Þjóðólfur - 08.05.1878, Page 1
30. ár.
Reykjavík, 8. maí. 1878.
15. blað.
Um ástandið í Amerákn.
Úr grein í hinu danska blaði: «Dagbladet». sem apturer
tekin út vikublaðinu «Heimdal», sem út kemur í Chikagó,
höfum vér þýtt næstfylgjandi kafla, og ætlum hann ekki ó-
úóðlegan, sér í lagi fyrir þá sem vænta sér «gulls og grænna
sk<5ga» fyrir vestan Atlantshaf. Greinin í Heimdal er samin
af merkum og skarpvitrum fræðimanni: N. C. Frederiksen, sem
var prófcssor í Statistik (þjóðmegunarfræði) við líaupmanna-
hafnarháskóla.
«Meðal tíu útlendinga, sem koma hingað til að taka sér
bólfestu, er reynsla fyrsta ársins fortakslaust þung og niður-
beygjandi blekking fyrir hina níu. Gjörum ráð fyrir að menn
hafi kunnáttu til að bera og kannske andlega hæíilegleika
(Talent). Menn segja við sjálfa sig: «í þessu unga félagi, þar
som þróun hinna «materiellu» hagsmuna krefur svo sterklega
í sína þjónustu alla krapta, að tiltölulega mjög fáir liafa fengið
tíma til að afla sér kunnáttu eða hæfilegleikum sínum nægra
framfara, en þar sem þó jjegar er safnaður svo mikill auður,
að þörfin fyrir þekkingu og smekkurinn fyrir því sem andlegar
gáfur geta í té látið, er hvorttveggja vaknað og gjörir sig
mjög svo gildandi — hér, í þessu félagi hlýtur méf að vera
hægt að komast í stöðu og láta til mín taka sem félagsmað-
ur». Maður ber upp á, ef ekki með kröfum, þá samt alténd
teeð eptirvæntingu, og hvað sér maður þá fyrst, þegar dyrnar
ljúkast upp? pað slær mann á augabragði, að ákunnáttunn-
ar sviði gefast einungis tveir vegir, sem leiða til lífsstöðu og
maktarráða, nefnilega: hinn alveg framúrskarandi dugnaður,
sem maður ekki hefur, og hið alveg ósvífna «húmbúgg», sem
maður vill ekki mannspilla sér á. parna er blekkingin. Eða
ef nú svo er, að rnaður liefur ekki lærdóms kunnáttu og sér-
stakan hæfilegleik, en hefur fengið gott uppeldi; maður hefur
lært eitthvert handverk, eg lært það vandlega, og segir við
sjálfan sig: «1 þessu unga landi, þar sem svo óendanlega
mikið liggur fyrir sem gjöra skal, en þar sem enn þá er svo
lítið gjört, hér get eg strax komizt í veg». Maður hefur
beztu vonir, en það allrafyrsta, sem maður kemst að raun um,
er það, að þar sem rúm er fyrir vinnu nýtilegs manns, þar
eru hundrað sem borjast um að ná því rúmi, og hvort maður
nái því eða ekki, er allt komið undir því, livort maður á at-
kvæðamikla menn að, sem sjaldnast mun vera, eða þá undir
hreinum atvikum og tilviljunum, eða jafnvel mútum, sem mað-
ur hefur ekki áræði eða lipurð til að beita, þó maður vildi
gjöra svo lítið úr sér að kaupa sér vinnu-pláss með því að
borga forstjóranum á verkstaðnum vissar prósentur af viku-
launum sínum. fetta er aptur blekking. Eða þá: maður
hefur kannske hvorki lærdómsþekkingu ué menntun, hvorki
sérstakan andlegan liæfilegleik né verklega kunnáttu, en maður
vænn og vandaður, vill vinna og er fær til þess, og þá segir
tuaður við sjálfan sig: «Geti aðrir unnið sör inn 5 dollara á dag,
þá get eg það víst líka og meira þarf eg ekki með». Eneptir
Uokkurn tíma sýnir það sig, að erfiðleikarnir eru ekki í því
fólgnir, að giæða 5 dollara dag hvern, nei, fimm aura, skulum
við segja. Jafnvel grófasta og harðasta vinnan er enda
tyrir hina þolnustu og pössunarsömustu verkmenn svo stopul,
áð einungis hin frekasta áreynsla og hinn ýtrasti sparnaður
getur frelsað hann frá sulti og seyru, og einmitt meðan liann
er þannig staddur, mætir honum einhver sú óttalegasta freist-
*ng, sem lífið hefur til; hann sér nefnilega, og getur ekki ann-
að en séð, að það er hægra að lifa af því að slá plötur og
^etla, en af því að vinna sem ærlegur maður og þegja. þ>etta
er blekkingin í sinni verstu og almennustu eða tíðustu mynd,
og vér öfgum víst ekkert, þegar vér segjum að af 10 útlend-
ingum.semhingaðkomatilað takasér bólfestu,þá gegnumgangi
níu slíka eða viðlíka reynslu fyrsta árið sem þeir dvelja hér.
