Þjóðólfur - 16.03.1866, Síða 3
— 75 —
„Eins og þör geti% nærri, róma%ist ræ?)a þessi afbragíis vel“.
Yfir iitlendn fréttirnar get eg farið fljótt. Skömmn
fyrir jól lenti í ófriði milli Spánar og Chili-manna
í Suðr-Ameríkn og vildn Frakkar og Englendíngar
miðla þar málum, en því var eigi sinnt. Fóru
Spánverjar halloka i sjóbardaga fyrir Chilimönn-
um; féll skipaliðsforínga Spánverja það svo þnngt,
að hann fyrirfór sér. Síðan liefir Perú gengið í
lið með Chili móli Spánverjum; eflast þeir að
járnvörðum skipum, er þeir kaupa í Englandi að
fullu og öllu útbúin til hernaðar. Til ófriðar hefir i
og þótt horfa rnilli Frakka og Norðr-Ameríkumanna !
út af aðstoð þeirri, er Frakkar veita Maximiliani |
keisara. Var tim daginn komið í mjög óvænt efni,
er úthlaupsmenn frá Norðr-Ameríku réðust inn
um landamæri Mexicoríkis og tólui þar borg þá er
Pagðað heitir, og ræntn; en Norðr-Ameríkumcnn
hafa heitið að hegna víkíngum þessum. Mörg ó^.
þægðarorð^ höfðu bæði fyrir og eptir farið á milli
herforíngja Frakka og setuliðsforíngja Norðanmanna
(hann heitir Weitzel, þjóðverskr að uppruna og
ekki næsta kurteis), hefir hann nú verið settr .af
og þykir það heldr friðarviti.
Af þeim bandamönnum Prússum og Austr-
ríkismönnum er það sannast að segja að Concor-
dia er discörs (samlyndi þeirra orðið að sundrgerð),
og kveðr nú svo ramt að, að Prússar eru farnir
að láta slá í heitíngar; sjá þeir að Austrríkismenn
ætla eigi að leyfa þeim að sitja einum að hertoga-
dæmunum, að minnsta kosti eigi orðalaust innlima
Prússlandi þau; öllu fremr eru Auslrríkismenn sinn-
andi Augustenborgarhertoganum og hans ílokki;
en þeir verða að fara að öllu sem hægast, því að
þeim er óhægt um vik að sinni, meðan ekki er
ltomin full skipun á samband landshlutanna i Austr-
ríki; er nú verið að þínga um það við Ungverja,
með hverjum kostum þeir vili gera fulla sátt við
Austrríki. Frakkar reyna og til að mýkja á milli
Ítalíu og Austrríkis, og sú fregn flaug fyrir, að
prinz Napoleon, sá er heima var um árið, eigi að
fara til Austrríkis til þess að semja fyrir hönd
inágs síns Umberts, sonarítalíukonúngs, um mægðir
við Austrríkiskeisara; ætti þá kona Umberts hver
sem hún yrði að hafa í heimanmund land það,
er Austrríkismenn sitja yfir á Italiu.
Ilétt eptir nýárið gerði Prim hershöfðíngi upp-
feist á Spáni, ætlaði hann að steypa stjórninni,
°g koma á annari .frjálslegri, en honum mistókst;
verð hann að Ilýa til Portugal, en þaðan var hann
rekinn fyrir rúmri viku. Önnr uppreist annarstaðar
^kst betr. Yfir Moldá og Vallakíi hefir fyrirfar-
andi árin verið höfðíngi maðr, er heitir Kúza;
hann hefir verið stjórnsamr, og afkastamaðr mikill,
en æði ráðrikr, og nú þoklu menn honum eigi
lengr ójöfnuðinn, heldr tóku hann höndum og settu
hann úr tigninni; nú telja allir að þessi tíðindi geti
valdið öðrum stærri, því að margir eru þeir, sem
seilast eptir löndum þessum og stendr enginn nær
að ná í þau en Rússar, en það vilja hin stórveldin
með engu móti líða Landsbúar hafa boðið greif-
anum af Flandern bróðr konúngsins, sem nú er í
Belgíu að gerast höfðíngi yfir, en menn segja að
hann vili eigi þiggja.
Á írlandi liefir og um stund horft til vandræða;
í haust fór að kvisast að þar væri á laun flokkr,
er nefndi sig Fenians, er ætlaði sér að losa landið
undan ánauð Englendínga; þessu var að litiu sinnt
fyrst um sinn, en brátt fór að spyrjast vestan frá
Ameríku um mikla mannfundi er þar voru haldnir
nf Irlendíngum er farið höfðu af landi brott og
vinum þeirra; gengu þeir skýlaust við þvi, að þeir
mundu með öllu móti kosta kapps um að styrkja
frændr sina á Englandi, létu það enda í veðri vaka
að þeir mundu gera út hleypiskútr til þess að
ræna ensk kaupför; og sjálfsagt var að hjálpa ír-
um bæði með fé og vopnum til þess að gera upp-
reist; nú fórn Englendíngar að ugga meir að sér
og hafa betr gætr á írum; komust þeir þá brátt
að því, hvernig löguð var stjórn þeirra, og gátu
handsamað oddvita þeirra er Stephens hét, eu
hann komst úr varðhaldinu, margir aðrir voru
handteknir; vopn og annan viðbúníng hafa þeir
fundið víða, og í siíkt óefni þykir Englendínguin
komið, að stjórnin bað þíngið um daginn að leyfa
sér, að taka úr lögum nm stundarsakir »Uabeas-
corpuslögin» á írlandi, og þetta var veitt nálega í
einu hljóði.
í Svíþjóð hafa gerzt í vetr (í öndverðum !)cs-
ember), þau tíðindi er góð hala þótt og mikil; á
þíngi Svía samþykktu allar stéttirnar frumvarp
stjórnarinnar um nýa skipun, er aftók að skipta
þínginu í 4 stéttir, og tók það úr lögum að klerkar
og tignir menn skyldi vera sjálfboðnir til setu á
þínginu ; þíngið hefir einnig sainþykkt mjög frjáls-
lyndan verzlunarsamníng við Frakka; áttu frjáls-
ræðisvinirnir þar við ramman reip að draga, því
að margir stórauðugir menn og mikilsmetnir meðal
borgarastéltarinnar voru mjög á móti verzlunarfrelsi
því, er samníngrinn bauð.
Ekki nenni eg að skrifa um ráðgjafaskiptin,
sem hér urðu í Nóvember, nöfnin á nýu ráðgjöf-