Morgunblaðið - 15.12.2000, Qupperneq 8
i D FÖSTUDAGUR15. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Stórbruni í Vestmannaeyjum
jBrunavarnir
ísfélagsins
ófullnægjandi
Morgunblaóið/Árni Sæberg
Eldhafið var gríðarlegt og slökkvistarf erfitt.
„Þetta var eins og gos og ég
trúði þessu ekki fyrst. Síðan
^om eldurinn upp á fleiri
stöðum og allt í einu logaði
öll hlið hússins," sagði
Bjarni Sveinsson. Hann sá
eldsúlu stíga upp úr þaki
ísfélags-hússins á
laugardags-kvöldið.
Um hundrað manns tóku
þátt í slökkvistörfum í
Vestmannaeyjum. Hópur
slökkviliðsmanna frá
höfuðborgarsvæðinu kom
með þyrlu. Slökkvistarfið var
gífurlega erfitt og vatnsdælur
höfðu illa undan. Það tók á
annan sólarhringað slökkva
eldinn.
Bruninn er mikið áfall fyrir
Vestmannaeyjar. Starfsmenn
ísfélagsins eru rúmlega
hundrað. Þeirfjölmenntu á
fund sem ísfélagið hélt
ásamt verkalýðs-félaginu í
Eyjum. Yfirmenn ísfélagsins
lýstu sig reiðubúna að láta
starfsfólkið fá kauptryggingu
í stað atvinnuleysis-bóta, en
lagaheimild skortir. Ekki
skemmdust öll frystitækin.
Sagði Jóhann Pétur
Andersen,
framkvæmdastjóri
ísfélagsins, að stefntværi að
því að setja loðnufrystingu í
gang og vonaðist hann til að
afkastagetan yrði svipuð og
áður.
Tækifæri
framtíðar
Framkvæmdastjóri
ísfélagsins var bjartsýnn:
„Vandamálið sem við eigum
við að glíma í dag gæti orðið
tækifæri framtíðarinnar.
Vonandi fáum við gott,
nýtísku frystihús upp úr
þessu.“
Eldurinn kom upp í
viðbyggingu. Starfsmaður frá
Brunamála-stofnun kannaði
brunarústirnar í Eyjum og
sagði að brunavarnir hefðu
ekki verið í lagi. Frystihúsið
var tryggt hjá
Trygginga-miðstöðinni. Nú er
talið að um íkveikju hafi verið
að ræða. Sjóður hefur verið
stofnaður til að hjálpa þeim
verst settu. ísfélagið er elsta
hlutafélag landsins. Það
verður hundrað ára á næsta
ári.
Reuters
Bush ásamt konu sinni eftir að Gore játaði ósigur sinn.
George W. Bush forseti Bandaríkjanna
Stóri dómur
George W. Bush veróur 43.
forseti Bandaríkjanna. Þetta
var Ijóst eftir að Al Gore
varaforseti játaði ósigur
sinn í sjónvarpsávarpi í
fyrrinótt. Gore óskaði Bush
til hamingju. Hann hvatti
bandarísku þjóðina til að
fylkja sér að baki
forsetanum eftir hatrammar
deilur lögfræðinga.
Hæstiréttur
Bandaríkjanna kvað upp
þann dóm að ekki væri tími
til aö endurtelja atkvæðin í
Flórída. Hæstiréttur klofnaði
í afstöðu sinni. Bush hefur
sigrað með minnihluta
atkvæða, en meirihluti
kjörmanna ræður. Hans
bíður erfitt verkefni að
sameina þjóð sína. Bush er
54 ára og hefur verið
ríkisstjóri í Texas.
Samkomulag í
Suður-Frakklandi
Mikilvægum leiðtogafundi
Evrópu-sambandsins lauk
með samkomulagi í Nice í
Suður-Frakklandi á mánudag.
Markmiö fundarins var að
undirbúa sambandiðtil að
taka inn þrettán ný ríki á
næstu árum, eins og Pólland
og Litháen.
