Þjóðólfur - 25.09.1878, Qupperneq 3
107
þeim í hinni hveinustu og uppliaflegustu mynd sinni. Höfuð
skinnbókin 677.4to 'ætla jeg muni í síðasta lagi rituð um
1240.
í formálanum hefir höfundurinn gert nákvæma grein
fyrir skinnbókunum, sem bókin er prentuð eftir, og hinum
latnesku frumritum þeirra. Á 199. — 201. bls. eru tilfœrðir
staðir úr heilagri ritningu, er þýddir eru í bókinni, og er það
eigi lítill kostr við útgáfuna. Á 202. bls. eru upplýsingar um
höfunda hinna latnesku frumrita. Á 203.—207. bls. eru at-
hugasemdir, leiðréttingar og prentvillur.
Útgefandinn á miluð lof skilið og mikla þökk fyrir verk
sitt, og því fó hefir sannlega verið vel varið, er veitt hefir
verið af landssjóði til útgáfunnar. Stjórnir og vísindalegar
stofnanir í öðrum löndum veita fé til útgefningar slíkra bóka,
sem eigi eru alpýðubœliur og þess vegna eigi eru keyptar af
alþýðu, enn eru dýrmætar fyrir vísindin. faunig hefir há-
skólinn í Kristíaníu kostað útgáfuna á Karlamagnússögu,
Postolasögum og Ileilagra Manna sögum; hið norska fornrita-
fólag á Gammel narsk Homiliebog, sem Dr. Unger í Kristí-
aníu gaf út 1864, og stjórnin í Svíþjóð hefir veitt styrk til
prentunarkostnaðar á þeirri íslenzku HómiHu-Bbk, er Dr.
Theodor Wisen í Lundi gaf út 1872; enda kunna Norðmonn
og Svíar að meta gildi hinna.ágætu fornrita vorra, og telja
eigi eftir það fé, er varið er til útgefningar þeirra.. Gerum
oss sjálfum eigi þá óvirðing, að láta það sjást á prenti, að vér,
sem eigum pessi fornrit, kunnim eigi að meta þau Og teljim
það eftir, er veitt er af landssjóði til að koma þeirn á prent.
|>að er sannlega eigi vel giört, að reyna til að drepa niður
tilraun hinna fáu íslenzku frœðimanna, er reyna til að halda
uppi sóma vorum mcðal útlendra þjóða.
Eg skal að endingu geta þess þeim til leiðbeiningar, er
kyuni að vilja bera bók þessa saman við hin latnesku frumrit,
að þau fmnast flest í bókasafni Prestaskólans í Eeykjavík í
Migne’s Patrologia Latina. Prosperi Áquitani liber senten-
tiarum finst í Tom. 51, col. 427—494 ;epigrammata col. 498
—552. Gregorii Magni Homiliæ in evangelia í Tom. 76, col.
1077—1314. Gregorii Magni Dialogi í Tom. 77, col. 149—
429. Brot það, er byrjar á 180 bls. í bók síra forvalds, finst
í Tom. 83 og byrjar þar col. 1154. Brotið á 188.—198 bls.
(Sancti Bernardi Meditationes piissimæ de cognitione hu-
manæ conditionis) í Tom. 184, col. 485—508.
Jón Porkelsson.
t EggertJónsson
frá Mælifelli.
(DruknaSi í fyrra haust mo8 skipinu „Gefjun“).
Bleikur situr dauðinn und báru köldum fald;
hið efra svífur engill frá æðstum himnavald.
Allt var svo dimt og svo dauðalegt að sjá;
unn við hamra liamast og hríðin skellur á.
Áð vonum var allt dimmt og dauðalegt að sjá:
nú áttir þú, minn elskuvinur, oss að hverfa frá.
Vér héldum að þú dveldir hjá oss langa stund,
og á þinn drengskap mændi vor allra fósturgrund.
Sjá aldraðan föður streitast aðkast sorga við!
Hlustið á móður hjartað, það hefir engan frið!
Og syskyni þín syrgja, sárt þau drottinn slær;
dýrar táradaggir hníga, drottinn þerri þær.
Og mær ein horfir harmþrungin á hrannar kaldan stig.
Ó, fús hún ijeti lífið í lausnargjald fyrir þig.
Já, ástin unnustu þinnar, sem áður var svo heit,
blómgast með hverju bárufalli. fað blóm jeg fegurst veit.
Ó að þú værir aptur ástmey þinni hjá,
og horíá mætta’g álengdar hennar fögnuð á.
Kvöldblærinn blæs nú svo blítt um vanga mér —
skyldi það vora kvcðja, vinur minn, frá þér.
Ó, sælt er að deyja svona frá syndum og hrygð,
og hafa að eins elskað og að eins sýnt trygð.
Bleikur situr dauðinn und báru köldum fald ;
hið efra svífur engill frá æðstum himna vald.
Hann ofan í djúpið brá sér og önd þína bar til hans,
sem áður hún svo^opt var hjá, upp til Frelsarans.
