Morgunblaðið - 07.11.2000, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurgeir Ámi Ægisson skoraði f imm mörk fyrir FH. Hér sækir hann að marki Valsmanna.
Bergsveinn iokaði markinu
FH-INGAR lögðu Valsmenn að velli í Kaplakrika á sunnudagskvöld,
22:20. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en eftir að heima-
menn höfðu haft forystu lengst af leiks jöfnuðu Valsarar þegar rúm-
ar fjórar mínútur voru til leiksloka og segja má að nýr leikur hafi
hafist. FH-ingar léku þessar síðustu fjórar mínútur af mikilli skyn-
semi, Bersveinn Bergsveinsson lokaði markinu og þeir tryggðu sér
sigurinn með mörkum frá Hálfdáni Þórðarsyni og Sigurgeiri Árna
Ægissyni.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
gríðarlegri baráttu beggja liða.
Heimamenn höfðu undirtökin allt frá
byrjun, þar sem Sig-
. ..... urgeir Ámi var í
Hinriksdóttir miklum ham og skor-
skrifar aði þrjú stórglæsileg
mörk. Valsarar urðu
fyrir nokkru áfalli um miðjan hálf-
leikinn þegar Júlíus Jónasson meidd-
ist á fíngri og gat hann ekki beitt sér í
sóknarleiknum en stóð þó vaktina í
vöminni. Að sama skapi urðu FH-
ingar fyrir því að Hálfdán Þórðarson
fékk tveggja mínútna brottvísun tví-
vegis í fyrri hálfleiknum og gat ekki
beitt sér að fullu í varnarleiknum. Við
hlutverki hans tók Pálmi Hlöðvers-
sonogleystiþað vel.
FH-ingar náðu mest fjögurra
marka forskoti í fyrri hálfleiknum en
síðari hálfleikur var jafnari þar sem
Valsarar gáfu ekkert eftir og náðu
sem fyrr segir að jafna skömmu fyrir
leikslok, það dugði þeim þó ekki til
sigurs að þessu sinni.
„Leikir FH og Vals eru alltaf mikl-
ir baráttuleikir og þessi var engin
undantekning frá því. Við hleyptum
þeim of mikið inní leikinn uppúr miðj-
um síðari hálfleiknum. Þeir breyttu
aðeins um í vöminni hjá sér og við
lentum í smáerfiðleikum með það. En
vömin hélt á meðan, Bergsveinn
varði vel og við náðum nokkram
mörkum í lokin og það dugði okkur til
sigurs. Við eram með topplið, eram á
uppleið og stefnum ennþá ofar,“
sagði FH-ingurinn Sigurgeir Árni
Ægisson, besti leikmaður leiksins.
Valsmenn áttu í miklum erfíðleik-
um með að leysa framliggjandi 5-1
vöm FH-inga og náðu ekki að nýta
sér það að vera manni fleiri í 10 mín-
úturafleiknum.
Skömmu fyrir miðjan síðari hálf-
leik minnkuðu Valsmenn muninn í
eitt mark, 17:16, en skoraðu síðan
ekki mark í tæpar 9 mínútur á meðan
FH skoraði tvö. Slíkt er munaðui'
sem ekki má leyfa sér í leik sem þess-
um. Roland Enadze, markvörður
Vals, hélt liðinu á floti lengst af leiks
og sýndi oft á tíðum stórkostlega
markvörslu. Þá átti Valgarð Thor-
oddsen góðan leik en Valdimar
Grímsson náði engan veginn að leysa
það að vera í skyttuhlutverkinu
hægra megin. Hann reyndi ítrekað
að leysa inná línuna en hafði ekki er-
indi þar sem erfíði.
Óvænt íVarmá
Mosfellingum vora mjög mis-
lagðar hendur og lítið bólaði á
baráttuanda þegar Grótta/KR sótti
þá heim að Varmá á
Stefán sunnudaginn. Um
Stefánsson miðjan síðari hálfleik
skrifar höfðu gestirnir verð-
skuldaða sjö marka
forystu en slökuðu þá svo mikið á
klónni að aðeins munaði einu marki
áður en yfír lauk, sem var nóg til sig-
urs Gróttu/KR, 23:24. Fyrir vikið
kleif Grótta/KR rétt upp fyrir miðja
deild en ýtti háttskrifuðum Aftureld-
ingarmönnum niður í neðri hlutann.
