Morgunblaðið - 07.11.2000, Page 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Arnar Ingvarsson, leikmaður Hauka, er hér á skjótast á milli KR-inganna Hjalta Kristinssonar
og Arnars Kárasonar.
KR-ingar
á réttri leið
EFTIR fjóra tapleiki í röð í deildinni hafa íslandsmeistarar KR rétt
heldur úr kútnum og unnið síðustu þrjá leiki, síðast Hauka í Hafnar-
firði á sunnudaginn, 69:77. Sannarlega óvæntur sigur ekki síst
vegna þess að KR lék án erlends leikmanns og þeirra Hermanns
Haukssonar og Jónatans Bow sem báðir eru meiddir. Sigur KR var
þó verðskuldaður því ungu leikmennirnir börðust eins og Ijón og
uppskáru í samræmi við það.
að var ljóst strax í upphitun lið-
anna fyrir leikinn að það gæti
stefnt í skemmtilegan leik því
„stráklingamir" hjá
KR voru vel
Sveinsson stemmdir a meðan
skrifar einhver ró var yfir
leikmönnum Hauka.
Hvort um vanmat þeirra hafi verið
að ræða skal ósagt látið en þeir tóku
altént lífinu heldur rólega.
Gestirnir gerðu fyrstu fjögur stig-
in og virtust koma Haukum á óvart
með baráttugleði sinni og höfðu sjö
stiga forystu eftir fyrsta leikhluta.
Heimamenn unnu næsta leikhluta
*með fimm stigum, 20:15, og munur-
inn í leikhléi var því aðeins tvö stig,
35:37. KR breytti yfir í svæðisvörn í
þriðja leikhluta og gafst það ágæt-
lega, Haukar gerðu aðeins tíu stig en
KR-ingar voru lítið skárri, gerðu 14
stig, enda vaknaði vöm Hauka að-
eins til lífsins á þessum tíma.
1 Síðasta leikhluta byrjuðu KR-ing-
ar betur en um hann miðjan skoruðu
Haukar þrjár þriggja stiga körfur í
röð og munurinn var aðeins fimm
stig og fjögur þegar mínúta var eftir,
en hið unga lið KR lét það ekki á sig
fá, reyndi að halda boltanum eins og
það gat og gerði ágætlega þó svo
sumar sóknir lokakaflans væru
óþarflega stuttar.
Pað var fyrst og fremst endalaus
barátta sem færði Vesturbæingum
þriðja sigurinn í deildinni. Hjalti
Kxistinsson, 18 ára piltur, átti frá-
bæran leik, gerði 13 stig og var með
100% nýtingu bæði innan teigs og ut-
an þriggja stiga línunnar og hitti úr 4
af 5 vítaskotum sínum. Jafnaldri
hans, Jón Amór Stefánsson, var
einnig sterkur, stal boltanum nokkr-
um sinnum með glæsibrag og nýtti
sér hraða sinn og stökkkraft vel.
Fyrirliðinn Ólafur Jón Ormsson átti
einnig fínan leik, var grimmur í frá-
köstunum en hitti frekar illa innan
teigs framan af. Arnar Kárason og
Magni Hafsteinsson léku ágætlega
en sá síðarnefndi var óheppinn með
villur og lenti í vandræðum vegna
þeirra.
Eins og áður segir var eitthvert
slen yfir Haukum. Jón Arnar Ingv-
arsson gerði til dæmis aðeins eitt
stig fyrstu 37 mínúturnar og munar
um minna. Lýður Vignisson var
sprækur en lenti stundum í vand-
ræðum þegar hann keyrði inn í víta-
teig KR. Hann tapaði boltanum
nokkrum sinnum en hann náði líka
að stela honum nokkrum sinnum.
Mike Barger átti ágætan leik og
Eyjólfur Jónsson tók nokkur fráköst
en náði sér ekki á strik í sókninni.
Mikill tími fór í það í upphafi leiks
hjá KR-ingum að röfla í dómurunum
og stuðningsmenn liðsins voru ekki
betri. Það var ekki fyrr en annar
dómarinn hélt stuttan fund, við lítinn
fögnuð stuðningsmanna KR, með
fyrirliða og þjálfara liðsins, að leik-
menn notuðu krafta sína til að leika
körfuknattleik. Það skilaði sér í sigri
og sýnir að það er miklu heillavænna
að einbeita sér að því að spila, á sama
hátt og dómararnir einbeita sér að
sínu verki. _____________
■ Úrslit/B14
■ Staðan/B14
Öruggur sigur Hamars á ÍR-ingum
Ósigraðir í
Hveragerði
HAMARSMENN eru enn ósigraðir á heimavelli eftir leiki helgarinnar
en þeir lögðu ÍR-inga nokkuð örugglega í Hveragerði á sunnudags-
kvöldið, 91:75. Það var ekki fyrr en í síðasta leikhluta sem úrslitin
réðust, en þá skoruðu Hamrarnir 30 stig á móti 15 stigum gestanna
og gerðu út um leikinn snemma í leikhlutanum en áður hafði verið
jafnt á nær öllum tölum.
