Tíminn - 18.12.1965, Blaðsíða 16

Tíminn - 18.12.1965, Blaðsíða 16
Bandaríkjamenn neituðu umsamvinnui Vallarmálinu DAGAR TIL JÓLA 289. HZ-Reykjavík, föstudag. Málflutningur í Keflavíkurvall armálinu hélt áfram í Sakadómi Reykjavíkur í dag. Sækjandi Hall varður Einvarðsson lauk sóknar- ræðu sinin um hádegið. Er mál flutningur hófst eftir hádegið tók til máls verjandi ákærða Áki Jak- obsson hrl og talaði hann allt til kl. 18.40 en þá lauk hann máls- vörn sinni og dómi var slitið til morguns. Krafðist verjandi sýknu allra ákæruatriða á hendur Jósa- fat Arngrímssyni. Áki Jakobsson krafðist sýknu vegna ákæru fyrir auðgunarbrot 50 bílar í árekstrum í póstmálinu á þeim forsendum að um enga auðgunartilraun hefði verið að ræða hjá ákærða enda hefð þeir haft fullt traust þeirra stofnana er þeir hefðu skipt við. Er verjandi kom að ákærulið þeim sem fjallar um verktakamál áærða krafðist hann einnig sýknu á þeim forsendum að hér hefði ekki verið um blekkingu gagnvart neinum að ræða nema yfirmönnum klúbbanna þriggja á Keflavíkur flugvelli og það hefðu verið þeir sem hefðu falið ákærða verkin sem hann tók að sér að beiðni yf irmanna klúbbanna. Áki taldi og sækjanda hafa eytt miklu púðri á jafn lítiifjör legt mál, jafnvel þótt sóknarræð an hafi verið afburða góð. Áki sagði ennfremur: „Frá mínum bæjardyrum virðist mér ákærði Jósafat hafa gert samnínga tilboð o. fl. undir fölskum nöfn um og til þess að fá þá leysta orðið að nota sömu nöfnin á fram söl tékkanna, þar sem skv. banda rískum lögum er starfsmönnum á vellinum óheimilt að taka að Framhald á bls. 14. Fjögur ný pró- fessorsembætti Ríkisstjórnin lagði í gær fram frumv. um stofnun 4ra nýrra pró- fessorsembætta við Háskóla ís- lands. Frumvarpið er fiutt að beiðni háskólaráðs. Hin nýju pró- fessorsembætti eru í ensku í al- mennri sagnfræði og í Norður- landamálum, einkum dönsku, og í réttarsögu. KJÖRINN FORSET! HÆSTARÉTTAR Gizur Bergsteinsson hæstarétt- ardómari hefur verið kjörinn for- seti Hæstaréttar tímabilið 1. janú- ar 1966 til ársloka 1967. Varaforseti sama tímabils hefur verið kjörinn Jónatan Hallvarðs- son. hæstaréttardómari. KJ-Reykjavík, föstudag. Mikið var um bifreiðaárekstra á götum Reykjavíkur í dag, og einkum þó fyrir hádegið. Urðu alls 16 árékstrar á tímabilinu frá því klukkan níu í morgun og fram til klukkan eitt, en frá eitt Noregsmeistararnir Skogn mótherjar Vals. Evrópubikarleikir Vals á sunnudag og mánudag - fyrstu Evrópubikarleikir í handknattleik hérlendis AiPJteykjavík, föstudag. Á sunnudag og mánudag leikur kvennaflokkur Vals Ev- rópubikarleiki sína i hand- knattleik gegn norsku meist- urunum Skogn frá Þránd- heimi. Fara báðir leikimir fram í íþróttahöllinni í Laug- ardal og er hér um að ræða fyrstu Evrópubikarleiki í handknattleik hérlendis. Jafn- framt er þetta í fyrsta sinn, sem ísl. kvennaflokkur tekur þátt í Evrópubikarkeppni. Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 16.45, en á undan leika Fram og Valur í meistara- flokki karla. Hefst sá leikur kl. 16. Á mánudag fer svo síð- ari leikurinn fram og hefst hann kl. 21, en forleikur verð- ur milli FH og Vals í meist- araflokki karla og hefst hann kl. 20. Þess má geta, að for- sala aðgöngumiða verður í Bókabúð Lárusar Blöndal á laugardag og mánudag. Framhald á bls. 14. til átta urðu sjö árekstrar, eða 2" talsins samanlagt í dag. Lang- flesta þessa árekstra mátti rekja til hálkunnar á götunum, og það er sama sagan að ökumenn gæta sín ekki á hálkunni fyrst á morgn- ana. Fjórir bílar lentu saman í einum árekstrinum, og var sá á Skúlagötunni um klukkan hálf tólf. Þá hafnaði stór vörubíll á hornhúsinu við Laufásv. og Braga götu. Var bíllinn á leið niður Bragagötuna, en bifreiðastjórinn mun hafa misst stjórn á honum vegna hálkunnar í brekkunni, með þeim afleiðingum að hann rann í gegn um grindverk og stöðvað- ist ekki fyrr en á húsinu Lauf- ásvegi 48. Skemmdist bíllinn tölu- vert mi'kið að framan. Alls hafa þannig fimmtíu bílar lent í árekstr um í Reykjavík í dag, þ.e.s. þeim árekstrum sem lögreglan hefur haft afskipti af. FJARHA6SAÆTLUN KOPA- V065 61,2 MILLJÓNIR KR. N«. FUNDUR BÆJARSTJÓRNAR HALDINN I GÆR AK-Reykjavík, föstudag. Bæjarstjóm Kópavogskaupstað- ar hélt 100. fund sinn síðan bær- inn féfck kaupstaðarréttindi í gær. Var þar lögð fram fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár til fyrri umræðu. Niðurstöðutölur frum- varpsins eru 61,2 millj. kr., sem er 28% hæ'kkun, en fólksfjölg- un er mikil í bænum sem kunn ugt er. Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri fylgdi áætluninni úr hlaði með ít- arlegri ræðu. Helztu tekjuliðir eru þessir: Útsvör 45,5 millj, aðstöðu- gjöld 3,6 millj., fasteignagjöld 3 millj. jöfnunarsjóðsframlag 8,8 millj. Hæsti útgjaldaliður er félags- mál 13,5 millj. Til gatna- og hol- Framhald á bls. 14. FEKK 50 ÞUSUND KR. SEKT MB-Reykjavík, föstudag. f morgun var kveðinn upp í Sakadómi Reykjavíkur dómur yfir Maurice Edwards Call, skipstjóra á togaranum Ross Stalker, sem flugvél Landhelgisgæzlunnar stóð að ólöglegum umbúnaði veiðar- færa úti fyrir Vestfjörðum nú í vikunni. Skipstjórinn fékk miklu þyngri dóm en almennt gerist fyr- ir slíka hluti, enda var hér um ítrekað brot skipstjórans að ræða, því í fyrra var hann tekinn að ólöglegum veiðum í landhelgi. Call skipstjóri var dæmdur í 50 þúsund króna sekt og komi varð- hald í 75 daga til vara, ef hún verður ekki greidd. Þá var og all- ur afli og veiðarfæri gerð upp tæk, en slíkt er ekki venja, er um venjulega ,,hlerasekt“ er að ræða. Þá var skipstjóri einnig dæmdur til þess að greiða allan málskostn- að.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.