Sú ályktun sem alveg eðlilega verður dregin af slíkum reynslu-
dæmum, er sú, að Ameríka er ein einasta stórvaxin, þykk og
þétt lýgi, og hjá mörgum Skandínöfum og |>jóðverjum etur
sig þetta fyrsta sárbeiska áhrif svo djúpt í hug þeirra og
hjörtu, að þeir aldrei framar fríast alveg frá því. Jafnvel þó
þeir seinna komist vel á veg og lifi góðu lífi, jafnvel þó þeir
læri til fulls að skilja, meta og dæma um ástandið í Ameríku,
jafnvel þó þeir alveg samlagist ameríkönsku lífi og fái mætur
á því, þá verður samt alténd einhver ótrú eptir hjá þeim, ef
ekki á sjálfri þjóðinni, þá samt á högum hennar og lilutföllum,
og þeir skoða það sem alveg nauðsynlegt og óumílýjanlegt, að
hér verði að koma fullkomin umbilting áður en það geti komið
til mála, að ameríkönsk þjóðmenning geti haft nokkur frels-
andi og þróandi áhrif á framöld mannkynsins».
Að endingu leiðir höf. athyglina að því, sem eptir hans
áliti er ein hin helzta orsök Ameríku-sýkinnar hjá Evrópumönn-
um, og þessi orsök segir hann að sé þær þúsundir þúsunda af
bréfum, sem Yesturfarar skrifa heim til ættingja og vina. —
Lygar þær, sem útbreiddar eru um Ameríku í blöðum og bók-
um, geta fengið sín mótmæli, en hver getur barið niður það
sem er í bréfunum, öfgandi og fegrandi, villandi og rangherm-
andi. «Af bréfunum», segir hann, «orsakast hvað mest þessi
áðurnefnda sjálfs-blekking, sem ár eptir ár sendir til Ameríku
ógrynni fólks með hugmyndir, sem eru svo fjarri að eigi við
Ameríku, að þær eiga ekki við neitt undir sólunni, og með þá
aðalhugmynd, að hér megi uppskóra án þess að sá, og vinna
með því að voga; þessi sjálfsblekking endar vanalega með því
að innræta nýbyggjurunum þessa ótrú og vantraust, sem eymir
eptir lengi í hugum þeirra».
lið upptök skal á stifla, en ei að ósl.
feir, sem hingað tilhafa ritað um drykkjuskap á Islandi,
virðast ekki hafa haft þessi orð svo hugföst, að þau gætu
stjórnað stefnu máls þeirra til lilýtar; mál þeirra hefur jafn-
an stefnt að því, að víndrykkja minnkaði eða hvyrfi með
öllu; en svo virðist eins og flestir þeirra hafi hugsað, að
bezt væri, að stýfla þossa framrás við ósinn, þá mundi áin
hætta að renna, það er með öðrum oröum: að drykkjumenn
og ungir menn skyldu skilja og hugleiða, hversu mikið ílt
víndrykkjan af sér lciðir, og þar við knýjast til að hafna
honni; en þeir, sem mestallur drykkjuskapur hér á landi or
að kenna, sem sé veitingamennirnir — einkum til sveita, þar
sem engin vínsöluhús eru — þeir eru svo gott sem ekkert á-
rainntir um, að hætta að freista manna til að gjöra sér og
öðrum skömm og skaða, Á meðan einungis er reynt, að
koma mönnum til að þiggja eigi áfengan drykk, en ekki
hinum, sem veita og ekki eru í bindindi, er neitt leitt fyrir
sjónir, hve miklu illu þeir valda, þá er varla að búast við,
að slíkar ritgjörðir verki mikið í því verulega. f>eir menn
eru til, sem hrósa sér og þykjast frægir af því, að þeir haíi
komið bindindismanni til að verða drukkinn, og einnig öðr-
um, sem alltaf hefur loröast víndrykkju; og munu þeir þá
skirrast við, að freista liinna yngri til drykkjuskapar? Til
þess að leita að orsök og upptökum ofdrykkjunnar hjá hverj-
um einstökum, mætti vera til leiðbeiningar og sönnunar ept-
irfylgjandi frásaga, sem einn af hinum mestu drykkjumönn-
um vorum hefur sagt af sjálfum sér; hún er á þessa leið:
«I>egar eg var ungur, var mér snemma sinnt um hrossa-
hirðingu og þótti heldur skemmtilegt, að sitja á hestbaki,
G1