Morgunblaðið - 07.11.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.11.2000, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ 4 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 HANDKNATTLEIKUR HSI hefur lært af reynslunni I P Einar Þorvarðarson tók við starfi fram- kvæmdastjóra Handknattleikssambands ís- lands sl. vor, en hann hafði áður séð um móta- mál hjá sambandinu um nokurra missera skeið. Erfíð ár eru að baki hjá HSÍ og í spjalli við fvar Benediktsson sagðist Einar trúa þvi að bjartari tímar væru framundan þar sem ætlunin væri m.a. að hlúa betur að íþróttinni. að hefur verið hart í ári hjá HSÍ undanfarin ár en Einar telur að þau ár séu að baki, botninum hafi ver- ið náð og með skipulögðu starfi megi rétta úr kútnum utan vallar sem inn- an. Framundan er heimsmeistara- keppni karla og starf kvenna- landsliðsins og unglingalandsliðanna hefur fengið aukið vægi eftir að hafa legið í láginni um nokurra ára skeið. Þá hefur ríkari áhersla en áður verið lögð á fræðslu- og útbreiðslustarf. Einar segir það vera í og með af nokkurri hugsjón sem hann hafi tekið að sér þetta starf. Sig langi til þess að taka þátt í að byggja HSÍ upp að nýju og miðla af þeirri reynslu sem hann búi yfir eftir að hafa verið landsliðs- maður og þjálfari um marga ára skeið. „Mig langar til þess að koma hlutunum í það horf sem ég þekkti er ég var leikmaður með landsliðinu og ég tel mig þekkja hvað þarf til þess. Hins vegar er raunsæið látið ráða ferð, það er ekki ætlunin að kollkeyra (járhaginn á nýjan leik, stakkurinn er sniðinn hverju sinni eftir vexti,“ segir Einar. „Eins þurfúm við að ákveðna hvaða leiðir eigi að fara,“ segir Einar ennfremur og segist hafa gaman af því að takast á við þetta kreíjandi verkefni. HM í Frakklandi einn liðurínn í uppbyggingunni „Fjárhagur Handknattleikssam- bandsins hefur verið bágur en við er- um að vinna okkur upp úr öldudaln- um hægt og bítandi. Eins og mál standa nú er ekki verið að bæta neitt við skuldum, en við horfum vissulega til heimsmeistaramótsins sem fram fer í Frakklandi snemma næsta árs. Ætlum við að það verði einn liðurinn í að byggja sambandið upp. Undirbún- ingur fyrir þátttöku okkar stendur yf- ir. Það stendur landsliðinu að vissu leyti fyrir þrifum að vera mjög háð þýsku deildakeppninni og þar eigum við við sama vanda að etja og flest önnur landslið. I þýsku deildinni leika flestir bestu handknattleiksmennim- ir og hana skipa nú 20 félög, umferð- irnar eru þar af leiðandi 38. Þess vegna er erfiðara að koma við lands- leikjum en áður auk þess sem heims- og Evrópumótin eru nú á dagskrá í janúar ár hvert. Það þrengir enn þann tíma sem við höfum með liðið. Á þessu ári hefur karlalandsliðið leikið fjórtán landsleiki að Evrópu- keppninni í Rróatíu meðtalinni. Þar af voru aðeins tveir leikir hluti af undir- búningi fyrir EM og ég held að allir geti verið sammála um að það hafi verið alltof lítið. Síðan var farið á EM í Króatíu þar sem leiknir voru sex leik- ir. Eftir það tóku við tveir leikir við Svía í mars þar sem þeir gáfu okkur vilyrði fyrir að endurgjalda okkur heimsóknina með með tveimur leikj- um í janúar næstkomandi sem lið í undirbúningi fyrir HM. Því miður gekk það ekki eftir þar sem Svíar segjast einfaldlega hafa eytt of miklu fyrir Ólympíuleikana, þar sem þeir lögðu mjög mikið undir til þess að vinna gullið. í vor lékum við tvo vináttulands- leiki við Tékka ytra. Það var hluti af undirbúningi okkar vegna leikjanna við Makedóníu nokkru síðar, en þeir leikir skáru úr um hvor þjóðin ynni sér sæti á HM. Eftir leikina við Mak- edóníu var enginn tími til þess að halda áfram með liðið þar sem ekki voru nema þrjár vikur þar til leik- mennimir okkar sem leika í Þýska- landi áttu að vera mættir til sumaræf- inga hjá sínum félögum." Æfingaferð