Alþýðublaðið - 07.11.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 07.11.1959, Blaðsíða 11
Og þó hafði hún haldið því svo ákaft fram fyrir stuttu, að það eina sem hún þráði væri að fá annað tækifæri, að fá að sanna hve mjög hún elsk aði þau Bunty. Og þegar á reyndi hafði hun reynzt ó- hæf. Bunty hreyfði sig og stundi. „Þetta er hvorki staður né stund til að rífast, Adele“, sagði hann stuttur í spuna. „Farðu að hátta. Þú getur ekk ert gert hér“. „Ef þú vilt ekki hafa mig, þá —“ „í guðanna bænum •—•“ Rödd Leigh var hvöss af á- hyggjum og þreytu. Hann gat ekki þolað hana lengur. Hann hafði meiri áhyggjur af Bunty en hann þorði að við- urkenna fyrir sjálfum sér. Honum leizt ekkert á litarhátt hennar, ójafnan andardrátt, stunurnar, sem fengu hroll til að fara um hann, því hann vissi að þá fékk hún kvala- köst. Hann ákvað að ná í Law- son næsta morgunn. Þó hann vissi að hún var veik af venju legri matareitrun og hafði öll einkenni þess, þá vildi hann fá að vita hvernig öðrum lækni litist á hana. Hann bjóst við því að bezt yrði að senda hana á spítala. Þó hann fengi hjúkrunarkonu allan sólarhringinn þá voru betri aðstæður á sjúkrahúsi til að rannsaka hana nákvæm lega. Ef hann aðeins gæti ver- ið heima og verið hjá henni, þyrfti hann ekki að hafa svona miklar áhyggjur, en hann gat ekki vanrækt sjúkl- inga sína, ekki einu sinni fyr- ir Bunty. Hann varð feginn þegar Adele sagði góða nótt og til- kynnti honum að hún skildi sveínherbergisdyrnar eftir oppar ef hann þyrfti að kalla á hana. Hann sat í svefnher- berginu og horfði á litla hvíta and'litið á koddanum. Yið og við hreyfði Bunty sig og augnalok hennar kipptust til og hann beygði sig að henni og, |allaði naf hennar blíðlega til að láta hana vita að hann væri hjá henni. „Hvar er Jill?“ „Hún lagði sig, vina mín. Hún kemur bráðum“. „Ég vil fá Jill, en ekki mömmu“. Það var gott að Adele var farin og heyrði þetta ekki. En hrollus fór um hann. Hanri hefði ekki þurft að taka Adele Bhnty fegna. Það sá hann bet hr og bethr. Eða myndi þeim koma betur saman þegar Bnnty stækkaði? Hann efaðist um það. Tíminn leið og það var ikomið miðriætti. Hann heyrði fótatak að baki sér, og þegar hann leit við, sá hann Jill standa í gættinni á greiðslu- sloppnum. „Ö, Leigh,“ hvíslaði hún. „Eg skammast mín svo mik- 6BANNABNIB Wfe.,., ,,Ég hef eiginlega slæmar fréttir að færa — en það er bezt að bíða þar til eftir mat.“ 27. dagur vægilegt að þessi veikindi skyldu hafa brotizt út. Eftir eina eða tvær vikur — kan.n- ske minna — liði Bunty bet- ur og þá færi Jill. Hún reis þreytulega á fæt- ur og fór upp. Kannske hún ætti að bjóðast til að vera lengur á fótum. Að leggja til að Leigh og Jill hvíldu sig á meðan hún vekti hjá Bunty. Hún fór inn til Bunty og sá að Leigh sat við rúmstokk hennar. „Hvernig líður henni?“ „Ein.s.“ „Leigh — ef þú heldur að einhver eigi að vaka hjá henni í nótt?“ „Eg sagði þér að ég áliti það.“ „Hvers vegna ferðu þá ekki og leggur þig? Eg skal vaka.“ „Þú þarft þess ekki. Jill kemur á eftir.“ Hún roðhaði. „Eg skil — þetta er allt á- kveðið. Eg er móðir Bunty, en ég má ekki vaka hjá henni.“ „Adele. — Eg veit að þú hefur gert þitt bezta í allan dag til að þurfa ekki að vera hjá henni.“ „Þetta er óréttlátt!“ flýtti hún sér að segja. „Það er bara það að veikt fólk þoli ég ekki að sjá. —“ „Það að sjá þitt eigið barn veikt ætti að vekja með- aumkun þína en ekki ógeð,“ svarið Leigh æstur. Hann andvarpaði: „Það er ekki til neins, Adele, þú ert ekki nein móðir.