Þjóðólfur - 18.09.1879, Síða 3

Þjóðólfur - 18.09.1879, Síða 3
99 ekki látum |>að ásannast í verkinu að vjer viljum fram- vegis að minnsta kosti liafa hans einveldi takmarkað? Eigum vér lengur að líða honum að ræna oss fé voru og fjörvi, spilla góðum siðum og svívirða vort kristna nafn? Á liann að hafa pað ríki hér hjá oss, sem ekki skal neinn endir á verða? Nei, hryndum honum úr völdum, gjörum hann útlægan. En hvert er það vopn er hér bítur til hlítar? Sumir segja að gott og kröpt- ugt uppeldi, sé hið eina ráð sem dugi, og pví verður ekki neitað að pað er hin tryggasta undirstaða siðsam- legs lífernis, pví livað ungur nemur, gamall sér temur; en pví miður ber einnig opt út af pessu, enda mun pess lengi að bíða meðan Bakkus situr í hásætinu að unglingum yíir höfuð að tala verði veitt pað uppefdi, er gjöri peim liið rétta hóf eins og að annari náttúru. En pað er eigi sjáanlegt að neitt kröptugra vopn sé til, en öflugur, eindreginn og almennur félagsskapur, er ekki gugnar pótt sigurinn í fyrstunni verði torsóttur og seinfenginn. Vér verðum að stofna — ekki hin svo kölluðu hófsemdar — heldur Bindindisfélög, par sem vér bindumst fyrir nautn allra áfengra drykkja. Margir, sem annars kannast við skaðsemi ofdrykkjunnar og gjarnan vilja að stemmdir séu stigar fyrir henni, munu ætla að hófsemdarfélög séu einhlít til að útrýma henni. En reynslan hefur sýnt að slík félög ekki geta neinu verulegu áorkað, allra sízt hjá peim- sem sokknir era niður i djúp ofdrykkjunnar, pví pó menn vildu á- kveða eitthvert víst takmark í nautn áfengra drykkja, er menn mættu fara að og ekki lengra, mundi svo fara að margir liverjir, hvað mikið sem peir drykkju, aldrei pættust fara fram yfir hið rétta hófsemdar takmark; einn mundi kalla pað hóf, sem annar kallaði óhóf, og mundu pví hin svo kölluðu liófsemdarfélög, er aldrei gætu verið meira en að nafninu, ekki gjöra annað en ala ofdrykkjuna; með peim mundi lagður verða sá breiði og greiði alfaravegur, er flestum mundi pykja auðfarinn, en fæstir mundu hitta á hið gullvæga meðal- hóf. En hvað bindindi sgiertir, er pað einskorðað við hið eina takmark, sem ekki verður flutt til og frá eptir hvers eins geðpótta. Sá er gengur i bindindi, skuld- bindur sig par meÖ til pess alls ekki að neyta áfengra drykkja nema að svo miklu leyti sem liann í einhverju tilfelli geti verið honum svo sem læknismeðal. p>etta er einföld og óbrotin regla, sem getur forðað peim, sem annars er sólginn í áfenga drykki, fyrir peirri freist- ingu, er honum mundi búin vera, með pví að leyfa sér að bergja á pessum áfenga drykk. Iiann veit að hann hefur ekki annars að gæta, en pess, að drekka lxvorki milrið nó lítið. Yera kann pað, að drykkjumanninum í fyrstu veiti mjög erfitt að sigra girnd sína, en pví optar sem liann stenzt, freistinguna, pví liægra veitir honu að sigra sjálfan sig, unz hann fær algjörðan við- bjóð á peim drykk, er marg opt áður hefir honum til falls orðið. Ætli hann sér par á móti að lialda hóf, og neiti sér pví ekki með öllu um áfengan drykk, er hann býðst honum, má nokkurnvegin ganga að pví vísu, að hann með pessu móti gjóri elcki annað en ala girnd sína, og að svo geti farið að seinni villan verði' argari hinni fyrri. pað má virðast óparft að orðlengja meira um petta, pví hverjum sem alvarlega íhugar hversu sterkar freistingar að samfara eru víndrykkjunni, má vera pað í augum uppi, að liið vissasta meðal mót of- drykkju er bindindi. pað er að vísu kunnugt, að í ýmsum löndum hafa verið gefin út lög, er hamla skyldu ofdrykkju, og geta pau að vísu verið gagnleg til að sporna við opinberri óreglu, sé peim framfylgt með nægilegum strangleika; pó geta pau aldrei innrætt drykkjumönnum annað en prælsótta, en ekki virðingu fyrir mæti hins sanna kristilega velsæmis. En petta gjörir bindindi, að minnsta kosti hjá hverjum peim sem í pað gengur með peirri sannfæringu, að pað sé skylda bæði við sjálfan sig og aðra, og sem