Morgunblaðið - 07.11.2000, Page 1

Morgunblaðið - 07.11.2000, Page 1
rjr r r> / , T' fT ■r'T t rrrT ' B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A 2000 ■ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER BLAÐ Helgi skoraði tvö mörk HELGI Kolviðsson kom mikið við sögu þegar lið hans, Ulm, sigraði Alemania Aachen, 3:1, í þýsku 2. deildinni í knattspyrnu um helgina. Helgi var á skotskónum, skoraði tvö fyrstu mörkin með fjögurra minútna millibili um miðbik siðari hálfleiks og átti stórleik á miðjunni en hann var talinn besti leikmaður Ulm í leiknuin. Þetta eru fyrstu mörk Helga í þýsku knattspym- unni. Ulm komst með sigrinum upp í 12. sæti deildarinnar. Þegar leikn- ar hafa verið ellefu umferðir er Ulm með 14 stig en 18 lið eru í deildinni. Hlynur aðstoðar Njál HLYNUR Stefánsson, fyrirliði ÍBV í knattspyrnu og besti leikmaður Islandsmótsins í sumar, hefur verið ráðinn til að aðstoða Njál Eiðsson, nýráðinn þjálfara Eyjamanna. Leikmannahópurinn hjá Eyjamönn- um er tvískiptur eins og undanfarin ár. Njáll mun sjá um æfingar þeirra leikmanna sem eru á höfuðborgar- svæðinu en Hlynur stýrir æfingum hjá heimamönnunum. Hlynur hefur ekki tekið endanlega ákvörðun hvort hann muni leika áfram með ÍBV á næstu leiktíð en Eyjamenn mega illa við að missa fyrirliðann sem hefur verið þeirra besti leik- maður undanfarin ár. Morgunblaðið/Jim Smart Björn Björnsson, fimleikamaður úr Ármanni, er hér í gólfæfingum á haustmóti í fimleikum, sem fórfram í Kaplakrika í Hafnarfirði á laugardaginn. Sjá nánar um mótið á B16. 4 i v iJ| fe i rL ln L Guðni áfram hjá Bolton Sam Allardyce knattspyrnustjóri Bolton hefur ekki útilokað að Guðni Bergsson, fyrirliði enska 1. deildarliðsins, muni framlengja samning sinn við félagið um eitt ár til viðbótar. Guðni, sem er 35 ára gam- all, lýkur samningi sínum við Bolton eftir leiktíðina en hann lét undan þrýstingi forráðamanna Bolton á síð- asta keppnistímabili og skrifaði und- ir eins árs samning. Guðni hefur átt mjög gott tímabil með Bolton í ár. Hann hefur haldið vörninni saman og hefur reynst hættulegur upp við mark andstæð- inganna en Guðni hefur skorað tvö mörk á leiktíðinni. „Ég hef ekki kyngt því að þetta verði síðasta tímabil Guðna með Bolton en auðvitað verð ég sætta mig við það ef leikmaðurinn vill hætta. Það kemur til með að ráða miklu í ákvörðun Guðna hvort við förum upp í úrvalsdeildina eða ekki en hann hefur í það minnsta getuna til að halda áfram. Guðni hefur leikið sér- lega vel á tímabilinu og í rauninni hefur það ekki komið mér neitt á óvart,“ segir Allardyce í samtali við Bolton Ewening News. Vassell kemur til KR eftir allt BANDARÍKJAMAÐURINN Jeremy Eaton staldraði stutt við hjá íslandsmeistaraliði KR og var hann ekki í leikmannahóp KR gegn Haukum á sunnudag. Eaton lék 2 leiki og skoraði í þeim leikjum 11, 5 stig að meðal- tali og tók 9,5 fráköst. „Það kom í ljós að Keith Vass- ell gat eftir allt komið til okkar og því var ekki nein spuming að fá hann til liðs við okkur á ný. Eaton var á reynslusamningi hjá KR og við tókum þá ákvörðun að gera ekki samning við hann þar sem Vassell var betri kostur. Á laugardag þegar við vorum að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Haukum kom upp ákveðið atvik á æfingu liðsins sem gerði það að verkum uð ég vildi ekki að Eaton léki leikinn gegn Hauk- um. Auðvitað er þetta slæmt fyr- ir íþróttina og liðin i' deildinni að vera skipta um leikmcnn á miðju tímabili en þetta vandamál væri mun minna ef við gætum borgað erlendu leikmönnunum eitthvað í líkingu við það sem gerist á meginlandi Evrópu, - það er því miður ekki raunhæft," sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari KR. VIÐTAL VIÐ EINAR ÞORVARÐARSON HJÁ HSÍ/B4 INTER INTER INTER INTER í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.