“ „Þetta er óréttlátt, Leigh“, sagði Adele aftur. „Ég geri mitt. bezta“. Hennar bezta! Leigh lang- aði til að segja henni að það gerði Bunty meira illt en gott ag vera hjúkrað af einhverri, sem hataði hjúkrunina jafn greinilega. Barnið þarfnaðist blíðu, þolinmæði, uppörvun- ar, alls sem móðurást gat gef- ið — allt sem Adele skorti. svo sem verið nógu vingjarn- leg í símann en það var af því að hún var hrædd við að mótmæla honum. Það var furðulegt að hún skyldi vera hrædd við Ronnie. Hrædd og þó dróst hún að honum eins og járn að segli. Hún leit á klukkuna og sá að hún var að ganga tólf. — Ætti hún að fara að hátta? — Leigh ætlaði þó varla að vaka í alla nótt, ef Bunty skyldi vakna? Þau mvndu heyra í henni, ef þau hefðu dyrnar opnar. Jill að minnsta kosti. Svefnherbergi hennar var við hliðina á herbergi Bunty. Hún var svo þreytt að hún ákvað að fara að hátta. Henni 'var alveg sama þó ag Jill og' Leigh yrðu ein saman. Hún gat ekki vakað lengur. Hún 'hafði trompásinn á hendinni. Leigh var of skyldurækinn til að hlaupast á brott með Jill eins og hun hafði gert með Ronnie. Hann missti of mik- ið. Hann missti stöðu sína og barnið. Hann léti sig kannske stöðuna engu máli skipta, en hann myndi aldrei skilja við Bunty. Og það var áreiðanlegt, að það skeði, ef hann færi. Jafn- 'vel þó hún skildi við hann og það skyldi hún aldrei gera, þá fengi hún Bunty, Og tæki hann Bunty með sér — skildi húri gera allt vitlaust til að fá hana aftur. Henni myndi líka takast það. Það gat enginn yfirgefið konu sína og hlaupizt á brott með annarri ■ konu og tekið með sér sjö ára gamalt barn sitt. Nei, hún þurfti ekki að hafa áhyggjur af því. Jill hafði líka skilið það í gær- kvöldi, þegar hún talaði við hana. Hún hafði lofað að fara og þess vegna hafði hún far- ið til London, hún hlaut að vera búin að fá sér aðra vinnu. Þetta var aðeins smá- .... éparið yður Uaup ri railli mnrgra verílajia'- OÍkUOðl lí ÖLIUM Yl$) -Austufstrðsti ið'. Eg sofnaði, annars hefði ég komið fyrir löngu.“ Hann brosti, honum leið betur við að sjá hana. „það er gott að þú gazt hvílt þig.“ „Farðu nú og hvíldu þig.“ „Eg fer bráðum.* 11 Hann stóð upp og lokaði dyr-unum. Honum var sama þó Adele heyrði það. Honum var sama þó hún vissl að hann elskaði Jill. Hann vissi aðeins að það var dásamlegt tað hafa Jill til að bera byrð arnar með sér. Þau sátu við rúmstokk Bun ty og horfðu áhyggjufull á hana. Leigh tók um hendi Jill, hann fann stoð frá henni við að koma við hana. „Vertu ekki of áhyggju- fullur, Leigh. Reyndu það ástin mín,“ hvíslaði hún. „Eg þoli ekki að sjá hvað henni líður illa.“ „Henni batnar bráðum. — Hve lengi stendur mataf- eitrun?“ „Það er erfitt að segja um það, það er svo mismunandi. Hún er óvfenjulega slæm.“ Hún tók fastar um hendi hans og hallaði sér að honum, höfuð hennar hvíldi á öxl Ihans. Hana langaði svo til að draga úr vanlíðan hans. Hún var þvf sem næst jafn á- hyggjufull yfir hvítu, teknu andliti hans eins og yfir Bun- ty. Hún rvissi hvað hann hafði haft Það erfitt í dag. — Það'væri kraftaverk, ef nótt- in liði án þess að hann væri sóttur í vitjun.“ „Eg vona að þú verðir ekki sóttur í nótt.“ „Það vona ég líka.“ „Elskan mín, farðu nú og reyndu að hvíla þig.“ „Kannske.“ „Á ég að ná í eitthvað fyrir þig? T;e — kannske? Þá sofnarðu frekar.