Skírnir - 01.01.1898, Side 1
Skýrslur og reikningar fjelagsins 1898, m m,
Bækur þær, er fjelagið hefur gefið út 1898 og látið útbýta
meðal fjelagsmanna fyrir árstillagið, 6 kr., eru þessar:
Skírnir (um árið 1897), fyrra hefti........kr. 0.75
Skírnir (um árið 1897), siðara hefti .... —- 0.25
Tímarit XIX.................................— 3.(X)
Islenzkar gátur, þulur og skemtanir VI ... — 2.00
Landfræðissaga II 3.........................— 1.50
Safn til sögu Íslands III 3.................— 1.25
Íslenzkt fornbrjefasafn VI..................- 4.00
kr. 12.75
Á hinum fyrra ársfundi Reykjavíkurdeildarinnar 21. mars 1898
mintist forseti tveggja látinna heiðursfjelaga, þeirra prófessoranna
Japetusar Steenstrups í Kaupmannahöfn og C. B,. Ungers í Kristía-
níu. Síðan lagði hann fram endurskoðaðan ársreikning deildar-
innar íýrir árið 1897 og skýrði frá efnahag deildarinnar, sem hafði
færst talsvert i lag á reikningsárinu, og vóru skuldir deildarinnar
við árslok rúmlega 1400 kr. Samkvæmt ályktun á fundi 8. júlí
1897 hafði stjórniu borið undir alla hjerlenda fjelagsmenn spurn-
inguna um afnám eða framhald útlendu frjettanna í Skírni, og var
niðurstaðan sú, að 82 atkvæði vóru ineð framhaldi frjettanna, enn
80 á móti. Athugavert var það, að út um land var allur þorri
þeirra, sem atkvæði greiddu (64 : 36), einkum bænda, meðmæltur
framhaldi frjettauua, enn í Reykjavík allur þorrinn á inóti (44 : 18).
Samkvæmt þessari atkvæðagreiðslu gat stjórn deildarinnar eigi
mælt með afnámi frjettanná, og hafði enginti fundarmanna neitt
við það að athuga. Á fundinum var samþykt tillaga frá stjórn-
inni um að veita henni heimild til að semja við Hafnardeildina
um, að báðar deildir í sameiningu heiti verðlaunum, alt að 500
kr., fyrir vel samda ritgjörð um sögu Íslands á þessari öld. Brjefa-
fjelagi var kosinn bókfræðingur Jóu Borgfirðingur.
Sklrnir 1898.
1 b