Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 1
I ÍMí>r0MnM$t§>iSr 2000 m LAUGARDAGUR 9. DESEMBER BLAÐ Sænskur vamar- maður til Stoke? PATRIK Rosengren, sænskur vamarmaður frá 1. deildarliðinu Mjallby, er til skoðunar hjá Stoke City þessa dagana. Rosengren átti stórleik með varaliði Stoke gegn Wigan í fyrrakvöld og miðað við lýsingar á frammistöðu hans þar er líklegt að Stoke freisti þess að fá hann tii liðs við sig en Rosengren er hávaxinn og lfkamlega sterkur vamarmaður. Sænska úrvalsdeildarliðið AIK hefur einnig sýnt honum mikinn áhuga. Tveir ís- lenskir leikmenn léku með varaliðinu - Krislján Sigurðsson og Hjörvar Hafliðason í markinu. Stoke leikur ekki um helgina - næsti leikur liðsins er 16. desember við Bristol Rovers. Stoke er í sjöunda sæti í 2. deild með 30 stig eftir 19 leiki, Walsall er í efsta sæti með 41 stig eftir 20 leiki og Rotherham hefur 40 stig eftir jaftimarga leiki. Millwall og Wigan em með 39 stig, Read- ing 35 (19 leiki) og Bristol City 31 stig (19). ■ Umfjöllun um íþróttavið- burði gærkvöldsins er á bls. 74 í aðalblaði íNoregi SEX íslenskir sundmenn taka þátt í Norðurlandameistaramótinu í sundi sem fram fer í Fredrikstad í Noregi í dag og á morgun. Þeir eru Anja Ríkey Jakobsdóttir og Berglind Ósk Bárð- ardóttir úr SH, Jón Oddur Sigurðs- son, UMFN og Hafdís Erla Haf- steinsdóttir, Gunnar Steinþórsson og Hjörtur Már Reynisson, öli úr Ægi. Þjálfarar hópsins eru Þuríður Einars- dóttir og Bodo Wermelskirchen. Einn úr þessum hópi tók þátt í mótinu í fyrra, Hjörtur Már. Hann vann þá silfurverðlaun í 200 m skriðsundi og var hársbreidd frá bronsverðlaunum í 100 m flugsundi, varð fjórði. „Við erum með góða sveit sem við viljum að syndi á sínum bestum tím- um og berjist virkilegum krafti,“ sagði Wermelskirchen áður en haldið vai- af stað til Noregs. „Ef allir leggja sig fram þá er ekki hægt að fara fram á meira.“ Wermelskirchen sagði að erfitt væri að velta fyrir sér möguleikum ís- lenska liðsins á að vera í fremstu röð. Flestar sveitir breyttust mjög ár frá ári, þar sem keppendur mega aðeins taka þátt í tvígang. „Hjörtur vann til verðlauna í fyrra og það væri mjög gaman ef honum tækist að endurtaka leikinn af þessu sinni, við sjáum hvað setur. Það er ekki rétt að setja of mikla pressu á keppnishópinn, aðalatriðið er að sundmennimir leggi sig fram,“ sagði Wermelskirchen Eyjólfur Sverrisson og samherjar hans hjá Herthu Beriín höfðu ekki heppnina með sér á miðvikudaginn f leik gegn Inter í Mílanó, þar sem þeir féllu úr UEFA-keppninni á elleftu stundu - þegar Inter skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok, 2:1. Hér má sjá Sebastian Deisler taka aukaspyrnu fyrir Herthu á San Siro-leikvellinu. Fyriiiiði Noregs settur út í kuldann Blikar með 2,5 millj. í hagnað AÐEINS fjórir leikmenn í landsliði Noregs í handknattleik, sem tek- ur þátt í heimsmeistarakeppninni í Frakklandi 23. janúar til 5. febr- úar, leika með norskum liðum. Flestir leikmannanna leika með lið- um í Þýskalandi; Það hefur vakið athygli að Frode Scheie, markvörður þýska liðsins Eisenach, sem hefur leikið 103 landsleiki fyrir Noreg og var fyrirliði liðsins, er kominn út í kuidann. Steinar Ege, markvörður Kiel, sem hefur leikið 94 landsleiki, er kominn á ný í landsliðið. Rétt fyrir HM í Egyptalandi 1999 vakti það reiði í Noregi er Ege gaf ekM kost á sér í landsliðið á síðustu stundu. Með- al þeirra sem deildu á Ege vegna brotthlaupsins var Scheie, sem er óhress með að vera settur út í kuld- ann fyrir HM. „Ég er ekki á móti Ege, en það er greinilegt að hann er ekM sáttur við mig,“ sagði Seheie, sem telm- það vera ástæðuna fyrir að hann er ekM í landsliðshópnum sem fer til Frakklands. Ege viðurkenndi í viðtali við Drammens Tidende að hann og Scheie væru ekki bestu vinir. Christen Magnusson, landsliðs- þjálfari Noregs, segir að hann hafi ekM valið Scheie í landsliðið af þeirri ástæðu að Gunnar Fossen, markvörð- ur Vigo á Spáni, væri betri. Sextán manna hópur Noregs var valinn í vikunni og er hann þannig sMpaður: Steiner Ege (Kiel) og Gunnar Fosseng (Vigo), markverðir. Aðrir leikmenn eru Jan Thomas Lauritzen (Essen), Hávard Tvedten (Stord), Simen Muffetangen (Bad Schwartau), Tormod Moldestad (Bad Schwartau), Roger Kvannli (Hildes- heim), Stig Penne (Stavanger), Eiv- ind Ellingsen (Sandefjord), Christian Berge (Flensburg/Handewitt), Frode Hagen (Nordhom), Preben Vildalen (Eisenach), Trond Forde Eriksen (Álaborg), Kristian Kjelling (Dramm- en), Rune Skjærvold (Essen), Johnny Jensen (Bad Schwartau). Knattspyrnudeild Breiðabliks afgreiddi ekki ársreikninga félagsins á aðalfundi, sem haldinn var 29. nóvember síðastliðinn, og var ákveðið að fresta afgreiðslu reikninga félagsins þar til í febrúar á næsta ári. Frá og með þeim fundi verða ársreikningar félagsins mið- aðir við almanaksár. Uppgjör félagsins að svo stöddu nær því aðeins yfir 11 mánuði, 1.12. 1999 til 30.10. 2000, og voru helstu niðurstöður þessar: Rekstrartekjur 53.469.279 krón- ur. Rekstrargjöld 49.735.486 krón- ur. Vaxtagjöld félagsins voru 1.248.837 krónur og hagnaður knattspyrnudeildar Breiðabliks var því tæpar 2,5 milljónir króna. Tekjur félagsins af sölu Marels J. Baldvinssonar til norska félagsins Stabæk eru færðar inn í rekstrar- tekjur félagsins, en norska liðið greiddi um 23 milljónir fyrir Marel í lok júlí. Það má draga þá ályktun af reikningum félagsins að rekstr- artap félagsins hefði verið nálægt 20 milljónum hefðu ekki komið til töluverðar tekjur af sölunni. Árs- reikningur félagsins verður síðan gerður opinber eftir framhalds- aðalfund í febrúar og þar verður hægt að sjá hve mikið félagið fékk í sinn hlut af söluverði Marels. VIÐTAL VIÐ ELLERT B. SCHRAM, FORSETA ÍSÍ /C2,C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.