til Þýskalands sleppt „í haust var stefnan sú að fara í æf- inga- og keppnisferð til Þýskalands, leika við félagslið og mæta Þjóðverj- um í tvígang áður en þeir færu á Ól- ympíuleikana. Það tókst ekki og þess- um umboðsmanni, sem ætlaði að útvega okkur leiki við félagsliðin, lán- aðist ekki að fá leiki nema við mjög slök félagslið. Þar með ákvað landsliðsþjálfarinn í samráði við landsliðsnefnd að hætta við ferðina og kalla landsliðið þess í stað hingað heim í æfingabúðir í tíu daga og sú varð raunin. Eini möguleiki okkar til þess að bæta við landsleikjum áður en að und- irbúningnum í janúar kemur var að leika nú byijun þessa mánaðar. Það var reynt að fá leiki, meðal annars var rætt við Dani en allt kom fyrir ekki. Nú liggur fyrir að karlalandsliðið leikur átta landsleiki í janúar áður en HM hefst og liðið verður saman í rúmar þijár vikur fyrir keppnina. Þetta tel ég vera góðan undirbúning, hann gæti ekki verið mikið betri mið- að við þann tíma sem við höfum úr að spila.“ Erfitt að fá lands- leiki á heimavelli Af hverju er erfítt að fá landsleiki hingað heim, er íslenska landsliðið ekki lengurnógu spennandi andstæð- ingur? „Við verðum að hafa mikið fyrir því að fá þjóðir hingað til landsleikja. Ég tel það ekki vera sökum þess að við séum ekki spennandi andstæðingur heldur sé það kostnaðurinn við að komast hingað sem skipti meginmáli. Það er mun ódýrara fyrir Þjóðverja að fara til Danmerkur og leika þai- heldur en að koma hingað. Auk þess tekur það skemmri tíma sem skiptir ekki minna máli þegar á það er litið að ílestar Evrópuþjóðimar eru í sömu sporum og við, það er að vera með flesta af sínum bestu leikmönnum í þýska handknattleiknum. Ef við ætlum að fá fleiri leiki hingað heim á þeim tíma sem slíkt er mögu- legt er ljóst að við verðum að bjóða þjóðum að koma og greiða fyrir allt þeirra úthald.“ íslenska landsiiðinu er ekki eins oft boðið á mót erlendis og áður var. Það eru mót með reglulegu millibili í Evrópu, t.d. fyrir EM í Króatíu, fyrir Óiympíuleikana í haust og síðast nú um helgina var fjögurra landa mót í Danmörku. Auðvitað kostar þetta sitt, en er iandsiiðið nógu duglegt að sækjast eftir því að komast á slík mót? ,M sjálfsögðu þurfum við að vera Danska karlalandsliðið í hand- knattleik fagnaði sigri á Þjóð- verjum í úrslitaleik í fjögurra liða móti um helgina, Brynjar Freyr 27:25- Leikurinn fór Stefánsson fram í Kolding höll- skrifar inni á Jótlandi. Hin frá Danmórku työ landsliðin sem tóku þátt í mótinu voru lið Egypta- lands og Portúgals, sem eru með okkur Islendingum í riðli á HM í Frakklandi. Danir unnu bæði þessi lið mjög sannfærandi. Danir, sem voru ekki með á ÓL í Sydney og verða ekki með á HM í Frakklandi, virðast vera að koma upp með mjög gott landslið. Þjálfari liðsins, Thorben Winther, byggir lið sitt á leikmönnum sem voru í 21 árs unglingalandsliðinu sem hann gerði að heimsmeisturum í Quatar fyrir tveimur árum. Það sem kannski duglegri að bjóða okkur fram. Ég get ekki rætt mikið um fortíðina í þessum málum en það er ljóst að við verðum að hafa allar klær úti til þess að fá fleiri landsleiki og við ætlum að vinna í því og gera okkur sýnilega á ný. Við eigum mikið af góðum hand- knattleiksmönnum og til þess að þeir nái árangri sem landslið þarf á lands- leikjum að halda. Tíminn á hverri leiktíð er lítill, en hann verður að nýta betur en gert hefur verið. Eins og mál standa tel ég að vart sé hægt að leika fleirl en tuttugu landsleiki á ári í karlaflokki.