Morgunblaðið - 07.11.2000, Side 12
12 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Heimskauta-
bangsinn
kominn á kreik
Leikmenn Herthu
fara á kostum
HERTHA Berlin, lið Eyjólfs Sverrissonar, ætlar ekki að láta efsta
sætið í þýsku úrvalsdeildinni svo glatt af hendi. Berlínarliðið, sem
um síðustu helgi komst á toppinn í fyrsta sinn í 30 ár, er með
tveggja stiga forskot á meistara Bayern Míinchen og skammt þar á
kemur lið Kaiserslautern.
Hertha tók lið Werder Bremen í
kennslustund á ólympíuleik-
vanginum í Berlín og sigraði örugg-
lega, 4:1. Michael Preetz skoraði tvö
marka Herthu en hin tvö skoruðu
Brasilíumaðurinn Alves og Stefan
Beinlich.
„Við höfum ákaflega gaman af þvi
sem við erum að gera og það á sinn
þátt í velgengni okkar,“ sagði Dar-
ius Wosz, leikmaður Herthu, eftir
leikinn.
„Allt frá byrjun voru við mjög yf-
irvegaðir í vörninni og við gerðum
Bremen-liðinu lífið leitt með hröðum
sóknum. Ég er ekki í vafa að þetta
er besti leikur okkar á heimavelli á
tímabilinu," sagði Jiirgen Röber,
þjálfari Herthu.
Eyjólfur Sverrisson fékk að hvíla
sig en hann hefur átt við meiðsl að
stríða að undanförnu.
Lið Bayern Miinchen fylgir
Herthu-mönnum eins og skugginn
og 6:2 sigur liðsins gegn Dortmund
segir ekki annað en að Bæjarar ætla
ekki að sleppa hendinni af meistara-
titlinum baráttulaust. Það kviknaði
von í brjóstum stuðningsmanna
Dortmund um að þeir sæju sína
menn vinna sigur á ólympíuleik-
vanginum í Miinchen í fyrsta sinn í
níu ár þegar Heiko Herlich kom
Dortmund yfir. Þetta mark reyndist
hins vegar fölsk von því leikmenn
Bayern tóku sig heldur betur saman
í andlitinu og hreinlega kaffærðu
gesti sína.
„Mínir menn voru í stuði í kvöld
enda vildu menn bæta upp fyrir tap-
ið gegn Magdeburg í bikarkeppn-
inni,“ sagði Ottmar Hitzfeldt þjálf-
ari Bæjara eftir leikinn.
Schalke komst í 2:0 gegn Kais-
erslautem á útivelli og þessi staða
hélst óbreytt þar til 20 mínútur voru
til leiksloka. Þá minnkaði Harry
Koch muninn fyrir heimamenn með
marki úr vítaspyrnu og rétt á eftir
jafnaði Tomasz Klos metin fyrir
„rauðu djöflanna“. Þremur mínút-
um fyrir leikslok gerði Olaf March-
all draum Scalke um að vinna sigur í
Kaiserslautern í fyrsta sinn í 24 ár
að engu þegar hann skallaði knött-
inn í net Schalke.
Sean Dundee, fyrrum leikmaður
Liverpool, tryggði Stuttgart sinn
fyrsta heimasigur í átta vikur.
Dundee skoraði eina mark leiksins
með skalla þegar Stuttgart lagði
Hansa Rostock.
Batistuta sá um
Brescia
Gabriel Omar Batistuta var mað-
ur helgarinnar í ítölsku 1. deildinni í
knattspymu. Batistuta, sem gekk í
raðir Roma frá Fiorentina i sumar,
skoraði þrennu þegar Rómarliðið
hafði betur gegn Brescia á útivelli,
2:4. Roma er í öðru sæti deildarinn-
ar á eftir Udinese sem öllum á óvart
leiðir deildina þegar fimm umferð-
um er lokið.
Roberto Sosa og Massimo Marg-
otta skutu Udinese á toppinn en þeir
skoruðu mörk liðsins í síðari hálfleik
gegn Lecce. Þetta er í fyrsta skipti í
sögu Udinese sem félagið er eitt í
efsta sæti deildarinnar en þrívegis
hefur það verið í toppsætinu en þá
ásamt öðrum liðum.
Roma lenti 2:1 undir gegn Brescia
en þá tók Batistuta til sinna ráða og
skoraði þrívegis í síðari hálfleik en
þessi mikli markaskorari hefur nú
skorað sex mörk í deildinni og er
markahæstur.
AC Miian lenti í kröppum dansi á
heimavelli sínum gegn Atalanta.
