Morgunblaðið - 22.11.2000, Síða 2
dagskrá
Moreunblaðiö/Kri
Morgunblaðiö/Kristinn
Einar Ágúst, útvarps- og tónlistarmaður, sér um íslenska popplistann sem er á dagskrá Popp Tíví á laugardögum.
samtímamenningu yfirleitt, er
sjónvarpsstöðin MTV hóf út-
sendingar árið 1981, þar sem
tónlistartengt efni var inntak
stöövarinnar fyrst og síðast.
Fyrir rétt rúmu ári fór í loftió hér
á landi sjónvarpsstöðin Popp Tíví,
þar sem tónlist er meginútgangs-
punkturinn líkt og hjá áöurnefndri
stöð.
70 mínútur
Þeir Jóhannes Ásbjörnsson og
Sigmar Vilhjálmsson eru stjórnend-
ur þáttarins 70 mínútur sem er á
dagskrá stöðvarinnar alla virka
daga kl. 22.00 og stendur yfir,
kemur ekki á óvart, í heilar sjötíu
mínútur. Sérlegur aðstoðarmaður
þeirra og þúsundþjalasmiður er
göngugarpurinn Sveppi, Sverrir Þór
Sverrisson.
„Viö vorum saman í útvarpinu á
Mono á morgnana með þáttinn
70“ segir Jóhannes þegar hann
er beöinn að lýsa tildrögum sjón-
varpsþáttarins. „Við hættum svo
þar í lok ágúst og fórum á Popp
Tíví með þáttinn 70 mínútur sem
er í sjötíu mínútur á hverju virku
kvöldi. Þátturinn er þannig upp-
byggöur að það er ýmislegt
skemmtiefni í bland við músík.
Við höfum verið að taka upp og
sýna faldar myndavélar og við er-
um meö kvikmyndir kvöldsins
tvisvar sinnum í viku þar sem við
tölum yfir gamlar kvikmyndaræm-
ur. Við höfum líka verið að sýna
eldgamlar auglýsingar I horni sem
heitir Þegar vió vorum ungir. Einn-
ig höfum við verið að spila gömul
íslensk myndbönd."
Að sögn Jóhannesar er margt á
döfinni annaö hvað varöar þessa
innlendu dagskrárstefnu. „Popp
Tíví er fariö af stað með alveg helj-
arinnar dagskrárgerö,“ segir hann.
„Við erum núna með þátt sem
heitir Pikk TV, en þar hringir fólk
annaðhvort eða sendir rafpóst
með beiðnir um óskalög. Hann
heitir Steinn Kári sá sem sér um
það. íslenski popplistinn er líka
farinn af stað en það er hann Einar
Ágúst sem sér um að kynna hann.
Svo erum við að fara af stað með
þátt sem heitir Geim TV þar sem
veriö er að fjalla um nýjustu leikina
í leikjatölvunum og þeir spilaðir og
prófaöir. Þetta er svona uppistað-
an til að byrja með. Svo höfum við
líka veriö að gera þemaþætti sem
ganga í þrjá ttma í senn og heita
nöfnum eins og 100% Limp Bizkit
eða 100% Lenny Kravitz og þá spil-
um við allt sem við eigum með við-
komandi listamanni. í Skóla TV fá
framhaldsskólarnir tækifæri á að
koma með klukkutíma framlag og
það má í raun vera hvað sem er.“
Sagan m.a.
Björn Sigurðsson ber langan titil,
er framkvæmdastjóri Framtíöar-
miðlunar sem rekur Popp Tíví fyrir
Norðurljós.
„Saga stöðvarinnar er nú stutt,
þetta er rúmlega ársgömul stöð,
og eins og nafnið gefur til kynna
snýst hún aöallega um poppmúsík.
Á undanförnum vikum höfum við
verið að bæta við okkur í dagskrár-
gerð og reynum þá að höföa til
markhópsins okkar sem er svona
á aldrinum 12 til 25 ára og reynum
svona að endurspegla hans lífsstíl
með hinu og þessu. Stefnan er að
reyna að bæta í þetta og gera bet-
ur og reyna að fjalla um þau mál-
efni sem þessi aldurshópur hefur
áhuga á og músíkin er sú brú sem
tengir það allt saman."
