Þjóðólfur - 23.03.1867, Blaðsíða 5
ef efnismaðr verðr að láta af góðu fyrirtæki, sök-
um þess, að enginn vill styrkja hann, eins og nú
horfir beint við.
Yér skorum því fastlega á yðr, Norðlendíng-
ar góðir! að þér sannið nú það, sem svo opt
hefir verið um yðr sagt, að þér séið drengir góð-
ir; — liðsinnið nú landa yðar! Yér efumst eigi
um, að frændr Iíristjáns og vinir sýni honum fús-
lega þann styrk, að gángast fyrir samtökum yðar,
ef þér bregðizt vel við þessum tilmælum vorum,
og það vonum vér að allir þeir af yðr gjöri, sern
unna skáldskap og fögrum vísindum.
f>eim árángri, er af þessu kann að hljóta,
mundu þeir og koma til lectors Sigurðar Mel-
steðs í Reykjavík, sem er fjárhaldsmaðr Kristjáns
og lofað hefir, að veita því móttöku.
Nokkrir lleykvíkíngar.
— Eins og hver verkamaðr er verðr launa sinna,
svo er og sér i lagi hver góðr og gegn embætt-
ismaðr maklegr einnar þeirrar umbunar, sem ó-
mannlegt er að synja honum um. J>essi umbun
er þakklæti, ef ekki í verki, þá samt í orði. Slíkt
þakklæti er nú að vísu aldrei ótímabært, en allra
helzt er þó tíma til að fram bera það þá, þegar
liinn góði og gegni embættismaðr er farinn svo
í burt, að hans nýtr eigi framar við. J>annig
virðist oss nú hinn rétti tími til þess, að lýsa
opinberlega þakklæti voru til héraðslæknis J. C.
Finsens, sem hvarf frá embætti sínu og fóstr-
jörðu næstliðið sumar og vitjar vor líklega aldrei
framar. Vér hikum oss eigi við að telja hann
einn meðal hinna fáu embættismanna vorra, sem
sameina hvorttveggja svo fagrlega, samvizkusemi
og skyldurækt í embættisverkum, og huggæði og
ástúð við hvern mann. Og þá er eigi síðr skylt
að halda því á lopti, að hann reyndist oss jafnan
vel kunnandi og hamíngjudrjúgr læknir. f>að er
því eigi kyn, þó oss og fleirum sé eptirsjá að því-
líkum manni og mikil raun að því, að hann gat
eigi lengr unað hag sínum hjá oss. En því fremr
viljum vér þá og einnig í nafni vor sjálfra, og
vér þorum að segja flestra ef eigi allra þeirra,
sem þekktu og reyndu héraðslækni Finsen, votta
honum nú að skilnaði þakklæti vort, virðíng og
viðrkenníng fyrir gjörðir hans og allar framferðir
vor á meðal. J>ó svo hamíngjusamlega takist, að
sæti hans verði vel skipað, þá munum vér eigi að
síðr, héraðsbúar lians sem verið höfum, æ verða
að geyma minníng hans í heiðri og hugþokka.
Yér biðjum honum því og allra virkta á hinu
fjarlæga landi, þar sem hann nú er kominn, og
ósknm að hann uppskeri þar gagn og gleði, eins
og hann sjálfr hefir sáð og sáir til. En fóstr-
jörðu vorri, sem er svo þunnskipuð af öðrum
eins ágætismönnum, henni árnum vér þess og
jafnframt af heilum hug, að hún aldrei stýri peirri
ógœfu, að fæla frá sér nokkurn þvílíkan mann,
þá er hún hefir borið gcefu til þess að eignast
hann. í Desembermánuði 1866.
Ásmundr Benediktsson, bóndi á Stóruvöllum.
Baldvin Sigurðsson, bóndi á Kálfborgará.
Baldvin Sveinsson, meðhjálpari á Hrafnagili.
Benedikt Árnason, bóndi á Gautsstöðum.
Benedikt Jóhannesson, hreppstjóri í Ilvassafelli.
Björn Halldórsson, prófastr í Laufási.
Daníel Halldórsson, prófastr á Hrafnagili.
Einar Ásmundsson, varaþíngmaðr í Nesi.
Eiríkr Halldórsson, bóndi í Skógargerði.
Grímr Jóhannesson, bóndi í Garðsvík.
Gunnar Ólafsson, prestr í Höfða.
Gunnlaugr Tryggvi Gunnarsson, hreppstjóri á
Hallgilsstöðum.
Ilalldór Sturluson, búandmaðr á Öxará.
Hallgrímr E. Thorlacius, bóndi á Hálsi.
Hallgrímr Hallgrímsson, bóndi á Stóru-IIámund-
arstöðum.
Ilallgrímr Tómásson, bóndi á Grund.
Hjálmar Þorsteinsson, prestr í Stærra-Árskógi.
Indriði Þorsteinsson, gullsmiðr á Víðivöllum.
Jóhann Bessason, timbrmaðr í Skógum.
Jóhann Stefánsson, bóndi á Neðri-Dálksstöðum.
Jón Austmann, prestr á Halldórsstöðum.
Jón Benediktsson, söðlasmiðr á Stóruvöllum.
Jón Bergþórsson, bóndi á Öxará.
Jón Stefánsson, sáttasemjari í Eyafirði.
Jón Sveinbjarnarson, bóndi f Landamótsscli.
Jón Tliorlacius, prestr í Saurbæ.
Jón Yngvaldsson, prestr í Húsavík.
Ketill Sigurðsson, bóndi í Miklagarði.
L. J. C. Schou, verzlunarstjóri í Húsavík.
Ólafr Ólafssoti, hreppstjóri í Hríngsdal.
Sigfús E. Thorlacius, bóndi í Núpufelli.
Sigurðr Guðnason, hreppstjóri á Ljósavatni.
Sigurðr Stefánsson, bóndi á Steindyrum.
Sigurðr Sveinsson, bónda á Brattavöllnm.
Sigurðr Þórðarson, sjálfseignarbóndi í Grenivík.
Sigrgeir Pálsson, bóndi i Svartárkoti.
Stefán Baldvinsson, smiðr í Yztabæ.
Stefán Grímsson, bóndi á Skuggabjörgum.
Stefán Magnússon, hreppstjóri í Túngu.
Sveinn Sigfússon, bóndi á Brattavöllum.