“ Aukin áhersla á yngrí landslið Einar segir ennfremur að fyrir tveimur árum hafi verið tekin upp sú regla að senda unglingalandsliðið 18 og 20 ára bæði í karla- og kvenna- flokki í undankeppni allra stórmóta og að sjálfsögðu á Norðurlandamótin. Einar segir mikilvægt að hlúa að þessum þætti. „Þetta hefur tekist vel að mínu mati og ég tel að við séum að sjá ávöxt af þessu starfi því margir þeirra leikmanna sem hafa komið við sögu yngri landsliðanna undanfarin tvö ár eru nú famir að setja mark sitt á deildakeppnina hér heima. Til þess að fylgja þessu verkefni eftir vil ég sjá að landsliði, sem skipað erleikmönnum sem leika hér heima, verði sköpuð verkefni yfir sumartím- ann. Þannig getum við lengt keppn- istímabilið og aukið reynslu þeirra um leið og þeir verði betur undir það búnir að koma inn í landsliðið þegar kallið kemur.“ Hefurgengið verr að selja íslenska karlalandsliðið en áður? „Það hefur ekki gengið illa. HSÍ er með mjög góða samstarfsaðila sem hafa lengi stutt ákaflega vel við bakið því. Margir samningai- eru lausir um helst hefur breyst til batnaðar hjá þeim er að varnarleikur liðsins er mun betri og markverðir liðsins voru mjög góðir á þessu móti. Liðið fékk t.d. ekki nema 60 mörk á sig í þessum þremur landsleikjum. í leiknum á móti Þjóðverjum spil- uðu Danir lengstum 6-0 vörn og skoruðu Þjóðverjar aðeins 8 mörk í fyrri hálfleik á meðan Danir spiluðu mjög agaðan og fjölbreyttan sóknar- leik sem skilaði þeim 13 mörkum. Það var síðan um 10 mín. fyrir leiks- lok sem Þjóðverjar virtust ætla að komast inní leikinn eftir að stór- skytta þeirra, Christian Rose, hafði sett nokkur mörk í röð, en um fimm mínútum síðar tók Torben leikhlé, endurskipulagði leik sinna manna og voru það síðan Joakim Boldsen og Nicolai Jakobsen sem tryggðu Dön- um sigurinn með góðum mörkum á áramótin og því er framundan nokkui- vinna. Það sem hefur vegið þungt er önn- ur fjáröflun í kringum landsliðið. Ég get nefnt sem dæmi að fyrir EM í Króatíu fór HSI af stað með happ- drætti og á því varð tveggja milljóna króna tap. Ástæðan er sú að vegna þess að árangurinn var ekki eins og best varð á kosið þá hafði fólk minni áhuga. Þegar vel gengur er allt annað upp á teningnum. Þetta er eitt þeirra atriða sem við verðum að laga, það er að þegar illa vegnar á vellinum þá komi ekki 1 kjölfarið harðir fjárhagslegir skellir. Okkar markmið á að vera að eiga landslið sem er á meðal þeirra tíu bestu í Evrópu. Við höfum verið í þeim hópi lengst af, rokkað frá sjötta upp í tólfta sæti. Takist það eigum við að vera inni í flestum stórmótum, þá er framtíðin björt. Til þess að hægt sé að selja lands- liðið verður það að ná árangri,“ segir Einar og leggur þunga áherslu á orð sín. Lærtaf reynslu síðustu stórkeppni Einar segir að menn hafi lært af reynslunni frá því í fyrra þegar undir- búningur karlalandsliðsins fyi-ir EM var ekki fullnægjandi, leikmenn stóðu í samningaviðræðum við HSI um eitt og annað fram á síðustu stund og náðu þar af leiðandi ekki að einbeita sér sem skyldi að því sem máli skipti auk þess sem æfingaleikir voru alltof fáir. „Ég tel að menn hafi lært sína lexíu og þess vegna höfum við skipulega verið að búa liðið undir heimsmeist- arakeppnina eftir að við tryggðum okkur þátttökurétt. Við erum búnir að tryggja okkur átta landsleiki og ég tel að sú áætlun sem við vinnum eftir sé góð. Stefna stjómar HSÍ er jafn- framt mjög skýr, hún er að skapa landsliðinu þá aðstöðu sem þarf til þess að það geti náð árangri." í Ijósi sögunnar eru menn þá hræddir við að taka áhættu ífjármál- um til þess að lenda ekki annarri koll- steypu? „Sú fjárhagslega kollsteypa sem HSÍ lenti í var vegna heimsmeistara- mótsins 1996, um það deilir enginn. Vandinn er kannski meira sá að okk- ur hefur ekki tekist að fylgja eftir góðu dögunum, nýta okkur þá bæði innan vallar sem utan og safna þá ein- hverju í sjóð til þess að eiga þegar kemur að erfiðu dögunum. lokamínútunum. Miklu munaði fyrir danska liðið um þau 5 mörk sem liðið gerði úr hraðaupphlaupum meðan Þjóðverjar gerðu aðeins eitt mark. Nikolai Jakobsen skoraði flest mörk Dana, eða