Þjóðólfur - 22.06.1878, Síða 4
80
og búið sem bezt; þdtti það ógurlegast herskipa á J>ýskalandi.
|>riðja skipið hét Preussen, jafnt «Grosser Kurfúrst» að stærð:
6662 tonna, 300 feta langt, og 52 fet á dýpt, með 8 Iirupps-
byssum, klætt utan 8 þumlunga þykkum járnplötum, og voru
á skipinu 500 manna. Yeðurvargottogbjart og stefndu skipin
til Plymouth og voru rúma V* viku undan bænum Folkestone.
Fremst fór skipið «König Wilhelm», sem var aðmírálsskip, en
láng-aptast «Preussen». Norskt barkskip eitt kemur þá í
í vegfyrir «KönigWilhelm» og stýrir þvert fyrir stafn þess en
sveigir hvergi til. Gufuskip eiga jafnan að víkja fyrir segl-
skipum, og svo er þegar gjört á aðmírálsskipinu, að stýrið er
þegar undið til bakborða. «Á Grosser Kurfiirst» er stýrinu
einnig snúið á sama borð, en miklu minna. Rúm lóðarlengd
var á milli herskipanna. Urðu nú skjótir atburðir, því sökum
misstjórnar þessarar hlaupa herskipin saman þannig að bryn-
trjónan á apturstafni «K. Wilhelms« hitti «G.Kurfurst» mið-
skips og gekk í gegnum síðuna, svo að skipið sökk 5 mínútur
eptir. Fiskibátar voru margir þar í grend, enda kom óðara
hjálparlið úr landi. Varð nálægt 200 manna borgið af sundi,
en að hálftíma liðnum sáust engin mörk eptir af skip-
inu. «K. Wilhelm» komst til Portsmouth, skemdur mjög, og
skyldi þar freista að bæta hann. Að svo fáir komu upp,
þar sem skipið sökk, kenna menn vél gufuskipsins niðri í
sjónum svo og straumróti því er fylgt hefur skipinu. Aðal-
orsök að þessu stórslysi er talin sú, að «K. Wilhelm» var
snúið of snögglega við í þrengslunum milli hinna tveggja skipa.
— Nýttbanatilræði við Vilhjálm keisaravar
gjört fyrstu dagana í þ. m. Var aptur hleypt á hann úr
skammbyssu, og lieitir sá maður Nobiling, er það vann; hann
var stúdent og af háum stigum, en stóð í sambandi við sósía-
lista. í þetta sinn varð keisari sár, bæði á höfði og í öðrum
framhandlegg; lá hann rúmfastur, er síðast spurðist, en þó
ekki hætt. Er mikið sagt um æsingar og samsæri sósíalista
og leynilega samdrætti þeirra í milli í flestum löndum álfunnar.
fessi morðráð við liinn háaldraða keisara þykja auðsær vottur
hins versta djöful-æðis flokks þessa, enda er her ekki einum
eða fáum um kent, heldur ætla menn að sósíalistar fleiri landa,
t. d. Englands, hafi verið í fullu vitorði með. Nobiling þessi
varð vitskertur eptir verkið. |>etta banatilræði er talið hið 28.
sem gjört hefur verið við konúnga og stjórnenduríEvrópu og
Ameríku síðastliðin 30 ár. Ýms ráð eru tekin til að stöðva
sósíalista og komast að vélráðum þeim, sem menn þykjast
vita að þeir búi yfir, ef til vill, móti lífi allra konúnga norð-
urálfunnar. ______________
— llafísinn. í dag kom Árni bóndi í Höfnum á Skaga
liingað suður með 2 sonu sína til nýsveinaprófs. |>egar hann
síðast sá til hafs fyrir norðurlandi, var þar allur ís horfinn.
Skip flest komin inn. Hertha þeirra Gudmans ókomin.
þAKKARÁVARP.
Þann 22. marzmán. þ. á. hefur herra Kristján Jóhanns-
son á Hálsseli sent mér ávísun að upphæð 100 kr. sem er
gjöf frá honum til bágstaddra í Gullbringusýslu. Ern leið og
eg hér með innilega þakka þessa höfðinglegu gjöf, vil eg geta
þess, að þessi sami heiðursmaður þegar í byrjun þeirra harð-
æra, sem gengið hafa yfir sýslu þessa, tók að sér að forsorga
fátæka móður sína, sem er ekkja hér í prestakallinu og borg-
aði mikla skuld, sem hún var komin í. Görðum, lö.maí 1878.
Pórarinn Böðvarsson.
AUGLÝSlNGAli.
ifég* / verzlunarbúð 0. P. Möllcrs sál. verða fyrst um
sinn seldar ýmsar vörur móti peningum með niðursettu
verði. Beykjavík 12. marz 1878.
Fyrir hönd búsins.
Georg Tho rdal.
