Þjóðólfur - 16.10.1880, Síða 1

Þjóðólfur - 16.10.1880, Síða 1
32. ár. Kostar 3kr. (erlendis 4kr.), ef borgast fyrir iok ágústmán. Itejkjavik, 16. okt. 1880. H. blaJ. Eiiis og kunnngt er af síðasta tölublaSi „|>jóðólfs“ nmn eg taka við útgáfu pess blaðs frá byrjun desembermán. ]». á. og gjiira mér allt far nm, að pað verði sern bezt úr garði gjört bæði að hinn innra og binu ytra, og vona ]»ví að landar mínir sýni mér J»á velvild að kaupa blaðið ekki síður en ]>aö hefir verið keypt að undanförnu. j>eir, sem vilja koma ritgjörðum eður öðrn í „j>jóðólf“ frá nefndum tíma, eru beðnir að senda pað til herra Egilsson í Reykjavík (Cílasgow) og mun hann veita j»ví móttöku. Iipykiavi.k 1ö. októbrr 18SO. KRISTJÁN Ó. ]>OR(ÍRÍMSSON. Skólíir á Vestfjörðum. (Niðurlag). Barnaskólum er erfitt við að koma á vestur- landi nema í sjóplássum, þar er það víða hægt verk — álíka hægt og hér á Álptanes, hvað þéttbýli snertir eða hægð til að hagnýta slíka stofnun. En í öðru tilliti mæta líka mein- bugir á slíkum stöðum. í sjóplássum er venjulega mentunar- áhuginn minstur og hagur almennings, þegar á allt er litið, lakari en í meðal-sveitum. Virðast orsakir þess vera sumpart það, að sjólífinu fylgir meira ónæði, stríð og stopulleiki en sveitalífi,- og sumpart sú forna landsvenja, að til veiðistöðva treður sér tómthúsfólk, félítið og fákunnandi, sem leiðir með sér örtröð og ómennsku. Einmitt vegna þessa ástands ber hvergi hér á landi brýnari nauðsyn til að koma ment- unarstofnunum á, en í slíkum plássum, og má það kallast hróplegt skeytingarleysi og háskaleg fyrirmunun yfirvalda, O i* g e 1 i ö. „Eg er að hugsa um að skreppa suður á land, góðin mín, fyrir hann Illuga á Grund“, sagði Grímur við konu sína um leið og hann kyssti hana, því að hann hafði skroppið fram að Grund, og var nú að koma heim. «Suður á land?« sagði Ólöf kona hans og hrökk saman; «suður á land? það er ómögulegt. Nú, nú ertu að gjöra að gamni þínu». «Nei, mér er alvara. Illuga liggur á að fá mann til að fara suður til hans Jónasar, bróður sfns, og þú veizt, að eg er ekki vanur að neita því fáa, sem hann biður mig um, og sem mér er mögulegt. Hann á annað skilið af mér». « Æ, góði, farðu nú ekki að fara þetta», sagði Ólöf. ]>ú veizt það sjálfur, að þú átt ekki gott með að fara svona frá heimilinu, þegar enginn er heima, nema eg og barnii). Nú eru líka allir vegir svo óttalega vondir og vöxtur í öllum ám, og guð veit nema þér hankist eitthvað á». «Hankist eitthvað á! því læturðu svona, kona? Heldurðu þá ekki, að guð geti eins varðveitt mig á leiðinni, eins og hér heima hjá þér, og alstaðar annars staðar á jörðunni?* "AHt af er nú sarat betra að fara gætilega», sagði Ólöf, þings og þjóðar, hve lítill gaumur er slíku gefinn. Hvar hefir þjóðfélag vort ræktað sér mest af eymd og volæði, skömm og skaða? í sjóplássunum. Hvaðan hefir þjóðin fengið sér flesta umrenninga, auðnuleysingja og óreglumennn? í kring- um kaupstaði og í verplássum. Hvernig lýsir meistari Jón háttalagi manna í slíkum plássum á sinni tíð ? Nú á dögum er að vísu allt vort þjóðlíf orðið jafnara, siðaðra og upplýst- ara en var á fyrri tímum, en miklu er enn ábótavant; sá mentunarkeimur sem kominn er, hann er víða litur einn, sem fer og kemur, eða hreistur, sem ekki glóir, nema í sólskini. Yér trúum ekki á neinar af hinum háttlofuðu fraraförum þess- ara aldar, fyr en vér sjáum fasta og fjöruga skóla vera að myndast í landinu, fasta skóla, sem fólkið sjálft fæðir af sér og fóstrar, varðveitir og verndar eins og sjáaldur augna sinna. Menn skulu varast að ímynda sér, að «frelsið» — þetta tóma orð, þessi tómi vindur — flytji oss sofandi nokkra farsæld; ekki heldur megum vér treysta því, að «bækur og blöð» sé einhlýtt til að menta oss og börn vor — því síður, sem öld þessi með allt sitt bókaskvaldur er, að margra skoðun, bæði grunn og græn í andlegum efnum, það er, í trú, siðgæði og sálarþreki (karaktér); ekki heldur megum vér heimta að vor andlegu auðæfi fáist gegnum alþingislög og yfirvöld. Forin við bæjarvegginn byrgist ekki nema bóndinn fái framtak til að gjöra það sjálfur; framfarirnar, sem næst liggja, verðaaðvakna og spretta hjá oss sjálfum, ef allt á að fara með feldi og eigi þær að geta þrifist og blessast betur en «innréttingarnar» á 18. öldinni, sem utan frá komu, utan á sátu og aldrei urðu að gagni, af því þær komu ekki frá vilja og vitund vor sjálfra. Hitt er satt, að það þarf meira en lítið eitt til að rækta þann akur, sem margar aldir hefir legið í órækt, og eins og einyrkjanum einum er ofætlun að þurka upp og rækta öll fen og foræði jarðar sinnar, eins er alþýðu vorri ómögu- legn ef egin ramleik að kippa öllu í lag nema með öllum þeim kröptum sameinuðum, sem til eru,bæði utan frá og innan frá, og þó því að eins, að bæði alþýða, þíng, yfirvöld, blöð og bækur 2 og þegar menn hlaupa viljandi út í voðann, þá getur maður alls ekki átt víst, að guð taki í taumana. Að minnsta kosti hafa menn dæmin fyrir því gagnstæða*. «Já, en þetta er svo sem engin voðaför; einhvern tíma hefir maður séð annað eins; meiri hættur mega margir hafa bæði á sjó og landi. Eg er líka hræddur um að eigur okkar verði aldrei langtum of miklar, þó að eg sleppi ekki vinnu, þegar mér býðst hún, og eg hef svo sem ekkert að gjöra, og þú veizt að Illugi mun borga mér ferðina. Hann er ekki vanur að láta menn vinna fyrir sig fyrir alls ekkert». Sigurður litli stóð hjá og horfði á foreldra sína á víxl; hann var öldungis hissa, drengurinn, því að þeim hafði aldrei fyr litizt sitt hvoru, svo hann hefði heyrt. Ólöfu vöknaði um augu, en hún sagði ekki neitt meira; hún sá að það var ekki til neins. — «Vertu sæl, elskan mín», sagði Grímur daginn eptir við konu sína, þegar hann ætlaði að fara að leggja af stað í suðurferðina. Ólöf hrökk saman alveg eins og deginum áður, þegar hann minntist fyrst á ferðina. «Guð hjálpi þér», sagði hún og grét þá hástöfum. Grímur kyssti Sigurð litla, son sinn; strauk svo hendinni um glóbjarta kollinn á honum og sagði;

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.