Þjóðólfur - 30.07.1850, Side 2

Þjóðólfur - 30.07.1850, Side 2
1G£ uga landið í kringum Reykjavík, sem þjer áfellið hana fyrir, er yftur {>annig til fyrir- myndar og uppörfunar að gjöra slíkt hið sama, og þjer sjáið Reykjavík gjöra, í góðsveitun- um, hvar öll fyrirhöfn er svo miklu minni, en arðurinn bæði fljótari og vissari. Eiimig að f>ví leyti er þá Reykjavik vel valin fyrir höfuðstað landsins, að hún í jarðræktinni, eins og öðru, bæði getur og á að ganga á undan öðrum hjeruðum landsins með góðu eptirdæmi. Já, Reykjavík er aðdáanlega vel fallin til að vera höfuðstaður íslands, jjegar á allt er lit- ið, og það líka á afstöðu hennar og lands- íag, sem hún þó mest. er nídd fyrir. En hvernig á jeg að fara að koma yður í skiln- ing um það? Takið landabrjef og lítið þar á mynd lands- ins. 5jer sjáið j)á ganga fram i vestur-útsuð- ur tvo mikla arma, likt og einhvers konar varnargarða; j)að eru Suðurnes og Snæfells- nes, sem leggja faðminn utan að hinuin fiski- sæla Faxaflóa, og friða hann fyrir ofsafullum ólgugangi útsæsins. En fyrir miðjum flóan- um sjáið þjer landið rjetta eins og hægri hönd sína fram í sjóinn, allt eins og þaðsje að seilast eptir björginni. Hönd er það auð- sjáanlega, því að jeg get talið fimm fingurn- ar og nefnt yður nöfn á þeim. Jað er Ákra- nes, Kjalarnes, Seltjarnarnes, Alptanes og 'Vatnsleysuströnd, sem er þumalfingurinn, því að hún stefnir nokkuð í aðra átt og skagar minnst ifram. Öll þessi nes eru hinar fiski- sælustu veiðistöður, því að bæði gengur fisk- urinn upp á miðin fram undan þeim, þar er liggur hið auðuga Svið; og svo fer hann líka upp í greiparnar á hendinni, þegar hann fyll- ir alla fyrði. Og þó er eigi þar með búið; f)ví að þegar þjer komið suður fyrir þumal- fingurinn, eða Brunnastaðatanga, hvaða tek- ur ekki þá við? Sjórinn undir Vogastapa, Vogahraun, gullkista Islands! Eins þegar þjer komiðnorður fyrir litlafingurinn eða Skipa- skaga, hvað blasir þá ekki þar á móti yður? Borgarfjörðurinn, hjartað úr landinu! Og mitt innan í allri þessari blessan liggur nú Reykja- vík á sjálfu miðnesinu, eða löngutöng hand- arinnar, ^allt eins og hún eigi að vera gull- hringur á þeirn fingri. Enn fremur liggja fram ineð þeim fingri handarinnar, eða Sel- tjarnarnesi, arðsamar varpeyar, sem skulu skýla höfn höfuðstaðarins; og örskamt frá honum streyma Elliðaárnar til sjávar, til að veita móttöku hirium spræku torfum laxanna. Hvernig lízt yður nú á, íslendingar? 5yk- jr yður Reykjavík enn illa valin til að vera höfuðstaður landsins? Eða hvað viljið þjer hafa meira? Jeg get þó bætt nokkru við. Reykjavík liggur líka við þahn flóann, sem hirin helkaldi hafís frá Grænlandi aldrei set- ur komizt inn á, þó að hann þeki alla aðra fyrði; svo að hvervetna er Faxaflói auður og opinn fyrir blessaninni, sem til vor keinur úr öðrum löndum, og flytur þannig kaupskipin ugglaus fyrir ís inn á höfn höfuðstaðarins. Og aðdáanlega bjó forsjónin um höfuðstað vorn fyrir hafisnum, þessum vogesti íslands, ekki þó með neinum múrvegg úr mold eða grjóti, því að slíkt vígi hefði hlotið að loka Faxaós; heldur byggði hún vigi fyrir ísinn niðrí sjónum sjálfum. Hvernig þá? Guð skip- aði sjónuin að hamast hvervetna í Reykja- ness - og Öndverðarness - röstum, með því hann gaf þeim spýtandi afl til að skirpa frá sjer ísjökunum, ef þeir dirfðust að líta inn á Faxaflóa. Jannig hefur þá forsjónin engan hlut til sparað, hvorki á sjó nje landi, til að búa vel og vandlega uin Reykjavík, svo að hún gæti verið í öllu tilliti hæfilegur höfuðstað- ur lands vors. Og allt þetta getið þjer sjálfir sjeð fyrir augunum, ef þjer viljið að þvi gæta. En viljið þjer nú ekki líka Ijá mjer eyrun til að heyra nokkuð um Reykjavik frá forn- öldinni, því landið var ekki óðar fundið, en forsjónin fór að benda mönnum á hana, og leiða athygli þeirra að henni? Jarerþálíka ein ástæðan, Islendingar! sem mjer virðist .berlega benda til þess, að Reykjavík sje ætl- uð til að vera höfuðstpðuríslands; ogskyldu menn hugsa, að sú ástæða væri þeim mun heldur sannfærandi fyrir oss, sem oss er bor- inn sá vitnisburður bæði af innlendum og útlendum, að vjer sjeum sokknir niður í endurminningu fornsögunnar, en sinnum síður röddu nærverandi tima nema að því leyti, sem vjer látum hana kalla á oss til hins umliðna. Jað erþá rjettað fara snöggv- ast í hin fornu gólfin, og vita hvað þar verð- ur grafið upp um Reykjavík. (Framhaldið ilðar).

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.