Morgunblaðið - 07.11.2000, Side 9
8 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
+
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 B 9
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Viggó Sigurðsson var ánægður með sína menn.
ingu á miðvikudaginn og það verður
ekki létt að koma mönnum niður eft-
ir þennan góða sigur.“
Hvað segir þú um Fram-liðið?
„Framararnir eru með mjög góða
liðsheild án þess að vera með stjörn-
ur. Þeir vinna gífurlega vel og eru
greinlega mjög vel þjálfaðir. Það er
erfitt að eiga við Framarana og ég er
mjög ánægður með að hafa lagt þá
að velli hér í Safamýrinni. Ég held að
Fram muni berjast á toppi deildar-
innar ásamt okkur og ég reikna með
að fleiri lið komi inn í þann pakka.
Afturelding hefur spilað langt undir
getu, Valsmenn eru sterkir og Iið
eins og FH og Stjarnan eiga eftir að
styrkjast þegar á líður. Við megum
því hvergi slaka á ef við ætlum okkur
að halda toppsætinu," sagði Viggó.
ÞÓR Björnsson stóð í marki
Fram að nýju en hann hefur ekki
æft handknattleik í eitt og hálft
ár. Þór stóð sig vel í leiknum,
hann varði vel og þar á meðal 2
vítaköst á mikilvægum augna-
blikum.
Kallinn (Anatoli Fedioukine,
þjálfari) bað mig að koma og
æfa með liðinu í einhvern tíma þar
sem Sebastian Al-
Eftir exandersson aðal-
Sigurð Elvar markvörður var í
Þórólfsson aðgerð vegna
kviðslits og ég gat
ekki annað en sagt já þegar éjg var
beðinn um að koma aftur. Eg er
reyndar búinn að æfa minna fyrir
leikinn en til stóð þar sem Anatoli
lagði meiri áherslu á að fá mig á
æfmgarnar síðustu dagana fyrir
leikinn en hann hefur eflaust vitað
að maður er í engu standi til að
æfa meira en ég hef gert.
Kveikir þessi ágæta frammi-
staða ekki í þér að fara æfa aftur
af fullum krafti?
Það er gaman að vera kominn
inn í hópinn að nýju, sérstaklega
ef vel gengur en ég er búinn með
minn tíma í handboltanum og er
aðeins að leysa ákveðið vandamál
sem kom upp. Það gekk ágætlega
hjá mér í seinni hálfleiknum en
fyrri hálfleikurinn var ekki upp á
marga físka.
Er einhver skýring á því að þið
náðuð aldrei yfirhöndinni gegn
Haukum og það á heimavelli?
Fyrst og fremst var það varnar-
leikurinn sem brást hjá okkur. Við
höfum oft náð upp betri varnar-
vinnu en það sem við sýndum í
leiknum og það bitnar alltaf á
sóknarleiknum ef menn skora ekki
af og til auðveld mörk úr hraða-
upphlaupum. Sóknarlega vorum
við frekar daprir og þrátt fyrir að
hafa minnkað forskot Haukanna í
eitt mark var alltaf einhver þrösk-
uldur sem við komumst ekki yfir.
Einum færri í
fýni hálfleik
VARNARMENN Hauka tóku oftar en ekki duglega á móti skyttum
Fram í ieiknum og Gunnar Berg Viktorsson bar þess greiniieg merki
eftir leikinn - með skurð á enni og blóðugur.
Þetta var eins og í úrslitakeppni,
hörkuleikur og menn tóku vel á
því. Bæði liðin ætluðu sér að vera á
toppnum eftir um-
Eftjr ferðina en að mínu
Sinurð Elvar mati var þetta okkar
Þorólfsson ósigur en ekki þeirra
sigur. Við vorum
arfaslakir í fyrri hálfleik og á Ioka-
kaflanum í seinni hálfleik misstum
við oft boltann á klaufalegan hátt.“
Dómarar leiksins fengu oft að
heyra það í leiknum og um tíma virt-
ist ætla að sjóða upp úr innan sem ut-
an vallar, voru dómar þeirra ykkur
óhagstæðir?
„Þeir eru búnir að dæma að ég
held fjóra af sjö leikjum okkar í deild-
inni og það er kannski kominn tími á
að hvíla alla aðila á þessu samstarfí.
Þeir verða auðvitað þreyttir á nöldr-
inu í okkur og við leikmennirnir verð-
um að sama skapi þreyttir á þeiira
ákvörðunum."
