Morgunblaðið - 07.11.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
KORFUKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 B 11
GRINDVIKINGAR lögðu Borg-
nesinga 81:115 er lið bæjarfé-
laganna mættust í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á sunnu-
daginn í Borgarnesi. Sigur
gestanna var nokkuð öruggur
enda var vörn heimamanna ekki
nægilega sterk.
Theódór
Þórðarson
skrifar
Morgunblaðið/Kristj án
Shawn Myers, leikmaður Tindastóls, og Óðinn Ásgeirsson, leikmaður Þórs, í baráttu undir körfunni.
Þór í heljargreipum
GRANNASLAGUR Þórs og Tindastóls sl. sunnudagskvöld var spenn-
andi fyrstu þrjá leikhlutana en síðan lentu Þórsarar í heljargreipum
skagfirsku varnarinnar og komust hvorki lönd né strönd. Stólarnir
kaffærðu heimamenn í hröðum sóknum sem komu eftir góða varn-
artilburði og lukkuhjólið snerist þeim í vil. Úrslitin urðu 65:81 eftir
að Þór hafði haft yfir í leikhléi, 35:30. Þar með þokast Tindastóll
nær toppnum með 10 stig en Þór situr eftir með sín 6 stig.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Gestirnir byrjuðu betur og gerðu
8 íyrstu stigin. Þá kom Magnús
Helgason inn á hjá Þór og skoraði 8
stig og Clifton Bush
3 og breyttu þeii-
stöðunni Þór í vil.
Þórsarar voru svo
sterkari og höfðu yf-
ir 17:12 eftir fyrsta leikhlutann. Þeir
voru einnig með góða forystu í öðr-
um leikhluta og sýndi Óðinn Ásgeirs-
son þá sínar bestu hliðar. Kristinn
Friðriksson kom þá með krók á móti
bragði og setti niður tvær þriggja
stiga körfur og hélt Stólunum inni í
leiknum. Staðan var 35:30 í leikhléi.
Heimamenn héldu haus fram í
þriðja leikhlutann en Kristinn var
fljótur að minnka muninn með
tveimur þriggja stiga körfum og
leikurinn var orðinn mjög spennandi
í stöðunni 49:48. Kristinn skoraði af
harðfylgi undir körfunni og einnig úr
vítaskotinu sem hann fékk og voru
gestirnir því komnir yfir, staðan
48:51. Þarna hófst slæmur leikkafli
hjá Þór og í rauninni lauk honum
aldrei. Leikmenn gerðu sig seka um
hörmulegar sendingar og eftir þriðja
hlutann var staðan 52:57 og var mar-
tröðin rétt að byrja hjá Þórsurum.
Það sem gerðist þarna í lok 3.
hluta og varði leikinn á enda var
fyrst og fremst grimmur varnarleik-
ur Tindastóls og í kjölfarið mýmarg-
ar feilsendingar og algjört niðurbrot
hjá Þórsunim. Þeir skoruðu ekki
körfu í langan tíma og svo virtist sem
allur vindur væri úr þeim. Sem dæmi
um það má e.t.v. nefna að Clifton
Bush dró ekki að körfunni úr víta-
skoti. Hjá Stólunum hélt Kristinn
Friðriksson uppteknum hætti og
Adonis Pomones skoraði grimmt úr
skyndisóknum.
Stólarnir skoruðu 24 stig í þessum
síðasta leikhluta en Þórsarar aðeins
13 og er það áhyggjuefni fyrir Ágúst
Guðmundsson, þjálfara liðsins,
hvernig leikmenn virðast hvað eftir
annað brotna saman í síðasta leik-
hlutanum.
Kristinn, Pomones og Shawn
Myers léku allir prýðilega í liði
Tindastóls en Óðinn Ásgeirsson var
bestur Þórsara að vanda. Aðrir voru
á hælunum síðustu 12 mínútumar en
Clifton Bush og Magnús Helgason
sýndu á köflum hvað í þeim býr.
Njarðvíkingar unnu
aftur á ísafirði
KFÍ var Njarðvíkingum auðveld
bráð þegar liðin mættust í ann-
að sinn á átta dögum í íþróttahúsinu
á Torfnesi á sunnu-
daginn. Gestimir
áttu ekki í teljandi
erfiðleikum með ís-
firðinga, tóku for-
ystu strax í upphafi og létu hana
Ha/lclór
Bjarkason
skrifar
aldrei af hendi og sigmðu 94:115.