— Ársfundur búnaðarfélags suðuramtsins verður haldinn
föstndaginn 5. dag næsta júlímánaðar í prestaskólahusinu hér
( bænum, og byrjar um hádegi (kl. 12). Verður þar skýrt frá
fjárhag félagsins og aðgjörðnm, rætt um verðlaun, og kosnir
stjórnendur félagsins og nokkrir fulltrúar.
Reykjavík 20. dag júním. 1878.
11. Kr. Friðrilcsson.
— Laugardaginn 6. dag næsta júlímánaðar verður aðalfund-
ur haldinn í hlutafélagsverzluninni í Reykjavik; verður sá
fundur haldinn ( Glasgow hér í bænnm á hádegi (kl. 12). Yerð-
ur þar skýrt frá ástæðum félagsins og nýir sljórnendur kosnir.
Reykjavík 20. dag júním. 1878.
II. Kr. Friðriksson.
— Þeir, sem þvf vildu sinna.umbiðjast að gefa mér skrifleg
tilboð um, fyrir hve mikið verð þeir vilji flytja hvert skpd. af
brennisteini, frá norðurenda Kleifarvatns iil Hafnarfjarðar. Þeir
sem vildu taka að sjer flutning þennan, verða sjálfir að leggja
til menn, hesta og öll flutningsáhöld; brennisteinninn verður
þeim afhentur f pokum, sem eg undirskrifaður legg til. Hin
gjörðu tilboð stílist hvort heldur er til mfn undirskrifaðs, eður
til herra f>. Egilssonar f Hafnarfirði. J»yki mér hin gjörðu
tilboð óaðgengileg, sknldbindur þessi auglýsing mín mig ekki
til að gánga að neinu þeirra.
Hafnarfirði 15. júnf 1878.
W. G. Spence Paterson.
OfS’ Strandferðaskipið Díana kemur við á
Stykkishólmi f næstu ferð héðan, 6. ágúst, en fer ekki
beina leið til Þingeyrar, eins og póststjórnin danska hefur sett
f ferðaáætluninni af misgáningi.
Reykjavíkur-póststofu 18. júnf 1878.
0 Finsen.
— Jörðin Halldórsstaðir f Vatnsleysustrandarhrepp fæst til
kaups á þessu sumri. Hið árlega afgjald er 2 skippund af
saltfiski. Lysthafendur eru beðnir að snúa sértil undirskrifaðs.
Reykjavfk 19. dag júnímán. 1878.
H. Th. A. Thomsen.
— Rautt koffort stórt og lœst en tómt, hefur týnzt úr far-
angri peirra, sem komu með Díönu hingað 5. p. m., er beðið
uð skila pví á skrifstofu Þjóðólfs.
— 12. þ. m. týndist úr högum mínum rauðblesótt hryssa,
sokkótt, glófext, óafrökuð, aljárnuð og nýmörkuð andfjaðrað
aptan hægra; tvær standfjaðrir aptan vinslra. Ætlun mín er
að hryssan hafi strokið austur f Skaplafellssýslu. |>eir sem
finna kynnu hryssuna eru vinsamlega beðnir að ráðstafa henni
til vissra manna, t. a. m. að Ferjunesi eða Seljalandi.
Björn Björnsson austan póstur
— Á næstliðuu hausti var mér dregin gulhvithyrnd gimbur,
1. vetra gömul, með okkar marki, stýpt hægra, silhamrað vinstra
sem eg ekki kannast við sé okkar eign; sá sem á sammerkt,
sernji við mig um hana. Völlum í Ölfusi. Jón Andrésson.
— Hver sá, sem týnt hcfur svörtum loðnum flókahatli, nýleg-
um, og vissra ástæðna vegna ekki lýst honum í blöðunum, þá
hefur Ólafur f Laugardælum fundið hann f svonefndum Fóellu-
vötnum 6. okt. f. á. Laugardæl. 9. júnf 1878. Ólafur JóhannessoD
— í prentsmiðju Einars þórðarsonar fæst auk hinna
almennu bóka, indversk saga, Samitri; Gull-þóris saga;
Droplaugarsonar saga; saga af Tledni og TJ/öðvi. Tlolta-
þóris saga; saga Egils Skallagrímssonar; saga af Gissuri
jarli. Enn fremur fæst allskonar prentpappír og skrifpappír, °S
pappír allavega litur og gljáandi, bæði fyrir prentara og bók-
bindara, einnig spjalda-pappi.
Verðið á pappírnum mun reynast eitt hið bezta, sem bér n
landi er fáanlegt. Reykjavík, 21. júní 1878.
Einar Pórðarson.
— Þjóðólfnr kostar 3 kr. árg. (erlendis 4 kr.) ©g’sHílV
torgast á vorlestnm, þvi ella verður hann dýra ■
iðjum vér kaupendur hans að muna eplir þessu, j>ar■ eo fle
m mun þá vera hægast að borga, en oss afar-ariðíM*
ð borcrunin komi í i tima.
Aígreiðslustofa þjóðólfs: í Gunulögsens liúsi. — Útgefandi og ábyrgðarmaður: Matthías Jocliumsson^
PrenUSur í preutsmitsju Einars pórðarsonar.