Morgunblaðið - 07.11.2000, Side 13

Morgunblaðið - 07.11.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000 B 13, KNATTSPYRNA fbfrar Viduka settu Liverpool úr jafnvægi Svísslendingurinn Ramon Vega hjá Tottenham og Niall Quinn, Sunderland, kljást um knöttinn. MARK Viduka skoraði öll fjögur mörk Leeds í 4:3 sigri liðsins á Liverpool í ensku úrvalsdeild- inni á laugardag eftir að þeir rauðklæddu höfðu tvívegis náð forystu í leiknum. Ástralinn sýndi ótrúlega töfra með bolt- ann og nýtti hvert einasta mark- tækifæri sem hann fékk. Leeds er þar með komið í áttunda sæti töflunnar en Liverpool datt úr þriðja sætinu í það fjórða. Leicester skaust aftur í þriðja sætið með naumum sigri á Man- chester City. Efstu tvö sæti deildarinnar eru frátekin fyrir Manchester United og Arsenai sem bæði unnu sína leiki og juku þar með enn bilið milli sín og næstu liða fyrir neðan. David O’Leary, knattspyrnu- stjóri Leeds, keypti Viduka á rúmar 700 milljónir króna frá Celt- ic í sumar en hann irísBjörk hóf tímabilið illa Eysteinsdóttir með þeim hvít- skrifarfrá klæddu. Hann var nQan i lengi að koma sér í form á undirbúningstímabilinu og skellti sér svo á Ólympíuleikana án samþykkis O’Learys. Sú för reynd- ist engin frægðarför fyrir Viduka þar sem ástralska liðið náði sér engan veginn á strik. Hann kom aftur til Englands hungraður í að standa sig og skora mörk fyrir Leeds og um helgina virtist O’Le- ary hafa fengið rúmlega peninga sinna virði þegar Viduka gerði út um Liverpool með frábærum leik. „Að skora fjögur mörk gegn Liver- pool var stórkostlegt, en ég yrði enn ánægðari ef ég næði að skora eitt gegn AC Milan á miðvikudag og að það yrði markið sem við kæmumst áfram á í meistaradeild- inni,“ sagði Viduka brosandi. Sami Hyypia skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Liverpool og Christian Ziege bætti öðru við eftir aðeins 17 mínútna leik. Allt stefndi í stóran Liverpool-sigur. Þá tók Viduka til sinna ráða. Hann minnk- aði muninn um miðjan fyrri hálfleik eftir slæm varnarmistök Ziege og jafnaði svo leikinn í upphafi síðari hálfleiks. Vladimir Smicer kom Liverpool aftur yfir en Viduka náði sinni fyrstu þrennu í enska boltan- um nokkrum mínútum síðar. Hann fullkomnaði svo daginn með því að skora úrslitamarkið þremur mínút- um síðar með því að lyfta boltanum skemmtilega yfir markvörð Liver- pool. Bjargvættir hjá Leicester Bjargvættirnar virðast koma á færibandi hjá Leicester þessa dag- ana í úrvalsdeildinni. I síðustu viku var það Arnar Gunnlaugsson sem skoraði úrslitamarkið gegn Derby og tryggði liðinu þrjú stig og í þess- ari viku var það Robbie Savage sem reyndist hetja liðsins með því að skora eina mark Leicester gegn Mancester City. „Robbie er gott dæmi um það hvað Leicester stend- ur fyrir. Hann heldur uppi hraða og takti í leikjum. Hann er mun betri leikmaður en ég gerði mér grein fyrir í upphafi," sagði Peter Taylor, knattspyrnustjóri Leicest- er. Arnar kom inn á síðustu tíu mínúturnar en náði ekki að láta Ijós sitt skína. Martröð Manchester City hélt áfram en liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu sex leikjum sínum. Liðið vantar tilfinnanlega fram- herja enda hefur það aðeins skorað 14 mörk í 12 leikjum. Auðvelt hjá Man. Utd Manchester United vann Cov- entry nokkuð auðveldlega, 2:1 og sýndu leikmenn hvaða gæðaflokki þeir eru í með fyrsta marki leiks- ins. Sókn United