Morgunblaðið - 07.11.2000, Qupperneq 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Blikamir
fara til La
Manga
ISLANDS- og bikarmeistar-
ar Breiðabliks í knattspyrnu
kvenna hafa þegið boð um
að taka þátt í óopinberu
Norðurlandamóti kvenna-
liða næsta vor, en mótið fer
fram á La Manga á Spáni.
„Við ákváðum að þiggja
boðið sem við fengum í síð-
ustu viku. Við teljum það
mjög mikilvægt að taka þátt
í þessu móti sem verið er að
reyna að endurvekja eftir að
hafa legið í dvala sl. þrjú
ár,“ sagði Jörundur Áki
Sveinsson þjálfari Breiða-
bliks.
Að þessu sinni verður
mótið með öðru sniði en fyrr
því nú taka 12 lið þátt, fimm
frá Noregi, fimm frá Svíþjóð
auk íslensku og finnsku
meistaranna.
Hvað með kostnaðarhlið-
ina?
„Það er alveg Ijóst, að
kostnaður við þátttöku í
þessu móti er mjög mikill.
Okkur hefur reiknast til að
það kosti okkur ekki minna
en 1,5 milljónir að fara
þarna út með tuttugu til
tuttugu og tveggja manna
hóp.
Við lítum svo á að þetta
mót sé of sterkt til að við
getum sleppt því og við telj-
um að þarna munum við fá
gríðarlega mikla og góða
reynslu sem mun nýtast
okkur vel á komandi tíma-
bili.
Við höfum staðið í íjáröfl-
unum undanfarin ár þegar
við höfum farið til Portúgals
í æfingabúðir. Þar höfum
við leikið nokkra leiki við ís-
lensk lið svo þetta mót verð-
ur talsvert öðruvísi en þær
ferðir. Við höfum góða von
um að fá styrki frá KSÍ, að-
alstjórn Breiðabliks og
Kópavogsbæ,“ sagði
Jörundur Áki Sveinsson.
Ólafur Gottskálksson hefur náð sér á strik á milli stanganna hjá Brentford
Syngja lagið hans
Ola í hverri viku
ÓLAFUR Gottskálksson hefur
að undanförnu verið í eldlínunni
hjá liði sínu Brentford í 2. deild-
inni í Englandi í knattspyrnu
ásamt því að vera að nýju valinn
í landslið íslands. Ólafur skrif-
aði í sumar undir þriggja ára
samning við Brentford og hefur
blómstrað milli stanga liðsins.
Hann var valinn leikmaður mán-
aðarins fyrstu tvo mánuði leik-
tímabilsins og því hefur enginn
annar leikmaður náð á þeim víg-
stöðum. Áhorfendur urðu strax
mjög hrifnir af kappanum og
syngja hástöfum lagið hans Óla
á hverjum leik - „Ole, Ole, Ole“.
Það skiptir rosalega miklu máli
þegar maður er að byrja í nýju
liði að byrja strax að spila vel og
sýna félaginu að
maður sé þess virði
að hafa verið feng-
inn til þess. Strax í
upphafi var ég kom-
inn með áhorfendur á mitt band og
leikmenn fengu traust á mér og það
gaf mér aukið sjálfstraust. Ahorf-
endur skipta líka gífurlega miklu
máli. Þeir eru mjög gagnrýnir og til
dæmis ef liðið er ekki að spila vel og
staðan er kannski jöfn í hálfleik, er
jafnvel púað á okkur í hálfleik þó
svo að við höfum verið að spila
þokkalega - en ekki nógu vel að
þeirra mati. Ég get ekki annað en
verið sáttur við þá athygli sem ég
hef fengið síðan ég kom. Ég byrjaði
strax vel í fyrsta leik með liðinu.
Síðan þá hafa áhorfendur haft gam-
an af að syngja lagið mitt í hverjum
leik, „Ole, Ole, Ole og svo hefur ekki
verið verra að vera útnefndur leik-
maður mánaðarins tvo mánuði í
röð,“ sagði Ólafur sem hefur fengið
gífurlega umfjöllun í fjölmiðlum í
Vestur-London.
Ólafur byrjaði seinna að leika sem
Iris Björk
Eysteinsdóttir
skrifar
frá Englandi
Morgunblaðið/Iris Björk Eysteinsdóttir
ívar Ingimarsson og Ólafur Gottskálksson.
atvinnumaður í knattspyrnu en
flestir. Þegar hann var 28 ára fór
hann til reynslu til tveggja liða í
Þýskalandi og eins liðs í Englandi.
