Þjóðólfur - 08.05.1878, Blaðsíða 4
64
Almennar innl. fréttir. Pdstskipið sigldi 6. þ.
mán. Með því sigldu: frúrnar Á. Melsteð og J>. Thorsteinsen
til Edinborgar, og stúlkan Kristín Jóhannesdóttir til Khafnar.
Fáum tímum áður kom norðanpóstur, en vestanpóstur degi fyr.
Höfðu þeir báðir, og þó einkum norðanpóstur, hreppt illa færð
og ófær vötn sökum leysinga. feir sögðu að öðru leyti all-
bærilegt tíðarfar; hefur almenningur haldið skepnum sínum,
þótt í stöku stöðum yrði að leita kornfóðurhjálpar, því víða
voru menn komnir nær þrotum, er jörð leysti upp um pásk-
ana, Af vesturlandi fréttist góður afli, einkum úr Bolungar-
vík. «8000 á skip hæzt síðan um veturnætur, og jafnfiski».
Um 20. f. m. var farið að aflast vel við Eyjafjörð og þar víð-
ar bæði af þorski og hákarli. Af hafísnum er það að segja,
að þá er póstur fór úr norðurlandi, voru allar líkur til
að hann væri á förum, enda staðfestir veðurblíða sú, sem nú
geugur, það nær því til vissu. Norðanblöð, 4 af «Nf.» og 4
af «Norðl.» og 5 af «Skuld», bárust til 20. f. m., en ekki er
hægt nú fremur en vant er að sjá í fljótu máli veðuráttu og
fréttayfirlit af þeim. Yér höfum nokkrum sinnum áður bent
norðanritstjórunum á, hve nauðsynlegt séað nýjustublöðin, sem
þeir senda suður með póstum, færi oss hér syðra þess konar
yíirlit; tölum vér þetta sér í lagi til «Nf.», því frétta-peðr-
ingur hans er alveg óbrúkandi.
— Kirkjubruni. Aðfaranótt hins 10. f. m. brann kirkj-
an á Lundabrekku í Bárðardal í fingeyjarsýslu með öllu sem
í lienni var til kaldra kola. Urðu menn fyrst varir við eld-
inn frá Hafldórsstöðum hinu megin fljótsins, en er að var
komið, var hjálpin um seinan. Ætlað er að lopteldur hafi
valdið brennunni. Mestallan marz og framan af apríl gekk
norðanátt fyrir öllu norðurlandi með talsverðum frostum
(mest 14—16° K. á Akureyri um fyrri mánaðarmót). Skip
voru hvergi komin. Á austurlandi hefur afliðinn vetur verið
beztur, «eitthvert minnst vetrarríki sem menn muna». skrifar
maður úr Héraði 20. marz, til «Nf.». Bráðapestar er í ár
enn minna viðgetið en 1 fyrra, og eru það hin beztu tíðindi;
helzt hefur hún drepið fé á austurlandi. — Við eldgos hef-
ur enn í vetur orðið vart norðanvert í Vatnajökli, ætla menn
að þar sé óþrotlegur vellandi uppi, og hafi hann í vetur og
þegar í haust sem leið, valdið hinni einkennilegu veðurátt,
sem þar hefur gengið: snöggar breytingar, stundum samdæg-
urs, úr hörkuveðrum eða hlákum í hitamollur. Ætla menn
að eldstöðvar þessar séu lítið lengra vestur og upp úr Hvanna-
lindum en svari dagleið. — 2 kvennmenn urðu úti í hríðar-
veðri 10. marz, sín frá hverjum bæ í Skagafjarðarsýslu; voru
báðar á ferðalagi, en viltust og urðu svo úti. Drukkinn maður
hafði og orðið úti norður á Skagaströnd 1. marz. Fleyri slys-
fara finnum vér ekki getið í þetta sinn.
— Hér syðra gengur nú hin bezta tið, og gróður kominn
töluverður. Aflabrögð, sem stendur mjög lítil á opin skip, en
mikil á þilskip; t. a. m. á «lokkortu» þeirra Egilsons «Esju»,
hefur aflast rúmar 11 þúsundir fiskjar, og það á svo stuttum
tíma, að hún hefur fengið 1000 á skip sinn hvern legudag.
Hið heppna hákarlaveiðiskip «Keykjavík» skipstj. Markús
Bjarnason, er búið að fá 170 t. lifrar.
SKIPAIiOMA: Seinustu daga f. mán. hleypti MngaS inn fjöldi
frakkneskra fiskiskipa, og eru nú öil lögð út aptur. Er að heyra sem
auk áður nefndra: 29. f. m. Johanne (75 ton.) frá Khöfn með vörur til
S- Johnsens. 1. maí Lebanon (199 t.) frá Englandi með kol handa
Frökkum. 3. þ. m. Selwyn (2601.) frá Englandi með salt til Fischers.
Norsk skúta, Lastdrageren af Sparshorg, stundar héðan þorskveiði.
Aýi»rentað í ísaf. prentsmiðju: Steinafræði og
j a r ð f r æ ð i, samin af Benedict Gröndal. Kostar í kápu 1
kr. 80 a., bundin 2 kr. 10 a. Viðvíkjandi þessari bók vísum
vér til þess, er vér höfum áður bent á, er vér gátum um
Dýrafræði sama höfundar.