Vörn heimamanna var ekki upp á
marga fiska í leiknum, og var oft
ekki annað að sjá en að gestirnir
væm velkomnir þegar inn í teiginn
kom.
Líkt og þegar liðin mættust um
síðustu helgi var fljótt ljóst hvert
stefndi. Gestimir höfðu tíu stiga for-
skot eftir fyrsta leikhluta, sem jókst
aðeins þegar líða tók á leikinn og
hefði munurinn auðveldlega getað
orðið meiri.
Heimamenn börðust hetjulega að
venju, en slæleg vörn sem var sem
opnar dyr allt kvöldið gerði út um
allar þeirra vonir. í lokin var farið að
hitna í kolunum og mátti Halldór
Karlsson Njarðvíkingur þakka fyrii'
að vera ekki látinn fjúka útaf fyrir að
grýta bolta í andstæðing.
Það var áberandi styrkleikamun-
ur á liðunum í þessum leik. Njarðvík-
ingar em einfaldlega með mun betra
lið og áttu sigurinn svo sannarlega
skilinn. Logi Gunnarsson var sem
vindurinn og átti algjöran stjömu-
leik, jafnt í vörn og sókn. Brenton
Birmingham átti einnig mjög góðan
leik, Teitur Örlygsson skilaði sínu
auk þess sem Halldór og Jes Hansen
stóðu sig með prýði undir körfunni.
Hjá Isfirðingum átti Hrafn Krist-
jánsson góðan leik að vanda, en hann
er mjög útsjónarsamur og flinkur
leikmaður þegar hann er ekki utan
vallar með fimm villur. Ingi Freyr
Vilhjálmsson átti virkilega góðan
leik og er allur að koma til. Fontana
er mikill máttarstólpi og stendur
ávallt fyrir sínu undir körfunni, en
vantar engu að síður augu i hnakk-
ann hvað samspil varðar.
Heimamenn söknuðu Sveins
Blöndal tilfinnanlega, en hann er
meiddur á hné og óvíst hversu lengi
hann verður frá.
Það var þó engan bilbug að finna á
Karli Jónssyni þjálfara KFÍ, sem
hafa tapað fyrstu sjö leikjunum í
deildinni í haust. „Þetta var erfitt
eins og við bjuggumst við, en það era
margir ljósir punktar í þessu. Mínir
menn gefast í það minnsta ekkert
upp, þeir halda áfram að berjast
sama hvað tautar og raular,“ sagði
Karl eftir leikinn.
Aðspurður um framhaldið sagðist
hann engu kvíða, enda nóg eftir af
mótinu.
Heimamenn hófu leikinn betur,
en Grindvíkingarnir komust
yfir á áttundu mínútu og juku for-
ystu sína jafn og
þétt, mestur varð
munurinn 36 stig
undir lok leiksins.
Eftir að hafa náð for-
ystu í fyrsta leikhluta létu Grindvík-
ingarnir dómarana fara í taugarnar
á sér og fengu tæknivíti á bekkinn.
En það dró þá ekkert niður og þeir
komust yfii' og unnu fyrsta leikhlut-
ann 20:28. í upphafi annars leikhluta
voru það Borgnesingarnir sem lentu
í dómurunum og var Ari Gunnarsson
duglegastur að rífast við þá. Hann
uppskar eins og hann sáði og var
kominn með 4 villur á tólftu mínútu.
Uppúr þessum villuvandræðum Ara
var eins og allur vindur væri úr
heimamönnum, leikur þeirra hrandi
og ekkert gekk upp. VÖrnin var væg-
ast sagt léleg og þeir skoraðu ekki
stig í 7 mínútur en á meðan skoraðu
Grindvíkingarnir 20 stig og segja má
að þarna hafi leikurinn tapast.
Heldur lifnaði yfir heimamönnum
eftir leikhlé en það dugði lítið gegn
sjóðheitum skyttum Grindvíkinga.
sem hittu nánast hvar sem var á vell- '
inum og röðuðu. niður körfunum.
Ljóst var að liðsmenn Skallagríms
réðu ekkert við hraðann sem Grind-
víkingarnir vora komnir á undir lok
leiksins og það var líka eins og leik-
gleðina og neistann vantaði í lið
Skallagríms og þá er ekki von á
góðu. Grindvíkingarnir unnu þennan
leik 81:115 og var það mjög sann-
gjarn og verðskuldaður sigur.