Sóknarleikurinn hjá Fram lagaðist
mikiðíseinni hálfleik, hvað breyttist?
„Sjálfur þurfti ég að hugsa minn
gang eftir slakan fyrri hálfleik, skotin
mín drifu varla að marki og þetta var
ekki nógu gott í toppleik.
í seinni hálfleik var ég mun
ákveðnari og það losar aðeins um
aðra möguleika í sókninni ef einhver
er ógnandi fyrir utan. Það má
kannski orða það þannig að við höf-
um leikið einum færri í sókninni í
fyrri hálfleik, ég var það dapur á
þeim tíma. Þjálfarinn okkar veit það
vel að við erum komnir styttra á veg
með sóknarleikinn en hann gerði ráð
fyrir. Björgvin Björgvinsson er í
nýju hlutverkin í fjarveru Guðmund-
ar Pálssonar en þeir eru mjög ólíkir
leikmenn og sóknin hjá okkur á eftir
að lagast mikið þar sem Björgvin er
alltaf að læra nýja hluti. Guðmundur
er meira fyrir að keyra inn vörnina
og „leysa upp„ fyrir okkur skytturn-
ar og Björgvin gerði meira af því í
seinni hálfleik og þá fór þetta að rúlla
betur. “
Voru varnarmenn Hauka fastari
fyrir en gengur oggerist í deildarleik
á Islandi?
„Þeir leika alltaf eins fast og dóm-
ararnir leyfa og ekkert við því að
segja. En þrátt fyrii- það fengum við
nokkur högg í andlitið þegar við sótt-
um að vörninni og það mætti taka
harðar á þessu. Ég er bólginn og með
skurð á andlitinu eftir átökin og
kannski ætti maður að beita þessum
aðferðum sjálfur en það ekkert
skemmtilegt til lengdar að leika
svona grófan vamarleik,“ sagði
Gunnar Berg.
Get ekki
æft mikið
Er stoltur
og ánægður
VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari
íslandsmeistara Hauka, var kát
ur eftir sigur sinna manna á
Fram þegar Morgunblaðið náði
tali af honum eftir leikinn.
Leikmenn Hauka fögnuðu í Safamýrinni, eftir að þeir höfðu sigrað Fram.
ÍSLANDMEISTARAR Hauka höfðu betur gegn Fram í uppgjöri efstu liðanna í 1.
deild karla í handknattleik í Safamýri í fyrrakvöid. Haukar unnu verðskuldaðan
sigur, 22:25, í miklum baráttuleik sem á köflum var ágætlega spilaður. Meistar-
arnir eru því enn með fullt hús stiga, hafa unnið sjö sigra í jafnmörgum leikjum
og eru án efa með besta handknattleikslið landsins.
Haukar leiddu allan leiktímann en með
þrautseigju tókst Frömurum að
hanga í Hafnfirðingunum og veita þeim
kröftuga mótspyrnu og það
Guðmundur Yar ekki ^ en ^okamin-
Hilmarsson utunm sem Haukar gatu
skrífar fagnað sigri.
Haukar og Fram áttust
við í úrslitarimmunni um Islandsmeistara-
titilinn á síðustu leiktíð og það var engu lík-
ara en að leikur liðanna í fyrrakvöld væri í
beinu framhaldi af því einvígi. Mikill tauga-
titringur, átök, barátta, mistök, hraði og
spenna einkenndi leikinn allt frá byrjun og
ekki mátti miklu muna að upp úr syði.
Mörkunum rigndi niður á upphafsmínútum
leiksins og í kjölfarið gerðu bæði lið breyt-
ingar á markvörðum. Þór Björnsson tók
stöðu Magnúsar Erlendssonar eftir i-úmar
fjórar mínútur í marki Framara og hinum
megin tók Bjarni Frostason stöðu Magnús-
ar Sigmundssonar mínútu síðar. Bjarni átti
eftir að láta mikið að sér kveða og Þór í
seinni hálíleik. Með tilkomu Bjarna í mark-
ið náðu Haukarnir frumkvæðinu í leiknum.
Framarar áttu í mesta basli með að finna
leið framhjá Bjarna og hornamennirnir
knáu í liði Hauka, Þorvarður Tjörvi og Ein-
ar Örn, voru heimamönnum mjög erfiðir í
fyrri hálfleiknum.