Hvorki gekk né rak hjá heima-
mönnum fyrstu mínúturnar á sunnu-
daginn - tvívegis lauk sóknum þegar
boltinn fór i stöngina en þeirra
helsta hindran var samt Hlynur
Morthens, markvörður Gróttu/KR,
sem var í miklum ham. Einnig léku
Hilmar Þórlindsson og Aleksander
Peterson á als oddi og skoraðu sam-
an 12 af 13 mörkum Gróttu/KR fyrir
hlé þrátt fyrir að Mosfellingar
reyndu að spila vörnin utarlega.
Eftir hlé var sama upp á teningn-
um og um miðjan hálfleik hafði
Grótta/KR sjö marka forystu, 14:21.
Að auki fengu þá tveir leikmenn Aft-
ureldingar að kæla sig í tvær mínút-
ur en það virtist vekja Mosfellinga af
væram blundi. Þeir hófu að leika
vörnina mjög utarlega og taka tvo
leikmenn úr umferð. Það skilaði sér
strax og jafnt og þétt minnkaði mun-
urinn - þar til hann varð eitt mark,
23:24 og tæpar þrjár mínútur til
leiksloka. Hófst þá mikill darraðar-
dans og Mosfellingar fengu tækifæri
til að jafna en misstu boltann þegar
hálf mínúta var til leiksloka. Ævin-
týrið var ekki úti því hinum megin
varði Ólafur Haukur Gíslason úr
hraðaupphlaupi þegar tuttugu sek-
úndur voru eftir af leiknum en bolt-
inn hrökk aftur í hendur gestanna,
sem héldu honum þar til yfir lauk.
Aftureldingarliðið náði sér ekki á
strik í þessum leik og vora fæstir
leikmenn með á nótunum. „Ég vil
meina að Iiðið nái ekki aðsmella sam-
an eins og það gerði áður því það er
eins og sjö einstaklingar í stað þess
að mynda eitt lið,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson, þjálfari liðsins, eftir leikinn.
„Það gengur ekkert upp þannig og
staða okkar er alls ekki viðunandi en
við verðum bara að berjast áfram því
það gengur ekki að leggja árar í bát.
Við eram komnir mjög nálægt botn-
inum, höfum tapað þremur leikjum í
röð með einu marki. Við eigum miklu
meira inni en einhvern veginn kemur
það ekki fram. Að vísu tókst okkur
að minnka muninn niður í eitt mark
með því að brjóta upp leikinn en það
er ekld á áætlun okkar,“ bætti Bjarki
við. Ólafur Haukur Gíslason mark-
vörður, sem leysti Reyni Þór Reynis-
son af eftir að sá síðamefndi hafði
varið lítið sem ekkert, var bestur hjá
Aftureldingu. Gintaras Savukynas
reyndi sitt besta og náði oft árangri
með einstaklingsframtaki en aðrir
léku undir væntingum.
„Við komum hingað eftir tapleik
við Fram, sem við áttum að vinna, og
það gaf okkur aukaorku,“ sagði
Hilmar Þórlindsson eftir leikinn en
hann gerði nærri helming marka
liðsins. „Við byrjuðum mjög vel og
náðum sjö marka forskoti í síðari
hálfleik en þá var eins og menn héldu
að bjöminn væri unninn, fóra að
slaka á og gera margvísleg mistök.
Það gæti verið þreyta og svo er álag
að spila hér við Áftureldingu en á
móti kom að við voram spenntir fyrir
að bæta fyrir tapleikinn við Fram.
Það var alger lífsnauðsyn fyrir okk-
ur að vinna þennan leik til að slíta
okkur frá neðri hlutanum í deildinni.
Að auki var þetta góð lexía - það á
aldrei að hætta að berjast og aldrei
að bera neina virðingu fyi-ir neinum
mótherjum því við getum unnið þá
alla en auðvitað líka tapað,“ bætti
Hilmar við en hann átti góðan leik
eins og Hlynur markvörður og Pet-
ersons. Gísli Kristjánsson gerði
einnig góða hluti.