„Við gerðum okkur alveg grein
fyrir því að við yrðum að keyi-a hér í
botni allan tímann og það var það
sem við gerðum,“ sagði Einar Ein-
arsson, þjálfari Grindvíkinga. „Þetta
er alltaf erfiður völlur heim að sækja
og stemmningshús og því gáfum við
okkur alla í þennan leik og uppskár-
um eftir því. Okkar vandamál hingað
til hefur verið að við höfum gefið eft-
ir í einhverjar 5 mínútur í hverjum
leik en núna gekk þetta upp. Skytt-
urnar okkar vora sjóðheitar en liðs-
menn Skallagrims vora ekki mikið
að angra þær og þær fengu frið til að
skjóta. En við eigum eftir að gera
enn betur, við eram með fimm nýja
leikmenn og eigum eftir að slípa liðið
betur saman,“ bætti Einar við.
„Við töpuðum ieiknum á slakri
vörn,“ sagði Alexander Ermolinski,
þjálfari og leikmaður Skallagríms.
Allir Keflvíkingar skoruðu
ALLIR leikmenn Keflavíkurliðsins skoruðu í það minnsta þrjú stig
þegar liðið tók á móti leikmönnum Vals/Fjölnis á sunnudagskvöld.
Úrslit leiksins virtust ráðin allt frá fyrstu mínútu og gerðu heima-
menn út um leikinn í fyrri hálfleik. Fyrir vikið varð sá síðari eins leið-
inlegur og hugsast getur. Lokatölur urðu 93:81, aðeins tólf stiga
munur, sem gefur kolranga mynd af gangi mála í Iþróttahúsi Kefla-
víkur þetta kvöld.
Vitað var fyrir leikinn að Valur/
Fjölnir ætti erfiðan leik fyrir
höndum gegn firnasterku liði Kefla-
víkur, sem hafði
tapað fyrir ÍR í um-
ferðinni á undan.
Það var óheppilegt
fyi'ir gestina. Kefl-
víkingar skoruðu átta fyrstu stig
leiksins og lögðu þannig grunninn
að forskoti sínu, sem óx þegar leið á
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
fyrri hálfleik. Þeir beittu pressu-
vörn allan völlinn og gerðu leik-
mönnum Vals/Fjölnis þannig erfitt
fyrir. Þegar Keflavíkurliðið leikur
eins og það á að sér er það sannkall-
að augnayndi. Öll vopn voru nýtt í
fyrri hálfleik. Þar sást keflvískt
skotval eins og það gerist best,
sendingar aftur fyrir bak og
„sirkuskörfur". í leikhléi var staðan
60:40, heimamönnum í hag, og spá-
dómar vora uppi um að þeir færu í
120 stigin í þessum leik.
Annað kom heldur betur á dag-
inn. Keflvíkingar gerðu 33 stig í síð-
ari hálfleik. Skal það sagt gestunum
til hróss að þeir gáfust aldrei upp,
burtséð frá því hvort þeir hafi nokk-
urn tíma trúað því að þeir gætu
sigrað þegar þeir gengu aftur inn á
völlinn eftir hlé. Andstæðurnar í
leik Keflavíkur voru miklar. Sigurð-
ur Ingimundarson, þjálfari Kefla-
víkur, nýtti tækifærið er munurinn
var svo mikill og gaf varamönnum
liðsins meiri leiktíma en vant er.
Valsmenn gengu á lagið og minnk-
uðu muninn þegjandi og hljóða-
laust.
Brynjar Karl Sigurðsson var at-
orkusamastur þeirra rauðklæddu á
meðan allt gekk Herberti Arnarsyni
í mót. Hann tók fimm þriggja stiga
skot án árangurs, skoraði fimm stig
og tapaði boltanum sjö sinnum. Það
er erfítt að átta sig á hvað gengur að
honum um þessar mundir og synd
að sjá þennan leikmann ekki nýta
hæfileika sína betur.
Hjá Keflvíkingum voru þeir Calv>
in Davis og varaleikstjórnandinn
Magnús Gunnarsson atkvæðamest-
ir. Hvor um sig gerði sautján stig.
Þá gaf helsti leikstjórnandi liðsins,
Hjörtur Harðarson, sjö stoðsend-
ingar. Þá gekk Albert Óskarsson
hreint til verks og gerði fimmtán
stig og Birgir Örn Birgisson lét engj
an bilbug á sér finna.