Þjóðólfur - 11.08.1866, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 11.08.1866, Blaðsíða 4
— 152 — hvað mikinn fjárstofn til verzlunarinnar hann getr fengið í sinn hlut, þegar félagssambandinu erslitið og fjárhagsaðskilnaðrinn er gjörðr milli þeirra fé- laga. Sá sem á sjálfr lóðina undir húsið, erhann ætlar að reisa, getr haft undirstöðuna undir það svo ummálsmikla sem hann vill, og eptir því gelr hann hagað herbergjaskipun og öðru fyrirkomulagi í húsinu að sinni vild; en verði hann að sækja lóðina undir húsið í hendr öðrum, og eiga undir honum, hve rífiega og haganlega hún verðr úti iátin, þá getr hann að vísu hvorki liaft undirstöðu liússins né húsið sjálft stærra en lóðin er til sem hana fær afhenta og afmarkaða, og aptr getr hann eigi haft umfángsmeiri nö stórkostlegri herbergja- skipun í húsinu heldren það sjálft leyfir og hin afmarkaða undirstaða þess. Fari sá maðr að byggja svona fyrirfram í huga sér eða gjöra fasta fyrir- ætlun um miklu stærra hús, heldren hann á víst að geta fengið lóð undir, þá byggir sá maðr lopt- kastala eina. J>að er því í augum uppi, að sú ástæðan meirihlutans: að fjárhagsmálið væri slitið út úr eðlilegus amliengi sínu við stjórnarskipunarmáitð, og fráskilið því að fullu og öllu, svo framarlega sem Alþíngi færi nú að gefa gaum þessu frumvarpi stjórnarinnar, er hún lagði fyrir þírigið í fyrra, um fjárhags aðslcilnaðinn milli Isiands og Dan- merkr, — sú ástæða er gripin úr lausu lopti og á við ekkert sem satt er eðr sennilegt að styðj- ast, hún er sprottin að minsta kosti af áþreifan- legum misskilníngi. Eins og meirihlutinn varð til og eptir því sem hann var samseltr, þá málti að vísu búast við þeim misskilníngi, úr því forvígis- maðr þeirra hélt þessari skoðun svo fast fram; — hitt er víst, að hin konúnglega umboðsskrá frá 1861, sem afmarkaði og einskorðaði fjárhagsað- skilnaðarmálið sjálft og verkahring fjárhagsnefnd- arinnar svo skýlaust, gat eigi gefið honum heldr- en öðrum meðnefndarmönnum hans tilefni lil sh'ks misskilníngs. þriðja formástæðan, er meirihlutinn beittigegn fjárskilnaðarfrumvarpinu var sú, »að það vær rétt- »ast að« (fella frumvarpið, eins og meirihlulanum vanst, og) »vísa málinu til pjóðfu,n<iar«, því það »hefði (I) verið almenn skoðun1, og væri enn al- 1) paí) má víst segja helzt til of hermt, aíi þetta ,hafi verií) almenn skoínin1'. Vör veríium aí) álíta, aþ í slíku als- herjarmáli sem stjórnarskipunarmál vort er, verbiþah sízt k'illub almenn skoþun, sem vart nokkurt atkvæbi þjóþfulltrúanna heflr fylgt fram á 4 alþínguin samfleytt jafnframt og málit) lieflr þó komib til ítarlegrar umraebu og bienarskrár verib ritabar »menníngs skoðun, að þjóðfnndr sé það þíng, sem »eigi að semja við konúng um stjórnarslcipun her »á landi« (Alþt. 65, bls. 831). En hér lá eigi fyrir að semja um »stjórnarslcipun« að einu né neinu, eigi um fjárhags- eðr fjárforræðis fyrir- komulag eðr neitt annað, er að sjálfu stjórnarfyr- irkomulaginu Ivti; liér lá að eins fyrir að ræða um undirstöðuna, um lóðina undir húsið, en alls eigi urn byggíngar fyrirkomulagið, um tilhögun hússins eðr niðrskipun þess. Um undirstöðuna sjálfa, — aðslcilnað fjárhagssambandsins, varð og verðr að semja við — lóðareigandann — hinn rétta málsaðila: ríkisþíngin íDanmörku, er nú hafa ein fjárveitíngarréttinn úr ríkissjóðnum að lögum, og reikníngshaliatillagið til íslands verðr að lendn á, og er ekkert vafamál, að Alþíngi Islendínga er rétt- bært um það í öllu tilliti að semja um þessa und- irstöðu af Islendínga hálfu, einkanlega þegar bæði konúngrinn sjálfr og sá málsaðilinn, sem á að verða fyrir útlátunum (Ríkisþíngið í Danmörku) kýs sér og kveðr Alþíngi til að eiga við og semja við af hendi hinnar íslenzku þjóðar. —En þegarbúið er að semja um þetta, að semja um lóðina og undirstöðuna undir húsið og þegar hún er fengin og fast afmörkuð, þá er og sá málsparlrinn (rík- isþíngin í Danmörku) úr sögunni, þá en eigi fyrri, er tími til kominn að leggja niðr og semja um yfirbyggínguna, um húsið sjálft, fyrirkomulag þess og niðrskipun, þá er að leggja niðr um stjórnar- hagi vora, stjórnarskipun og hennar ýmsu aðal- greinir: fjárforræði vort og skattálagarétt Aiþíngis og annað vald þess og verkahring, stjórnlega (po- litiska) stöðu íslands í konúngsríkinu og fyrir- nrn þab tii koriúngs mat) nibrlagsatribum samþyktum náloga í einu hljóbi. Svona var þú nm stjórnarbótarmílib á Al- þíngi 1853, 1855 (þó ab þá væri ab vísu engi bænarskrá send) 1857 og 1859. Herra Jón Sigurt'ssoii sjálfr „vill eigi einskorba mebferb stjórnarbótarinálsins vib þjábfuml" 1859, og var þab samþykt í bænarskrá þíngsins til konúngs nálega í einu hljóbi; og þó ab sira Eiríkr Kúld segbi aptr og aptr á þínginu í fyrra á þá leib, ab jafnan hefbi vakab hjá þjób vorri lifandi og fastr áhugi á því og saunfæríng ab þjóbfull- triíarnir á Alþíngi hefbi ekkert umhob og engan rétt til ab ræba, eiía greiba atkvæbi um fjárhags og stjórnarbótarmálib, heldr ætti ab vísa málum þeim til þjóbíundar, þá var samt þessi sami sira Eiríkr Kúld einn í þíngiiefndinni um fjár- hagsmálib 1857, og áloit hann þá ab Alþíngi væri einbært um þaí) án þess ab því máli væri skotib fyrst til þjóbfundar, er sú þíiignefnd fór frain á og þíngib síban samþykti náiega í einu hljóbi: „ab Alþíngi yrbi veitt ályktandi vald hvai) tekjur og útgjiild íslands sriertir". Og verbuin ver jafnframt ab miima meun á þab, ab sjálf umbobsskrá kouúngsius 20. Sept. 1861 ber nreb ser, ab þessi bænarskrá Alþíngis frá 1857 sé abaltilefnib til hennar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.