hófst í þeirra eig- in vítateig og boltinn endaði í marki Coventry án þess neinn leikmaður þeirra næði að snerta hann. Boltinn þeystist á milli Denis Irvrins, Teddys Sheringhams, Pauls Schol- es og Davids Beckhams áður en Andy Cole hamraði hann í netið - skólabókardæmi um hina full- komnu sókn. Annað mark United var ekki nálægt því eins glæsilegt. David Beckham skoraði beint úr aukaspyrnu í gegnum götóttan varnarvegg Coventry með óhnit- miðuðu skoti sem Chris Kirkland, markvörður Coventry, hefði átt að verja. í stöðunni 2:0 fór Coventry að leika betur og virtist loks kom- ast yfir þá hræðslu og pressu sem oft fylgir því að leika á Old Traf- ford. Allt í einu hafði liðið engu að tapa og náði Ysrael Zuniga að minnka muninn með skalla. Cov- entry hefði með þónokkurri heppni náð að stela stigi en í raun sögðu úrslitin bara hálfa sögu. Aður en yfir lauk hefðu þeir rauðklæddu getað bætt við tveimur mörkum en Kirkland varði glæsilega frá Roy Keane og Dwight Yorke þrumaði í markstöngina. Engu að síður dugðu úrslitin United til að ná í öll þrjú stigin og gengu framkvæmda- stjórarnir tveir, Alex Ferguson og Gordon Strachan, af velli án þess að takast í hendur. Ferguson gagn- rýndi Strachan harðlega í bók sinni og síðan þá hefur Strachan lítið haft við hann að segja. Þrátt fyrir það gat Strachan haldið persónu- legum ágreiningi í burt frá knatt- spyrnni og var óspar á hrósyrði í garð United að leik loknum. „Þeir geta verið í fremstu röð í 10 ár því þannig hafa þeir alist upp. Þessir drengir hafa viljann til að ná langt og þeir eru enn hungraðir í titla,“ sagði Strachan. Enn skorar Henry Thierry Henry skoraði eina mark Arsenal úr víti gegn Middles- brough en það dugði liðinu til sig- urs. Utlitið var ekki gott fyrir Boro er markvörður þeirra, Mark Cross- ley, var sendur af leikvelli eftir brot á Freddie Ljungberg í víta- teignum. Mark Henrys sem kom í kjölfarið reyndist eina mark leiks- ins og þrátt fyrir að Boro hafi ekki unnið heimaleik síðan 25. mars fögnuðu áhorfendur knattspyrnu- stjóranum Brian Robson er hann gekk af velli. Ánægja áhorfenda kom vegna þess að hver einasti leikmaður Boro barðist til síðasta blóðdropa og léku leikmenn loks með hjartanu - eitthvað sem vant- að hefur allt leiktímabilið. Boro byrjaði leikinn reyndar af miklum krafti og hefði getað skorað á fyrstu tíu mínútum leiksins. Arsen- al kom sér aldrei upp úr öðrum gír, enda kannski ekki skrítið þar sem leikmenn voru enn að ná sér eftir skyndilegt dauðsfall aðstoðar- þjálfarans, Georges Armstrongs, í síðustu viku. Arsene Wenger gat því ekki annað en fagnað sigrinum í stað þess að vera óánægður með hvernig liðið lék og Ray Parlour var honum sammála. „Það hefði verið stórslys að ná ekki að vinna þennan leik. Boro er að berjast fyr- ir lífi sínu í deildinni en okkur tókst að ná í þrjú stig. Þessi vika hefur verið erfið fyrir félagið því George var mikilvægur innan þess. Það hefur verið heldur dauft á æfingum eftir að hann dó,“ sagði Parlour eft- ir leikinn. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks leit út fyrir að Tottenham Hotspur væri á góðri leið með að endurtaka leikinn gegn Chelsea í síðustu viku er liðið tapaði 3:0 og fyrsta markið var skorað úr víti eftir að dæmd var hendi á Ramon Vega. Vega fékk aftur dæmt á sig hendi í víta- teignum en markahrókurinn knái hjá Sunderland, Kevin Phillips, þrumaði boltanum yfir markið úr vítinu. „Við vissum að ef við gætum haldið þeim í skefjum fyrstu 20 mínúturnar og náð svo að skora myndu áhorfendur snúast gegn þeim, sagði Phillips. Þrátt fyrir að George Graham hafi ekki viljað tala um atvikið var Vega reiðubúinn til þess. „Höndin á mér fór bara upp þegar ég fór í einvígi við Niall Qu- inn í teignum. Þegar dómarinn dæmdi víti hugsaði ég með mér „Ó, Guð - hvenær verð ég fyrir smá- heppni." Þegai’ Phillips klikkaði svo á vítinu þakkaði ég Guði fyrir,“ sagði Vega. Vítið reyndist vendi- punktur í leiknum því fimm mínút- um síðar komst Tottenham yfir. Don Hutchinson jafnaði í síðari hálfleik en tíu mínútum fyi’ir leiks- lok skoraði varamaðurinn Chris Armstrong með ágætu skoti og innsiglaði sigur Tottenham og létti þar með örlítið á þeirri pressu sem Graham er undir frá áhorfendum. Chelsea gengur enn jafn erfið- lega að ná í stig á útivelli og um helgina tapaði liðið 3:2 gegn South- ampton. Dennis Wise var í aðal- hlutverki hjá Chelsea með því að lenda í alls konar uppákomum og hefði auðveldlega getað verið send- ur af leikvelli fyrir slæmar tækling- ar, munnsöfnuð og leikaraskap. Eftir að Southampton komst í 2:0 í fyrri hálfleik átti litli fyrirliðinn svo þátt í að koma þeim bláklæddu aft- ur á blað. Wise og Gus Poyet skor- uðu sitt markið hvor til að jafna leikinn en áður en yfir lauk náði Wise að brjóta enn einu sinni af sér rétt utan teigs. James Beattie skor- aði það sem reyndist úrslitamark heimamanna úr aukaspyrnunni. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á lokamínútu leiks- ins. Ipswich datt niður í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar með 2:1 ósigri gegn Newastle á útivelli. Marcus Stewart batt endahnútinn á sókn sem Hermann Hreiðarsson hóf með góðu hlaupi upp vinstri kant- inn og laglegri fyrirgjöf. Mark Stewart kom áður en hetjan hans, Alan Shearer, tók við. Hann skor- aði tvö mörk og innsiglaði sigur Newcastle. „Hann er sá leikmaður sem við reynum allir að líkjast," sagði Stewart sem í miðjum leik óskaði eftir að fá að eiga treyju Shearers. Bobbie Robson var ánægður með markahetjuna sína. „Ásamt því að skora, lék hann leik- inn óaðfinnanlega," sagði Robson. Hermann lék afburðavel í leiknum og fékk að launum 8 í einkunn í enska blaðinu Daily Star þrátt fyrir að fara út af á 73. mínútu. Merson tryggði Villa sigur Aston Villa vann Everton 1:0 á sunnudag með enn einni undra- frammistöðunni hjá miðjumannin- um Paul Merson. Merson skoraði úrslitamarkið á síðustu mínútu leiksins með skoti af 25 metra færi er hann lyfti boltanum yfir mark- vörð Everton og var John Gregory knattspyrnustjóri Villa hæst- ánægður. „Hann lék mjög vel og markið var þess virði að bíða eftir,“ sagði Gregory. Villa hefur átt í miklum vandræðum með að skora á þessu leiktímabili og var það fyrst og fremst góð varnarvinna og ótrú- leg markvarsla Davids James sem vann þeim stigin þrjú. Nýliðar Charlton unnu Bradford 2:0 og virðast þeir ætla að halda sér í baráttu meðal þeirra tíu efstu í deildinni. Sigur þeirra var sann- gjarn og báru þeir höfuð og herðar yfir leikmenn Bradford. Stan Coll- eymore gat ekki leikið vegna tann- pínu og dagurinn virtist dæmdur fyrir Bradford. Enn versnaði í þvi er Stuart McCall var rekinn af velli með sitt annað gula spjald á loka- mínútu leiksins. Charlton er nú í níunda sæti deildarinnar á meðan Bradford sér enga leið út úr