Skírnir - 03.01.1848, Blaðsíða 1
37
Boísbrjef
(sem scnt er umboðmönnum fjclagsins).
Uppdráitnr Islands, sem saminn er eptir iandmsl-
ingum Bjarnar Gunnlaugssonar, og grafinn á eyrspjöld eptir
fyrirsögn O. N. Olsens, er nú fullbúinn undir prentun. Upp-
drátturinn verður á fjórum blöðum, og má hvort sem vill,
setja ötl blöðin saman og líma á Ijerept, eða hafa pau laus,
og fylgir j>eim ökeypis titilblað og kápa. En j>ó stungan
sje á öllu hin sama, svo sjá megi á hverju blaði aðgreining
á sjó og landi, vötnum, Ijöllum og öllu landslagi, einnig
takmörk sýslna og sókna, pá verður þó þetta gjört enn
Ijósara með litum, og verður eptír því uppdráttur alls lands-
ins með þrennu móti og með þrennu verði, eptir því sem
meira skiptir litunum:
Fyrst er uppdrátturinn á Ijórum blöðum með titilblaði
og kápu, áþannhalt: Stungan ein, en engirlitir, aðgreina
landslag og takmörk; þó er blatt dregið i vötn og við sjáfar-
strönd; verðið er þá sett á 5 rbd. 3 mk. fyrir öll blöðin.
J>ar næst eru uppdrættir, útbúnir á sama hátt, nema
að hver sýsla á landinu verður einkennd með sínum lit;
verðið á þessum uppdráttum er sett á 6 rbd. 3 mörk alls.
í þriðja lagi eru uppdræltir, sem eru á sama hátt og
áður er sagt, en þar er hver einkennileg breyting á lands-
lagi auðkcnnd með sinum lit, t. d. hraun, jöklar, sandar,
byggðarland o. s. frv.; er þetta þessvegna dýrast og er verð
þess sett á 7 rbd. alls.
Sökum þess, að fjelagið þarf að hafa töluverðan kost-
nað fyrir að láta prenta og lita uppdrættina, og þar að auki
er vandhæfi á að senda meira til Islands af hverju tægi,
cnn menn vita áður að kaupendur eru að, býður fjelagið
öllum þeim, sem vilja eingnast uppdráttinn, að rita nöfn