“ „Nei elskan mín. Það er f allt í lagi með mig. Hvernig líður þér?“ „Mér líður vel. Hafðu ekki áhyggjur af mér.“ Hún gekk með honum fram á stigaskorina. Þar tók hann utan um hana og kyssti hana. Hvorugt beirra hafði ætlað að láta það koma fyrir. Leigh vissi að það var brjálæði. Hér var ekki rétti staðurinn til að láta vel að Jill. En hann var svo þreyttur og áhyggjufull- ur og hann hafði tefcki ráðið við þörfina að taka utan um hana og finna styrkinn sem streymdi til hans þegar hún var nálægt. „Ó, Jill!“ „Leigh, elskan 'mín, þetta er brjálæði.“ „Eg veit það, en elskan mín, hvers vegna leyfði ég Adelfe að koma?“ „Þú varðst að gera það — Bunty vegna.“ „Bunty vill hana ekki, Hún vildi hana fyrst en ekki núna. Töfrahjúpur Adele var farinn að slitna og í dag hvarf hann alveg.“ Hann 'beit vörunum saman. „Oftar 1 og oftar upp á síðkastið hef- j ur Bunty sagt áð við værum ánægðari án hennar. Þetta ■gengur aldrei Jill.“ „Eg hélt að allt gengi bet- ur.“ „Á yfirborðinu.“ „Elskan mín, vertu ekki of viss. Farðu nú og hvíldu þig.“ Hún losaði sig blíðlega úr faðmi hans. Þegar hún fór aft- ur inn til Bunty, sá hún veru klædda í þykkan, rauðan morgunslopp hverfa fyrir hornið á ganginum. Hún Árbæjarsafn lokað. Gæzlumaður, sími 24073. ★ LISTASAFN Jíinars Jónsson- ar, Hnitbjörgum, er opið á sunnudögum og miðviku- dögum frá kl. 1,30—3,30. * VflNJASAFN bæjarins. Safn deildin Skúlatúni 2 er opin daglega kl. 2—4. Árbæjar- safn opið daglega frá kl. 2 —6. Báðar safndeildir eru lokaðar á mánudögum. ★ Bazar Kvenfélags Háteigssóknar verður þriðjudaginn 10. nóv. nk. Konur og aðrir, sem ætla að styrkja bazarinn, eru beðnar að koma munum til undirritaðra: Ágústu Jóhanns dóttur, Flókag. 35, Maríu Hálfdánard., Barmahlíð 36, Kristínu Sæmundsd., Háteigs vegi 23. ★ Barnasamkoma verður í kirkju Óháða sat'n aðarins við Háteigsveg kl. 10.30 í fyrramálið. Öll börn velkomin. Safnaðarprestur. Loftleiðir. Hekla er vænt- anleg frá K.- höfn og Osló kl. 19 í dag. Fer til New York kl. 20.30. Leiguvél- in er væntanleg frá New York kl. 7.15 í fyrra- málið. Fer til Ösló, Gautaborg ar, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 8.45. Messur Dómkirkjan: Messa kl. 11 ,f. h. Séra Óskar J. Þorláks- son. Síðdegismessa kl. 5 e. h. Séra Jón Auðuns. Barnasam- koma í Tjarnarbíó kl. 11 f. h. Séra Jón Auðns. HaUgrímskirkja: Messa kl. 11 f. h. Séra Lárus Halldórs- son. Barnaguðsþjónusta kl. 11 f. h. Séra Lárus Halldórs- son. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 10.15 f. h. Séra Garðar Svav- arsson. Háteigsprestakall: Messa í hátíðasal Sjómannaskólans kl. 2 e. h. Barnasamkoma á sama stað kl. 10.30 árd. Séra Jón Þorvarðsson. Bústaðaprestakall: Méssa í Kópavogsskóla kl. 2. Barna- samkoma kl. 10.30 í Félags- heimilinu. Séra Gunnar Árna son. Elliheimilið: Guðsþjónusta kl. 10 árd. Heimilisprestur- inn. Kálfatjörn: Messa kl. 2. —■ Safnaðarfundur eftir messu. Séra Garðar Þorsteinsson. Keflavíkurprestakall: Kefla víkurkirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11 f. h. Ytri-Njarð-r vík: Barnaguðsþjónusta kl. 2. e. h. í barnaskólahúsinu. Séra Ólafur Skúlason. Fríkirkjan: Messa kl. 2 e. h. Þorsteinn Björnsson. Sunnudagskóli Hallríms- sóknar í Tómstundaheimilinu að Lindargötu 50 kl. 10.30. Skuggamyndir. Öll börn vel- komin. Alþýðublaðið — 7. nóv. 1959 J J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.