E. H.
? A t vV-ð* r v // . - /
Um framfarir vorar i jarðrækt og húsabyggingu.
Eptir jústitsráð, dr. J. Hjaltalín.
II.
þ>ó framfarir vorar í raun og veru séu minni en þær ættu
að vera, þá er þó auðséð, þegar maður fer um landið, að þær
eru víða hvar að lifna við, og áhugi fólks á þeim að aukast
og verða almennari. Á stuttri ferð, er eg nýlega gjörði upp í
Borgarfjörðinn, sá eg ljós merki þessa á nokkrum stöðum, eink-
um á Leirá og í Laxnesi í Kjós. Á hinn fyrra staðinn hefi
eg optsinnis komið, og get því fullkomlega dæmt um, þvílík-
um umbreytingum hann hefir tekið; í stað hins gamla bæjar,
er þar var áður, er þar nú komið rúmgott og stórt nýbyggt
hús, sem hvar sem væri erlendis, mundi þykja fnllboðlegt
hverjum efnuðum landmanni; bóndinn þar herra þ>órður
forsteinsson er mesti atorkumaður, og getur ómögulega
hjá því farið, að hann með atorku sinni og dugnaði verði
ágæt fyrirmynd hinna næstliggjandi sveita. Hann er
einn af þeim, sem fullkomlega hefir skilið það, hvorsu nauð-
synlegt það sé, að losa oss við hina gömlu moldarkofa, sem í
mörg hundruð ár hafa verið hið mesta átumein lands þessa,
og munu verða svo, meðan þeir eru eigi niðurrifnir og alveg
eyðilagðir, svo að í stað þeirra geti komið varanlegri og holl-
ari híbýli.
En það er eigi alleina íveruhúsið, sem áðurnefndur mað-
ur hefir bætt svo mjög, heldur hefir túnið og engjarnar orðið
fyrir líkum umbótum, enda hefir og búfræðingurinn Sveinn
Sveinsson sýnt þar, hversu kringt honum er um upp á hagan-
legan hátt að bæta tún og engjar, og væri óskanda, að ísland
hefði nokkur hundruð af slíkum mönnum, því að þá mundi
útlit jarðanna verða allt annað, en það er víðast hvar enn þá
og hefir verið um hinar siðustu aldir.
— þótt pað hafi talsverðan kostnað í för með sér, að prenta með
nótum, þá hefi eg samt ráðist í, að byrja aö prenta „sálmalög“ með
þremur röddum, sem ætlast er til, að geti orðið brúkuð við söngkennslu í
skólum og á heimilum. Lögin eru búin undir prentun og yfir lesin ó-
keypis af organista Jónasi Helgasyni, sem opt hefir óskað eptir, að eg
tækist þetta á hendur, svo að skólurn yfir höfuð, og öðrum, sem læra
vilja sálma-söng, gæti gefist kostur á, að fá sem ódýrasta og hentugasta
bók, til að læra söng af, því hann telur mikil vandkvæði á, að kenna
„sálmasönginn" eins og allan annan söng, svo að hann geti komið að til-
ætluðum notum, ef slíkar bækur ekkierutil. pað er ætlast til, aðsálma-
lög pessi komi út í smá-heptum, sem svarar 2 örkum í hepti; arkið
verður selt, með hér um bil 12 lögum á, fyrir 26 aura. Til pess að
gjöra öllum sem hægast fyrir að eignast pessa bók, þá geta mcnn feng-
ið keypt hvert ark fyrir sig.
Eg veit til þess, að herra Jónas Helgason hefir fyrir stuttu sent
út um landið boðsbréf til fjórraddaðrar Choralbókar, sem hann hofir í
hyggju að láta byrja að prenta á næstkomanda vori, ef áskrifendur fást
nægilega margir; og er ætlast til, að sú bók verði brúkuð til að spila
organ eptir henni, og um leið geti orðið brúkuð þegar fjórraddaðan
sálmasöng skal kenna; hann hagar því svo til, að pau þrírödduðu lög,
sem hann nú og síðar kann að búa undir prentun, grundvallist á hinni
fyrirkuguðu fjórrödduðu útgáfu þannig: að grundvöllur harmoníunnar
verði hinn sami í báðum bókunum, og útraddirnar a: Sopran og
Bass, verði eins í hvorutveggju, svo að þeir er læra bassröddina
i hinum ofannefndu þrírödduðu lögum, ekki þurfi að læra nýja bassrödd
er hin fjórradaða kemur. Reykjavík 23. septbr. 1878.
Einar pórðarson.
— P r e s t v í g s 1 a 8. þ. m. vígði biskup landsins kand.
theol. Þorleif Jónsson prest til presthóla í Júngeyjarsýslu.
— Yeitt brauð 27. ágúst: Sandfell í Öræfum sira
Sveini Eiríkssyni á Kálfafelli.
— Óveitt brauð: Kálfafell (236,85 kr.). Árnarbæli í
Ölfusi (1438,72 kr.). Auglýst í Khöfn 31. f. m. Uppgjafa-