Óeirðir voru við upphaf
fundarins. Þúsundir
mótmæltu frelsi í
heimsviðskiptum og
atvinnuleysi. Lögreglan beitti
táragasi en það barst inn í
loftræstikerfi
ráðstefnu-hallarinnar. Sást
Frakklands-forseti nugga á
sér augun og hnerra þar sem
hann var að búa sig undir
myndatöku með
þjóðar-leiðtogunum fimmtán.
Mikil átök voru á fundinum
sem stóð í fimm daga. Loks
var samþykkt tillaga Jacques
Chiracs Frakklandsforseta,
sem erformaður
sambandsins. Hún felur í sér
að fjögur stóru ríkin
(Þýskaland, Frakkland,
Reuters
Chirac Frakklands-forseti
greinirfrá Nice-samkomulag-
inu á Evrópu-þinginu.
Bretland og Ítalía) fá aukið
vægi við ákvarðana-töku.
Samhliða verður dregið úr
áhrifum fámennra ríkja, eins
og Danmerkur, Svíþjóðar og
Finnlands. Chirac sagði að
fundarins yrði lengi minnst
fyrir það að hafa lagt
grunninn að skipulagi
Evrópu-sambandsins á 21.
öld.
Samkomulagið tekur ekki
gildi fyrr en aðildarríkin og
Evrópuþingið hafa staðfest
það.
Ég á mér draum
um betra mannlíf
Blaðamaður: Hvað þarf að
breytasttil að hérgeti
skapast gott fjölþjóðlegt
samfélag?
Hope: Umburðarlyndi þarf
að vera meira og virðing fyrir
annarri menningu, hefðum
ogsiðum. Menningerekki
rétt eða röng, æðri eða lægri.
Menning er bara mismunandi
og fjölbreytni auðgar!
Hér þarf að vera málsvari
fyrir útlendinga til að standa
vörð um lýðræðið. Hann
tryggi að fólk af erlendum
uþpruna fái jafnan alla
þjónustu sem því ber og því
sé ekki mismunað.
Útlendingar á íslandi hafa
ekki sameiginlega sterka
rödd, aðallega vegna þess að
þeirtalaófullkomna
íslensku. Þetta er mjög
sundurleiturhópur. Margir
þora ekki að kvarta ef komið
erillafram við þá.
Það þarf að viðurkenna
menntun og starfsreynslu
útlendinga. Það tók mig
Hope Knútsson stofnaði
Félagnýrra íslendinga og var
fyrsti formaður þess. Hún
situr í fjölmenningar-ráði og
skrifar í tímaritið Serían sem
Miðstöð nýbúa gefur út. Hún
er Bandaríkja-maður.
meira en sex mánaða baráttu
að fá sex ára háskólanám
mitt og átta ára starfsreynslu
sem iðjuþjálfi viðurkennda og
að fá laun samkvæmt því. Ég
fékk bara lægstu laun vegna
þess að ég var útlendingur.
Ég veit tugi dæma um slíkt.
Ég var þó heppin að fá starf í
mínu fagi sem mjög margirfá
ekki.
Fjárlög
2001
Alþingi hefursamþykkt
fjárlög ársins 2001. Gert
er ráð fyrir miklum
tekjuafgangi. Stór hluti
hans verðurfenginn með
sölu eigna, eins og
Landssímans.
Undur
Evelyn Glennie lék
einleik á síðustu
Sinfóníu-tónleikum. Hún
hefur náð ofurtökum á
slagverks-hljóðfærum,
en hún hefurverið
heyrnarlaus frá tólf ára
aldri. Glennie hefur
komið fram með helstu
hljómsveitum veraldar.
Hún hefursamið lög,
meðal annars með Björk.
/ lukku-
pottinn
Ásthildur Helgadóttir
hefurverið valintil að
leika knattspyrnu með
bandaríska lióinu
CarolinaTempest. Hún
erfyrsta íslenska konan
sem verður
atvinnumaðurí
knattspyrnu: „Þetta er
það sem ég vildi og
stefndi að,“ sagði
Ásthildur. Með liðinu
leika tvær af þekktustu
knattspyrnu-konum
heims.
Jólagleði
íþróttafélagið Öspin
heldurjólagleði 17.
desemberí Sunnusal
Hótei Sögu klukkan sex
til hálf ellefu um kvöldió.
Netfang:auefni@mbl.is