Haukar höfðu þriggja marka forystu í
leikhléi og þeir héldu Frömurum í hæfilegri
fjarlægð frá sér mestallan síðari hálfleik-
inn. Framarar voru þó ekki á því að gefast
upp. Þrátt fyrir að lenda fjórum mörkum
undir þegar um tíu mínútur voru til leiks-
loka tókst Safamýrarliðinu að hleypa mikili
spennu í leikinn þegar Gunnar Berg Vikt-
orsson minnkaði muninn í eitt mark, 21:22,
þegar fimm mínútur voru eftir. Þór Björns-
son hélt Frömurum áfram inni í leiknum
þegar hann varði vítakast frá Halldóri Ing-
ólfssyni í stöðunni 22:23 og Framarar fengu
tækifæri til að jafna metin. En á klaufaleg-
an hátt missti Hjálmar Vihjálmsson knött-
inn. í kjölfarið braut hann á leikmanni
Hauka og fékk að launum tveggja mínútna
brottvísun. Einum leikmanni fleiri var eft-
irleikurinn auðveldur fyrir Haukana sem
skoruðu tvö síðustu mörkin og innsigluðu
enn einn sigurinn á leiktíðinni.
Vandræðalegur
sóknarleikur
Eins og í fleiri leikjum í vetur var sóknar-
leikur Framara á köflum mjög vandræða-
legur og taktlaus. Lítið sem ekkert kom út
úr hornamönnunum á meðan hornamenn
Hauka blómstruðu. Gunnar Berg tók sig á í
síðari hálfleik, skoraði þá sex góð mörk en
skotnýting hans í leiknum var þó ekki til að
hrópa húrra fyrir. Hjálmar Vilhjálmsson
byrjaði leikinn vel en átti erfitt uppdráttar
gegn öflugum varnarmönnum Hauka þegar
á leikinn leið. BjörgVin Björgvinsson nýtist
ekki sem skyldi í stöðu leikstjórnanda og
Framarar þurfa mjög á Guðmundi H. Páls-
syni að halda en hann er frá vegna meiðsla
en verður væntanlega mættur til leiks á
nýju ári. Markvarsla Þórs í seinni hálfleik
var góð og vörn Framara var á köflum
nokkuð sterk. Framarar þurfa ekkert að
hengja haus. Þeir hafa á öflugu liði að skipa
og eiga eftir að styrkjast þegar á mótið líð-
ur.
Glæsileg
tilþrif Bjarna
Bjarni Frostason verður að teljast maður
þessa leiks en hann sýndi á köflum glæsileg
tilþrif og var sá leikmaður sem breytti
gangi mála þó svo að enn að ný hafi Haukar
farið langt á góðri liðsheild. Þorvarður
Tjörvi og Einar Örn áttu báðir mjög góðan
leik og þó svo að Halldór Ingólfsson hafi oft
skorað meira opnaði hann vel fyrir sam-
herja sína. Rúnar Sigtryggsson lék vel,
bæði í sókn og vörn en hann mætti að
ósekju skjóta meira á markið. Rúnar og
Petr Bamrauk héldu vörninni saman og í
ófá skipti náðu þeir að stöðva sóknarað-
gerðir Framara. Haukar hafa byrjað tíma-
bilið með glæsibrag og með sama áfram-
haldi verður erfitt fyiir önnur lið að stöðva
Hafnarfjarðarhraðlestina undir stjórn
Viggós Sigurðssonar.
Þetta var alvöruleikur og ég held
að ég megi segja að góður
handbolti hafi verið í boði. Við lékum
feikilega vel og ég
Eftir var mjög ánægður
Guðmund með liðið. Mér
Hilmarsson fannst Framarar
hafa svolítið heppn-
ina með sér í leiknum og við hefðum
átt að vera búnir að slíta þá frá okk-
ur miklu fyrr í leiknum," sagði
Viggó, sem tók við Haukaliðinu í
sumar og undir hans stjórn hafa
Haukar unnið alla sjö leiki sína í
deildinni.
Þú ákvaðst að skipta Bjama inn í
markið eftir aðeins fimm mínútur.
Þú sérð ekki eftir því núna?
„Maggi bað um skiptingu. Hann
fann sig ekki og vildi koma útaf.
Bjarni kom mjög sterkur inn. Hann
hefur varið mjög vel þegar hann hef-
ur fengið tækifæri og frammistaða
hans í þessum leik vó mjög þungt.“
Merkir þú áfram stíganda í þínu
liði?