Miklir yf irburðir Stjcrnunnar
Stjaman átti ekki í miklum erfíð-
leikum með að krækja í tvö stig
á Islandsmótinu í handknattleik
karla er liðið sigraði
o;_, ,rA, ,r rh,,,r slakt lið KA í leik lið-
Þorólfsson unna í Garðabæ a
skrifar laugardag. Eftir 9
misheppnaðar sókn-
artilraunir hafði norðanmönnum enn
ekki tekist að skora mark og staðan
var 5:0 fyrir heimaliðið eftir stundar-
fjórðung. Er ein mínúta lifði af fyrri
hálfleik hafði KA aðeins tekist að
skora 3 mörk og hörmungarbyrjun
KA gerði það að verkum að það var
nánast formsatriði fyrir leikmenn
Stjörnunnar að klára leikinn.
Leikmenn KA voru greinilega
ekki með fullri meðvitund í fyrri
hálfleik enda var sóknar- og varnar-
leikur liðsins afar slakur. Skyttur
liðsins náðu ekki að finna glufur á
vörn Stjörnunnar og ekki gekk betur
hjá þeim er reynt var að skjóta yfir
vamarmúrinn en þau skot sem láku í
gegn átti Birkir Ivar Guðmundsson
markvörður Stjörnunnar ekki í erf-
iðleikum með að verja. Giedrius
Cserniauskas skoraði fyrsta mark
KA á 13. mínútu eftir gegnumbrot en
í stöðunni 7: 3 skoraði Stjaman 6
mörk í röð og staðan var 13:3 tveim-
ur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.
„Staðan var slæm eftir skelfílegan
fyrri hálfleik. í raun er þetta óskilj-
anlegt hversu illa við lékum í fyrri
hálfleik og við voram eins og byrj-
endur í vörn og sókn. Það sem er já-
kvætt að það ungu strákarnir fengu
tækifæri til að sýna sig og um miðbik
seinni hálfleiksins breyttu þeir stöð-
unni mikið með því að skora fimm
mörk í röð en það var ekki nóg,“
sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA.
Birkir Ivar Guðmundsson mark-
vörður Stjörnunnar var besti maður
leiksins og greinilegt að varnarleik-
ur liðsins styrkist veralega með til-
komu Magnúsar Sigurðssonar.
Magnús skoraði líka þrjú mörk úr
langskotum og virðist hann vera að
ná fyrri styrk eftir meiðsli. Konráð
Olavsson lék töluvert í seinni hálfleik
en er greinilega ekki í mikilli leikæf-
ingu og á mikið inni. Björgvin Rún-
arsson átti góða spretti í vinstra
horninu og Bjarni Gunnarsson var
einnig lunkinn að skjóta fyrir utan.
Eduard Moskalenko og Arnar Pét-
ursson þurftu lítið að hafa fyrir hlut-
unum að þessu sinni og vora lítt
áberandi.
Guðjón Valur Sveinsson var eini
leikmaður KA sem lék af eðlilegri
getu en hann kunni betur við sig í
vinstra horninu en í skyttuhlutverk-
inu. Kári Garðarsson markvörður
kom inn á um miðjan seinni hálfleik
og varði vel og einnig átti Arnór
Atlason ágætis spretti en hann er að-
eins 16 ára gamall og hefur greini-
lega erft stökkkraftinn frá föður sín-
um - Atla Hilmarssyni.
„Það munar miklu fyrir liðið að
Magnús Sigurðsson og Kom’áð Olav-
son eru komnir í liðið að nýju,“ sagði
Birkir Ivar Guðmundsson, mark-
vörður Stjörnunnar.
Byrjendur
íVíkinni
„Þetta var ömurlegur leikur af
okkar hálfu og ég er farin að
halda að við séum bara ekkert
betri en þetta.
Við vorum stressaðar, það skaut
enginn á markið og við fengum
hraðaupplaup í bakið á okkur
hvað eftir annað,“ sagði Kristín
Guðmundsdóttir, fyrirliði Vík-
ings, eftir sex marka tap gegn
Gróttu/KR á laugardag, 16:22.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Grótta/KR gerði nær því út um
leikinn á fyrstu mínútunum, lið-
ið skoraði fjögur fyrstu mörkin og
hafði ekki mikið fyrir
sigrinum eftir það.