einsetur sér að drekka hvorki leynilega né opinberlega, og skoðar sitt bindindisloforð, svo sem órjúfanlega heitstrengingu, er liann guðs og samvizkunnar vegna ekki má yfirtroða. En pegar ræða er um bindindi svo sem hið eina áreiðanlena meðal gegn ofdrykkju, og svo sem pað, er samboðið sé frjálsum mönnum, pá kynnu margir að álíta, að ekki pyrftu aðrir en ofdrykkjumenn að ganga í bindindi; hófsemdarmennirnir mættu vera hófsemdar- menn eins og peir liefðu verið. Gjörum ráð fyrir pví að margur hver ekki purfi sjálfs sín vegna, að afsala sér nautn áfengra drykkja, hann sé sá hófsemdar og stillingarmaður, að hann sjaldan eða aldrei sjáist ölvaður og sé svo efnum búinn að hann vel geti staðizt pann kostnað, sem samfara er hófsamri víndrvkkju, heilsa hans sé svo sterk, að hann ekki hugsi að sig muni neitt saka, pó liann drekki í hófi. En hver sá, er fyrir pessa skuld ekki finnur hjá sér neina iivöt til að gjör- ast bindindismaður, liann sýnir með pví einungis pað að liann er sjálfum sér næstur, og pó í pví er sízt skyldi, sem sé í pví, að hann ekki getur fengið pað af sér, til pess að vinna að annara heill, að afsala sór með öllu nautn áfengra drykkja. En leiðum oss ekki í hug að ofdrykkjunni verði til muna útrýmt. ef peir sem kallaðir eru hófsemdarmenn, vilja leggja ofdrykkjumönn- um á herðar pá birði, er peir ekki sjálfir vilja snerta við liinum minnsta fingri. pér hófsemdarmenn, verðið að ganga á undan drykkjumönnum í pví að gjörazt bindindismenn, og ætti pað að vera yður pví auð- veldara, sem pór munuð segja að drykkjufýsin ekki liafi fengið neitt óviðráðanlegt vald yfir yður. En pað er ekki einungis svo, að hófsemdarmennirnir ættu, liafandi fyrir augum lieill og velferð sinna hrös- uðu bræðra, og allra yfir liöfuð að tala, að ganga í bindindi, heldur ættu peir einnig að gjörast bindindis- félagar, sem enn ekki hafa smakkað áfenga drykki, og ekki hafa enn af reynslunni lært að pekkja peirra töfrandi aíi; allir unglingar, sem til vits og ára eru komnir, ættu í tíma að koma í veg fyrir pað, að nokk- ur drykkjarlöngun nokkurntíma geti orðið peim yfir- sterkari. pannig mundi með tímanum upprenna siðlát og sómasamleg kynslóð og grundvöllur verða lagður til almennrar velvegnunar og framfara. En vér gptum ekki svo minnst á bindindisfélög, að vér ekki hljótum að hreifa peirri spurningu, hvernig peim bezt verði á komið, og hvernig við haldið. Hvert svar skyldi pá liggja nær en pað, að helztu menn hverrar sóknar eða sveitarfélags, svo sem prestar, hrepp- stjórar, hreppsnefndarmenn, sem og sýslumenn og lækn- ar, liver í sínum umdæmum gangi fyrstir í bindindi og livetji með sínu dæmi aði'a til hins sama. Eptir höfð- inu dansa limirnir. Láti hinir lielztu menn, svo sem kennendur æskulýðanna, leiðtogar safnaðanna, forstjórar sveita og héraða, peir er eiga að styðja að góðri reglu og siðsemi, peir er eiga að annast um lieilsu og líf meðbræðra sinna, láti peir ógjört að afsala sór nautn áfengra drykkja, er hætt við, að punnskipuð verði bindindisfélög hör á landi. En pað er vonanda, að peir, er vegna stöðu sinnar geta rnestu til leiðar kom- ið í pessu efni, láti ekki á sér standa, og að eins og peir verði fyrstir til að sjá nauðsynina — og hana hafa peir hlotið að sjá fyrir löngu síðan — svo verði peir og fyrstir til að ráða bót á henni, og að peir verði lífið og sálin 1 eflingu bindindis. En pað, sem vér viljum leyfa oss að minnast á, svo sem ómissanda til viðhalds og frekari framfara bindingisfélögum, er pað, að í hverjum hi*epp eða prestakalli, par sem eitthvex't félag hefir myndast, sé kosin foi-stöðunefnd, er liafi pá skyldu á liendi, eptir fremsta megni að útrýma allri ofdrykkju, og leiða menn til viðurkenningar á nytsemi bindindisins; og séu á ári hverju haldnir 1 eða fieiri bindindisfundir, eptir pví sem tilefni gefst tii og á peim rætt um pað er bindindi má til eflingar verða,

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.