„Já, ég held að það sé engin
spurning um það. Þegar menn horfa
á þennan leik og leikinn sem við töp-
uðum gegn Fram í meistarakeppn-
inni sést að við erum komnir með allt
annað lið. Ég tel samt að við eigum
töluvert meira inni. “
Þú getur ekki verið annað en
ánægður meðgengi liðsins?
„Eg er auðvitað mjög stoltur og
ánægður sérstaklega þar sem það
var erfitt að taka við liðinu eftir vel-
gengnina á síðasta tímabili. Við eig-
um erfitt verkefni fyrir höndum. Við
eigum erfiðan leik gegn Aftureld-
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mikil sigling á Haukunum
Gunnar Berg Viktorsson, skytta Framliðsins, var í strangri gæslu leikmanna Hauka.
Það vekur athygli að Anatoli
þjálfari talar skemmtilega blöndu
af nissnesku og ensku á meðan á
leiknum stendur, skilur þú allt
sem maðurinn er að segja?
Hann talar einhverja ensku við
okkur og þegar við einbeitum okk-
ur vel þá skiljum nú flest það sem-
hann er að reyna koma til skila.
Anatoli er með ferskar og
skemmtilegar hugmyndir í sinni
þjálfun og ég hef mjög gaman af
því sem hann er að gera. Það
skemmtilegasta er að hann gerir
sér fyllilega grein fyrir því að
hann getur ekki lagt mikið erfiði á
mig á æfingum og það er alveg
nýtt fyrir mig, sagði Þór Björns-
son markvörður.
áflug
Bjarni Frostason átti frábæra
innkomu í mark Haukanna
gegn Fram og leikur hans minnti
um margt á þegar
Guðmundur flugkappinn var í
Hilmarsson sínu besta formi og
skrifar var í íslenska
landsliðshópnum *
fyrir nokkrum árum. Bjarni, sem
er flugmaður hjá Flugleiðum, tók
sér frí frá handboltaiðkun á síð-
ustu leiktíð en tók fram skóna á ný
í haust og hefur hægt og bítandi
verið að nálgast sitt rétta form.
„Maggi hljóp út af og sagði mér
að fara inn á. Ég fann mig strax
vel, það var góð stemmning í vörn-
inni og ég fékk á köflum auðveld
skot á mig, þökk sé sterki vörn, og
svo náði ég að narta í nokkur skot
í viðbót," sagði Bjarni í samtali við
Morgunblaðið eftir leikinn.
Finnst þér þú vera að komast í
þitt gamla form?
„Já, já, þetta er allt að koma. Ég
á samt nokkuð í land. Ég á eftir að
taka af mér nokkur grömm og mig
skortir aðeins úthald. Ég var orð-
inn mjög þreyttur undir lok þessa
leiks, enda langt síðan ég hef feng-
ið að spila svona mikið. Ég verð
kominn í gott form eftir áramótin.
Mér fannst í seinni hálfleik að
við gerðum of mikið af því að
reyna að vernda forskotið sem við
höfðum náð og fyrir vikið voru
menn nokkuð hikandi í sókninni.
En vörnin var hörkugóð allan leik-
inn og við unnum leikinn á henni.“
Þetta var hörkuleikur og engu
líkara á köflum en þetta væri einn
af úrslitaleikjum mótins?
„Það er rígur á milli liðanna frá
því í úrslitarimmunni í fyrra. Við
vildum sanna að við hefðum átt tit+
ilinn skilinn og þeir vildu sýna
fram á að þeir hefðu átt að vinna.“
Það hefur allt gengið Haukum í
hag á tímabilinu. Er eitthvað sem
getur stöðvað ykkur?
„Við eigum mjög erfiða útileiki.
Næsti leikur er gegn Aftureldingu
og svo eigum við eftir að fara
norður og til Eyja og mæta Val í
Valsheimilinu. Það er því mikið
eftir af þessu móti og við hugsum
ekki um nema einn leik í einu.
Þetta góða gengi hefur ekki komið
mér á óvart. Við undirbjuggunj
okkur geysilega vel fyrir tímabilið
og við erum með mjög sterkan,
breiðan og samstilltan hóp. Þá
hafa Evrópuleikirnir ekki gert
annað en að styi-kja okkur. Að
spila leik eins og gegn Braga á úti-
velli var mikill skóli og menn nær-
ast á svona leikjum í mörg ár,“
sagði Bjarni. 4
+