Víkingsstúlkur
reyndu hvað þær
gátu í vörninni og
tóku m.a. Öllu Gorkorian og Ágústu
Eddu Bjömsdóttur úr umferð. Þetta
kom þó ekki í veg fyrir að Alla skoraði
sex mörk í leiknum eins og Jóna
Björg Pálmadóttir sem átti mjög góð-
an dag.
Grótta/KR lék þennan leik ágæt-
lega og náði að leysa vel úr sóknarleik
sínum þegar Alla og Ágústa Edda
vora teknar úr umferð, enda er það
engin ný bóla á þeim bæ.
Vamarlega var leikur þeiira frá-
bær og fengu þær við það góða aðstoð
frá mótheijum sínum sem sáu sjálfír
um að stytta sóknir sínar með hverj-
um mistökunum á fætur öðrum.
„Þetta var meiriháttar gaman.
Leikurinn var samt ekki góður hvorki
af okkar hálfu né þeirra. Þetta var
strögl, mikið af mistökum, og þeim
þarf að fækka til að gera leikinn
skemmtilegri. Þetta vill oft gerast
þegar leikir skipta miklu máli og þessi
leikur gerði það svo sannarlega. Þetta
var vinnusigur. Ég er mjög ánægð
með að við náðum að halda haus allan
tímann, jafnvel þótt þær hafi náð að
minnka muninn í eitt mark í síðari
hálfleiknum," sagði Ágústa Edda
Bjömsdóttir, fyrirliði Gróttu/KR.
Leikur Víkinga var vægast sagt
slakur ef frá er talin markvarsla
Helgu Torfadóttur, sem varði alls 23
skot í leiknum, mörg hver úr sann-
kölluðum dauðafærum.
Víkingar léku eins og byrjendur.
Til marks um það töpuðu Víkingar
boltanum 26 sinnum í 57 sóknum sín-
um af öllum mögulegum tilefnum.
Þetta hlýtur að teljast óviðunandi hjá
liði, sem varð deildarmeistari á síð-
ustu leiktíð.
„Það er erfitt að segja hvað gerðist.
Það var ekki til sóknarleikur hjá okk-
ur í þessum leik. Við erum með nýja
leikmenn og það er eins og liðið smelli
ekki saman sóknarlega. Ljósi punkt-
urinn í þessum leik er að varnarlega
voram við að spila ágætlega og ég
ætla að vona að í tveggja mánaða jóla-
fríi náum við að stilla liðið saman,“
sagði Kristín Guðmundsdóttir.
Vandræðalítið hjá Stjörnunni
Stjaman átti ekki í miklum vand-
ræðum með að innbyrða sigur á sam-
eiginlegu liði KA og Þórs á laugardag,
29:24.
Norðanstúlkur skoraðu fyrsta
markið og vora yfír, 1:2, en eftir það
tóku Stjömustúlkur leikinn í sínar
hendur. Eftir góðan fyrri hálfleik þar
sem Stjömustúlkumar keyrðu á fullu
og gáfu ekkert eftir þá slökuðu þær
óþarflega mikið á í síðari hálfleiknum.
Guðný Gunnsteinsdóttir átti fi’á-
bæran leik í liði Stjömunnar og er
greinilega komin í sitt gamla form.
Hún keyrði hraðaupphlaupin af
fullum krafti, vann mjög vel á línunni
og hefði öragglega skorað mun fleiri
mörk en raun varð á ef Siggeir Magn-
ússon, þjálfari Stjömunnar, hefði
ekki hvílt hana lengst af síðari hálf-
leiknum. Nína K. Björnsdóttir, Halla
María Helgadóttir og Inga Lára Þór-
isdóttir skiptu á milli síri leikstjórn-
enda- og skyttuhlutverkunum en það
hefði verið verulega spennandi að sjá
þessa þrjá snjöllu leikmenn alla inná í
einu.
Bestu leikmenn liðsins KA/Þós
vora þær Ásdís Sigurðardóttir og
Inga Dís Sigurðardóttir, sem era að-
eins 17 ára. Þá átti Sigurbjörg Hjart-
ardóttir ágætan leik í markinu.