Þjóðólfur - 17.06.1867, Side 7
fylgja vitnisburðr um nægilegar framfarir og góða
hegðun þess sveins, sem vill gánga undir prófið,
og skal sá vitnisburðr samvizkusamlega (»paaÆre
og Samvitlighed«) gefinnafþeim mnnni, er á sein-
ast undanfarinni tíð hefir haft umsjón með kenslu
lians.
þeir nýsveinar, sem ætla sér að gánga undir
inntökuprófið við skólann, eiga að hafa með sér
skýrnaraltesti og bóluattesti og greinilega skýrslu
yfir það, sem þeir bafa lesið. En fyrir þá, sem
heldr kynnu að óska þess, getr inntökpprófinu orðið
frestað til þess í byrjun næsta skólaárs, svo sem
híngað til hefir verið gjört, eins og veitíngu nokk-
urra af ölmusunum að tiltölu verðr frestað til þess
tíma.
Foreldrum og vandnmönnum skólapilta, svo
og öðrum, er óska kynni Ijósrar og áreiðanlegrar
þekkingar um ástand skólans, kenslu og framfarir,
er boðið að vera viðstöddum hin munnlegu próf.
Heykjavík, 12. Júní 1807.
B. Johnsen.
— llenderson, Anderson Co, fulltrúar á Is-
iandi fyrir Lloyd's skipaábyrgðarfélagið.
Uérmeð gjörist kunnugt öllum þeim, er hlut
kynni að geta átt að máli, að nefnd sú, sem veitir
forstöðu stjórn málefna Lloyd’s-félagsins, hefir sam-
kvæmt valdi því, er henni er veitt, sett verzlunar-
félag það, sem hér að ofan er nefnt, til að liafa á
hendi umboð sitt á íslandi. Engin fullmakt frá
meðlimum Lloyd’s getr svipt þá er ábyrgð hafa
tekið fyrir skip sín, umboðsmenn þeirra, fulltrúa
eðr skipstjóra, eignarrétli þeim, sern þeim er heim-
ilaðr að lögum; en þess er vænzt, að þeir, er á-
byrgð hafa tekið, eða umboðsmenn þeirra, muni
fúslega færa sér í nyt aðstoð fulltrúanna, er settir
eru af aðalnefnd félagsins til að standa í sporum
þess, og mun aðstoð fulltrúanna gjöra það auð-
veldara, að fá bættan missi skipa eðr skemmdir á
þeim. í fjærveru fulltrúanna hafa verzlunarstjórar
þeirra í Reykjavík, Grafarósi og Seyðisfirði fengið
það erindi á hendr, að standa í sporum þeirra.
því eru þeir, er frétta kynni um skipsreka, skemdir
á skipum eða skipsförmum, vinsamlega beðnir, að
hlkynna það á einhverri af þeim verzlunarskrifstof-
um fulltrúanna, er nú voru nefndar. þessir um-
hoðsmenn fulltrúanna munu verða við því búnir, að
iáta skipstjórum þá aðstoð í té, sem eptir kríng-
Umstæðunum kann að þurfa, sem og að taka til
þeirra aðgjörða, er þeir álíta bezt við eiga, í hag
þeim er hlut eiga að máli.
— f>areð oss hefir verið sýnt umburðarbrcf frá
herra Svb. Jacobsen, álítum vér það nauðsynlegt,
til þessað þetta bréf lians verði eigi rángskilið, að
lýsaþvíyfir, að ofannefndr Sveinbjörn Jacobsen hefir
að eins verið pjónn vor, sem umsjónarmaðr yfir
verzlun vorri á Islandi, fyrir ákveðið endrgjald eðr
laun árlega, en hefir alls ekki verið í nokkru sam-
bandi við verzlunarhús vort, sem félagi.
Ilenderson, Anderson fy Co.
f>ar sem í skiptaréttarauglýsíngu sýslu-
mannsins á Vestmanneyum dags. 28. Febr. þ. á.,
um endileg skipti á dánarbúi héraðslæknis Magn-
úsar Stephensens, en lnin var auglýst í þessa árs
jþjóðólfi, bls. 99—100, er sagt, að skiptafundr sá
yrði haldinn: 11. Apríl þ. á., þá befir þetla mis-
prentazt, og álli að vera laugardaginn 6. «f Úlí
pessa árs.
— Til kaups fæstjörðin Iíár as tað ir I Borg-
arhrepp og Mýrasýslu, að fornu mati 15 hndr. en
11 hndr. 84 áln. eptir jarðabókinni 1861, með 3
ásauðarkúgildum, og 3 vætta landskuld. Jörðin
hefir fengið verulega túnaendurbót á hinum seinni
árum, bæði að sléltun, ræktun og 600 faðma Iaung-
um túngarði; jarðarhús eru í góðu standi, en auk
þeirra getr kaupandi átt kost á að fá þar stand-
andi vænt og vandað stofubús, smiðju ogskemmu.
þeir sem vildi sæta kaupurn þessum, eru beðnir
að semja nákvæmar um þau við eigandann Sigurð
Finnsson nú bónda á Ilamri í Borgarhrepp.
— Auk mynda þeirra af íslenzkum merkismönn-
um, er eg hefi fyr auglýst, hefi eg nú enn fremr
smámyndir, hverja á 24 sk. af:
Bjarna Thorsleinson, konferenzráði og amtmanni.
Sigurði Thorgrimsen, Jand- og bæarfógeta.
Magnúsi Stephensen, sýslum. og jústizráði.
Sveinbirni Hallgrímssyni, presti og stofnara blaðs-
ins þjóðólfs.
Jóni Amasyni, höfundi þjóðsaganna.
ílféÍíf* Ilvern þann, sem mynd kynni að eiga af
einum eðr öðrum af merkísmönnum landsins, hvort
heldr er frá eldri eða nýrri tínnim, bið eg gjöra
svo vel að Ijá mér þær, og það enda þótt gallaðar
sé, er eg mun bæta úr ókeypis eptir því sem verðr,
til þess síðan að taka Ijósmyndir eptir þeim, og
skal eg ábyrgjast að skila þeim jafngóðum.
Reykjavfk, 11. Jt'mí 1867.
Sigfús Eymundsson.
— Til S tran darkirkj u í Selvogi. hafa enn
fremr gefið og afhent á skrifstofu þessa blaðs :
5. Maí þ. á. ónefndr maðr í þykkvabænum 1 rd.
26. — —------------bóndi í Seltjarnarneshr. 3 —
6. þ. m. »ónefndr«......................2 —