Gestirnir vom á góðri leið með að
vinna óvæntan sigur á San Síró. Þeir
komust í 1:3 í seinni hálfleik en mörk
frá Oliver Bierhoff og Andriy
Shevchenko komu Milanliðinu til
bjargar.
Franski landsliðsmaðurinn David
Trezeguet skoraði bæði mörk Juv-
entus sem vann tiltölulega ömggan
sigur gegn Reggina.
Ítalíumeistarar Lazio höfðu tögl
og hagldir gegn Bologna og 2:0 sig-
ur þeirra var síst of stór. Tékkneski
landsliðsmaðurinn Pavel Nedved og
argentínski landsliðsmaðurinn
Hernan Crespo skomðu mörk
meistaranna, sitt í hvoram hálfleik.
Dino Baggio lék sinn fyrsta leik í
búningi Lazio en hann var keyptur
frá Parma fyrir skömmu.
Gríski framherjinn Zisis Vryzas
var í miklum ham þegar Peragia
skellti Fiorentina í Flórens, 3:4.
Grikkinn snaggaralegi skoraði þrjú
marka Peragia og í leikslok fengu
leikmenn Fiorentina svo sannarlega
að heyra það frá stuðningsmönnum
liðsins.
Lítið gengur hjá hinu fokdýra liði
Inter en liðið varð að sætta sig við
jafntefli við Verona, 2;2, þrátt fyrir
að vera einum leikmanni fleiri inni á
vellinum allan síðari hálfleikinn.
Vincenzo Italiano fékk reisupassann
fyrú að fagna marki sínu á 43. mín-
útu en hann reif sig úr keppnistreyj-
unni og fékk að launum sitt annað
gula spjald í leiknum. Verona lék
stífan varnarleik það sem eftir lifði
leiksins og það var ekki fyrr en níu
mínútum fyrir leikslok sem tyrk-
neska landsliðsmanninum Hakan
Sukur tókst að jafna metin fyrir Int-
er.
Rivaldo bjargaði
Börsungum
Þrjú af toppliðunum í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu töpuðu
óvænt leikjum sínum um helgina.
Meistarar Deportivo La Corana
lágu fyrir Villareal, Real Madrid
beið lægri hlut fyrir Numancia og
Valencia varð að sætta sig við tap
gegn Espanyol, en þrátt fyrir tapið
er Valencia á toppi deildarinnar.
Börsungar nýttu sér dapurt gengi
toppliðanna þriggja með því að
vinna sigur á Las Palmas á Kan-
aríeyjum, 0:1. Brasilíumaðurinn
Rivaldo skoraði eina mark leiksins í
upphafi síðari hálfleiks og var sér-
lega vel að verki staðið hjájjessum
frábæra knattspyrnumanni sem
skoraði sitt sjötta mark í jafnmörg-
um leikjum. Heimamenn sóttu hart
að marki Börsunga undir lok leiks-
ins en Francesc Arnau, markvörður
Katalóníuliðsins, sem tók stöðu
Richards Dutraels, var í miklu stuði
og varði í þrígang meistaralega.
Þórður Guðjónsson var ekki í
byrjunarliði Las Palmas en hann
kom inn á sem varamaður á 60. mín-
útu.
Rúmeninn Laurentiu Rosu sökkti
Evrópumeisturam Real Madrid, en
hann gerði sér lítið fyrir og skoraði
öll þrjú mörkin fyrir smáliðið
Numancia. Þetta var þriðja tap
Madrid-liðsins í síðustu fjórum
deildarleikjum og eðlilega er ekki
mikil kátína hjá stuðningsmönnum
félagsins. Enski landsliðsmaðurinn
Steve McManaman var í byrjunar-
liði Real Madrid í fyrsta sinn á tíma-
bilinu. Hann fékk tækifæri til að
skora fyrir sína menn en brást boga-
listin úr upplögðu færi.
Victor, fyrrverandi landsliðsmað-
ur Spánverja, var hetja liðs Villareal
þegar liðið lagði meistara Deport-
ivo. Hann jafnaði metin í tvígang
fyrir sína menn og lagði svo upp sig-
urmarkið á lokamínútunni.
KRAFTLYFTINGAMENN héldu bikarmót sitt í Garðaskóla í Garðabæ
á laugardaginn og þó að enginn íslandsmet hafi fokið í þetta sinnið
voru slegin Akureyrarmet og öldungamet. Um það sá Vikingur
Traustason, oftast nefndur heimskautabangsinn, þegar hann setti
öldungamet í hnébeygju með því að lyfta 320 kílóum og í réttstöðu-
lyftu þegar hann lyfti þar 335 kílóum, sem er hans besti árangur, en
alls bætti Víkingur öldungametið úr samanlögðu um 55 kíló, úr 810
í 865 kíló.
