Tíminn - 01.12.1965, Síða 13
FRÁ ALÞINGI
Framhald af bls. 8
Það er hærra en nokkru sinni
fyrr.
Nýjrnn sköttum er bætt ofan
á þá, sem fyrir eru.
Minna varið til uppbyggingar
en áður.
Hærri rekstrarkostnaður og
eyðsla.
ijjtgjöld samkvæmt þessu fjár-
lagafrumvarpi munu verða um 4
milljarðar, er til framkvæmda
kemur, og er þó engu varið til
vegamála, eins og síðar verður að
vikið. Hækkun fjárlaga er orðin
4—5-föld frá 1958 og nærri þre-
föld frá 1960. Nýjar álögur í sam-
bandi við fjárlögin verða um 230
millj. kr., og hafa því skattar og
tollar hækkað um 380% síðan
1958, og þetta gerist á sama tíma
sem fjárveitingar til verklegra
framkvæmda lækka hlutfallslega
ár frá ári og nú í krónutölu, eins
og síðar verður að vikið. Fjárlaga-
frv. greinir þó ekki frá öllum
hækkunum, sem í vændum eru og
raunverulega hanga þó á spýtum.
Samkvæmt upplýsingum, er póst
og símamálastjóri veitti fjárveit-
inganefnd, vantar, að hans dómi,
a.m.k. 60 millj. kr., svo að póstur
og sími verði rekinn hallalaust á
næsta ári, þó að verulega verði
dregið úr uppbyggingu þeirri, er
Landssíminn hefur haldið uppi,
og verður að halda áfram, ef starf
semi stofnunarinnar á að verða
með eðlilegum hætti. Þessar upp-
lýsingar þýða það, að stofnunin
verður að hækka gjaldskrá sína.
Sömu sögu er að segja af rekstri
Ríkisútvarpsins. Þar verður að
hækka gjaldskrána, ef stofnunin á
að vera rekin hallalaust á næsta
ári. Þannig sogar dýrtíðin til sín
og eyðir þeim möguleikum, er
stofnanirnar höfðu til sæmilegrar
afkomu, og ráðstafanir til bjargar
þeim verða svo til að auka hraða
dýrtíðarlijólsins.
Hvernig er tekið á nauðsynleg-
um verkefnum með þessu fjárlaga
frumvarpi? Skal hér gerð grein
fyrir því.
Afgreiðsla á fjárveitingum til
stofnkostnaðar skóla er látin bíða
til þriðju umræðu, svo að ekki
er enn þá vonlaust, að einhver
leiðrétting verði á þeim málum.
En eins og málin standa nú, vant-
ar 58 millj. kr., til þess að fjár-
veiting til þeirra skóla, sem eru
í byggingu, verði hliðstæð því, sem
verið hefur í fjárlögum um nokk-
urra ára bil, þ.e. að áætlaður stofn
kostnaður verði greiddur á fimm
árum, svo sem lög mæla fyrir, og
leiðréttingar og verðhækkanir,
sem þekktar eru, á þremur árum.
Það er augljóst, hvaða ástand það
skapar hjá sveitarfélögum lands-
ins, er að þessum byggingum
standa, ef 5 ára greiðslufyrirheit-
in verða enn skorin niður um 20
% og engar leiðréttingar gerðar,
svo sem nú horfir, og þar við
bætist, að veita á aðeins 6.5 millj.
kr. til nýrra barnaskólabygginga
og 4.8 millj. kr. til nýrra gagn-
fræðaskóla. Þessar fjárveitingar
þýða það, að hægt verður að sam-
þykkja fjárveitingu til að hefja
byggingu þriggja barnaskóla og
einnar skólastjóraíbúðar, af þeim
25 framkvæmdum í barnaskólum,
er umsóknir liggja fyrir um.ÍÞar
við bætist, að samkvæmt stjórn-
arboði er ekki farið að hefja 25
framkvæmdir i barnaskólum, sem
Alþingi hefur þó samþykkt fjár-
veitingar til og forráðamenn
heima í héruðum hafa sótt fast
á að fá að hefja. Sést á þessu
yfirliti, á hverjum stendur um
það að koma skólaframkvæmdum
í samræmi við þörf og kröfur nú-
tímans. Þar liggur hlutur ríkis-
sjóðs eftir, og horfa þessi mál verr
nú en áður hefur verið. Sama er
um gagnfræðaskóla og héraðs-
skóla að segja og um barnaskól-
ana, ástandið er þar mjög svip-
að.
Til þess að útgerð landsmanna
geti færzt í aukana og flotanum
bætzt stærri og stærri skip, þurfa
hafnarframkvæmdir að fylgjast
með þessari þróun. Hvernig stend
ur ríkisstjórnin um fjárveitingar
til þessara framkvæmda? Þannig,
að fjárveitingar eru lækkaðar um
ca. 15—20% frá fjárlögum þessa
árs. Til hvers leiðir þetta?
RíkisSjóður skuldaði að sínum
hluta til hafnarframkvæmda 24
millj. kr. í árslok 1964, en kemur
til með að skulda ca. 60 millj.
kr. í árslok 1966 samkv. yfirliti
vita- og hafnarmálastjóra.
