Tíminn - 01.12.1965, Qupperneq 2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 1. desember MŒTj
Fjórír fengu silfurmerki SIS
Á laugardag var haldinn að Hótel Borg árshátíð SÍS, og þar voru að venju afhent starfsaldurs-
merki. Að þessu sinni voru það fjórfr heiðursmenn sem hlutu silfurmerki SÍS fyrir 25 ára þjón
ustu í þágu fyrirtækisins. Þeir eru hér á myndinni fyrir ofan taldir frá vinstri: Hermann Ólafss-
son afgreðislumaður í byggingavörudeild, Benedikt Jónsson gialdkeri í sjávarafurðadeild, Krist-
inn Hannesson, verzlunarstjóri í véladeild og Ebeneezer Guðjónsson deildarstjóri í búsáhaldalager.
Erlendur Einarsson forstjóri SÍS afhenti þeim merkin og heiðurslaun, og þakkaði þeim vel unnin
störf í Þágu samvinnuhreyfingarinnar. Til þessa hafa 72 starfsmenn hlotið silfurmerkið fyrir
25 ára starfsaldur og fjórir hafa fengið gullmerki SÍS fyrir 40 ára starfsaldur. (Tímamynd K. J.)
Hefur borgin einkarétt á
FLUGU MED OFN
TIL HVCRA VALLA
MB—Reykjavík, þriðjudag.
Þyrla Landhelgisgæzlunnar og
Slysavamafélagsins flaug í dag
upp á Hveravelli með stóran pott-
ofn, sem nota á í stað eir-spírals
er tærzt hefur upp í hvernum,
sem hitar hitaveituna þar. Mikið
frost hefur undanfarið verið á
Hveravöllum og ólíft nema hafa
góðau hita í húsum. .
Björn Jónsson flaug þyrlunni
að vanda, og með honum í förinni
var Leifur Steinarsson frá Veður-
stofunni. Leifur sagði, að í haust
hefði eir-spírall verið settur í hver
þann er hitar hitaveituna á Hvera
vö'llum, en hann hefði ekki þolað
hveravatnið og tærzt. Á hitaveitu
kerfinu á Hveravöllum er venju-
legt neyzluvatn, og varð kerfið
því óvirkt við tæringuna og vegna
hins mikla kulda, sem undanfarið
hefur verið á Hveravöllum varð
að kippa þessum málum í lag hið
skjótasta. Var þá gripið til þess
ráðs að fljúga upp eftir með stór
an pott-ofn, sem sökkt var í hver
inn og tengdur hitaveitukerfinu,
en á því eru samtals níu ofn-ar.
Auk þess var farið með ýmsar vist
ir uppeftir.
Björn Jónsson kvað ferðina hafa
gengið ágætlega að vanda Þeir
voru um hálfan annan tíma upp
eftir og um klukkutíma 0g tíu
minútur til baka. Nokkur snjór
er uppfrá en eftir að kom niður
fyrir Bláfell sást varla snjór.
ff
?
HZ—Reykjavík, þriðjudag.
Tíminn hringdi í dag í Halldór
Snoirason, sem ásamt eiginkonu
sinni, Kristínu Magnús, leikkonu
hefur stofnað leikhús, sem ber
heitið Borgarleibhús, og er nú
mjög umdeilt.
Enginn hefur komið að tali við
okkur um að breyta nafninu. Við
fórum til borgarfógeta og var nafn
ið skráð án nokkurs múðurs eða
vífilengja. Mér skilst, að mikil
óánægju ríki meðal leikara og for
ráðamanna í Leikfélagi Reykja-
víkur, því til tals hefur verið, að
bærinn léti byggja svokallað
Borgarleikhús á Miklatúni, sem
arftaka LR.
— Hvað er á döfinni í sambandi
við leikflokkinn?
Jólaleikrit L. R.
verður Hús
Bernörðu Mba
eftir Lorca
GB—Reykjavík, þriðjudag.
Æfingar standa nú yfir á jóla
leikriti Leikfélags Reykjavíkur,
sem verður „Hús Bernörðu Alba“
eftir Federico Garcia Lorca, að
því er Sveinn Einarsson, leikhús
stjóri tjáðj fréttamönnum í dag.
Þýðandi er Einar Bragi, skáld. og
leikstjóri Helgi Skúlason.
Þetta verður annað leikritið,
sem sviðsett er hér í Reykjavík
eftir hið fræga spænska skáld.
sem á bezta aldri varð fórnardýr
spænskra fasista. Þeir myrtu hann
ungan að aldri, þegar þeir voru
að brjótast til valda á Spáni. Fyr
ir nokkrum árum flutti Þjóðleik-
húsið í fyrsta sinn leikrit eftir
hann, „Blóðbrúðkaupið’’. En, sem
sagt, .,Hús Bernörðu Alba“ verð
ur frumsýnt í Iðnó á jólum.
