Morgunblaðið - 07.11.2000, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 B 7
HANDKNATTLEIKUR
Einar Öm Jónsson fagnar einu af fimm marka sinna ásamt Rúnari Sigtryggssyni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Einar Örn Jónsson hefur fallið vel inn í leik Haukaliðsins
Haukar eins og
ein slór fjölskylda
EINAR Örn Jónsson hefur leikið mjög vel með Haukaliðinu í haust
og engin undantekning var á því í leiknum gegn Fram, 25:22. Einar
skoraði 5 glæsileg mörk og þessi snaggaralegi hornamaður hefur
smollið vel inn í lið Hauka en hann gekk í raðir félagsins frá Val í
sumar.
Mér fannst þetta nokkuð sann-
færandi sigur. Við höfðum
forystuna frá byrjun og við vorum
^^ skrefmu á undan
allan leikinn. Við
Hilmarsson hofðum morg tæki-
skrifar færi í seinni hálfleik
til að slíta þá frá
okkur en við vorum að taka léleg
skot og eins var Þór að verja vel í
mark Framarana. Annars var þetta
hörkuleikur tveggja góðra liða.
Framararnir vildu eðlilega hefna
frá því í úrslitaleikjunum í fyrra og
við vildum ná fram hefndum eftir
tapleikinn gegn þeim í meistara-
keppninni," sagði Einar í samtali
við Morgunblaðið.
Nú kemur þú nýr inn í Haukalið-
ið í sumar og þú virðist kunna vel
við þig.
„Þetta er mjög góður hópur. Það
er mikil samstaða í liðinu og þetta
er eins og ein stór fjölskylda. Við
þjöppuðum okkur mjög vel saman í
haust og undirbjuggum okkur vel
fyrir tímabilið. Ég hef fengið að
spila mikið og ég held að ég hafi
bara fengið að hvfla mig þegar ég
hef verið rekinn út af. Ég hef öðlast
gott sjálfstraust og er óragur við að
láta mig vaða í færin og skjóta.“
Þið hafið svo sannarlega fengið
óskabyrjun á mótinu.
„Það er heilmikið eftir af mótinu
og þó svo að trónum á toppnum í
dag er ekki þar með sagt að við
verðum ekki að hafa fyrir hlutun-
um. Við eigum eftir að fara í erfiða
útlileiki og næsti leikur sem er
gegn Aftureldingu verður mjög
strembinn.. Við ætlum að reyna
okkur að nýta okkur þann meðbyr
sem við höfum og halda áfram að
vinna.“
Hvaða Iið sérð þú fyrir þér að
verði ykkar helstu keppinautar í
vetur?
„Ég nefni tvímælaust Framar-
ana. Þeii’ eru með mjög gott lið og
hafa bætt sig frá því í fyrra. Valsar-
ai-nir eru einnig mjög sterkir. Þeir
hafa fengið góðan markvörð og fara
langt á seiglunni og viljanum. Þá
get ég nefnd lið eins og FH, Aftur-
eldingu og ÍBV og þá sýnist mér að
Stjarnan sé að rétta úr kútnum. Ég
hef enn ekki tapað deildarleik með
Haukum og það stendur ekki til að
gera það,“ sagði Einar Örn.
Línumenn í strangri gæslu
LÍNUMENNIRNIR í liðum Fram
og Hauka voru í strangri gæslu í
leik liðanna í Safamýrinni og fyr-
ir vikið höfðu þeir sig minna í
frammi en oft áður.
Framarinn Róbert Gunnarsson
skoraði þrjú mörk í leiknum. Eitt
af línunni, eitt úr hraðaupphlaupi
og eitt af vítalínunni. Hann fisk-
aði eitt vítakast og misnotaði eitt
skot úr góðu færi á miðri línunni.
Róbert lék allan leikinn í sókninni
hjá Frömurum en fékk að hvfla í
varnarleiknum.
