Morgunblaðið - 15.12.2000, Blaðsíða 1
(
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
K
B
2000
U FOSTUDAGUR15. DESEMBER
BLAD
Þórir líklegur sem
aðstoðarþjálfari
NORSKA kvcnnalandsliðið f handknattleik stóð
sig ekki eins og vonast var til á Evrópumeist-
aramótinu sem fram fer í Rúmeníu þessa dagana.
Liðið komst ekki í undanúrslit. Marit Breivik
þjálfari liðsins sagði við norska fjölmiðla að verk-
efnið í Rúmeníu væri til þess ætlað að gefa ung-
um leikmönnum tækifæri og kynslóðaskipti væru
hjá liðinu. Það bendir því allt til þess að Breivik
ætti sér að halda áfram sem landsliðsþjálfari en
nafti Islendingsins Þóris Hergeirssonar er efst á
lista norska handknattleikssambandsins ef Brei-
vik hættir. Aðstoðarmaður Breivik, Arne Hog-
dahl, hefur nú þegar sagt upp sínu starfi og verði
Breivik áfram eru allar líkur á að Þórir verði að-
stoðarmaður hennar. Nafn Kristjáns Halldórs-
sonar, sem þjálfar kvennalið Stabæk, hefur einn-
ig verið nefnt í þessu sambandi en minni líkur eru
á Krisljáni verði boðið starfið.
Om
Evrópu-
meistari
ÖRN Arnarson vai-ð í gær Evrópumeistari í 200 m baksundi
í 25 m laug á Evrópumeistaramótinu í Valencia. Þetta er
þriðja árið í röð sem Öm verður Evrópumeistari í þessari
grein. Öm setti Islands- og Norðurlandamet er hann kom í
mark á 1.52,90 sekúndum og bætti Norðurlandamet Finn-
ans Janni Sivinens um 44 hundraðshluta úr sekúndu. Þar
með á Öm bæði Norðurlandametið í 25 og 50 m laug í 200 m
baksundi.
I sundinu i gær var Öm 60/100 úr sekúndu á undan Gord-
an Kozulj, Króatíu, Evrópumeistara í 200 m baksundi í 50 m
laug, sem varð annar. Þriðja sætið kom í hlut Blaz Medves-
ek, Slóveníu, hann mældist hafa farið vegalengdina á
1.54,61.
Öm bætti um leið eigið Evrópumótsmet um 1,33 sek-
úndur en það setti hann í fyrra.
Sundið hjá Emi var afar vel útfært. Hann var þriðji eftir
50 metra, 34/100 á eftlr Kozulj, er var fyrstur. Að sundinu
hálfnuðu hafði Örn fikrað sig upp í annað sætið, 23/100 frá
fremsta manni. Þegar 150 metrar voru eftir var Örn kominn
í nauma forystu, 7/100 úr sekúndu, en á síðasta snúningi, við
175 metra markið, skildu leiðir Arnar og Kozulj. Öm tók af-
gerandi forystu og synti af miklu öryggi síðustu metrana án
þess að nokkur andstæðinga hans næði að ógna honum.
■ Viðtal við Örn/B4
Reuters
Örn Arnarsson sést hér á lokasprettinum er hann tryggði sér Evrópumeistaratitlinn í 200 m baksundi,
\
Helgi Jónas
átli stórieik
finnur Garðarsson körfuknattleiks-
dómari í samtali við Morgunblaðið
en Leifur dæmdi leikinn ásamt Ital-
anum Sam Canella en sá dæmdi
undauúrslitaleik Bandaríkjanna og
Litháa á Ólympíuleikunum í Syd-
ney í sumar.
Leifur dæmdi einnig með Ital-
anum leik Basket Racing Paris og
Caja San Fernando frá Spáni á
þriðjudagskvöldið og að eigin sögn
þá gekk honuin vel í báðum þessum
leikjum.
