Þjóðólfur - 17.08.1850, Side 4

Þjóðólfur - 17.08.1850, Side 4
170 þeim. En þess vil jeg geta, hvað mjer hef- ur fundizt helzti gallinn á þeim; og er hann í því fólginn, aft eigi sjest af Tíðiiidunum sjálfum svo f/löfif/ atkvœðafjreiðsla pingntcinna hvers fyrir sig, sem margur vildi kjósa. Um flest máieíni, sein fyrir koma á alþingi, mun þjóðin gjöra sjer einhverja hugmynd, ogvak- ir þá jafnframt fyrir henni, hvernig liún mundi helzt kjósa,að úrslit málanna yrfti. Hún sjer nú að sönnu fjölda atkvæðanna meiV og mót, en ekki getur hún vitað neitt um það, hverjir pingmenn greiða þau atkvæðin , sem henni geðjast betur að, eða hin sem henni geðj- ast miður. Af ræðunum geta menn á sum- um stöðum í Tíðiiidunum nokkurn veginn ráð- ið í það, en víða alls ekki; svo, þar sem um atkvæðagreiðsluna er að gjöra, koma þing- menn optast þjóðinni fyrir sjónir í nokkurs konar dularbúriingi. Hjer af flvtur það, að þjóðin getur ekki með vissu dæmt um, hverj- ir brúkanlegir þingmenn sjeu af þeini, sem minria kveður að. Hún álítur þó víst þaiin iulltrúa betri, sem optast greiðir atkvæði sitt fyrir því, sem betur má fara, jafnvel þó að liann sje ekki svo langorður í ræðum sinum, heldur en hinn, sem fyllir nokkrar arkir með fánýtu ræðurugli, en greiðir sjaldan atkvæði á þá leið, að lið verði að. Jeg álít, að Tíð- indin ættu að vera svo löguð, að af jieim sæ- ist sem glöggast, hvernig þiiigmennirnir duga í stöðu sinni, svo að menii aldrei, fyrir þekk- ingarleysi á þeim, fari á mis við að kjósa þann apturtil þingsetu, seinhæfilegurer,eða leiðist til að kjósa hiiin, sem óhæfilegur ertil þess starfa. Til þess nú að bæta úr þessu þyrfti ekki annað, en að skammstöfuð nöfn þingnianna væru sett við atkvæðin; og nægði, þó að eigi væru nöfnin nema við annan flokkinn í hverju máli fyrirsig, því að þá mætti sjá, hverjir gengu úr. Jetta mundi lítil tímatöf eða kostnaðarauki, allra lielzt efað þingmenn gættuþess framveg- is, að sleppa mörgum þejm óþarfa - og ónytju orðum, sem jeg þykist vita, að þeir finna sjálfir, að Tiðindin liafa of mikið af. Jar að auki yrðu Tiðiudin miklu fullkomnari, efþau bæru með sjer nöfn atkvæðagreiðanda, og líka vinsælli hjá þjóðinni, þar eð þau med þessu móti fletti þingmenn þeim dularham í þjóðarinnar augum, sem jeg get eigi betur sjeð, en þingntönnum sjálfum megi vera mjög annt um, að vera með öllu lausir við. Líka get jeg jiess til, að atkvæði myndi ekki með minni gætni gefin af sumum á alþingi, en hing- að til liefur verið, þegar liver og einn ætti von á því, að koma til dyranna, eins og hann er klæddur. ,leg veit, að fleiri hafa fundið þennan galla á Tíð- indununi, beldur en jeg einn; enda uiá kalla, að það sje almenn ósk þjóðarinnar tii liinna selnni þinga, að fó þetta lagað eptirleiðis. Og þess vegna hefi jeg borið fram þessa athugagrein, að jeg vildi helzt óska, að inenn gætu fengið hreytingu og hót á þessu í Tíð- indunuui, seui vænta má frá þjóðfundinum að sumri. Skilyrði fyrir pjó ðheill. Hurke, sem var naírikenndur stjórnvitringur á Eng- landi, telur farsæld og blómgun hvers lands komna undir þessiim atriðum; ,,að sljórnarlögunin samsvari skapferli og niennturiarstigi þjóðarinnar; að rjettur gangi ylir alla án manngreinarálits hæði tljótt og vel; að góðra siða sje gætt og lögunum hlýtt; að þjóðin hati öruggan liuga til að mæta öllum liætlum , sem utan að koma, og kunnátlu og dugnað til að hagnýta sjer alla kosti í landinu sjálfu; og loksins að það sje fyr- ir þjóðlegur eindrægnisandi, sem eins og saiueini alla í eitt til að efla almennings heill“. Vera má að eitthvað af því, sem hjer er.talið, sje rniður en skyldi hjá oss Islendingum. En það vil jeg tneina, að ef Burke hefði líaft Island fyriraugum, eins og nú er ástatt lijer, þá hefði hann, ef til vill> sleppt eiuu atriðiuu, en í þess stað heðið guð að náða póstgöngurnar, prentsmiðjuna og skólann. Aug/ýsing. Gullsmiðssveinn Jakob Jakobsson, sem nýlega er kominn hingað til landsíns frá Kaupinannahöfn, hef- ur sezt hjcr að í, Reykjavíkurhæ og srniðar hæði gull og silfur. Líka tekur hann til aðgjörða alis konar siníðar úr kopar, hlikki og látúni; og leysir allt af hendi hæði fljótt og vel. Hann óskar þess, að þeir, sem á þvílíkum smíðum þurfa að halda, vilji leyta til hans, og lofar hann þeim öllum i staðinn greiðuui og góðum skilum. Ábyrgðarmaður: Svb. Hallgrimssou.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.