Kollegi Róberts í liði Hauka,
Hvít-Rússinn Alikasandr Shamk-
uts, skoraði tvö mörk í leiknum,
eitt af línunni og eitt úr hraða-
upphlaupi. Shamkuts misnotaði
eitt skot af línunni en tapaði
þremur boltum þegar honum mis-
tókst að grípa kuöttinn. Shamkuts
var mistækur í sókninni en bætti
fyrir það með ágætum varnarleik.
Hinn línumaður Haukanna,
Vignir Svavarsson, fékk að
spreyta sig í einni sókn og hann
skilaði marki í þeirri sókn en þá
voru Haukar einum leikmanni
fleiri.
Þannig
vörðu þeir
Markvarslan í leik Fram og Hauka,
innan sviga hve oft knötturinn fór
aftur til mótherja.
Þór Björnsson, Fram: 14 (3). 9 (2)
langskot, 2 víti, 3(1) horn.
Magnús Erlendsson (Fram): 1
langskot.
Bjarni Frostason, Ilaukar: 19 (4),
13 (2) langskot, 1 víti, 3 (1) horn , 2
(1) lína.
Alltaf
aðlæra
nýja
hluti
Björgvin Björgvinsson er
vanari því að leika sem
vinstri hornamaður en sem
leikstjórn-
Eftir andi en hann
Sigurð Elvar hefur leyst
Þorólfsson það hlutverk
ágætlega hjá
Fram í upphafi Islandsmóts-
ins. „Það má segja að við höf-
um ekki leikið vel, vorum að
leika undir getu í vörn og
sókn. Það er alltaf erfitt að
þurfa að elta lið allan tímann
en við náðum ekki að jafna
leikinn og Haukaliðið hafði
því alltaf yfirhöndina í leikn-
um.“
Er Framliðið á áætlun mið-
að við þau markmið sem þið
lögðuð upp með í haust?
„Það er ljóst að sóknarleik-
urinn er ekki eins langt kom-
inn og menn vildu. Varnar-
leikurinn ætti að vera
svipaður og í fyrra en þrátt
fyrir að menn hafi verið að
prófa ýmislegt í þeim efnum.
Leikur liðsins er á réttri leið
og við verðum bara að vera
þolinmóðir með sóknarleikinn
sem virðist vera stærsta
vandamálið þessa stundina."
Hvernig fínnst þér að spila
á miðjunni sem leikstjórn-
a ndi?
„Þetta er í fyrsta sinn sem
ég er settur í þessa stöðp og á
hverri æfingu uppgötvar mað-
ur eitthvað nýtt. Ég hef það
sem markmið að reyna leysa
þessa stöðu eins vel og hægt
er og þetta hlutverk þroskar
mig sem handboltamann og á
eftir nýtast vel.“
Hefur þjálfari ykkar sagt
leikmönnum Fram að taka
litla áhættu og setja frekar
upp í sókn, frekar en að beita
hraðaupphlaupum?
„Nei, það er ekki raunin.
Við verðum að vinna varnar-
vinnuna betur og það hjálpar
markvörðunum að koma bolt-
anum í leik. A meðan sóknar-
leikurinn er stirður er besti
kosturinn að komast í hraða-
upphlaup og skora auðveld
mörk en Anatoli hefur ekkert
verið að bremsa okkur af í
þeim efnum. Það er ekkert
sem bannar okkur að kasta
boltanum á menn sem eru á
leið í hraðaupphlaup, en fyrst
þarf að vinna varnarvinnuna
og það hefur vantað hjá okk-
ur.“
Hvað var það jákvæðasta
við ykkar leik?
„Það jákvæðasta við leikinn
er endurkoma Þórs Björns-
sonar í markið og hann stóð
upp úr í okkar liði,“ sagði
Björgvin Björgvinsson.
SÓKNARNÝTING
íslandsmótið, 1. deild karla
sunnudaginn 5. nóvember 2000
Fram Haukar
Mðrk Sóknir % Mörk Sóknir %
11 26 42 F.h 14 26 54
11 26 42 S.h 11 25 44
22 52 42 Alls 25 51 49
10 Langskot 7
1 Gegnumbrot 3
2 Hraðaupphlaup 5
4 Hom 4
2 Lína 4
3 Víti 2