Hann var svo orðinn 29 ára þegar
hann skrifaði undir sinn fyrsta at-
vinnumannasamning. „Andri Sig-
þórsson var hjá Bayern Múnchen á
þeim tíma og ég fékk að æfa með
þeim í eina viku og það var
skemmtilegur tími. Þá fyrst fékk ég
svakalegan áhuga fyrir því að kom-
ast í atvinnumennsku og setti mig í
samband við Hörð Hilmarsson og
hann kom mér í samband við um-
boðsmann erlendis sem kom mér til
reynslu hjá Motherwell í Skotlandi.
Þeir buðu mér strax samning en þá
kom Hibernian inn í þetta. Það var
engin spurning því þar bauðst mér
góður samningur hjá stóru liði sem
ekki var hægt að hafna og ég skrif-
aði undir til þriggja ára. Ef ég fengi
íslenskir knattspyrnumenn í Englandi
SKOTLAND
Guðjón Þórðarson,
knattspymustjóri
Birkir Kristinsson
Rikharður Daðason
Bjarni Guðjónsson
Brynjar Björn Gunnarss.
Stefán Þórðarson
Kristján Sigurðsson
W.B.A.
Lárus Orri Sigurðsson
Jft
Leicester
West Peterborough
Bromwich
Ipswich
LONDONt
1)1!
!'
/
|f
V
i
Scunthorpe
Bjarnólfur Lárusson
Leicester
Arnar Gunnlaugsson
Peterborough
Helgi Valur Daníelsson
Ipswich
Hermann Hreiðarsson
//
Watford
Heiðar Helguson Jóhann B. Guðmundss.
Brentford
Ólafur Gottskálksson ívar Ingimarsson
Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen
annan samning eftir þann þá væri
það gott úr því ég fór svona seint út.
Nú er ég búinn að gera annan
þriggja ára samning svo ég er í at-
vinnufótbolta í að minnsta kosti sex
ár og það er að mínu mati gott. Ef
ég geri annan samning eftir það er
það bara annar bónus,“ sagði Ólaf-
ur.
Ólafur lék alls 174 leiki í efstu
deild á Islandi með Keflavík, KA, IA
og KR og lifði lífínu eins og venju-
legur fslendingur. „Ég var að vinna
hjá fyrirtæki sem heitir Stilling og
var hjá þeim í átta ár. Þá var dæmi-
gerður dagur þannig að við bjugg-
um á Seltjarnanesi og ég vann frá
níu til fimm og keyrði þá til Kefla-
víkur á æfingu. Ég var svo kominn
heim svona níu, tíu á kvöldin. Þetta
var langur dagur. Þannig að það er
ekki hægt að líkja þessu saman við
það sem er í dag. Dóttir okkar var
tveggja ára þá og ég sá hana nánast
bara sofandi. í dag get ég sótt hana
í skólann, leikið mér með henni og
aðstoðað hana við námið. Þetta er
gríðarlega fjölskylduvænt starf
hérna úti og ómetanlegur tími sem
við fáum saman,“ sagði Ólafur sem
kann svo sannarlega að meta starfið
sitt og nýtur þess að eyða tíma með
konu sinni, Mörtu Guðmundsdóttur
og dóttur þeirra Andreu Björt sem
er fimm ára. „Það tekur alltaf tíma
að aðlagast nýju umhverfi og hefur
það gengið mjög vel hingað til.
Marta útskrifaðist sem kennari frá
Kennaraháskóla íslands í gegnum
fjarnám og er núna í enskunámi.
Andrea Björt byrjaði í skóla nú í
haust og stundar einnig íþróttir
þannig að allir hafa nóg að gera.
Þetta var góður tími að flytja fyrir
okkur því hún var á síðasta ári í
leikskóla og hefði þurft að byrja í
skóla hvort sem er,“ sagði Olafur
sem er greinilega mikill fjölskyldu-
mapur.
Ólafur hefur verið valinn maður
leiksins hjá stuðningsaðilum Brent-
ford á tveimur heimaleikjum.
„Stefnan hjá mér er ósköp einföld -
að halda áfram að gera það sem ég
er búinn að vera að gera undanfarið.
Það sem þetta snýst einna helst um
í minni stöðu sem markvörður er að
spila stöðuglega, og það er það sem
er horft á hér. Allir vilja hafa mark-
vörð sem er stöðugur, ekki einhvern
sem á einn góðan leik og einn dapr-
an - heldur einhvern sem hægt er
að treysta á, því þetta eru svo marg-
ir leikir á tímabilinu. Aðalmálið er
að æfa vel og vera stöðugt í topp-
formi andlega og líkamlega og taka
einn leik fyrir í einu og vona það
besta,“ sagði Ólafur.