sjö. Christian Rose skoraði sjö mörk fyrir Þjóðverja. Athygli vakti að innan við 1000 áhorfendur voru á leiknum. Joachim Boldsen, fyrirliði, sagði við fjölmiðla eftir leikinn að ef þeim tækist ekki að komast á EM í Svíþjóð árið 2002 væri útlitið verra en svart fyrir kar- lalandsliðið og enn erfiðara yrði að fá áhorfendur á leiki liðsins. í stuttu spjalli við Morgunblaðið eftir leikinn sagði Nikolai Jacobsen að áður en hann segði skilið við danska landsliðið stefndi hann að því að vinna medalíu á stórmóti. Hann sagði að Danir hefðu nú leikmenn sem gætu komið liðinu í fremstu röð. Hefur þú fundið fyrir því að afþeirn sökum vilji fyrirtæki ekki ganga til samstarfs við HSÍ? „Nei, ég hef ekki orðið var við það. Við eigum og höfúm haft mjög góða samstarfsaðila sem staðið hafa þétt við bakið á okkur. Afreksstefna okkar kostar sitt, sennilega um 60 milljónir á ári, en henni viljum Við fylgja." Hefur Afreksmannasjóður ÍSI stutt við bakið á HSÍ? „Hann hefur stutt okkur í gegnum árin og við reiknum með að svo verði áfram þótt ekkert opinbert hafi kom- ið frá honum ennþá vegna heims- meistaramótsins í Frakklandi." Hvað er HSÍ með marga starfs- menn á launum? „Það eru tveir þjálfarar í fullu starfi. Agúst Jóhannsson, landsliðs- þjálfari kvenna, og Þorbjörn Jensson sem er með landslið karla. Síðan er ég framkvæmdastjóri og Rósa Hjartar- dóttir er fjármálastjóri. Þá er Ragn- heiður Karlsdóttir í hálfu starfi með mótamálin á sinni könnu ásamt mér. Ég tel að það megi ekki vera færri starfsmenn hjá sambandinu." Áhersla lögð á útbreiðslu Útbreiðslumál HSÍ hafa verið í lamasessi undanfarin ár en Einar segir að nú sé verið að gera bragarbót á enda þurfi að hafa meira fyrir því en áður að fá ungmenni til þess að stunda handknattleik, íþróttagrein- um hafi fjölgað mjög síðustu ár. „Nú fara þjálfaramir báðir í heimsókn í skólana til þess að kynna handknatt- leik. Eins stendur félögum til boða að fá þá á æfingar. Þetta er eitt þeirra atriða sem við verðum að bæta okkur í. Það er mikilvægt fyrir íþróttina að fjölga iðkendum úr hópi bama og unglinga vegna þess að það skilar sér þegar fram líða stundir." Þannig að það er verið að gera gangskör að því að bæta fræðslu- og útbreiðslumál handknattleiksins? „Við emm að því. Fyrir dymm standa þjálfaranámskeið sem einnig hefur verið h'tið um síðustu misseri og ár. Þessi mál hafa setið á hakanum undanfarin ár vegna þess að menn hafa verið svo uppteknir af því að halda sjó í fjármálum." Það eru ekki mörg ár síðan keppt var íþremur deildum karla og tveim- ur deildum kvenna á Islandsmótinu. Nú næst tæplega í tvær deildh■ hjá körlunum, hvað veldur? „Þetta vil ég meðal annars skrifa á reikninga útbreiðslumálanna. Það hefur ekki tekist að koma á öflugu starfi bama og unglinga úti um land- ið. Þar af leiðandi hafa mörg þeirra félaga, sem fallið hafa úr keppni und- anfarin ár, ekki haft neinn bakhjarl, yngri flokka starfið hefur ekki verið fyrir hendi. Síðan er staðreyndin einnig sú að flest félög vilja vera í efstu deild og það er mjög kostnaðarsamt að taka þátt í henni. Fyrir vikið hefur ekki verið auðvelt að manna stjómir margra félaga. Jafnframt því að setj- ast í stjóm félags taka menn á sig talsverðar skuldbindingar sem fæstir erureiðubúnirtil." Hvað kostar að reka handknatt- leiksdeild sem á lið í 1. deild karla og kvenna? „Ég veit það satt að segja ekki, en það er eflaust misjafnt. Þar sem vel hefur verið haldið utan um starf yngri flokka hefur kostnaðurinn við rekstur meistaraflokka verið viðunandi. Hjá þeim félögum þar sem meiri áhersla hefur verið lögð á meistaraflokka en minna hugað að yngri flokkunum er reksturinn þyngri.“ Keppni í 1. deild kvenna var mjög jöfn og skemmtileg í fyrra og að Danir lögðu Þjóðverja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.