Morgunblaðið - 04.11.2000, Page 4

Morgunblaðið - 04.11.2000, Page 4
 -- . -- - -• mmsm Arnar Gunnlaugsson er byrjaður að leika á ný með Leicester Taylor he gefið m sjálfstr~ ARNAR Gunnlaugsson er að komast á flug með Leicester City eftir erfiða 20 mánuði í ensku úrvalsdeildinni. Arnar hefur átt við marg- vísleg meiðsli að stríða en lék á miðvikudag sinn fyrsta heila ieik fyrir félagið gegn Crystal Palace í deildarbikarkeppninni. „Ég er hundrað prósent heill en þarf bara á leikjum að halda til að komast betri leikæfingu. Það er alveg sama hversu mikið er æft, maður nær aldrei að komast í almennilegt form nema með því að spila leiki í svona erfiðri deild,“ sagði Arnar sem lék ágætlega í leiknum við Crystal Palace. Hann var sprækur í fyrri hálfleik og lék varnarmenn oft grátt. Síðari hálfleikur var honum örlítið erfiðari. „Ég var orðinn þreyttur og kominn með krampa undir lokin.“ Amar kom inn á hjá Leicester um i Iris Björk Eysteinsdóttir skrífar frá Engiandi síðustu helgi gegn Derby og skoraði sigurmarkið þegar tæpar tíu mínútur voru til leiksloka. Leicester leikur í dag gegn Manchester City og vonast hann til að taka þátt í öðrum sigurleiknum í röð í deildinni. Hvernig líst Arnari á framhaldið hjá félaginu? „Mjög vel, við erum í fjórða sæti eins og er, sem er mjög góður árangur. Það eru tveir möguleikar á að komast í Evrópukeppnina. Það er í gegnum bikarkeppnina og deildina. Við eigum Manchester City á laugar- daginn og erum frægir fyrir að koma tviefldir til baka eftir tap. Ég hef trú -á að við verðum tilbúnir í leikinn gegn City. Framhaldið verður von- andi gott því ég hef trú á að við höf- um alla burði til að komast langt.“ Ahorfendur virðast styðja vel við bakið á þér, skiptir það máli? „Þeir eru búnir að vera ágætir, reyndar mjög þolinmóðir. Þegar menn eru keyptir og eru búnir að vera í fríi í eitt og hálft ár eins og ég, verða þeir oft pirraðir en ég hef ekki fundið það. Það er betra að hafa þá með sér en á móti.“ Hvernig er Peter Taylor, knatt- spymustjóri Leicester og landsliðs- þjálfari Englands, sem þjálfari og persóna? „Hann er mjög þægilegur maður, er mjög vingjarnlegur og getur verið mjög harður þegar tilefni er til. Hann er bara nýbyrjaður að þjálfa og virðist hafa mikla hæfileika og ég hef mikla trú á að hann eigi eftir að ná miklu út úr mér. Hann leggur mesta áherslu á liðið. Það eru ellefu einstaklingar sem mynda það og ég er kannski allt öðruvísi leikmaður en til dæmis Matt Elliott og það er bara spurning um hvernig leikmenn smelli inn í liðsheildina. Það á eftir að koma í ljós hvar ég kem til með að spila - ef ég á eftir að spila eitthvað. Hann hefur samt gefið mér sjálfs- traust. Hann hefur talað við mig þeg- ar ég hef verið meiddur og sagt mér að æfa vel og koma mér í gott form og þá muni þetta kannski koma að sjálfu sér - svo hann virðist hafa nokkra trú á mér.“ í hvaða stöðu líður þér best á vell- inum? „Mér líður ágætlega þegar ég spila frammi með stórum framherja. Aðalatriðið fyrir mig er að neyna að finna góða stöðu á vellinum þannig Mark Bjama vakti athygli í Englandi ANNAÐ markið sem Bjarni Guðjónsson skoraði með Stoke gegn Barnsley í deildarbikarkeppninni á miðvikudag vakti verðskuldaða athygli á ensku sjónvarpsstöðinni Sky Sports. Markið var valið eitt af bestu mörkum vikunnar í þættinum „Það besta úr liðinni viku (Pick of the Week)“. Bakfallsspyrna Stan Colleymore í fyrsta leik sínum með Bradford var einnig meðal þess besta sem vikan hafði upp á að bjóða og einnig þrenna Teddy Sheringham. Mark Muzzy Izzets hjá Leicester og Jimmy Flyod Hasselhainks um síðustu helgi gegn Totten- ham voru einnig í þessum flokki. Markvarsla Shay Given, markvarðar Manchester City, vakti einnig athygli ásamt því að mestu mistök vikunnar voru sýnd og voru íslendingar fjarri góðu gamni í þeim hluta þáttarins - sem betur fer. Þess má einnig geta að áhorfendur á ITV’s („On The Ball“) völdu mark Stefáns Þórðarsonar, sem hann skoraði gegn Charlton, besta mark 3. umferðar deildarbikarkeppninnar. Reuters Arnar Gunnlaugsson á hér í baráttu við franska landsliðs- manninn Patrick Vieira hjá Arsenal. að ég geti nýtt mér mína hæfileika, sem er að reyna að plata andstæð- inginn, koma þá með skot að marki eða skapa eitthvað.