Skírnir - 01.12.1906, Qupperneq 2
Skírnir.
Skýrslur og reikningar.
II
og hlaut kosningu próf. Þorvaldur Thoroddsen; i Safnsnefnd var
kosinn Matthías S. Þórðarson í staðinn fyrir Arna Pálsson, og i
ritnefnd Islendingasögu Sigfús Blöndal. — Þá voru kosnir embætt-
ismenn og varaembættismenn deildarinnar: forseti próf. Þorvaldur
Thoroddsen, gjaldkori Gísli læknir Brynjólfsson, skrifari Sigfús
Blöndal, bókavörður Matthías Þórðarson; varaforseti Bogi Th. Mel-
steð; varagjaldkeri Þórarinn E. Tulinius; varaskrifari Stefán Stefáns-
son og varabókavörður Yigfús Einarsson. Etidurskoðunarmenn voru
kosnir Sigurður Jónsson og Þorkell Þorkelsson. — Þá var allmikið
rætt um heimflutning Hafnardeildar félagsins, og að lokum sam-
þykt svo hljóðatidi ályktun: »Fundurinn felst á að kosin verði
nefnd til að athuga og koma með tillögur unt, hverjar breytingar
muni heppilegt að gjöra á fyrirkomulagi og stefnu félagsins á kom-
andi tíð. Nefndin skal hafa lokið störfum sínum fyrir næsta árs-
fund og leggja þá fram frumvörp sín«. Nefnd þessi var síðan
kosin, og hlutu kosningu: Finnur Jónsson, Matthías Þórðarson, Gísli
Sveinsson og Bogi Melsteð. Forseti deildarinnar skyldi vera sjálf-
kjörinti í nefndina. — Að lokum voru kosnir nokkrir nýir félagar.
Fyrri aðalfundur Reykjavíkurdeildarinnar
var haldinn 27. apríl 1906. — Forseti lagði fram endurskoðaðan
reikning félagsdeildarinnar fyrir hið liðna ár, og var hann sam-
þyktur. — Samþykt var samkvæmt tillögum fólagsstjórnarinnar að
nema úr eptirstöðvum nokkrar gamlar félagaskuldir, er taldar
voru ófáanlegar. — Forseti skýrði frá bókaútgáfum deildarinnar á
hinu liðna ári, og jafnframt að eigi mundu aðrar bækur verða
gefnar út þetta ár en Skírnir, Fornbréfasafn og Sýslumannaæfir,
alls nálægt 60 örkum. — Þá var rætt um útgáfu á Þjóðlagasafni
síra Bjarna Þorsteinssonar, og bar forseti upp tillögu félagsstjórnar
innar í málinu, er hljóðaði svo: »Deildin tekur að sér að gefa út
nefnt Þjóðlagasafn með væutanlegum 1000—1500 kr. styrk frá
Carlsbergsjóðnum, þó þannig, að útgáfukostnaðurinn deilist á 2 ár,
eða að safnið sé gefið út í 2 pörtum, og að höfundurinn fái eigi
ritlaun frá deildinni að svo komnu«. Tillaga þessi var samþykt. —
Þá var rætt um styrkbeiðni frá bókaverði Lind í Uppsölum til út
gáfu rits hans: »Ncrsk-islándska dopuamn och fingcrade namn frán
Medeltiden«, en úrslitum þessa máls var frestað til næsta fundar.
— Þá var rætt um fyrirhugaða æfisögu Jóns forseta Signrðssonar
(sbr. síðasta fund deildarinnar), og var eftir allítarlegar umræður