Þetta var baráttuleikur, þeir
koma hingað eftir sigur á móti
Keflavík og við bjuggumst við að
þeir yi'ðu mjög erfið-
ir en við vorum til-
Valberg búnir. Við höfum
skrifar bara unnið leiki á
heimavelli og þurf-
um að fara að sýna okkar rétta and-
lit á útivelli. Þetta er okkar heima-
völlur og það á að vera erfitt að
koma hingað. Vendipunkturinn í
leiknum var síðasti leikhlutinn og þá
náðum við að loka á ÍR-ingana og
spila körfubolta eins og við viljum
spila,“ sagði Pétur Ingvarsson, spil-
andi þjálfari Hamars eftir leikinn.
Leikurinn fór fjörlega af stað og
var Cedrick Holmes allt í öllu hjá ÍR
en eftir það var eins og hann hefði
horfið. Hjá Hamri var greinilegt að
Pétur Ingvarsson hitaði best upp en
hann sá til þess að ÍR-ingar stungu
ekki af. Nokkuð jafnt var á með lið-
unum í fyrsta leikhluta en heima-
menn höfðu samt vinninginn og
leiddu með fimm stigum, 28:23.
í öðrum leikhluta minnkuðu leik-
menn ÍR fljótlega muninn, var leik-
urinn í jámum allan hálfleikinn og
hvorugt liðið náði að hrista hitt af
sér. Mikil barátta var í hálfleiknum
og sýndi Pétur Ingvarsson ágæta
takta hjá Hamri en Hreggviður
Magnússon átti góða innkomu af
bekknum hjá IR og setti niður
nokkrar fallegar körfur. IR var betri
aðilinn í leikhlutanum og var jafnt á
með liðunum í hálfleik, 40:40.
Þriðji leikhluti var mjög jafn og
mátti vart sjá á milli liðanna, hálf-
leikurinn var rólegur og það var eins
og liðin hefðu dottið úr sambandi í
hálfleik, en þetta var lognið á undan
storminum. í lok þriðja leikhluta
leiddu Hamarsmenn, 61:60.
Hamar byrjaði fjórða og síðasta
leikhluta með látum og greinilegt
var að ræða þjálfarans hafði virkað í
hálfleiknum. Hamar náði strax sex
stiga forskoti en IR-ingar komu í
veg fyrir að stíflan brysti til fulls.
Þegar munurinn var kominn upp í
níu stig tóku ÍR-ingar leikhlé og
minnkuðu muninn strax niður í sex
stig þegar tæpar 2 mínútur voru eft-
ir en þá tóku Hamarsmenn á loft og
skoruðu 11 stig á móti einu stigi ÍR
það sem eftir var leiks og gáfust
gestirnir upp áður en flautan gall.
IR lenti í nokkrum villuvandræðum í
leiknum en þeir Eiríkur Önundarson
og Sigurður Þoi-valdsson þurftu báð-
ir að fara út með fimm villur hvor.
í liði Hamars var það Pétur Ingv-
arsson sem var allt í öllu og Ægir
Jónsson var hrikalegur undir körf-
unni, sérstaklega í seinni hálfleik
þar sem hann reif niður hvert frá-
kastið á fætur öðru og skoraði hann
19 stig í leiknum. Hjá ÍR voru þeir
Eiríkur Önundarson og Hreggviður
Magnússon bestir en þeir sýndu oft
á tíðum frábær tilþrif.
„Leikurinn þróaðist hreint út sagt
skelfilega í síðasta leikhluta og ég
veit ekki hvað veldur en þessi leikur
kom okkur svo sannarlega niður á
jörðina eftir sigur gegn Keflvíking-
um í síðasta leik. Ef við spilum áfram
svona eins og við gerðum í þessum
leik lendum við fljótt í vandræðum.
Menn voru andlausir og áhugalausir
og það var skömm að hvernig við
spiluðum. Það verður síðan að viður-
kennast að þetta er einn erfiðasti
heimavöllurinn í deildinni og það er
mjög erfitt að sækja stig hingað,"
sagði Jón Örn Guðmundsson, þjálf-
ari ÍR, eftir leikinn.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Hamarsmaðurinn Chris Dade sækir að körfu ÍR-inga. Eiríkur
Önundarson til varnar.