— Við erum að æfa tvö stykki,
og það þriðja er í undirbúningi.
Við erum fámenn, það er lítið
af leikurum á lausum kili á vet-
urna, helzt nýútskrifaðir nem-
endur úr leikskólunum. Við ætl-
um að afla okkur búninga og leik
tjalda á eigin spýtur, annað hvort
tökum við þau á leigu, eða þá að
við kaupum þau. Fyrirhugað er
að fara í sveitirnar hérna í ná-
grenni Reykjavíkur og halda sýn-
ingar. .Við reiknum með að hajda
jólasýningar, en óvíst er, hvort
af því verði.
Segja má, að Reykjavíkurborg
hafi fengið einkarétt á forskeytinu
Borgar- og hún hefur skírt upp
ýmsar borgarstofnanir eins og t.d.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur, sem
nú heitir Borgarbókasafn Reykja
víkur. Annars halda ýmis eldri
einstaklingsfyrirtæki eins og t.d.
Borgarþvottahúsið, Borgarbúðin
og Borgarfell nöfnum sínum ó-
breyttum, því ekki eru mörg ár
síðan Reykjavíkurborg tók upp
á því að kalla stofnanirnar nöfn-
um með forskeytinu Borgar-. Ó-
breytt eru ennþá nöfn eins og
Bæjarútgerð Reykjavíkur, Bæjar-
þingstofa Reykjavíkur og Bæjar-
þvottahús Reykjavíkur. Engar regl
ur eru fyrir hendj um nafngiftir
með forskeytinu Borgar-, en það
er illa liðið, að einstaklingar noti
þau í heiti á fyrirtækjum sínum.
Jólafundur Hús-
mæðrafélagsins
Jólafundur Húsmæðrafélags
Reykjavíkur, verður haldinn að
Hótel Sögu, þriðjudaginn 7. des-
ember kl. 8., e.h. og hefst með
jólahugleiðingu og söng. Séra
Frank M. Halldórsson.
Jólafundur félagsins er orðin
árviss skemmti og fræðslufundur
húsmæðra í Reykjavík fyrir jól-
in, þar sem þær fá tækifæri til að
sjá ,og heyra ýmislegt nýtt í mat-
argerð og bakstri.
Dröfn Farestveit húsmæðra
kennari, sýnir ýmsar skemmtileg-
ar nýjungar og gefur góð ráð,
þar á meðal um hinn vinsæla síld
arvagn hússins, er hún kynnir fyr
ir konum.
Okkar skemmtilegi blómamaður
Ringelberg, mætir og rabbar um
jólaskreytingar.
Jólahappdrætti með handgerð-
um munum og jólaskreytingar
sælgæti, og matur.
Óvæntur en kærkominn gestur
lítur inn og allir gleðjast.
Félagskonum verða afhentir að
göngumiðar á laugardag 4. des.
kl. 2—5 að Njálsgötu 3. Eftir
þann tíma, frá 5—7 sama dag
fá utanfélagskonur miða er eftir
verða, því eins og venjulega er
öllum heimiH aðgangur meðan hús
rúm leyfir.
GRAMANN, NYR SJONLEIKUR
EFTIR HÖFUND HJALTA LITLA
GB—Reykjavík, þriðjudag.
i
Nýtt íslenzkt barnaleikrit, Grá- i
mann. eftir Stefán Jónsson, rithöf |
und, frumsýnir Leikfélag Reykja '
víkur i Tjarnarbæ n.k. laugardag |
kl. .4 síðdegis undir leikstjórn
Helgu Baehmann. Verður þetta í
senn fyrsta leikrit. sem Stefán
skrifar beint fyrir leiksvið, og
fyrsta ieikstjórnarverkefni Helgu
Þau og Sveinn Einarsson. leik
hússtjóri, ræddu við fréttamenn i
dag Sagði Sveinn. að þetta vrði
þriðja islenzka barnaleikritið. sem
frumflutt væ^-i á vegum LR Þetta
leikrit vær; alíslenzkt að efni að
meginþræðj byggt á einu (slenzku
ævintýri. en efni úr öðrum fléttar
inn í, og gegndi það rauna* f»-*
hve lítið islenzkir rithö'
gerðu af því að sækja efm
rita fyrir börn í íslenzkar þjóðsög
ur og ævintýri. sem væru miklar
námur til að vinna slíkar bók-
menntir úr. En mikið happ taldi
hann það Leikfélagi Reykjavíkur
að hafa fengið þetta verk frá
hendj Stefáns Jónssonar. því fáir
hefðu með bókum sínum eignazt
slíkan hljómgrunn í hugum ís-
lenzkra barna og unglinga sem
hann. Alls tækju um tuttugu
manns þátt þessum sjónleik en
með aðalhlutverk færu Steindór
Hjörleifsson (kóngur) Sigriður
Hagalír (drottning) Sigmupdur
Örn Arngrímsson (Grámann) Guð
mundur Pálsson (karl) Guðrún
Stephensen (kerling' Kristín
tnn,, Þórarinsdóttii rVordísin
lónsson 0g Borgar Garðars
veir náungar) Leikmyndii
otir Steinþór Sigurðsson,
sönglög eftir Knút Magnússon og
dansspor hefur Lilja Hallgríms-
dóttir samið.
