Fréttir frá fulltrúaþingi(nu) í Hróarskeldu viðvíkjandi málefnum Íslendinga - 01.01.1840, Blaðsíða 2
að sönnu, aö margir af embættismönnum lands vors
eru kunnugir því sem fram fer í stjórnar málefnum
íslands, a8 þvíleiti sem það eraugljóst gjört, en margir
munu aptur vera þeir, sem eklci fá slíkt að vita, og
öll alþýða mun því að mestu ókunnug, sem von
er, meðan flest fer fram á dönsku sem landinu kemur
við í stjórnar málefnum, og danskir embættismenn
sem í landið lcoma eklci þurfa að kunna eitt oi’ð
í málinu. Sumum hefir þókt líkindi til, að marga
mundi fýsa að vita hvað fram færi á fulltrúa-þíng-
inu í Hróarskeldu, sem ísland hefir um hríð átt sókn
að, og að skírsla um það, sem þar hefir fram farið,
mundi leiða marga til að hugsa um, hvort betur
mundi fara eður ekki ef vér ættum oss alþíng á
íslandi sjálfu, oghvort ekki væri líklegt, að þá mundi
meiru verða ágengt við stjórnina, til að fá því fram
komib sem þörf er á til framfara landinu, o. s. frv.
Virtist þetta því líklegra nú, þareð þau mál hafa
komið fyrir á þínginu sem flestir hera nokkuð skyn-
bragð á, og flestum mun þykja miklu varða, og
það er um verzlunina og um skattana, en í skatta-
málinu er því hreift, hvort ísland beri sig eður ekki,
það er að skilja, livort Íslendíngar sé ómagar í
brauði Dana eður ekki. Einnig þótti eiga við, að
prenta hér með úrskurð konúngs, sem lofar íslendíng-
um alþíngi á ný, þó að sá úrskurður verði að lík-
indum prentaður víðar.