“ Pegarþú ert loks nftur orðinn heill ertu farinn að leiða hugann að landsliðinu? „Já, maður er alltaf að velta því fyrir sér. Það gekk rosalega vel í síð- asta leik hjá landsliðinu þannig að ég er nú ekkert að stressa mig of mikið yfir því eins og er. Aðalatriðið er að komast í toppform og standa mig vel fyrir Leicester City og sjá svo til,“ sagði Amar, sem er raunsær en jafn- framt bjartsýnn á framhaldið. FOLK ■ RÚNAR Kristinsson og Auðun Helgason, landsliðsmenn í knatt- spyrnu, sem léku með norsku lið- unum Lilleström og Viking, eru komnir til Belgíu - í herbúðir Lok- eren. Þeir eru báðir löglegir með Lokeren um helgina, er liðið leikur bikarleik gegn 2. deildarliðinu Bergen. Það er aðeins spurning hvort að þjálfari Lokeren, Leek- ens, láti þá byrja strax að leika. ■ HREFNA Jóhannesdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, er gengin til liðs við KR frá Islands- og bikar- meisturum Breiðabliks. Hrefna er KR-ingur að upplagi. Hún lék með yngri flokkum félagsins og með meistaraflokki árin 1995-1998. Síðan lá leiðin til ÍBV þar sem hún lék í tvö ár og í sumar spilaði Hrefna með liði Breiðabliks. Hún er framherji og skoraði 7 mörk í 14 leikjum Blika á íslandsmótinu í sumar. ■ COLIN Hendry vill gjarnan komast frá Coventry og fara í her- búðir Bolton. Hendry hefur ekki fengið mörg tækifæri með Cov- entry í vetur og forráðamenn Bolton vilja tryggja sér kappann hvort heldur á lánssamningi eða með langtímasamning í huga. ■ JEAN Tigana, knattspyrnustjóri Fulham, hefur gert 720 milljóna króna tilboð í tékkneska framherj- ann hávaxna Jan Koller. Kappinn leikur nú með Anderlecht, sem er í Meistaradeild Evrópu. Tigana vill frá Koller um leið og Anderlecht fellur úr þeirri keppni og þykir sennilegt að belgíska félagið fallist á kaupin með því skilyrði. ■ DERBY hefur gengið frá þriggja mánaða samningi við Nígeríu- manninn Taribo West um að hann leiki með félaginu. AC Milan hefur samþykkt að lána varnarmanninn en í gær var beðið eftir staðfest- ingu á atvinnuleyfi Wests. Þá hefur einnig náðst samkomulag við Colin Todd um að hann verði Jim Smith knattspyrnustjóra til halds og trausts. ■ ALLT kapp er lagt á að West leiki með Derby í deildinni gegn Arsenal eftir viku. ■ DERBY hefur einnig tryggt sér franska varnarmanninn Lilian Martin frá Marseille. Fastlega er búist við að hann leiki með félaginu fyrsta sinni gegn West Ham á mánudaginn. Vetrarmót í köst- um a vegum EVRÓPSKA frjálsíþróttasam- bandið, EAA, hefur samþykkt að gera tilraun til að koma á boðs- móti í kringlu-, steggju-, og spjótkasti 17. og 18. mars í Nice í Frakklandi, en með því er ætl- unin að skapa fremstu köstur- um Evrópu í þessum greinum verkefni yfir vetrartímann. þjóða þannig að tveir yrðu saman í liði frá hverri þjóð. Með þessu móti skapast t.d. verkefni fyrir Magnús Aron Hallgrímsson, kringlukastara frá Selfossi, sem hefur skipað sér í hóp fremstu kringlukastara Evrópu með árangri sínum sl. sumar. Stigamótaröð á Norðurlöndum Þeir sem stunda þessar greinar kasta hafa ekki tækifæri til þess að taka þátt í innanhússmótum og æfi þeir í Evrópu hafa verkefni þeirra ekki verið nein. Ef vel tekst til þá er ætlunin að halda mótið árlega. Ætlunin er að bjóða til leiks 30 fremstu Evrópubúum í hverri grein, en jafnframt er stefnt að keppni milli Á næsta sumri ætlar EAA í sam- vinnu við Alþjóðafrjálsíþróttasam- bandið, IAAF, að koma á stigamóta- röð fyrir Norðurlandabúa. Reiknað er með að fyrsta árið verði þrjú mót sem haldin verða í Noregi, Sviþjóð og Finnlar.di. Þessu móti er ætlað að auka verkefni fyrir fremstu frjáls- íþróttamenn Norðurlandanna en margir þeirra hafa ekki átt mikla möguleika á að vera á meðal þátttak- enda í stigamótum IAAF þar sem aðeins þeir allra fremstu taka þátt í flestum tilfellum. Jónas Egilsson, formaður Frjáls- íþróttasambands íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið, fagna hinni nýju stigamótaröð og einnig kastmótunum. „Með Norrænni stigamótaröð verður til verkefni fyr- ir okkar fremsta íþróttafólk í keppni við félaga sína á Norðurlöndunum," sagði Jónas. Tekist hefur að tryggja mótunum öruggar tekjur þannig að fátt á að geta komið í veg fyrir að hægt verði að ýta mótunum úr vör næsta sum- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.