Morgunblaðið - 15.12.2000, Side 1
FRIÐRIK ÞÓR VERÐUR ALPREIÞUNNUR í JAPAN/2 ■ UPPELPI/3
LIST FYRIR LESTRARHESTA/4 ■ BROSIÐ EKKI FARIÐ AF HENNI/6 i;
KRYPP í BRAGÐLAUKATILVERUNA/7 ■ AUPLESIÐ EFNI/8
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fjölskyldan í Bakkagerði - Kristjana segir áherslu lagða á jóla-
boðskapinn fyrir og yfir jólin, þótt hin veraldlega hlið jólanna sé
ekki undanskilin. Fjölskyldan reynir að verja sem mestum tíma
saman, fara í gönguferðir, lesa og vera í rólegheitum. Auður Sif og
Baldur Snær Jónsbörn. Kristjana, Jón Baldursson og Jakob Jónsson.
AFTENGJUM jólavélina er yf-
irskrift hálfsdags námskeiðs, sem
Kristjana Eyþórsdóttir jarðfræð-
ingur hefur haft umsjón með sfðast-
liðin þrjó ár. Að þessu sinni bar svo
við að aflýsa þurfti námskeiðinu
vegna ónógrar þátttöku og segir
Kristjana það ekki skrýtið í ljósi
þess hversu mikið framboðið sé af
alls kyns afþreyingu á þessum árs-
tíma. Allt eigi hreinlega að gerast í
desember.
Námskeiðið byggist á sam-
nefndri bók, Unplug The Christmas
Machine, eftir tvo Bandaríkjamenn,
og hefur verið haldið fyrir tilstilli
Biblfuskólans. Kristjana segir, að
þótt skólinn hafi haft milligöngu
um námskeiðshaldið eigi það að
skírskota til allra, hvort sem jóla-
hald er byggt á trúarástæðum eða
ekki. „Um er að ræða sjálfshjálp-
arnámskeið með Ijórum æfíngum,
sem ætlað er að vekja fólk til um-
hugsunar um sitt eigið jólahald,
hvað því finnist mikilvægast og
hvernig jól það vilji í raun. Meg-
ináhersla er lögð á áætlunargerð,
svo þátttakendur geti haldið
ánægjuleg og innihaldsrík jól, sem
uppfyllir þeirra eigin þarfir," segir
hún.
Kristjana á fjögur börn og segist
sjálf hafa byrjað að velta jólasiðum
fýrir sér þegar hún stofnaði fjöl-
skyldu. „Ég var ekki með fastmót-
aðar hugmyndir um jólahald og
mér fannst töluvert mál að byrja á
því að halda eigin jól og sameina
þar með jólahald tveggja ein-
staklinga úr sitt hvorri fjölskyld-
unni. Ákveða hvaða jólasiðir ættu
að vera á heimilinu, hvaða jólamat-
ur yrði á borðum, í hvaða jólaboð
ætti að fara og fleira. Þá verða
breytingar þegar börnin eru komin
til sögunnar og til dæmis þarf að
ákveða hvernig á að fara með jóla-
sveinana eða hvort setja á skóinn út
í glugga.“
Fjölskyldan bjó í Bandaríkjunum
um tíma, þar sem umgjörðin um jól-
in var talsvert öðruvísi, auk þess
sem ekki héldu allir upp á jól. Ýtti
það ennfrekar undir vangaveltur af
þessu tagi, segir hún.
Frumkvæði í stað sjálfstýringar
Kristjana segir suma gjarnan
vilja breyta jólahaldi sínu, aðra
ekki, og að spurningin sé einfald-
lega sú að gera upp við sig hvað
skipti máli í jólaundirbúningnum
og gera áætlun, í stað þess að sefja
sjálfstýringuna á í byrjun desemb-
er. „Jólin eru fjölbreytt háti'ð sem
snertir tilfinningar fólks á margan
hátt. Það getur verið gott að átta
sig á því í hvað tími manns fer í fyr-
ir jólin og hvað maður raunveru-
Iega vill Ieggja af mörkum. Stærsta
uppgötvunin er kannski sú að fólk
hefur val.“
Áætlað hefur verið að íslend-
ingar versli fyrir 8-10 milljarða
fyrir jólin, nefnir Kristjana, og seg-
ir svo virðast sem einhverjum sé
farið að ofbjóða. Hún bendir á
kauplausa daginn sem efnt hefur
verið til og segir að umræða um
jólahald sé farin að tengjast um-
hverfisvernd í auknum mæli. Ein-
hveijir vilji greinilega spyrna við
kaupæði j ólanna.
Þátttakendur á undanförnum
námskeiðum hafa nær einvörðungu
verið konur, „enda hefur jólahaldið
livílt mest á þeim“ og segir Krist-
jana jafnframt að ti'minn og pening-
arnir sem fari fkaup ájólagjöfum
virðist hvíla þyngst á flestum.
„Hugmyndir þeirra um draumajól
fela iðulega í sér rólegheit og frið-
sæld, tíma með fjölskyldunni þar
sem allir eru ánægðir saman, mat-
seld sem ekki felur í sér margra
klukkust unda undirbúning og litlar
gjafir, eins gaman og það getur
verið að gleðja aðra. Jólagjafainn-
kaupin reynast flestum erfiðust í
heild, því oft reynist erfitt að finna
réttu gjöfina og viðtakandinn
stundum alls ekki ánægður. Spyija
má hvort við þurfum í raun á öllum
þessum gjöfum að halda. Gætum
við ekki allt eins látið peningana
okkar renna til þeirra sem ekki
geta haldið gleðileg jól vegna fá-
tæktar eða sorgar? Hver er eig-
inlega tilgangur jólanna?" spyr
Kristjana Eyþórsdóttir að endingu.
og gætir
-..* unnid
^eilsunnar
REYKJAVÍK
AKUREYRI