Stefán Jónsson kvað/ það bafa
verið að beiðni stjórnar LR, að
hann gerð; tilraun til að semja
leikrit upp úr íslenzkum ævintýr
um hand.a börnum og væri Grá-
mann árangur þeirrar tilraunar
Og mikia ánægju hefði hann haft
af samvinnunnj við Helgu leik-
'tjóra Helga svaraði i sömu mynt
og lét þess getið að lokum. að hún
hefði ætíð verið mikill aðdáandi
Stefáns Öllum væri i fersku
minni et Stefán sjalfur flutti
söguna af Hjalta litla sem fram
haldssögu i útvarpinu. og væri
hún sannfærð um, að „litli bróðir
hans. Grámann Stefánsson' mundi
líka eiga eftir að lifa lengj í hug
um íslenzkra barna.. í
Kirkjutónleikar
í Landakotskirkju
GE—Reykjavík, þriðjudag,
Næstkomandi fimmtudag, 2. des
ember efnir Sinfóníuhljómsveit
íslands til jólatónleika í Kristis-
kirkju Landakoti. Stjórnandi verð
ur Björn Ólafsson, einleikarar
verða Björn Ólafsson og Jósef
Felzmann og einleikari á orgel
verður Árni Arinbjarnarson.
Á efnisskránni er konsert fyrir
2 fiðlur og strengjasveit í a-moll
eftir Vivaldi, tokkata í F-dúr eftir
Bach, einleikari á orgel er Árni
Arinbjarnars’on, aría úr svítu nr.
3 í D-dúr eftir Bach, sálmur í a-
moll, einleikur á orgel Árni Arin
bjarnarson, og að lokum Jólakon-
sertinn eftir Corelli.
Þetta verður í fyrsta skipti, sem
Björn Ólafsson stjórnar tónleikum
hjá Sinfóníuhljómsveitinni. Árni
Arinbjarnarson er fastur fiðluleik
ari í Sinfóníuhlj ómsveitinni, en
er jafnvígur á fiðlu og orgel, hefur
tekið lokapróf frá Tónlistarskólan
um í báðum greinum og jafnframt
stundað framhaldsnám í London.
Hann hefur leikið víða á bæði
þessi hljóðfæri, svo sem í Tékkó-
slóvakíu og á Norðurlöndum.
ÁFENGUR BJÓR
Framhaid af bis 16.
flutt til Akureyrar 1944. 1960
urðu eigendaskipti að fyrirtækinu
og eru eigendur í dag flestir þeir
sömu og keyptu það þá.
Valdimar sagði, að Sana hefði
samið við danska verkfræðifyrir-
tækið Alfred Jörgensen um að
setja upp allar vélar og kenna
starfsmönnum Sana ölgerðina, en
fyrirtæki þetta hefur sérhæft sig
á þessu sviði og sett upp ölgerð-
ir víða um heim. Nýtur það mikils
álits á þessu sviði og er talið í
fremstu röð slíkra fyrirtækja.
Ekki er nema stigsmunur á
gerð þess öls, sem leyfilegt er að
selja á innlendum markaði og
sterkara öls, og því auðvelt fyrir
Sana að framleiða áfengt öl. Valdi-
mar kvað nú í athugun með út-
flutning áfengs öls á markaði í
Bandaríkjunum og Kanada, en
mál þessi væru enn á algeru byrj
unarstigi, og ekkert unnt að segja
til um á þessu stigi málsins, hvern
ig sú sala gengi.
Valdimar kvaðst vilja taka snr-
staklega fram, að engir erlendir
aðilar stæðu á neinn hátt á bak
við þessa breytingu á verksmiðj-
unni, né kæmu til með að ann-
ast sölu á framleiðslu hennar á
erlendum markaði, ef úr yrði.
í stjórn Sana eru: Valdimar
Benediktsson, Eyþór H. Tómas-
son og Jón M. Jónsson.