botn- baráttunni. FOLK ■ ATLI Már Rúnarsson, markvörð- ur Dalvíkinga í knattspyrnunni, er genginn til liðs við Þórsara á Akur- eyri og leikur með þeim í 1. deild- inni næsta sumar. Átli er Þórsari en hefur undanfarin þrjú ár leikið með Dalvíkingum. ■ KENNY Miller, leikmaður Glasg- ow Rangers, komst í metabækurn- ar í Skotlandi um helgina. Miller skoraði fimm mörk fyrir Rangers sem burstaði St. Mirren, 7:1, en að- eins tveimur leikmönnum hefur áð- ur tekist að skora fimm mörk áður í skosku úrvalsdeildinni, Marco Negri árið 1997 og Paul Sturrock árið 1982. ■ MILLER er 20 ára gamall. Þetta var aðeins þriðji leikur hans með Rangers síðan hann var keyptur frá Hiberninan í sumar fyrir 270 millj- ónir króna. ■ CELTIC heldur sínu striki á toppi skosku úrvalsdeildarinnar en liðið vann góðan útisigur á Kilm- arnock á sunnudaginn. Sigurmark- ið skoraði Alan Thompson í síðari hálfleik. ■ ARSENE Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, skrifar að öllum lík- indum undir nýjan þriggja ára samning við Lundúnarliðið nú í vik- unni sem þýðir að hann verður við stjómvölinn hjá Arsenal til ársins 2004. Nýi samningurinn sem Ars- enal hefur boðið Wenger tryggir að hann verður hæst launaðasti knatt- spyrnustjórinn á Bretlandseyjum. ■ TITI Camara, framherji Liver- pool, er nú sterklega orðaður við _ Leeds og Tottenham en þessi 27 ára gamli leikmaður óskaði eftir því við Liverpool i síðustu viku að verða settur á sölulista. ■ PATRICK Berger, miðjumaður- inn snjalli hjá Liverpooi, haltraði af velli í leik Liverpool og Leeds um helgina. Meiðsli í hné tóku sig upp að nýju og óttast nú menn að hann verði frá það sem eftir lifir tíma- bilsins. Berger heldur til Banda- ríkjanna í vikunni þar sem hann gengst undir aðgerð og þar ætti að koma í ljós hversu alvarleg meiðslin em. ■ MICHAEL Owen, félagi Bergers hjá Liverpool, fékk hins vegar góð- ar fréttir hjá læknum um helgina. Owen fékk þungt högg á höfuðið í leik gegn Derby á dögunum og var óttast að blætt hefði inn á heilann. Við sneiðmyndatöku kom í ljós að allt var í lagi og verður hann í leik- mannahópi liðsins sem mætir Slov- an Liberec í UEFA-keppninni sem fram fer í Tékklandi á fimmtudag- inn. ■ CHRIS Hutchings var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá enska úrvalsdeildarliðinu Bradford í gær. Bradford hefur ekki gengið sem skyldi á leiktíðinni og tap gegn Charlton um helgina varð til þess að stjórn Bradford ákvað að víkja Hutchings úr starfi. Stuart McCall, leikmaður Bradford, mun stýra lið- inu tímabundið þar til nýr stjóri . verður ráðinn. ■ FULHAM hefur fengið þau skila- boð frá belgíska liðinu Anderlecht að ef liðið ætlar að fá tékkneska landsliðsmanninn Jan Koller í sínar raðir verði það að hækka boð sitt. Fulham, sem er í öðru sæti ensku 1. deildarinnar, bauð 680 milljónir í Tékkann stóra og stæðilega en Anderlecht vill ekki selja hann fyr- ir þessa upphæð. ■ SPÆNSKA blaðið Sport segir frá því í gær að Barcelona hafi heitið liði AC Milan 200 milljónum króna ef liðið vinnur Leeds í meistara^ deildinni annað kvöld. Eini mögu- leiki Börsunga um að komast áfram í meistaradeildinni er fólginn í því að liðið vinni sinn leik Besiktas og að Leeds tapi fyrir AC Miian. Bæði Barcelona og ÁC Milan neita þess- um sögusögnum en spænska blaðið telur sig hafa örugga heimild fyrir,, þessum fréttum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.