Helgi og félagar í Ieper hafa unn-
ið alla þrjá leiki sína i riðlinum og
eru í efsta sætinu með 6 stig. ~ '
Malaga frá Spáni er í öðru sæti með
5 stig, Le Mans er með 4 og SIG
Basket frá Frakklandi rekur lestina
með 3 stig.
HELGI Jónas Guðfinnsson ált i stór-
leik með belgíska liðinu Ieper í
fyrrakvöld þegar liðið sigraði
franska liðið Le Mans á útivelli,
87:81, í H-riðli Korac-bikarkeppn-
innar. Helgi lék í 24 mínútur, skor-
aði 19 stig í leiknum og var næst
stigahæstur í sínu liði. Hann skor-
aði fimm þriggja stiga körfur úr
tólf skottilraunum og skoraði úr
! ’i: öllum fjórum vítunum sem hann
tók.
„Helgi átti hreint frábæran leik.
Hann var ekki í byrjunarliðinu en
kom mjög sterkur inn. Hann lék
stórt hlutverk og það var sérlega
gaman að sjá til hans. Þetta var
j t hörkuleikur og mikil stemmning í
!., höllinni en áhorfendur voru vel á
J fimmta þúsund,“ sagði Leifur Sig-
Erfiður rekstur hjá íþróttahreyfingunni:
Skuldir boltagrein-
anna 400 milljónir
VELTA íþróttahreyfingarinnar á íslandi árið 1999 jókst um 500 millj-
ónir króna og var heildarveltan á árinu 3,5 milljarðar króna. Þetta
kemur fram í starfsskýrsium jþróttasambands íslands, sem lagðar
voru fram á dögunum.
egar rýnt er í tölumar fyrir árið
1999 kemur í ljós að sigið hefur
á ógæfuhliðna hvað skuldastöðuna
varðar og skera þrjár stærstu bolta-
greinarnar sig úr hvað það varðar.
Afkoma þriggja stærstu boltagrein-
anna, handknattleiks, knattspyi’nu
og körfuknattleiks, versnaði til muna
og jukust skuldir þeirra um nærri 400
milljónir króna en samtals var velta
þessara þriggja íþróttagreina 40% af
heildarveltuíþróttahi'eyfingarinnar
Skuldir handknattleikshreyfingar-
innar jukust um mmlega 130 millj-
ónum, fóra úr 103 milljónum í 236
milljónir.
Velta knattspymuhreyfmgarinnar
jókst um rúmlega 300 milljónir
króna, fór úr 583 milljónum í 877
milljónir. Eins og hjá handboltanum
seig á ógæfuhliðna hvað skuldastöð-
una varðar en skuldirnar jukust um
150 milljónir króna, fóra úr 255 millj-
ónum í 424 milljónir.
Staða körfuknattleikshreyfingar-
innar versnaði líka talsvert. Veltan
jókst um 100 milljónir, fór úr 106
milljónum í 202 milljónir og skuldfrn-
ar fóra úr 51 milljón í 117 milljónfr.
Rekstur annan-a íþróttagreina var
rnjög svipaður á milli ára en ekki þarf
að koma mönnum á óvart að mesta
skuldsöfnun hafi átt sér stað í bolta-
greinunum þremur. Margir af for-
ráðamönnum félaganna í efstu deild-
um hafa á undanfornum áram reist
sér hurðarás um öxl. Eitt dæmið er
launakostnaður til leikmanna sem
hefur farið algjörlega úr böndunum
og er að sliga mörg félög.
Flestir í knattspyrnunni
I starfsskýrslunni kemui- fram að
félagar í íþróttahreyfingunni era
123.000 og eru iðkendur 75.500. Sem
fyiT eru flestir iðkendur í knatt-
spyrnu eða 15.500, golfið kemui- næst
með 8.100, hestaíþróttir eru í þriðja
sæti með 6.800, körfuknattleikur með
5.800 iðkendur, 5.500 iðkendur era í
badminton, 5.200 í frjálsum íþróttum
og handknattleikurinn er í sjöunda
sæti með 4.700 iðkendur.
SÆVAR ÞÖR GÍSLASON KOMINN í INDLANDSHÓPINN / B4