildandi
félagaskiptareglum, þar sem sam-
bandið telur þær stangast á við
grundvallarreglur þess.
Gordon Taylor er fulltrúi leik-
manna í vinnuhópnum. Hann taldi
að ekki hefði nægilegt tillit verið
tekið til sjónarmiða leikmanna og
hunsaði fundinn í mótmælaskyni.
Taylor telur auk þess að tillögur
hópsins séu vafasamar og að þær
muni aldrei virka í framkvalmd.
Sepp Blatter, forseti FIFA,
sagði að vinnuhópurinn myndi
leggja fram tillögur sínar, þó svo
að þær nytu ekki stuðnings fulltrúa
leikmanna í hópnum. Hann viður-
kenndi þó að Evrópusambandið
myndi tæplega fallast á tillögur
sem ekki nytu stuðnings leik-
manna.
Framkvæmdastjórn ESB hefur
gefíð aðilum á evrópska leik-
mannamarkaðnum frest til 31.
október til að leggja fram tillögur
að nýjum félagaskiptareglum.
Framkvæmdastjórnin telur að
núgildandi reglur stangist á við
grundvallarreglur ESB sem kveða
m.a. á um frjálsa för launþega.
Núgildandi reglur byggjast á
nokkurs konar eignarrétti félaga
yfír samningsbundnum leikmönn-
um sínum.
■ HÚSLEIT var gerð á heimili og
skrifstofu Christophs Daums, fyrr-
um þjálfara þýska liðsins Bayer
Leverkusen í gær. Daum gekkst
nýlega sjálfviljugur undir lyfjapróf
til að afsanna sögusagnir um kóka-
ínneyslu sína, en prófið reyndist já-
kvætt. Var hann í kjölfarið leystur
frá störfum hjá Leverkusen og
hætt var við ráðningu hans sem
þjálfara þýska landsliðsins. Sak-
sóknari segir að hann sé einn af
fimm mönnum sem verið er að
rannsaka vegna eiturlyfjamála í
bænum Koblenz.
■ LAZIO hefur takið af skarið
varðandi þá hugmynd að Svnnn
Sven Göran Eriksson þjálfai'i liðs-
ins taki við enska landsliðinu.
Sergio Cragnotti, forseti Lazio,
sagði í gær að þjálfarinn fengi ekki
leyfi frá félaginu til að ræða við
enska knattspyrnusambandið um
stöðu landsliðsþjálfara á meðan
hann væri samningsbundinn Lazio.
■ TYRKIR leggja mikið upp úr því
að knattspyrnulið þeirra standi sig
í Evrópukeppninni. Tyrkneska
knattspymusambandið hefur þess
vegna frestað leik Galatasaray og
Antalyaspor sem vera átti laugar-
daginn 4. nóvember þannig að fyrr-
nefnda liðið geti búið sig af kost-
gæfni undir leikinn við Sturm Graz
miðvikudaginn 7. nóvember.
■ HVERT heimsmetið af öðru fell-
ur í sundkeppni Ólympíumóts fatl-
aðra í Sydney. A fímmtudaginn
féllu 25 heimsmet og aldrei hafa
verið sett svo mörg heimsmet á ein-
um degi í sundi. 129 heimsmet hafa
verið sett í sundi á leikunum og
hafa aldrei verið fleiri, í Atlanta
1996 voru heimsmetin 107.
■ JOHN Lukic, þriðji markvörður
Arsenal, leikur í dag sinn fyrsta
deildaleik í þrjú ár þegar lið hans
mætir Manchester City í úrvals-
deild ensku knattspyrnunnar. Luk-
ic, sem verður fertugur í desember,
hleypur í skarðið fyrir David Sea-
man, sem er meiddur í öxl, en það
gerði Lukic einnig gegn Lazio í
meistaradeild Evrópu á dögunum
og stóð sig með miklum sóma.
■ FLENSBURG hefur kært leik
sinn gegn Minden í þýska hand-
knattleiknum í vikunni og krafíst
þess að hann verði leikinn að nýju
en Gústaf Bjarnason og félagar í
Minden unnu þann leik nokkuð
óvænt, 25:23. Leikmaður Flens-
burg var látinn sitja utan vallar í
tvær mínútur í fyrri hálfleik þrátt
fyrir að hann hefði aðeins fengið
áminningu hjá dómurunum.
■ ERIK Veje Rasmussen, þjálfari
Flensburg, segist óttast mjög af-
leiðingarnar ef úrslitin verði látin
standa. Þá geti dómarar í hand-
knattleik í raun gert það sem þeim
sýnist án nokkurs aðhalds.
■ BILLY McKinley, skoskur
landsliðsmaður í knattspyrnu, er
kominn til Leicester á þriggja mán-
aða lánssamningi frá Blackburn.
Hann fer beint í hópinn fyrir leik
Leicester við Derby í ensku úrvals-
deildinni í dag.
íslenskt golfmót á írlandi
SEX íslenskir kylfingar verða á
ferðinni í Dubiin á Irlandi morg-
un - eigast við í golfmóti, sem er
samstarfsverkefni Golfsambands
Islands, írska ferðamálaráðsins
og Samvinnuferða Landsýnar.
Keppt verður með fjórmenn-
ings fyrirkomulagi, þar sem þijú
fslensk lið munu eigast við og eru
liðin þannig skipuð; Kolbrún Sól
Ingólfsdóttir (GK) / Björgvin
Sigurbergsson (GK). Ragnhildur
Sigurðardóttir (GR) / Ottó Sig-
urðsson (GKG).
Herborg Arnardóttir (GR) /
Tryggvi Pétursson (GR).
Mótið fer fram á Druids Glen-
vellinum við Dublin og þátta-
gerðarmenn frá sjónvarpsstöð-
inni Sýn verða á staðnum og
verður sýnt frá keppninni síðar í
haust.
Kylfingarnir sex fóru utan í
gær en ástæðan fyrir því að þess-
ir kylfingr>r fara er að þau urðu í
þremur ei3tu sætunum á sfðasta
mótinu i íslensku mótaröðinni f
sumar og meðal verðlauna voru
farseðlar til Irlands til að taka
þátt í þessu íslenska móti. Þetta
er í annað sinn sem slíkt er gert
en í fyrra var leikið með öðru
fyrirkomulagi.
Nú er leikið þannig að hvert lið
leikur einum bolta og slá liðs-
menn annað hvert högg.