Alþýðublaðið - 23.04.1959, Page 1
tnmto)
40. árg. — Fimmtudagur 23. apríl 1959 — 90. tbl.
* I Þ R 0 I T I R *
Heimsókn á Melavöll og íþrótla svæðf Kfi.
Islandsmet í
Á INNANFÉLAGSMÓTI
Ungmennafélagsins Snæfell í
Stykkishólmi s.l. sunnudag setti
Svala Lárusdóttir nýtt íslands
met í hástökki kvenna, stökk
1,41 m. Svala er mjög efnileg
íþróttakona og getur náð mun
betri árangri en að framan
greinir.
20 þátHakendur
í Víðavangshlaup!
ÍR.
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR, það
44. í röðinni verður háð í dag,
eins og venjulega og hefst í
Hljómskálagarðinum kl. 14.
Þátttaka er meiri en verið
hefur f hlaupinu undanfarin
ár, en alls taka 20 hlauparar
þátt í því. ÍR og Umf. Reyk-
Framlhald á 2. síðu.
ur ÞJóðverja í þýzka liðinu
ÞÝZKA handknattleiksliðið
„Polizei SV Hamburg11, sem
væntanlegt er til Reykjavíkur
á sunnudaginn á vegum Ár-
mann's, er bezta lið Hamborgar
og eitt af beztu liðum Vestur-
Þýzkalands. Félagið komst í
undanúrslit þýzku meistara-
keppninnar í vetur og tapaði
þar naumlega, má því telja það
í fremstu röð.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær eru leikmennirnir
12, sem koma hingað, en þeir
eru: Heinz Singer, markmað-
ur. Singer er landsliðsmaður
og var þátttakandi í heims-
HllllIiillllllUlllllllllllHIIUIUUIIIIIlUIKtimhNlllllllllU
MYNDIR
I Árangur Ijósmyndarans: — |
| Tveggja dálka myndin er af |
= Gunnari Huseby, þar sem |
| hann er að búa sig undir að 1
| varpa kúlunni. Á eindálka I
| myndinni sést markvörður |
| KR, Heimir Guðjónsson, |
| góma knöttinn. Á stærstu I
| myndinni er Gunnar Huseby |
|. að gefa unglingunum leið- 1
| beiningar um kúluvarp, en !
| drengirnir hlusta á af at-1
! hygli. Á næstu síðu ræðir!
| Oli B. Jónsson við knatt-1
! spyrnumenn sína um þjálf- 1
I un og leikaðferðir. !
iiiainif iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíi
meistaramótinu í A-Þýzka-
landi 1958. Júrgen Rehrer,
varamarkmaður. Hann hefur
leikið í úrvalsliði Hamborgar.
Michael Gidde, hægri bak-
bakvörður. Mjög snjall leik-
maður, hefur leikið í úrvals-
liði Hamborgar. Otto Mayc-
hrzak, miðframvörður. Hann
er einn bezti og frægasti hand
knattleiksmaður Þýzkalands
og gengur undir nafninu „At-
om-Otto“. Maychrzak hefur
alls leikið 30 sinnum í lands-
liðinu. Þessi ferð hans hing-
að er síðasta keppnisferð hans,
þ.e.a.s. kveðjuleikur. Horst
Scmidt, vinstri bakvörður.
Hefur leikið í úrvalsliði Ham-
borgar. Fritz Teschner, liægri
framvörður. Hefur leikið í úr-
valsliði Hamborgar. Willi
Weber, miðframvörður. Efni-
legur nýliði. Jens-Peter Gade,
vinstri framvörður. Landsliðs-
maður og liefur þrisvar sinn-
um í landsliðinu. Auk þess eru
fjórir nýliðar með, — þeir
Schöneberg, Ahlf, Nick og
Borchers,sem er varamaður.
Þessi handknattleiksheim-
sókn er í sambandi við 70 ára
afmæli Ármanns, sem var í
desember s.l.
Fyrsti leikur ÞjóSverjanna
verður á fimmtudaginn gegn
Ármanni, sem styrkir lið sitt
með ÍR-ingunum Gunnlaugi
Hjálmarssyni og Hermanni
Samúelssyni. Næst leikur þýzka
liðið gegn KR 30. apríl, en um
aðra helgi er hraðkeppni karla
og kvenna og taka Þjóðverj-
arnir þátt í henni, en leiktími
karla er 2X10 mín., en kvenna
2X7 mín. Næstsíðasti leikur
Þjóðverjanna verður gegn FH
6. maí og sá síðasti gegn Reykja
víkurúrvali 8. maí.
Það var Árni Árnason, fyrrv.
formaður HSÍ, sem kom Ár-
menningunum í samband við
þetta ágæta lið, en formaður
móttökunefndar er Ásbjörn
Sigurjónsson, formaður Hand-
knattleikssambandsins.
TÍÐINDAMAÐUR íþróttasíð-
unnar ásamt ljósmyndara blaðs
ins lagði leið sína á íþróttavöll-
inn á Melunum í byrjun vik-
unnar. Veður var milt eins og
á vordegi og örlítill rigningar-
suddi.
Nokkrir frjálsíþróttamenn
voru á æfingu, ungir og efni-
legir drengir, en einnig var þar
kempan Gunnar Huseby, Evr-
ópumeistari í kúluvarpi 1946 og
1950. Gunnar var léttur í spori
og anda eins og venjulega og
kúlan flaug léttilega hvað eftir
annað 14 til 14,50 metra.
☆
— Ég er nýbyrjaður að æfa,
það kemur alltaf strákur í mig,
þegar vorar, sagði Gunnar. Fyr
ir tveim vikum, þegar ég byrj-
aði, varpaði ég kúlunni tæpa
12 metra, en núna leik ég mér
að 14 metrum. Gunnar vildi
lítið segja um sumarið, hann
ætlar að æfa eitthvað. — Það
á víst að verða bæjarkeppni í
frjálsum í sumar við Málmey
og kannski get ég' orðið að ein-
hverju liði, sagði Huseby að
lokum.
☆
Auk Gunnars voru þarna
nokkrir unglingar eins og fyrr
segir. Hinn reyndi kappi út-
skýrði fyrir þeim leyndardóm
kúluvarpsins, en sú íþrótta-
grein hefur oft vakið athygli á
íslandi og íslenzkum íþróttum,
sem kunnugt er.
Að loknu þessu rabbi lögðum
við leið okkar til starfsmanns
íþróttavallarins og það hittist
svo vel á, að verið var að hella
upp á könnuna, svo að okkur
var boðið upp á ljómandi kaffi-
sopa.
Aðalíþróttagreinar sumarsins
eru frjálsíþróttir og knatt-
spyrna og þar sem við fréttum
að æfing ætti að hefjast hjá
meistaraflokki KR úti í Kapla-
skjóli eftir nokkrar mínútur,
var ekki til setunnar boðið.
Aðalþjálfari hinna sigursælu
knattspyrnumanna KR er Óli
B. Jónsson og hann var mætt-
ur á æfingu ásamt nokkrum
knattspyrnuhetjum þessa fræga
félags.
— Það eru frekar fáir á æf-
ingu í dag vegna þreytu, sagði
Óli. Piltarnir hafa æft af miklu
kappi undanfarið og í gær lék-
um við æfingaleik við Val. Óli
var bjartsýnn um knattspyrnu-
árangur sumarsins, enda mikið
í húfi, bæði fyrir KR, sem er
sextíu ára á þessu ári, og svo
Fi’amhald á 2. síðu.