Flugmálin er eitt af óskamálum
þjóðarinnar. Hvernig ætlar ríkis-
stjórnin að standa að þeim á
næsta ári? Flugmálastjóri upp-
lýsti, að búið er að vinna fyrir
10 millj. kr. af fjárveitingu næsta
árs. Þá eru eftir til framkvæmda
á árinu 1966 4.580 millj. kr. En
auk þessa eru svo felldir niður
á 13. gr. fjárlagafrv. til Reykja-
víkurflugvallar liðirnir: endurbæt-
ur og lenging flugbrauta og mal-
bikun flugbrauta 3.3 millj. kr.,
og talið er, að það eigi að greið-
ast af fjárveitingum á 20. gr., svo
að þá eru eftir 1.3 ^millj. kr. til
framkvæmda í öllum fiugvöllum
landsins. Augljóst er, að íslend-
ingar hefðu ekki náð þeim árangri
í flugmálum, sem raun ber vitni
um, ef ráðamenn þjóðarinnar
hefðu ekki sýnt meiri skilning á
nauðsyn flugsins í okkar sam-
göngu- og atvinnulífi en hér er
gert.
Fjárveiting til framkvæmda I
rafvæðingu við lagningu út um
sveitir landsins er lækkuð um 20
% frá núgildandi fjárlögum, þrátt
fyrir brýna nauðsyn og þann geysi
áhuga, sem fólkið úti um lands-
byggðina sýnir á rafveitufram-
kvæmdum. Þetta er gert jafnhliða
því, að lagður er 40 millj. kr.
skattur á rafmagnsverðið. Að jarð
hitasjóðnum er þannig búið með
fjárveitingu, að hann getur ekki
tekið að sér neinar jarðboranir ■
á næsta ári, aðeins sinnt lítilsi
háttar rannsóknum, að því er raf- j
orkumálastjóri upplýsti í viðtali'
við fjárveitinganefnd.
Það tekur svo steininn úr, að
| felldar eru niður af 13. gr. fjár-
lagafrv. þær 47 millj. kr., sem
veittar voru til vegamála sam-
kvæmt fjárlögum, munu þetta
verða fyrstu fjárlögin í sögu ís-
lenzku þjóðarinnar, þar sem eng-
in fjárveiting er til framkvæmda
í þjóðvegum.
Þegar ríkisútgjöldin voru um
900 millj. kr., eins og þau urðu
1958, var hægt að veita til vega-
komulag um þá afgreiðslu. Með
þeim voru þó lagðar á þjóðina
100 millj. kr. í nýjum sköttum.
Ástæðan til þessa samkomulags
var sú, að þingmenn töldu, sem
rétt var, að svo brýna nauðsyn
bæri til stórátaka í vegamálum,
að þetta yrði að gera. Fjárveit-
ing samkvæmt fjárlögum var þá
ákveðin 47 millj. kr. Nokkrar um-
ræður urðu um það. hvort tryggt
ríkisframlag til veganna verði
lækkað, það er alveg útilokað.“
Þetta sagði ráðherrann í þingræðu
hinn 17. des. 1963.
Samkomulagið um vegalögin
byggðist á þvi, að þetta væri tryggt.
En hverjar eru efndirnar hjá rík-
isstjórninni? Á árinu 1965 var
þetta framlag skert um 20%, og
nú á að fella það algerlega niður.
Við það verður ekki unað og því
L 1920 VERÐ 550
Bueðat’magn 13,2 lonn á gcinfil
W& ERCEDES-BENZ
.000.
Vél 230 Hestöll
Burðarmagn 18,4 tonn á gpínd
IWíðstöð, mótorhemill, vökvastýri, drif.
tós, styrkt grind, sfyrktar f jaröir, sturtu-
drif, rúðuspraufa, horngluggar, breidd-
arljös.
RÆSIR H-F
mála 83 millj. En nú, þegar þau
verða um 4 milljarðar, er svo
komið, að ekki er hægt að sjá
af einum eyri til þjóðvega lands-
ins. Þar fann ríkisstjórnin leið til
að spara útgjöld ríkissjóðs, ekki
skortir hugkvæmni á þeim bæ.
Hér hefur þó ekki verið sagt
allt, er þetta mál varðar. Þegar
vegalögin voru afgreidd á Alþingi
fyrir tveimur árum. varð sam-
væri, að þessi fjárveiting yrði
ekki skert, og vildu sumir, að það
yrði bundið i lögum, hver hún
ætti að vera Samgöngumálaráð-
herra, sem að sjálfsögðu stóð fyr-
ir þessu samkomulagi af hálfu
ríkisstjórnarinnar, staðfesti það,
að þessi fjárveiting yrði ekki
skert eða felld niður, m.a með
þessari yfirlýsingu: „Engin hætta
er á því og alveg útilokað. að
ekki trúað. að samgöngumálaráð-
herra láti fara þannig með sig,
að ekki verði staðið við það sam-
komulag, sem hann hefur gert við
stjórnarandstöðuna. Það mun
verða okkar eina brtt. að þessu
sinni, að þessi fjárveiting verði
tekin upp.
Eitt dæmi viljum við tilgreina
Framhald 6 bls. 14.