Þjóðólfur - 12.07.1872, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 12.07.1872, Blaðsíða 3
— 143 sé hægt að koma ábyrgðinni við í svo miklum fjarska frá Danmörku, og virðist óþarfi að yrðast við hann út af því, þar sem hann skömmu síðar talar um, að Alþingi hefði átt að geyma lanóinu rétt til fullkomnara og traustara ábyrgðarfyrirkomu- lags seinna meir, og sýnir með því, að hann sjálfr er eigi vonlaus um að ábyrgðinni mætti koma fyrir, ef Danir vildi nsleppa Islandi alveg lausu», en það þykir honum ekki von til að þeir vil\, meðan þeir leggja fó til vorra þarfa(l). Ætli það sé ekki heldr af því, að vér leggjum (óbein- línis) fé til þeirra þarfa, eða leggja Danir nokkuð fé til vorra þarfa, annað en nokkurn part af vöxtunum af fé því, er vér eigum hjá þeim? Höfundrinn virðist að harma það mjög, að Alþingi gekk eigi að stjórnarfrumvörpunum 1869 og 1871, og heldr að oss hefði þá farið heldr en ekki mikið fram, ef vér hefðim tekið þeim gæða- kostum; en segir að oss fari nú aptr, og að margt illt fyrir sjálfa oss hafi leitt af þessu «þrasi og stífni»> við stjórnina, og þar á meðal telr hann flokkadrætti í landinu sjálfu. En mér virðist ólík- legt, að mikið gott geti leitt af þeirri stjórnar- skipun, sem reist er á rammskökkum grundvelli, og þar að auki mjög ófullkomin. Að oss fari aptr, skil eg ekki í, því að á hinum síðustu árum hafa þó einmitt ýms félög haflzt, er miða til að ná verzluninni úr höndum útlendra kaupmanna og gjöra hana innlenda, sem landinu getr verið ó- metanlegt gagn að, og slíkt er þó enginn vottr um aptrför hjá þjóðinni, heldr miklu fremr um vaknandi þjóðaranda og manndáð, og er það ætl- un mín, að stjórnardeila vor við Dani hafi eigi ! alllítið stutt að því, að vekja þjóðarandann, og, glæða þjóðernistilfinninguna og æltjarðarástina. Að segja, að flokkadrættir sé i landinu, getr uð minni ætlun eigi verið rétt, því að stjórnar- mennirnlr (hinir dönsku íslendingar) mega varla hokkr kallast, en aðrir þeir, er skipta sér nokkuð stjórnarbótarmálinu, halda fram þjóðréttindum vorurn, og verja þau móti öllum, er þeim vilja traðka; og að þeir haldi sem fastast saman og reyni að fá sern flesta á sitt mál, getr ekki verið til ógagns fyrir landið, heldr miklu fremr til gagns. fá talar höfundrinn um, að meiri hlutinn kenni hinum konungkjörnu um, að stjórnarbótin fáist ekki, og reynir að hrekja þá «kenningu». «Ef hinir konungkjörnu», segir hann, «eru svo skynsamir menn að stjórnin álíti það svo gull- vægt sem þeir leggja til rnálanna, að hún fari eptir þvl, því fer þá ekki meiri hlutinn eptir til- lögum þeirra? f»etta er sannarlega merkileg spurn- ing, og sýnir glögglega speki höfundarins. Hví skyldi ekki öllum íslendingum þykja það gullvægt, sem dönsku stjórninni þykir gullvægt? Hvernig lízt yðr á þessa hugsun, góðir landar? Nei, vér íslendingar skoðum dönsku stjórnina ekki sem alvitra; vér ætlum, að henní geti skjátlazt, og erum svo djarfir að halda, að hún hafi ekki glögg- ari skilning á sönnum hag íslands, né betri vilja til að efla hann, heldren þeir heiðrsmenn og ætt- jarðarvinir sem eru í meirahlutanum á Alþingi. En talsverð líkindi eru til þess, að ef allir þing- menn fylgdi fram skoðun meirahlutans í stjórnar- bótarmálinu, þá mundi stjórnin taka nokkru meira tillit til þess er þeir legði til í því máli, heldren hún gjörir nú, því að þá gæti Danir ekki talað um neinn stjórnarflokk á íslandi, eins og þeir nú gjöra, því að það er að eins hinn svo nefndi minnihluti á Alþingi, er gefr þeim átyllu til að tala þannig, og svo hafa þeir það fyrir ástæðu tíl til að varna oss þjóðfrelsis, að það sé ekki nema einn æsingaflokkr, sem heimti fullt sjálfsforræði fyrir landið, en annar fjölmennr flokkr láti sér nægjameð minna, og sé fús á að beygja sig undir stjórnarinnar viija. — þótt allir þingmenn hafi fylgt því fram, að vér fengim sem hæst árgjald frá Danmörku, (það erskömm að því, að íslenzkir menn skuli kalla það tillag), þá hafa þó ekki allir verið samdóma í því máli, og ákveðnu árgjáldi hefir ekki verið fastlega haldið fram af öllum, svo að stjórnin, sem jafnan vill fara sína leið svo langt sem hún kemst í þessum málum, hefir tekið sér leyfi til að skamta það úr hnefa. J>egar höfundrinn talar um, hver sé þjóðvili í stjórnarbótarmálinu, og hvaðan hann spretti, þá lýsir sér berlega hversu veikur málstaðr hans er. Hann getr ekki neilað því, að skoðun meirahlut- ans á Alþingi sé í meirum metum hjá alþýðu en skoðun minnihlutans, en segir, að þjóðvillnn í þessu máli sé sprottinn frá Jóni Sigurðsyni, og líkir honum saman við erfðasyndina (I). En hvað kemr til þess, að alþýða fellst fremráskoðun J. S. á stjórnarbótarmálinu, heldr en á skoðun stjórn- arinnar eða minnahlutans? Ef minihlutinn hefði á réttu að standa, þá væri það óskiljanlegt, að hinir vitrustu menn og mestu ættjarðarvinir meðal þjóðarinnar skuli fallast á skoðun meirahlutans, og allr þorri alþýðu fylgja þeim, en varla nokkuraf hinum skynsamari mönnum utanþings skuli fallast á skoðun minahlutans, og það þótthann hafi stjórn-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.