Alþýðublaðið - 05.12.1959, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 05.12.1959, Blaðsíða 11
mnniininmmiiiiiiiimmmiiiimmiiuiiiiuntmnim 12. dagur ■iiMiiiitmiiiiiiiumiiiuiiHiiiiiiiiiiiiimiiiitimiHiuiHf* af legasti og mest töfrandi öllum mönnum heimsins. Án þess að vanrækja hana tókst Vian að sýna Carol að það var húri sem hann hafði áhuga fyrir og að hann hefði beðið þess eins að fá hana fyr- ir sig. En það var ekki fyrr en þau dönsuðu saman eftir leikhúsferðina, sem hann fékk tækifæri til þess. „Við hvað ertu hrædd?“ spurði hann formálalaust og brosti niður til hennar og það var bros þess manns, sem veit um hæfiléika sína til að töfra konur. „Ég? Því skyldi ég vera hrædd við þið?“ snéri Carol út úr fyrir honum. „Eg hef aldrei verið hrædd við neitt“. „Engu áð síður vildirðu vera alls staðar annars staðar en einmitt hér“, sagði hann með djöfullegu innsæi. „Er það ekki rétt?“ „Alls ekki“, svaraði Carol. „Mér finnst gaman að dansa og þú dansar bara vel“. „Carol Mainwaring, þú lýg- ur ekki vel!“ Árangurslaust reyndi hún að róa titrandi taugar sínar. Þetta var óhugsandi, hlægi- legt! Bara vegna þess að hann var að stríða henni og horfði á hana með brosandi, dökkum augunum. 'Vitanlega laug hún, hana langaði ekki til að vera hér í örmum Vians, sem hélt alltof fast um hana. Hún var hrædd við , tilfinningarnar sem hún bar til hans. Hvar endaði þetta? Hún hafði aldr- ei verið svona fyrr, henni hafði alltaf tekist að vera ró- leg þó aðrir hefðu reynt að koma henni úr jafnvægi. „Vertu ekki hrædd við mig, Carol“, hvíslaði hann svo lágt að hún heyrði naumast hvað hann sagði. „Lokaðu ekki aug unum fyrir því, sem koma skal, ástin mín“. Vélrænt dansaði hún áfram .... gparið yður Maup ri raifli margra. vertilama! þó henni findist gólfið vera horfið. Hún opnaði munninn til að segja eitthvað, en það heyrðist ékkert hljóð. „Við og við er það svona“, hvíslaði Vian í eyra hennar. „Neistinn — loginn og svo bálið sjálft!“ „Aðeins í bókum“, sagði Carol til að fullvissa sjálfa sig. „Það þýðir ekki Cara mia“, sagði hann og þrosti til henn- ar. „Það er ekki hægt að berj- ast gegn því og það veiztu sjálf!“ Hann hafði á réttu að istanda. Hþn vissi það, já, hún hafði vitað það síðan hún hafði fyrst litið í augu hans í holinu í Pilgrims Row. Því skildi hún ljúga. að'sjálfri sér? En það var eitthvað sem kom henni til að hika. Þetta var of snemmt, of snöggt. tími til að þú gefist upp og flaggir"hvítu? Rachel fór af stað til að dansa við Vian og Símon sat og starði á Carol gegnum sígarettuxeykský. Hún var svo áhyggjufull og hugsandi en samt svo æst á svipinn. Hún hafði augsýnilega gleymt því að hann væri til, það hélt hann að minnsta kosti þang- að til hún leit upp og leit á hann með sínu hreinskilnis- iega og ákefðarlega augnatil- liti. „Trúir þú á hjónabandið, Símon?“ spurði hún. „Ég á við hjónaband konu, sem þegar hefur unnið sig upp“. Hann leyndi því vel, ef spurningin kom honum á ó- vart og hann svaraði að það væri erfitt að ræða slíkt. Sum ar konur væru fæddar til að koma sér áfram, alveg eins og Framhald af 1. síðu. urðu talsverð spjöll af þeím sök um. Bátar lentu upp í fjöru, en ekki munu skemmdir hafa orð- ið á þeim, svo að neinu nemi. Aðalskemmdirnar hafa því orð- ið á vegum sem fyrr segir, þar sem tjón hefur orðið mikið. Hólmanes landaði hér í fyrra dag 34 lestum eftir 5 lagnir. Verið var að taka hér saltsíld- ina til útflutnings. — R.S. BWMMWWWWWWWMWWWWIWWWMMMWMMWWWW Fundur fullskipaðr- ar stjórnar ASÍ ídag FUNDUR fullskipaðrar stjórn ASÍ verður haldinn nú um helgina. Hefst fundurinn kl. 2 e. h. í dag en reiknað er með, að hann verði einnig á morg- un. Til umræðu eru einkum skipulagsmál Alþýðusambands- ins. f forsæti verður Eggert G. Þorsteinsson varaformaður sambandsins en Hannibal Valdimarsson formaður er nú erlendis á þingi ICFTU. Friður á þingi rtWMMMWWWMMWWWWWMWIMMWMIWWMMMWWMW ÚÖkUOðL ð ÖttUM AusturstTðsti „St. Margarets eða Hano- ver Square?