Eg er að bæta mig um tvö og hálft
kíló í réttstöðulyftu en það tók
ég fyrir flmmtán ár,“ sagði Víkingur
afslappaður og virð-
stefán ist búinn að jafna sig
Stefánsson eftir uppskurð, sem
skrifar hann fór í fyrir
nokkram árum. „Ég
fékk brjósklos fyrir nokkram árum
en var reyndar bara frá í tvo mánuði
og byrjaði svo á fullu. Það tók langan
tíma að jafna sig en það kom og ég á
eftir að lyfta miklu meira. Þetta var
allt eins og ég bjóst við í dag nema
hvað bekkpressan gekk ekki upp en
það verður í lagi á næsta móti.“
Mótið er annað af stærstu mótum
ársins svo að lyftingamennimir vora
tilbúnir í slaginn - allt frá 47 ára
görpum eins og Kára Elíssyni að
hinum 17 ára Sigfúsi Fossdal frá Ak-
ureyri og Jóhönnu Eyvindsdóttur,
sem bæði voru að spreyta sig í sinni
fyrstu keppni.
„Ég hef alitaf verið að æfa en
aldrei ílengst fyrr en í sumar og ég
hef æft síðan,“ sagði Jóhanna eftir
mótið. „Ég hef bætt mig í hnébeygju
og réttstöðulyftu og þetta er mjög
gaman svo að nú er ég ákveðin í að
halda áfram og bæta mig enn
meira.“
Akureyringar mættu með unga
keppendur, sem greinilega eiga eftir
að láta meira að sér kveða í framtíð-
inni. Þeirra á meðal var Elvar Ósk-
arsson, sem setti Akureyrarmet í
hnébeygju, 270 kíló, og í bekkpressu,
177,5 kíló. „Þetta er eins og ég bjóst
við og ég er ánægður með mína bæt-
ingu á mótinu en það era orðin fimm-
tíu kíló síðan í fyrra. Ég hef bætt mig
um fimmtíu kíló síðan í fyrra, sem er
gott en ég er reyndar líka orðinn
þyngri sjálfur,“ sagði Elvar eftir
mótið.
Alls vora 17 keppendur skráðir til
leiks en vora orðnir 14 þegar blásið
var til orastu. Keppni hófst með hné-
beygju, sem reynir mest á taugar
keppenda því viðbúnaður er þar
mestur, oftast þarf að vefja duglega
utan um liði og smeygja sér í svokall-
aðar „stálbrækur". Því næst er
bekkpressa og loks réttstöðulyftu.
Hver keppandi fær að lyfta þrisvar í
hverri grein.
í 110 kflóa flokki var hörkubarátta
milli Fannars Dagbjartssonar og
Bjarka Þórs Sigurðssonar. I hné-
beygju tók Bjarki eina gilda lyftu
260 kfló en Fannar lyfti hins vegar
þremur gildum lyftum, 240, 260 og
280 kfló, sem var hans besti árangur
til þessa. í bekkpressu lyfti Bjarki
160, 170 og 175 kflóum, en Fannar
190 og mistókst naumlega við 202,5 í
tvígang. í réttstöðulyftu lyfti Fannar
240, 255 og 270 kílóum en Bjarki 260
og 290 kílóum svo að eftir að Fannar
hafði lyft 270 kílóum varð Bjarki að
bæta sinn persónulega árangur og
lyfta 305 til sigurs, sem honum tókst
eftir mikla baráttu við þyngdina og
sýndi mikið keppnisskap. Báðir lyftu
þannig sama í samanlögðu 740 kíló-
um, en þar sem Bjarki var léttari
hlaut hann sigurinn.
í þyngsta flokki, +125 kfló, bættu
allir þrír keppendur sig veralega.
Bræðurnir Magnús, sem er sautján
ára, og Benedikt Magnússynir, 22
ára, komu mjög á óvart.
Veitt vora verðlaun fyrir besta
stigaárangur í hverri grein og sam-
anlögðu. I hnébeygju fékk verðlaun-
in Víkingur Traustason, í bekk-
pressu Björgúlfur Stefánsson, í
réttstöðulyftu Kári Elísson og í sam-
anlögðu Víkingur Traustason.
■ Úrslit/B15
Morgunblaðið/Uolli
' Víkingur Traustason og Kári Elíson stóðu sig vel á bikarmótinu.
Leikmenn Herthu Berlín þakka áhorfendum á Ólympíuleikvanginum í Berlín stuðninginn.