Útsendingar stöðvarinnar eru í
gangi allan sólarhringinn. „Við erum
eina sjónvarpsstöðin á landinu sem
sendir út allan sólarhringinn en
dagskrárgerö virka daga er svona
þrír tímar. Það eru núna fjórar vikur
síðan við ýttum því verkefni úr vör.“
Björn segir að þeir hafi verið að
velta þeim möguleika fyrir sér að
búa til þátt sem tekur einungis á
íslenskri tónlist. „Það er svona
spurning hvernig form gæti verið
á honum. íslensk tónlist er okkar
aðalsmerki og við viljum gera
henni betri skil en viö höfum veriö
að gera. Það sem hefur kannski
vantað upp á helst er að lista-
mennirnir eru ekkert að skila af
sér myndböndum." Stöðin er að
sjálfsögðu kjörinn vettvangur fyrir
birtingu tónlistarmyndbanda og
gæti því virkaö sem hvatning til
aukinna umsvifa í þess háttar
myndbandagerö.
Það er sem sagt allt á fullu stími
á Popp Tíví um þessar mundir og
menn þar á bæ eru óðir bæði og
uppvægir að nýta möguleika mið-
ilsins til hins ýtrasta. Meira popp,
meiri tónlist!
Rokkþátturinn Hamsatóig á Rás 2
Hamsatólgarharkan
Morgunblaðið/ Sverrir
Smári Jósepsson er annar umsjónarmanna Hamsatólgar.
ÞÁTTURINN Hamsatólgá Rás 2 ein-
beitir sér að þeirri tegund rokks sem
stígur meira f en venja ertil, hvort
sem um er að ræða þungarokk,
harðkjarnarokk eða bara órætt og
níðþungt mulningsrokk. Umsjónar-
menn þáttarins eru Smári Jóseps-
son og Birkir Fjalar Viðarsson.
„Þátturinn hefur verið í gangi síöan
ímaíífyrra, “ segirSmári. „Égvarað
vinna fyrir blaðið Undirtóna á sínum
tíma og skrifaöi aðeins um rokkið
þar. Svo fékk ég þessa hugmynd, að
sækja um þátt á Rás 2 en ég hlust-
aði mikiö á rokkþætti stöðvarinnar á
yngri árum.“
Smári segirþætti þessararteg-
undar hafa legiö niðri undanfarin ár á
Rás2. „ÞaðvarþátturfyriráX-inu,
mjög góður [Babýlon], en í þá daga
náði X-ið takmörkuðum eyrum lands-
manna. Það vantaði að koma þess-
ari stefnu meira út á land.“
Smári segir að hann og Birkir hafi
algerlega frjálsar hendur hvað varð-
arefnisval, „Viðbrögðin hafa ogver-
ið mjög góð, bæöi í bænum og úti á
landi. Svona rokkþættir hafa alltaf
verið mjög vinsælir þegar þeir hafa
verið á boðstólum," segirSmári að
lokum.
Hamsatólg er á dagskrá á mánu-
dagkvöldum á milli kl. 23.00 og
0.00. Heimasíöa þáttarins er
vvww. dordingull. com/hamsatolg/
index.html
Pokémon-teiknimyndir í Ríkissjónvarpinu
Páraöir Pokémonar
POKÉMONÆÐI tröllríður barnaskól-
um landsins f þessum skrifuðum orð-
um, æði sem ersíöuren svo í rénun
og Pokémon-spjöldin ganga manna á
milli ígríð ogerg. Þetta gríóarvinsæla
fyrirbæri, sem allir krakkar elska en
fæstirfullorðnir skilja, á rætur að
rekja til Japan, nánar tiltekið til Game-
Boy tölvu Nintendo fyrirtækisins sem
setti á markað leikinn Pokémon fyrir
nokkrum árum. Fljótlega spratt upp
heilmikill iönaður í kringum þennan
heim skrímsla, finngálkna ogforynja
og nú er búið að gera tvær kvikmynd-
ir, framleiöa teiknimyndaflokk og
teiknisögublöð að ógleymdum skipti-
spilaleiknum. Auk þess er að sjálf-
sögðu hægt að nálgast venjubundið
fylgidót eins og boli og kaffibolla,
penna og plaköt o.s.frv. Það er því
gríðarmikil menningí kringum þessa
veröld Pokémonanna.