“ spurði hann ró- legur. „Það er allt eða ekkert fyrir þig, er það ekki?“ Hljómlistin hætti og það bjargaði Carol frá að svara. Þau gengu að borðinu og Carol var því fegin að hin tvö sátu þar. Hún reyndi að hugsa rökrétt en árangurs- laust. Hjónaband ... Allt eða ekkert fyrir þig ... Lokaðu ekki augunum fyrir því, sem koma skal, ástin mín ... Hún, Carol Mainwaring, róleg, sjálfstæð, amerísk skáld kona, var jafn hjálparvana á , valdi þessa manns eins og fjöður á valdi stormsins. Hún hafði ekki ætlað að gifta sig í bráð, aðrar konur langaði kannske til þess en hvers vegna skyldi hana langa til þess? Því skyldi hún hugsa um ást og hjónaband? Svo auðvelt hafði það verið unz Vian Loring kom á veg henn- ar og eyðilagði allar hennar áætlanir. Hún leit á hann þar sem hann sat og stríddi Rachel og augnaráð hans sagði betur en SRIIIIIII lienti öllum hinum afmælistertun- um — af því ég veit ekkert betra en —lagköku. aðrar væru fæddar til að gifta sig. „En hvað finnst þér?“ spurði hún áköf. „Heldurðu ekki að erfitt sé að samræma hjónaband og skriftir?" Hún var svo alvarleg og hræðslu- leg að Símon leit út á dans- gólfið áður en hann svaraði henni. „Ertu að spyrja þér til gam ans og til.að halda uppi sam- ræðum, eða áttu við eitthvað ákveðið?“ spurði hann var- lega og leit á hana yfir brún- ina á glasinu, sem hann hélt á í hendinni. Carol hikaði. „Vian hefur beðið mín“, sagði hún svo. Símon drakk úr glasinu í einum teig og lagði það var- lega frá sér. „Og — hverju svaraðirðu?" sagði hann með uppgerðar- kurteisi. Carol leit út á dansgólfið. „Ég er hrædd um að það gangi aldrei11. Símon blés frá sér revk- hring og virtist ekki hafa á- huga fyrir neinu öðru. „Það eru svo mörg hjóna- bönd, sem misheppnast vegna þess að eiginkonan hefur sín e'gin áhugamál,“ hélt hún á- fram eins og hún talaði við sjálfa sig. “Þó mennirnir neiti því, verða þeir afbrýði- samir, þegar konunni þeirra gengur vel. Þeir vilja ekki að hún hafi áhuga fyrir neinu öðru en e'ginmanninum og héimilinu, vilja ekki að hún sé sjálfstæð, þó það hjálpi til að gera heimilið þægilegt fyr- ir þau bæði“. „Það fer víst eftir því hve viljinn er mikill hjá báðum til að láta það allt ganga vel“, svaraði Símon. Rödd hans var róleg og það var fjarlægur svipur í augum hans. „Eigum við að dansa þennan dans?“ bætti hann við og slökkti í sígarettunni í öskubakkanum, þegar hljómsveitin hóf að spila Vínarvals. „Það eina, sem ég get dansað vel er vals“. Carol áleit að hann ætti við að hún-Vian umræðuefnið Framhald af 1. síðu. Framsóknai'flokkurinn þess, að henni yrði útvarpað. Sam- kvæmt þingsköpum hefur hver flokkur til umráða þrjá stund- arfj órðunga í útvarpsumræð- um, og skiptist sá tími í tvær umræður Sýning Eyfeils Framhald af 3. síðu. einstæða tækifæri til að sjá listaverk hans. Málverkin eru til sölu. Sýn- ingin verður opin fram yfir næstu helgi, sunnudaga og laug ardaga kl. 14—22, aðra daga kl. 19—22. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill, en þess vænzt að börn komi aðeins í fylgd með fullorðnum. Frábærframmi- sfaSa ungs fiðluleikara FÁGÆTUR atburður gerðist á hljómleikum Sinfóníuhljóm- sveitar íslands í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Ungur maður, Ein- ar G. Sveinbjörnsson, lék sinn fyrsta einleik með hijómsveit og stóðst þá raun með slíkri pxýði, aðeinstætt má teljast' hér. Öryggi hans og gullfálleg- ur tónn í fiðlukonsert Mendel- sohns gefa fögur fyrirheit um framtíðina. Það var sannarlega ánægjulegt að heyra til þessa unga manns í gærkvöldi. Önnur verk á efnisskránni í gærkvöldi voru þrír dansar úr Þrýhyrnda hattinum eftir da Falla, ágætlega leikið verk og mjög nákvæmlega, og symfón- ía nr. 2 eftir Borodin, sem einn- ig var leikin af mestu prýði. . Hinn ágæti hljómsveitarstjóri Henry Swoboda á skilið miklar þakkir fyrir stjórn sína á þess- um hljómleikum, ekki síður en hinum fyrri. Hann hefur náð út úr hljómsveitinni því bezta, — sem hún á til, bæði í smáatr- iðum og í hinni víðfeðmari túlk un verkanna. Honum ber mikið iof fyrir komuna hingað. G.G. laugardagur MINJASAFN bæjarins. Safn deildin Skúlatúni 2 er opia daglega kl. 2—4. Árbæjar- —6. Báðar safndeildir eru lokáðar á mánudögum. -o- Messur Fríkirkjan: Messað kl. 5---- Séra Þorstein Björnssori. Háteigsprestakall: Messa í hátíðasal Sjómannaksólans kl. 2 e. h. Séra Bragi Frið- riksson prédikar. Barria- samkoma kl. 10,30 árd. — Séra Jón Þorvarðarson. Elliheimilið: Guðsþjónusta kl. 10 f. h. Séra Bragi Frið- riksson. Keflavíkurprestakall: Kefla- víkurkirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 f. h. Ytri- Njarðvík: Barnaguðsþjón- usta í skólanum kl. 2 e. h. Séra Ólafur Skúlason. Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h. Séra Óskar J. Þorláks- son. Messa kl. 5 s.d. Séra Árelíus Níelsson. Barnasam koma í Tjarnarbíói kl. 11 f. h. Séra Jón Auðuns. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 10.15 f. h. Séra Garðar Svavarsson Bústaðaprestakall: Jólavaka í Kópavogsskóla. Stutt helgi- athöfn. Ennfremur orgel- leikur og srokkvartett (Dr. Páll ísólfsson o. fl.). Ein- söngur (Kristinn Hallsson). Einleikur á fiðlu (Guðný Guðmundsdóttir) o. fl. — Barnasamkoma í Félags- heimili Kópavogs kl. 10.30. Séra Gunnar Árnason. Neskirkja: Barnaguðsþjón- usta kL 10.30 og messað kl. 2. Séra Jón Thorarensen. -o- Kvenfélag Neskirkju opnar bazar sinn í félagsheimilinu kl. 2 í dag. Verið velkomin. -o- Styrktarfélag vangefinna hef- ur tekið í sína vörzlu Jóla- gjafasjóð stóru barnanna, sem Emil Björnsson stofn- aði á sínum tíma. Þeir, sem vildu styrkja sjóðinn með gjöfum fyrir næstkomandi jól, eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrif- stofu Styrktarfélagsins í Tjarnargötu 10C í Reykja- vík, sem veitir gjöfum við- töku. -o- Prentarakonur: Muniö bazar- inn á þriðjudaginn. Skilið munum á mánudagskvöld í Félagsheimili Prentara. -o- Bræðrafélag Óháða saínaðar- ins. Félagsfundur verður haldinn í Kirkjubæ á morg- un, sunnudag, kl. 2 e. h. -o- Bazar. — Kvenfélag Hall- grímssafnaðar heldur árieg- an bazar sinn mánudaginn 7. þ. m. í Góðtemplárahús- inu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hve mikil- vægt verk Kvenfélag safn- aðarins inna af hendi, og Kvenfélag Hallgrímskirkju má hiklaust telja einn allra stórvirkasta aðilann í starfi þess safnaðar. — Tilgangur þessara orða er sá einn að benda öllu safnaðarfólki og öðrum Reykvíkingum, sem vilja sarfi kirkjunnar vtel, á að styrkja þetta starf. — Verið velkomin í Góðtempl arahúsið á mánudaginn kem ur. Ágætir munir verða þar á boðstólum. Meira máli skiptir þó sú vitund, að verið sé að greiða góðu raál- efni veg og stuðla að því, sem verða má kirkju Guðs til eflingar. — Þökk ykkur öllum, sem komið. —- Lárus Halldórsson. Alþýðublaðið — 5. des. 1959 J J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.