Hallærið mikla á Indlandi þótti nú vera á enda, og hafa Eng'
lendingar varið mörgum mill. punda gulls, og afar-mikOIi framkvænid í
orði og verki til að bæta úr því. Yarð þó plága þessi ótal þúsunduffl
að bana. Aptur var hið hörmulega hungur í Kínaveldi alls eigi á för'
um, er síðast fréttist, og ganga þaðan hinar ógurlegustu sögur um dag'
legt mannhrun af hungursdauða. Bæði Indland og Kínaveldi eru eins og
veraldir út af fyrir sig, mcð ýmsum og ólíkum þjóðum, siðum og trúar'
brögðum, og eru norðurálfubúar þar víða nálega mcð öllu ókunnugir-
Jafnvel mörg þau stórhéruð, sem lúta veldi Viktoríu drottningar á Ind'
landi, eru svo að segja ókunnug Englendingum enn í dag.
Sjónarleikir hafa verið leiknir á Akureyri í vetur með
snfld og dugnaði, að allra sögn. Af þeim sem fyrir því stóðu eru fremstir
nefndir þeir herra Jakob Havsteen og herra Eggert Laxdal. Leikirnir
voru: Skugga-Sveinn („Útilogumonnirnir" nmbreyttir)eptirMatth-
Jochumsson, og A n d b ýl i n ga r n i r, hinn alkunni stúdentaleikur C.
Hostrups, nú prýðilega íslenzkaður eptir Stgr. Thorsteinson.
þ>að mun óhætt að fullyrða að landsmenn vorir eru þjóð, sem hneigð
er fyrir „dramatiska“ íþrótt og sem auðvelt er að mennta eigi síður en
skemta henni moð þesskonar list, enda er slíkt mjög eðlilegt, því varla
á nokkur þjóð sögu og kveðskap, sem höggur jafn-nærri hinu „draroa-
tiska“, sem vorar bókmenntir. En af þessu ættu vorir yngri gáfumenn
að draga hvöt til þess, að veita þessháttar skáldskap sérstakt athygli, og
eins ætti alþýða vor að veita sem beztar viðtökur hverju því „drama-
tisku“ meistaraverki, sem snúið er á íslenzku, því að þótt slíkir leikir
aldrei yrðu leíknir hér, er lestur þeirra hið bezta menntunarefni íþessa
stefnu.
Vesturlarar. Töluverð hreifing til vesturfara gengur á
austurlandi; og aptur á sama sér stað vestur í Dalasýslu og jafnvel á
Mýrum. Munum vér skýra frá þvi jafnóðum og vér fáum skýrslur.
Eld^osið við Heklu er mælt að nú hafi tekið sig upp aptur
með nýjum krapti.
AUGLÝSIN GAU.
Saumavélar.
Hjá undirskrifuðum verða f sum-
ar alls konar saumavélar fáanlegaf
frá C. Konerding í Kaupmannahöfn,
sem seljasl með sama verði og á
sjálfri verksmiðjunni. Sér í lagi eru
teknar fram yflr aðrar, handsauma-
vélarnar, sem kallast llenania, Be-
giœ og ein tegund með nCylinder-
gang» nefnd Flora. Einnig stærrí
saumavélar til skósmlða og hand-
iðnamannabrúkunar, samt saumavél-
ar á borði, af hverjum fyrirflnnast
myndir, eptir hverjum hver getur fengið útvegað þá teg'
und, sem hann óskar. Reykjavlk 1. maí 1878.
H. T. A. Thomsen.
— Ýmsir sögufróðir menn hafa skorað á oss, að gangast
fyrir því, að rímur af Hálfdáni gamla og sonum hans yrðé
prentaðar. Vér höfum því útvegað oss eiginhandrit skálds'
ins séra Hannesar Bjarnasonar, sem þessar rímur hefur ort-
J>ar að auki höfum vér útvegað oss leyfi frá erfingjum sérá
Hannesar til að prenta þessar rímur; og onn fremur höfuöj
vér í höndum boðsbréf þau, sem prentuð voru 1876, og u
þeim marga áskrifendur. fessar rímur verða nú bráðuö1
teknar undir prentun; vér viljum því biðja landa vora, seH1
vilja eignast þessar rímur, að gefa okkur vísbendingu ui»
það; en reiða sig ekki á ósannar og ódrengilegar auglýsingM
í þessu efni, hvaðan sem þær koma.
Reykjavík 7. maí 1878.
Einar J>órðarson Kristján Ó. forgrímsson
prentari. bókbindari.
(ý/§=* Til kaups fæst með beztu kjörum «norsk skonnorta.”'
sem gengur héðan frá Reykjavík til þorskveiða í sumar. Skip10
heitir: Lastedrageren fra Sarpsborg, dregur öö’/s smálest, el
bygt úr furu, 3—4áragamalt, með næst bezta ábirgðarmerku
«A2». Skipiðervandaðað ölluleyti, og fylgja því veiðarfæri ð?
áhöld til þorskveiða. pað siglir 8—9 mílur í vakt, og er ÞeL
vel, og ágætlega lagað fyrir þungafarm og langferðir. Verð1
er 8—10 þúsund krÓnur (vel hálfvirði). Lysthafendur Se} ■
spurt sig nákvæmar fyrir hjá ritstjóra J>jóðólfs, eða hjá kapte1
skipsins Lil/ebjelke, sem vonar að koma inn aptur nál^o
8. júní næstkomandi.
Afgreiðslustofa J>jóðólfs: í Gunnlögsens liúsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jocliumsson^
Prentaður í prentsmibju Einars þórðarsonar.