Ríkissjónvarpið hóf útsendingar á
teiknimyndaflokknum 17. októberog
því geta áhugasamir nú fylgst með
ævintýrum Ash, Pikachu ogfélaga á
Pikachu ogAsh, tilbúniríslaginn.
Ijóslifandi hátt. Þættirnireru á dag-
skrá alla þriðjudaga kl. 18.05.
Eggert Skúlason kennir landsmönnum að fara með peninga á Stöð 2.
Atorgi
Mammor
HÉR á Vesturlöndum eru peningar
hreyfiafl hins daglega lífs, hvort sem
okkur líkar það betur eða verr. Undan-
farin ár hefur huglægur áhugi á pen-
ingum aukisttil mikilla muna ogfjöldi
fólks hefur gaman af því að spá í og
velta gengi hluta- og verðbréfa fyrir
sér. Þátturinn Peningavit, í umsjón
Eggerts Skúlasonar, er rökrétt afleið-
ing þessa, en hann er á dagskrá viku-
lega, á mánudagskvöldum kl. 21.55
á Stöð 2.
Fjármálin á réttan kjöl
„Það vargríðarlegurfjöldi fólks sem
hafði samband við mig eftirfyrsta
þáttinn," segir Eggert í samtali við
starfsmann Dagskrárblaðsins. „Fólk
Eggert Skúlason fyigist meö íheimi fjármálanna.
sem vill þiggja þá ráðgjöf sem við ætl-
um að bjóða einni fjöldskyldu." í fyrsta
þættinum varfólki sem taldi sig vera
að eyöa um efni fram boðið upp á
ókeypis ráðgjöf fjármálasérfræðinga,
hvers ætlan væri að koma þeirri fjöl-
skyldu á réttan kjöl í fjárhagslegu til-
liti. „Við ætlum ekki að gefa þessu
fólki peninga," segir Eggert kankvís.
„Heldur sýna því fram á hvað hægt sé
að gera og vonandi nýtur þá allur al-
menningurgóðs af því á meðan.
Það sem mérfannstóþægilegast
þegarégvar að skrifa þessa auglýs-
ingu erað mérfannstégvera að
skrifa um mig!
Viö gáfum þessum þætti nafnið
Peningavit, enþaö er ekki skírskotun
í mig endilega," segir Eggert og hlær.
„En viö fáum til okkar fólk í þáttinn
sem er sérfræöingarí þessum mál-
um.“
Peningar í tísku
„Þátturinn er þannig upp byggður
að hann er um peninga f sinni víö-
ustu merkingu," segir Eggert. „Viö
ætlum að fjalla um lífeyrissparnaö,
við ætlum aðfjalla um hlutabréfog
um fjölskyldufjármál o.s.frv. o.s.frv.
Hugmyndin kviknaði innan stöðvar-
innarermenn skynjuöu þörfina á því
að vera meö þátt sem væri á pen-
inganótum. í framhaldi af því var
mér boöiö að taka við þessu þar
sem ég var búinn að lýsa því yfir að
ég ætlaöi aö hætta í almennum
fréttum. Og mér fannst þetta bara
dáspennandi."
Peningarsem slíkireru mikil
lenskaídag. „Peningareru ítísku á
íslandi," segir Eggert og kímir. „Það
erótrúlegvakningí þessu og það er
eins og annar hver maður sé aö velta
hlutabréfum fyrir sér. Þetta ergríðar-
leg breyting á stuttum tíma."
Og ísland er ekki eini vettv-
angurinn. „í fyrsta þættinum fórum
við niðurtil Búlgaríu ogskoðuðum
þarfjárfestingar Pharmaco þannig
að okkar markaössvæöi er heimur-
inn allur eins og einhver sagði.“