Skírnir - 01.12.1912, Page 1
Skýrslur og reikningar
Bókmentafélagsins 1912.
ASalfundur Bókmentafélagsins var haldinn 17.
júní og fundarstjóri kosinn prófessor Lárus H. Bjarnason. Forseti
gat þess, að Hans Hátign konungurinn hefði sýnt fólaginu þá náð
að gerast verndari þess. Mintist hann síðan látinna félagsmanna
(heiðursfólaganna Jóns Borgfirðings, Eiríks meistara Magnússonar
og Björns Jónssonar fyrrum ráðherra, og annara fólaga: prófastanna
Jens Pálssonar, Jóhanns Lúthers Sveinbjarnarsonar og Kjartans
Einarssonar, etatsráðs Ásg. Ásgeirssonar, síra Lárusar Thórarensens
og dr. Eug. Beauvois) og tóku fundarmenn undir það með því að
standa upp. Aðalstörf fólagsins á umliðnu ári höfðu verið í því
innifalin, að sjá um heimflutninginn og alt sem þar af leiddi. Las
forseti síðan upp ársreikninginn, fór um hann nokkrum orðum til
skýringar og gat þess, að aukreitiskostnaður við heimflutninginn og
greiðslu skulda frá fyrra ári hefði orðið samtals kr. 5880.68. En
þrátt fyrir þennan mikla aukakostnað var í sjóði hjá gjaldkera við
árslok hór um bil sama upphæð og við ársbyrjun. Þessa gleðilegu
útkomu kvað hann að miklu leyti að þakka bókaverði fólagsins,
fornmenjaverði Matthíasi Þórðarsyni, sem hefði sýnt mjög mikinn
dugnað í starfi sínu, bæði að því er snerti innheimtu og bókasölu.
Jafnframt hafði fólögum fjölgað mjög á umliðnu ári. Síðan á síð-
asta aðalfundi höfðu 216 nýir menn gengið í fólagið, og var fólaga-
tala nú orðin 1040, 220 f Reykjavík, 220 í útlöndum og 600 á ís-
landi utan Reykjavíkur. Las síðan forseti upp efnahagsreikning
fólagsins til frekara yfirlits yfir hag þess. — Um bókaútgáfu fó-
lagsins í ár gat forseti þess, að út yrðu gefnar hinar venjulegu fó-
'lagsbækur: Fornbrófasafn, Safn til sögu íslands, Sýslumannaæfir
•og Skírnir ásamt með skýrslum og reikningum og fólagatali; enn-
fremur Goðafræði Norðmanna og íslendinga eftir Finn Jónsson, og
væri hún gefin út með styrk úr sjóði Margrótar Lehmann-Filhós.