Ólafur var valinn í landsliðið að
nýju í haust eftir nokkurt hlé en
hann hefur leikið níu leiki fyrir ís-
lands hönd. „Ég stefni hiklaust að
því að halda mér í hópnum og ekki
bara í hópnum, ég vil spila fyrir Is-
land. Ég stefni ekki að því að vera
númer tvö í liðinu eins og ég er í dag
- ég stefni að því að vera númer eitt
en ég virði það líka að við eigum
fleiri góða markmenn og samkeppn-
in er hörð og ég verð bara að halda
áfram að gera góða hluti og sjá hvað
gerist. Ég er mjög ánægður og met
það mikils að vera kominn aftur inn
í hópinn," sagði Ólafur en hann er
búinn að vera viðloðandi landsliðið
síðan 1991 er hann lék sinn fyrsta
leik. Ég hef aldrei verið í eins góðu
formi og ég er í dag og tel mig eiga
nokkur góð ár í viðbót. í atvinnu-
mennskunni getur maður einbeitt
sér eingöngu að fótbolta og hugsað
vel um sig og komist þannig hjá
meiðslum og þar af leiðandi getur
maður verið lengur að. Markmenn
eru frægir fyrir að vera í þessu til
fertugs! Velgengni mín er ekki eitt-
hvað sem er að gerast akkúrat núna.
Mér hefur gengið vel síðan ég kom
út. Þetta er búin að vera mikil vinna.
Ég er búinn að lenda í mótlæti og
þetta hefur því verið góður skóli fyr-
ir mig. Að vísu hafa hlutimir gengið
að óskum eftir ég kom til Englands
en maður verður að passa sig að
gleyma sér ekki þegar vel gengur.
Olafur hefur tekið eftir nokkrum
breytingum í íslenska landsliðinu
síðan hann var hluti af hópnum síð-
ast. „Mér finnst landsliðið hafa
styrkst á þessum árum. I þessum
hópi sem ég var í núna voru allir
nema einn leikmaður atvinnumenn
og flestir þeirra eru í góðum Iiðum.
Þetta eru allt sterkir og góðir leik-
menn og eru að standa sig vel. Þeg-
ar hópurinn nær að stilla sig saman
getur hann gert góða hluti en auð-
vitað erum við alltaf litla Island og
höfum úr að velja miklu minni hópi
en stóru þjóðirnar, þannig að það er
kannski ekki hægt að búast við of
miklu af okkur,“ sagði Ólafur.
Leið vel í Skotlandi
Árið 1997 gekk Ólafur til liðs við
Hibernian sem var þá í úrvalsdeild-
inni í Skotlandi og lék hann hluta af
leikjunum á sínu fyrsta ári án þess
þó að ná að festa sig í sessi. Annað
árið lék liðið í 1. deild og þá lék Ólaf-
ur alla leiki liðsins sem sigraði deild-
ina með miklum yfirburðum. „Það
var frábært ár þar sem við slógum
öll met sem hugsanlega hafa verið
sett í þeirri deild,“ sagði Ólafur sem
lék svo flesta leiki liðsins á lokaár-
inu sínu. Alls lék hann um 70 leiki
fyrir félagið og var boðinn áfram-
haldandi samningur. „Mér vai' boð-
inn ársframlenging hjá Hibernian
en Brentford bauð mér þriggja ára
samning sem ekki var hægt að
hafna. Mig langaði að spila í enska
boltanum og þar sem samningurinn
var til þriggja ára vorum við tilbúin
að flytja til Englands. Maður þarf
líka að taka inn í þetta öryggið, upp
á fjölskylduna,“ sagði Ólafur.
„Það var virkilega gaman að vera
í Skotlandi því við vorum í Edinborg
sem er einstök borg, ofsalega falleg
og mátulega stór að okkar mati. Það
var mikil breyting að koma svo
hingað í þessa stórborg en við
þekkjum Islendinga sem búa í Lon-
don og eigum skyldfólk hér. Það er
margt hægt að skoða hérna í kring
og það vantar ekki að fólkið heima
vilji kíkja til London og notfæra sér
að maður sé á staðnum og það er
gaman að geta farið með það fólk á
skemmtilega staði,“ sagði Ólafur.
Enska 2. deildin er að mörgu leyti
frábrugðin skosku úrvalsdeildinni.